Pressan - 06.08.1992, Qupperneq 16
16
FIMMTUDAGUR PRE5SAN 16. JÚLI' 1992
Fólk er fylgjandi kvnlíli
twrlr hiónaband on
netnaðarvðmum en
nokkur andstaða er við
fósturevðingar. mlkil
andúð gagnvart samkvn-
heigðum og enn meiri
nean framhiáhaldi
sent, var algjörlega andsnúinn
fóstureyðingum og dregur hann
meðaltalið mjög mikið niður. f
stað þess að finna út meðaltalsaf-
stöðu til fóstureyðinga er því ef til
vill eðlilegra að segja að afstaða
fólks til þeirra skiptist mjög í tvö
horn; þótt fylgjendur hennar séu
áberandi fleiri.
FRAMHJÁHALD
Næst voru þátttakendur spurð-
ir um afstöðu sína til framhjá-
halds. Til að gera langa sögu stutta
sögðust 76 prósent aðspurðra
hafa mjög neikvætt viðhorf til
þess. Og 9 prósent til viðbótar
sögðust hafa frekar neikvætt við-
horf til framhjáhalds. Samanlagt
fe eru það því 85 prósent lands-
5 manna sem hafa frekar neikvætt
I eða mjög neikvætt viðhorf til
Z framhjáhalds.
8 Á hinum endanum sögðust 2
Jj prósent hafa mjög jákvætt viðhorf
01 til framhjáhalds og 1 prósent til
I
s
Þorvaldur Kristinsson, formað-
ur Samtakanna ’78, segir það við-
horf íslendinga til samkynhneigð-
ar er ffam komi í könnuninni ekki
koma sér á óvart, en rúmlega 60
prósent þeirra er afstöðu tóku
kváðust neikvæðir í garð samkyn-
hneigðra. „Mér sýnast þetta vera
nokkuð svipaðar niðurstöður og
fengist hafa úr samnorrænum
skoðanakönnunum sem unnar
hafa verið um viðhorf til samkyn-
hneigðra hér og á hinum Norður-
löndunum. Engu að síður eru
þetta háskalegar tölur sem sýna
svo ekki verður um villst, að við
eigum enn mjög langt í land með
að öðlast viðurkenningu í þjóðfé-
laginu. Því er full þörf á því að
samkynhneigðir á Islandi standi
saman og berjist fyrir rétti sín-
um“.
Þorvaldur kveðst reyndar vera
þeirrar skoðunar að það geti
stuðlað að ranghugmyndum um
samkynhneigða þegar spurning
um viðhorf til þeirra sé lögð fram
ásamt spurningum um almenna
kynhegðun landsmanna. „Þó að
oftast sé einblýnt á kynlíf samkyn-
hneigðra í allri almennri umræðu
þá snýst málið um annað og
meira, nefnilega það að fólk af
sama kyni fái að elskast og njóta
eðlilegs íjölskyldulífs sem homm-
ar og lesbíur“.
Þorvaldur Kristinsson, formaður
Samtakanna '78.
viðbótar sögðust hafa frekar já-
kvætt viðhorf til fyrirbrigðisins.
Þessi hópur fólks er því rúmlega
28 sinnum minni en sá hópur sem
er þveröfugrar skoðunar.
Það voru 12 prósent þáttak-
enda sem lentu þarna mitt á milli.
Ef meðaltalsviðhorf landsmanna
til framhjáhalds er síðan sett í ein-
kunnatöfluna gefa þeir framhjá-
haldinu 1,1 í einkunn. Það telst
öruggt fall.
KYNLI'F FYRIR HJÓNABAND
fslendingar eru hins vegar mun
jákvæðari í garð kynlífs fyrir
hjónaband og skal kannski engan
undra. Þegar þáttakendur voru
inntir eftir viðhorfi sínu til þess
sagðist helmingurinn eða 50 pró-
sent hafa mjög jákvæða afstöðu til
kynlífs fyrir hjónaband. Og 24
prósent til viðbótar sögðust hafa
frekar jákvæða afstöðu til þess.
Samanlagt eru það því 74 prósent
þáttakenda sem sögðust hafa frek-
ar jákvætt viðhorf eða mjög já-
kvætt viðhorf til kynlífs fýrir
hjónaband.
Á hinn bóginn sögðust 9 pró-
sent þáttakenda sig algjörlega
andsnúna kynlífi fyrir hjónaband.
Til viðbótar því sögðust 3 prósent
hafa frekar neikvætt viðhorf til
þess. Samanlagt eru því 12 pró-
sent landsmanna með mjög nei-
kvætt eða frekar neikvætt viðhorf
til kynlífs fyrir hjónaband.
Aðeins stærri hópur, eða 14
prósent, var meira beggja blands.
Heldur stærri hluti hans taldi sig
þó ffemur jákvæðan til fyrirbrigð-
isins.
Og ef við höldum áfram að gefa
þessum þáttum meðaltalsein-
kunnir fær kynlíf fyrir hjónaband
7,9 í meðaleinkunn frá þátttak-
endum. Almennt hefur fólk því
frekar jákvætt viðhorf til þess. Það
er alménnt viðurkennt.
AÐ GETNAÐARVÖRNUM SÉ
HALDIÐ AÐ UNGLINGUM
Það þarf ef til vill ekki að koma
á óvart en afstaða fólks til þess
hvort halda skyldi getnaðarvörn-
um að unglingum var mjög svip-
uð. Aftur var það helmingur, eða
Samkynhneigð
100%-----------------
80-------------------
60-------------------
40
0123456789 10
mjög jákvætt viðhorf til þess. Og
þeir sem sögðust hafa frekar já-
kvætt viðhorf voru 27 prósent.
Samanlagt sögðust því 77 prósent
hafa ffekar eða mjög jákvætt við-
horf til þess að getnaðarvörnum
væri haldið að unglingum.
8 prósent þátttakenda voru
hins vegar algjörlega andvígir því
að getnaðarvömunum væri hald-
ið að unglingum. Og 2 prósent til
viðbótar sögðust vera því frekar
andsnúin. Það em því rétt 10 pró-
sent sem eru ffekar eða mjög and-
víg því að getnaðarvörnum sé
haldið að unglingum.
12 prósent voru síðan þarna
mitt á milli. Og meðaltalseinkunn-
in varðandi þetta atriði er 8,1. Al-
mennt er fólk því frekar fylgjandi
að getnaðarvörnum sé haldið að
unglingum.
SAMKYNHNEIGÐ
Hins vegar virðist fólk hafa allt
annað viðhorf til samkynhneigð-
ar. Þegar þáttakendur vom beðnir
að lýsa viðhorfi sínu til hennar,
lýstu 36 prósent afstöðu sinni með