Pressan - 06.08.1992, Side 19
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6.ÁGÚST 1992
19
Launaþróun milli áranna 1990 og 1991
Verkalýðstoppar
og forstjórar
HÆKKUÐV
MEIRA en
Hörður Sigurgestsson aflar mánaðarlega sambærilegra tekna og
þrettán verkakonur sem þéna um 80.000 krónur á mánuði. Stefán
Friðfinnsson, forstjóri íslenskra Aðalverktaka, er hins vegar sá sem
fékk mesta launahaekkun á milli ára, eða um 53,7 prósent. Rétt er
þó að geta þess, að hluta hækkunnarinnar má rekja til þess að hann
Samkvæmt skattframtölum ársins 1991 hafa laun helstu framámanna í verkalýðshreyfingunni
hækkað um 10,6 prósent að meðaltali, á meðan laun fólks í aðildarfélögum ASÍ hafa einungis
hækkað um 8,2 prósent. En þetta segir ekki alla söguna, því ef litið er á mánaðarlaun þessara
tveggja hópa sést, að meðallaun verkalýðsforkólfa voru rúmar 365.000 krónur árið 1991, fram-
reiknað til dagsins í dag, á meðan launafólk í Alþýðusambandi Islands þénaði rétt um 105.000
krónur á mánuði sama ár ef marka má útreikninga Kjararannsóknarnefndar.
Laun forstjóra í helstu stórfyrirtækjum landsins virðast einnig hafa hækkað umtalsvert frá árinu
1990. Það ár voru meðaltekjur þeirra tíu forstjóra, sem PRESSAN framreiknaði til núgildandi
verðalags, um 825 þúsund krónur en árið 1991 hækkuðu laun flestra þeirra nokkuð eða í rétt tæp-
ar 919 þúsund krónur á mánuði, sem jafngildir um 14,4 prósenta launahækkun.
var aðstoðarmaður untanríkisráðherra fram á mitt ár 1990.
Þegar einstakir forstjórar eru
skoðaðir nánar, kemur í ljós að
meðaltalið er nokkuð villandi.
Sigurður Helgason yngri, forstjóri
Flugleiða, Kristinn Björnsson, for-
stjóri Skeljungs, Stefán Friðfinns-
son forstjóri Islenskra Aðalverk-
taka, Thor Ó. Thors, stjórnarfor-
maður sama fyrirtækis og Magn-
ús Gunnarsson, fyrrverandi for-
stjóri SÍF hækkuðu allir umtals-
vert í launum á síðasta ári. Launa-
hækkanir þeirra Kristins og Stef-
áns skera sig þó verulega frá
hækkunum hinna í forstjórkörf-
unni. Mánaðarlaun hins fyrr-
nefnda hækkuðu úr rúmum 592
þúsund krónum, árið 1990, í tæp-
ar 894 þúsund krónur á síðasta
ári, en það jafngildir um 51 pró-
senta launahækkun. Kristni er þó
skákað af Stefáni Friðfinnssyni,
því laun Stefáns, sem nýlega var
ráðinn forstjóri íslenskra Aðal-
verktaka, hækkuðu um tæp 54
prósent ef verðgildi þeirra er
framreiknað samkvæmt nýjustu
framfærsluvísiölu, úr 580 þúsund
krónum í 892 þúsund krónur á
milli ára. Rétt er þó að geta þess
að mánaðarlaun reiknuð út ff á út-
svari viðkomandi manna segja
ekki nauðsynlega til um vinnu-
laun þeirra, heldur taka einnig til
allra skattskyldra tekna á árinu.
Þó ber að hafa í huga að ýmsar
tekjur eru ekki skattskyldar, til að
mynda fjármagnstekjur.
Thor enn tekjuhæstur
Thor Ó. Thors, stjómarformað-
ur fslenskra Aðalverktaka heldur
enn efsta sætinu yfir tekjuhæstu
menn í forstjórakörfunni, þrátt
fyrir að hafa látið forstjórastöðuna
til Stefáns Friðftnnssonar nú fýrir
skemmstu. Á móti kemur að nú
gegnir hann stöðu stjórnarfor-
manns og ekki ólíklegt að hann
þiggi svipuð laun fyrir hana og
forstjórastöðuna. X síðasta ári
hafði hann um eina milljón og tvö
hundmð þúsund krónur í laun á
mánuði. Næst á eftir honum
koma þeir Hörður Sigurgestsson,
forstjóri Eimskips, með eina millj-
ón og sextíu og sex þúsund krón-
ur, og Guðjón B. Ólafsson, for-
stjóri SÍS, með eina milljón og sjö-
tíu og þrjú þúsund. í raun kemur
nokkuð á óvart að laun Guðjóns
skuli hafa hækkað um 6,3 prósent
ffá 1990 ef staða Sambandsins er
höfð í huga. Eini forstjórinn sem
bar minna úr bítum í fyrra en árið
þar á undan er Gunnar M. Hans-
son, forstjóri IBM á íslandi, en á
síðasta ári drógust mánaðarlaun
hans saman um 20 prósent. Þó
má vel vera að aukagreiðslur af
einhverju tagi gefi brenglaða
mynd af tekjum hans árið 1990.
