Pressan - 06.08.1992, Qupperneq 11
I
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6.ÁGÚST 1992 11
Hitnar í kolunum á Stöð 2
Minnihlutamenn í Fjölmiðlun íhuga að kæra sölu hlutabréf-
anna til Rannsóknarlögreglu ríkisins. Félaginu verður slitið á
morgun, en hluthafafundur í Stöð 2 fjallar um önnur hluta-
bréfakaup sem rifist er um. Jóhann J. Ólafsson sleit stjórnar-
fundi í skyndingu áður en tækist að mótmæla „valdaráninu“.
Jóhann J. Ólafsson
stjórnarformaður
Stöðvar 2 og
Fjölmiðlunar.
Forystumaður
í„valdaráni"
fjórmenninga-
klíkunnar.
I dag verður tekin fyrir hjá
sýslumanninum í Reykjavík krafa
um lögbann á sölu 150 milljón
króna hlutar Fjölmiðlunar sf. í fs-
lenska útvarpsfélaginu (Stöð 2),
sem vakið hefúr heiftúðugar deil-
ur. Það er ViSar Már Matthíasson
lögmaður sem fer fram á þetta
fyrir hönd þeirra Ásgeirs Bolla
Kristiussonar í versluninni Sautj-
án, Garðars Siggeirssonar í Flerra-
garðinum, Ölafs N. Sigurðssonar
hjá Alþjóða líftryggingafélaginu
og Jóhanns Óla Guðmundssonar í
Securitas. Nú er kannað hvort sal-
an stangist á við ákvæði hegning-
arlaga um umboðssvik og sam-
kvæmt staðfestum heimildum
blaðsins er til athugunar að leggja
frarn kæru til Rannsóknarlögreglu
rtkisins á hendur stjórn Fjölmiðl-
unar sf., þeim Jóhanni J. Ólafssyni,
Jóni Ólafssyni og Haraldi Haralds-
syni í Andra, fyrir umboðssvik.
JÓHANN SLEIT FUNDI í
SKYNDINGU
Eins og vænta mátti var raf-
magnað andrúmsloftið á síðasta
stjórnarfúndi Stöðvar 2, sem hald-
inn var á fimmtudag fyrir viku.
Þar var meðal annars til umræðu
tilboð frá Sigurjóni Sighvatssyni
mn kaup á 37 milljóna króna hlut
sem enn er óseldur í félaginu. Það
var varaformaður stjórnar, Jó-
hann Óli, sem kynnti þetta tilboð,
sem hljóðaði upp á gengið 1,6,
sama verð og bréf Fjölmiðlunar
voru seld á. Þegar hann hafði lok-
ið máli sínu tóku þeir til máls hver
af öðrum Páll Kr. Pálsson, Stefán
Gunnarsson og Rafii Johnson (sem
sat fundinn sem varamaður) og
lýstu sig samþykka því að tilboð-
inu yrði tekið. Þetta staðfestu þeir
með handauppréttingu og undir-
skriff sinni á tilboðið.
Þar með hafði meiri hluti
stjórnar samþykkt tilboðið, en
stjórnarformaðurinn, Jóhann J„
skýrði ffá því að í gangi væru við-
ræður við aðra aðila erlendis, þar
sem byðist gengið 2 eða 3 og því
væri ekki rétt að taka tilboði Sig-
urjóns. Þeir, sem samþykktu til-
boðið, telja að því hafi verið tekið
og einungis sé effir að borga fyrir
hlutaféð, en stjórnarformaðurinn
telursvoekkivera.
Þetta verður til umræðu á hlut-
hafafundi sem boðað er til næst-
komandi miðvikudag, 12. ágúst.
Ekki eru önnur mál á dagskrá og
ekki hægt að ræða neitt annað,
samkvæmt reglum um boðun
hluthafafunda. Ef salan reynist
hafa farið frarn mun hlutafé Sigur-
jóns ráða úrslitum um valdahlut-
föll í félaginu, þar sem hlutföll
fylkinga eru nú affur stál í stál eftir
söluna á hlut Fjölmiðlunar til fyr-
irtækis í tengslum við Jóhann J. og
félaga. Nýr lúuthafi fær þó ekki at-
kvæðisrétt fyrr en tveimur vikum
eftir að kaupin hafa verið gerð,
svo að Sigurjón gæti hvort eð er
ekki beitt atkvæðaafli á fúndinum
á miðvikudag.
f lok stjórnarfundarins fyrir
viku var borin fram tillaga þess
efnis að stjórn Stöðvar 2 lýsti sig
andvíga sölunni á hlut Fjölmiðl-
unar, en félagið átti (eða á enn)
sjálff sex milljón króna hlut þar.
