Pressan - 28.11.1991, Blaðsíða 42

Pressan - 28.11.1991, Blaðsíða 42
Æviminningar Steingríms Hermannssonar loksins komnar út BÓKIN ER AÐEINS 24 BLABSÍÐUR MEÐ STÓRU LETRI — ég mundi bara ekki meira, — segir Steingrímur Þrátt fyrir að bókin um Steingrim sé stutt býst útgefandinn við góðri sölu. Útgerðarmaöur á Norðurlandi FÆR EKKI AB SETJA FRYSTI- KISTU UM BORÐ í BÁTINN SINN — grunum hann um að ætla að frysta aflann um borð, — segir talsmaður sjávarút- vegsráðuneytis Ef þetta mál leysist ekki strax mun áhöfnin sjálfsagt gera upp- reisn. Hún er orðin mjög leið á dósamatnum, — segir Karl Páls- son skipstjóri. Söfnun til styrktar Landsbankanum RÉTTUM BÁGSTÖDDUM HJÁLPARHÖND ÁJÓLUNUM — það eru fleiri en spörfugl- arnir sem eiga bágt, — segir Sverrir Hermannsson banka- stjóri Treystum á hlýhug landsmanna, — segir Sverrir Hermannsson 48. TÖLUBLAÐ 2. ÁRGANGUR FIMMTUDAGURINN 28. NÓVEMBER 1991 STOFNAÐ 1990 HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HUÓMAR Fortíðarvanda- happdrœtti á vegum ríkisstjórnarinnar Umfram- orka, loð- dýrabúr og súrefnis- tæki fyrir fiska — verða meðal vinninga Reykjavík, 27. nóvember_ „Hugmyndin er að draga í sjónvarpinu og reyna að hafa þetta sem Iíflegast,“ sagði Hreinn Loftsson, að- stoðarmaður forsætisráð- herra, þegar hann kynnti nýtt happdrætti sem ríkis- stjórnin hefur sett á lagg- irnar til að vinna á fortíð- arvandanum. Samkvæmt tillögum Hreins og annarra í svokall- aðri fortíðarvandanefnd verða vinningar í þessu happ- drætti ýmsir munir sem hafa safnast upp í gegnum tíðina. Þar á meðal má nefna búr fyrir 4.800 refalæður og 8.900 minkalæður, átta stykki af súrefnisjöfnunar- tækjum fyrir kvíeldi, 4 þús- und megavött af umfram- orku úr Blönduvirkjun, nokkrar prjónastofur og 1.200 tonn af kindakjöti. „Þetta dót hefur safnast upp samhliða úttekt nefndar- innar á fortíðarvandanum. Við vissum í raun ekkert hvað við áttum að gera við þetta þar til okkur datt þetta snjallræði í hug,“ sagði Hreinn. Fyrsti drátturinn í þessu happdrætti verður í sjónvarp- inu í kvöld og verður aðeins dregið úr seldum miðum. Lögreglustjórinn í Reykjavík VIKIN GASVEITIN LEIGÐ TIL KRÓATÍU — verðum að afla okkur sértekna þegar framlög af fjárlögum eru skorin niður, — segir Böðvar Bragason Reykjovík, 28. nóvember Böövar Bragason. Leigði Kró- ötum Víkingasveitina. „Jú, það er rétt. Þeir héldu utan í rnorgun," sagði Böðvar Bragason, lögreglustjórinn í Reykja- vík, þegar GULA PRESSAN bar undir hann hvort rétt væri að víkingasveit lög- regiunnar hefði verið ieigð til þjóðvarðliða í Króatíu. „Þetta embætti hefur mátt þola heiftarlegan niðurskurð á fjárframlögum á undan- förnum árum. Við urðum því að grípa til einhverra að- gerða,“ sagði Böðvar. Seðlabanki Islands Leysir til sín Stjórnarráðið — verðum að gœta hagsmuna bankans, — segir Jóhannes Nordal Reykjavík, 27. nóvember „Við áttum einfaldlega ekki annarra kosta völ. Yfirdráttur ríkisins var orðinn geigvænlegur og við hefðum ekki gætt hagsmuna bankans ef við hefðum látið þetta viðgangast öllu lengur,“ sagði Jóhannes Nordal, bankastjóri Seðlabank- ans, í samtali við GULU PRESSUNA, en bankinn leysti til sín Arnarhvál og Stjórnarráðið í morg- un og færði niður skuld- ir ríkissjóðs við bank- ann á móti. Friðrik Sophusson flutti skrifstofu sína upp i Ármúlaskóla i