Verkalýðsforustan hækkar
umfram umbjóðendur sína.
Athygli vekur að þeir sem á sín-
um tíma sömdu um þjóðarsátt í
íslensku atvinnuh'fi fengu umtals-
verðar launahækkanir á síðasta
ári og eru í flestum tilfellum mun
hærri en launahækkanir al-
mennra launþega. Laun sex-
menninganna, þeirra Ásmundar
Stefánssonar, Guðmundar J. Guð-
mundssonar, Magnúsar L. Sveins-
sonar, Ögmundar Jónassonar,
Björns M. Arnórssonar og Þórar-
ins V. Þórarinssonar, hækkuðu að
meðaltali um 10,6 prósent á síð-
asta ári, á meðan launþegar fengu
aðeins rúmlega 8 prósenta hækk-
un að núvirði. Fremstur í flokki er
ögmundur Jónasson með 18 pró-
senta launahækkun. Á síðustu
tveimur árum fóru laun hans úr
rúmum 187 þúsund krónum í ríf-
lega 220 þúsund á mánuði. Ás-
mundur hækkaði um 13 prósent
en þeir Bjöm M. Arnórsson og
Þórarinn V. Þórarinsson um 15
prósent. Hins vegar hækkuðu þeir
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar og Magnús
L. Sveinsson, framkvæmdastjóri
VR, töluvert minna en hinir. Laun
Guðmundar hækkuðu aðeins um
1 prósent og laun Magnúsar um
1,6 prósent. Þó er vert að benda á,
að þeir félagar hafa samt sem áður
mun hærri tekjur á mánuði en al-
mennir launþegar í VR og Dags-
brún, en Guðmundur þáði tæpar
242 þúsund krónur á mánuði í
fyrra og Magnús 468 þúsund
krónur, sem er mun hærra en
flestir aðrir innan Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur geta
gert sér vonir um að fá fyrir vinnu
sína.
Eins og sjá má í töflunni hækk-
uðu laun Þórarins V. Þórarins-
sonar um 15 prósent á milli ár-
anna 1990 og 1991 eða úr tæpum
527 þúsund krónum í um 608
þúsund krónur á mánuði að með-
altali. Þetta merkir að um átta
verkakonur þurfi til að afla sam-
bærilegra launa ef þær fá 80 þús-
und krónur á mánuði. Þegar með-
allaun forstjóranna eru reiknuð á
sama hátt kemur í ljós að þeir eru
að jafnaði tíu verkakvenna makar,
það er um tíu verkakonur þarf til
að ná upp í meðallaunin 918 þús-
und á mánuði.
Þjóða rsá tta rfó I kið
Nafn Laun 1990 (þús. kr.) Laun 1991 (þús. kr.) Hækkun %
ÁsmundurStefánsson 344.700 389.600 13,0
GuðmundurJ. 239.200 241.700 1,0
Magnús L. Sveinsson 460.900 468.200 1,6
ÖgmundurJónasson 187.200 220.400 18,0
Björn M. Arnórsson 227.700 263.000 15,0
Þórarinn V. Þórarinsson 526.800 608.200 15,0
Meðaltal: 331.100 365.200 10,6
Meðallaun
launþega innan ASÍ: 97.299 105.326 8,2
Ásmundur Stefánsson og Ögmundur Jónasson. Laun þeirra hækk-
uðu um 13 og 18 prósent á milli ára, á meðan laun almennra félags-
manna í verkalýðshreyfingunni jukust aðeins um rúm átta prósent á
sama tíma.
Forstjórar
Nafn Laun1990 Laun1991 Hækkun
(þús. kr.) (þús. kr.) %
Hörður Sigurgestsson (Eimskip) 1.047.200 1.066.600 1,8
GunnarM. Hansson (IBM) 1.035.900 828.500 -20,0
Guðjón B. Ólafsson (SÍS) 1.009.000 1.073.042 6,3
Sigurður Helgason (yngri, Flugl.) 759.800 865.700 13,9
Brynjólfur Bjarnason (Granda) 759.800 760.700 0,1
Ingimundur Sigfusson (Heklu) 606.800 620.100 2,2
Kristinn Björnsson (Skeljungi) 592.200 894.900 51,0
Stefán Friðfinnsson (Aöalverktakar) 580.100 892.100 53,7
ThorÓ.Thors (Stj.form.Aðalverkt.) 1.096.500 1.270.100 15,8
MagnúsGunnarsson 768.000 918.200 19,5
Meðaltal: 825.370 918.994 14,4
Meðallaun laun- þega innan ASÍ: 97.229 105.326 8,2