Fram hafði komið krafa frá kaup-
andanum, Útherja hf„ um að
hluthafaskrá yrði breytt, og vildu
tillöguflytjendur lýsa andstöðu
stjórnar við það. Stjórnarformað-
urinn, sem seldi sjálfúr hlut Fjöl-
miðlunar, tilkynnti þá að málið
væri ekki á dagskrá og sleit fúndi
með það sama. Hluthafaskránni
hefúr enn ekki verið breytt.
SVEIK FORMAÐURINN FÉ-
LAGIÐ?
Jóhann J. Ólafsson stóð að sölu
á hlut Fjölmiðlunar til Útherja hf.
sem formaður stjórnar Fjölmiðl-
unar. En hann er einnig stjómar-
formaður íslenska útvarpsfélags-
ins, sem átti ofangreindar sex
milljónir af hinu selda hlutafé.
Hluturinn var seldur á genginu
1,6, en um leið segir hann að
gengið 2 til 3 bjóðist í óselda hlut-
inn sem hann vildi ekki selja Sig-
urjóni Sighvatssyni. f samtölum
við blaðið undruðust hluthafar í
Stöð 2 þessa ráðstöfún og töldu að
með því hefði Jóhann ekki gætt
hagsmuna Stöðvar 2, að selja
hlutafé þess á 1,6 til kunningja
sinna þegar til boða stæði 2 til 3
annars staðar. „Stjórnarformað-
urinn hefúr þá grundvallarskyldu
að gæta hagsmuna félagsins,“
sagði stór hluthafi í Stöð 2 í sam-
tali við PRESSUNA, sem notaði
orðið „þjófnað“ íþessu samhengi.
ATBURÐARÁSIN í „VALDA-
RÁNINU“
Deilan sem nú stendur um söl-
una á hlut Fjölmiðlunar í Stöð 2 á
sér nokkuð langa og flókna sögu.
Samkvæmt staðfestum heimild-
um PRESSUNNAR var atburða-
rásin þessi í mjög grófum drátt-
um:
30. janúar tilkynntu þeir Skúli
Jóhannesson í TéÚ<-kristal og Bolli
í Sautján með bréfi, sem sent var
til allra í Fjölmiðlun, að þeir
myndu krefjast slita á félaginu eft-
ir 1. júlí eins og heimilt er sam-
kvæmt stofnsamningi félagsins.
Þetta var gert til þess að undirbúa
mætti slitin og gera ráðstafanir til
að afhenda félagsmönnum hluta-
bréf sín.
I lok maí hringdi Jóhann J. Ól-
afsson í Bjarna Kristjánsson fjár-
málastjóra Stöðvar 2 og fól starfs-
fólki hans að undirbúa útgáfu
nýrra hlutabréfa í samræmi við
eignarhlut aðila í Fjölmiðlun, svo
að þau mættu vera tilbúin til af-
hendingar sem fyrst. Samkvæmt
upplýsingum Bjarna og Páls
Magnússonar sjónvarpsstjóra var
þegar hafist handa við þetta, en
prentun tafðist vegna þess að fjar-
lægja þurfti merki útvarpsstöðv-
arinnar Stjörnunnar af bréfúnum,
en hún hafði þá verið seld.
9. júní var samþykkt sam-
hljóða á fundi í Fjölmiðlun að
skipta milljónunum 150 á milli fé-
lagsmanna í samræmi við eignar-
hlut. Þennan fund sat meðal ann-
arra Gunnar Þór Ólafsson, síðar
stofnandi Útherja hf, en einnig
samstarfsmaður Haraldar í
Andra. Reiknað var með að til-
gangi Fjölmiðlunar yrði breytt, frá
því að eiga hlut í Stöð í það að
reka skaðabótamál á hendur
Eignarhaldsfélagi Verslunarbank-
ans vegna eldri viðskipta.
27. júní kaupa Áramót hf. 100
milljóna hlut Eignarhaldsfélags
Verslunarbankans í Stöð 2. Á
sama tíma rennur út samningur
um að meirihlutinn í Fjölmiðlun
geti farið með atkvæði hlutfjár
allra félagsmanna. Þar með virtist
að „fjórmenningaklíkan", Jóhann
J. og félagar, væru að missa meiri-
hluta sinn í Stöð 2.
30. júní stofnar Gunnar Þór
Útherja hf. með 499.990 króna
hlutafé á móti tíu krónum Páls
Gústafssonar.
27. júlí selur stjórn Fjölmiðlun-
ar, þrír úr „fjórmenningaklíkunni“
(fjórða hjól undir vagni er Guðjón
Oddsson), Útherja hf. allt hlutafé
Fjölmiðlunar fyrir 240 milljónir
króna. Þess er ekki getið í samn-
ingnum hveijar tryggingar eru.