morgun. „Það var einfaldlega ekki hægt að líða þetta lengur,“ sagði Jóhannes. „Það er náttúrlega hálf- skammarlegt að missa svona höfuðstöðvarnar," sagði Friðrik Sophusson fjármálaráðherra, „en við þessu er ekkert að gera. Ég er að pakka niður núna og mun flytja skrifstofuna upp í Ármúlaskóla. Það hvílir ekki svo mikið á því hús- næði." En hvad œtlar bankinn að gera við Stjórnarráðið og Arnarhvál? „Markaðsverðið á skrif- stofuhúsnæði er ekki hátt sem stendur," sagði Jó- hannes Nordal. „Við mun- um því reyna að nýta þetta húsnæði fyrir bankann sjálfan. En áður en af því getur orðið munum við al- deilis þurfa að taka til hend- inni, því húsin eru bæði í hálfgerðri niðurníðslu." Hann sagði að komið hefði til tals að hækka þjónustu- gjöld embættisins en verið horfið frá því. „Ef greiðslur fyrir gistingu í fangaklefunum hér ættu að standa undir hallanum á embættinu þyrfti nóttin að kosta um 78 þúsund krónur. Sú upphæð er einfaldlega allt of há fyrir viðskiptavini. Kaupmáttur þeirra er ekki nægur,“ sagði Böðvar. Sökum þessa var gripið til þess ráðs að leita tilboða í leigu á Víkingasveitinni. „Við fengum fyrirspurnir víða að en Króatarnir voru tilbúnir að borga mest. Ef strákarnir standa sig vel má síðan gera ráð fyrir að þeir verði eftirsóttari og verðið hækki," sagði Böðvar Braga- son. Reykjavík, 28. nóvember Nágrannar forsœtisráðherra Davíð bnrt úr hverfinn — ótrálegt ónœði síðan þessi maður skipti um vinnu, — segir Gísli Kjartansson, nágranni ráðherrans. á þessum mönnum þar sem þeir voru að taka viðtal við ráðherrann. Það sér það hver maður í hendi sér að venju- legt fólk getur alltaf verið uppábúið og þannig til haft að það sé tilbúið að ganga beint inn í útsendingar sjón- varpsstöðvanna," sagði Gísli. Hann sagðist hafa fengið áfall þegar hann sá fréttirnar í sjónvarpinu um kvöldið. Þá hefði glögglega mátt sjá hann læðast framhjá ráðherranum á leið í bakaríið, órakaðan og með hárið eins og strý út í loftið. „Ég get ekki lengur búið við þetta álag,“ sagði Gísli. „Það þorir orðið ekki nokkur maður á heimilinu að fara út fyrir hússins dyr af ótta við að verða sendur samstundis í beinni útsendingu inn á hvert heimili á landinu." „Það er álit mitt að svona ónæði og umstang eigi ekki heirna í íbúðarhverfi. Við krefjumst þess að ónæðinu linni eða maður- inn flytji heimili sitt að öðrum kosti í verslunar- eða iðnaðarhverfi,“ segir Gísli Kjartansson, ná- granni Davíðs Oddssonar forsætisráðherra, en hann hefur safnað undirskrift- um meðal nágranna sinna þar sem skorað er á ráð- herrann að flytja burt. „Frá þvi hann tók við emb- ætti hefur margsinnis komið fyrir að kvikmyndatöku- menn frá báðum sjónvarps- stöðvunum hafa verið fyrir utan húsið hjá honum. Um daginn ætlaði ég að skreppa út í bakarí á sunnudags- morgni en gekk beint í flasið cordata IO áf<i cifmceli/tilboð 80386-16 örgjörvi IMbminni 42Mb diskur 1.44Mb 3.5" drif VGA litaskjár 101 hnappa lyklaborð Genius mús Windows 3.0 MS-DOS 4.01 kr. 99.900 staögreitt Sumum finnst 10 ára afmælistilboðið okkar lyginni likust, enda jafn ótrúlegt og annað á þessari síðu. Þú getur komist að hinu sanna í þessu dularfulla tilboðsmáli. Notaðu tækifærið, líttu við eða hringdu! MICROTÖLVAN Suðurlandsbraut 12 - sími 688944 - fax 679976

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.