Síðdegis 28. júlí hringir Jó-
hann J. í Pál Magnússon og til-
kynnir að stjórn Fjölmiðlunar hafi
tekið ákvörðun sem ógildi fyrri
fyrirmæli um að undirbúa skipt-
ingu hlutaQárins á milli félags-
manna.
Þeir Bolli og Skúli kröfðust
aldrei formlega slita á félaginu eins
og þeir höfðu boðað, en í ljósi þess
að stjórnarformaður hafði gefið
fyrirmæli um að undirbúa skipt-
ingu hlutafjárins líta lögffóðir svo
á að þeir hafi verið í góðri trú um
að þeir fengju hlut sinn afhentan.
Áð auki benda lögfræðingar,
fróðir í félagarétti, á að í tilkynn-
ingu til firmaskrár sé tekið fram
að enginn hafi prókúrurétt fyrir
félagið og þar með ekki heimild til
að ráðstafa eigum þess í daglegum
rekstri. Firmað rita auk þess ailir
félagsmenn, sameiginlega, eins og
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður
þess ritaði eiginhendi á tilkynn-
inguna.
ÍHUGAÁKÆRU
Minnihlutinn í Fjölmiðlun sf.
leitar nú allra lagalegra leiða til að
fá meintri sölu hlutafjárins rift.
Eins og áður greinir hefur verið
lögð fram lögbannsbeiðni og
verður hún fyrst tekin fyrir í dag.
Þar mætir Viðar Már fyrir hönd
þeirra, en Sigurður G. Guðjónsson
fyrir hönd bæði Fjölmiðlunar og
Utherja hf.
Ef lögbannið nær ekki fram að
ganga eiga þeir minnihlutamenn
enn að minnsta kosti tveggja
kosta völ: að fara í riftunarmál,
sem gæti tekið tvö eða þrjú ár,
og/eða kæra þá þremenninga til
Rannsóknarlögreglunnar. Jóhann
Óli hefur opinberlega kallað söl-
una umboðssvik og vísað þar til
249. greinar hegningarlaga, sem er
svohljóðandi:
„Ef maður, sem fengið hefur
aðstöðu til að gera eitthvað, sem
annar maður verður bundinn við,
eða hefur fjárreiður fyrir aðra á
hendi, misnotar þessa aðstöðu
sína, þá varðar það fangelsi allt að
tveimur árum og má þyngja refs-
inguna, ef mjög miklar sakir eru,
allt að 6 ára fangelsi.“
PRESSAN hefur upplýsingar
um að nú íhugi minnihlutamenn
hvort ástæða er að leggja fram
formlega kæru til Rannsóknarlög-
reglunnar.
Andstæðingar „fjórmenninga-
klíkunnar“ hafa gefið í skyn að
þeim félögum sé í mun að missa
ekki völdin í Stöð 2 vegna þess að
þeir „hafi eitthvað að fela“ eins og
PRESSAN hafði eftir Skúla í síð-
ustu viku. Vitað er að yfir stendur
rannsókn á viðskiptum hluthafa
við Stöð 2 og hafa ítrekað komið
fram athugasemdir við viðskipti
Jóns Ólafssonar við fyrirtækið.
Fyrr í vetur samþykkti stjórnin
sérstakar reglur um hvað má og
hvað ekki í viðskiptum stjórnar-
manna við fyrirtækið.
SAMEIGNARFÉLAG DEYR
Þótt því ráði lagaflækjur hver
verða endalok þessa kostulega
máls, en víst er að sameignarfélag-
ið Fjölmiðlun hefur runnið skeið
sitt á enda. Á morgun, föstudag,
verður haldinn fundur í félaginu
og liggur fyrir krafa frá Bolla í
Sautján um að félaginu verði slit-
ið. Samkvæmt stofnsamningi er
skylt að verða við þeirri beiðni.
Líklegt þykir að um leið verði hætt
við að fara í skaðabótamál gegn
Eignarhaldsfélaginu.
Minni hlutinn telur slit félags-
ins engu breyta um ábyrgðina
sem stjórnarmenn bera á sölu
hlutafjárins og mun málarekstri
og kærum verða haldið til streitu
þótt félagsskapurinn verði löngu
farinn veg allrar veraldar.___
Karl Th. Birgisson
Jóhann Óli Guðmundsson varaformaður stjórnar Stöðvar 2. Meiri-
hluti stjórnar samþykkti tillögu hans um sölu hlutafjár til Sigurjóns
Sighvatssonar.