Pressan - 06.08.1992, Síða 24

Pressan - 06.08.1992, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. ÁGÚST 1992 PRESSAN Útgefandi Blað hf. Ritstjóri GunnarSmári Egilsson Fjármálastjóri Kristinn Albertsson Auglýsingastjóri Sigríður Sigurðardóttir Dreifingarstjóri Haukur Magnússon Að hækka sín laun meira en umbjóðendanna f PRESSUNNI í dag kemur fram að laun nokkurra forystumanna í verkalýðshreyfmgunni hækkuðu nokkuð umfram laun umbjóðenda þeirra á milli áranna 1990 og 1991. Á þessum tíma brýndu þeir fýrir launþegum að sætta sig við litlar kauphækkanir. Það væri eina færa leið- in til að vinna bug á verðbólgu sem aftur væri forsenda þess að hægt væri að byggja upp kaupmátt til framtíðar. Þrátt fyrir að verkalýðsforkólfun- um hafi mörgum tekist vel upp við að matreiða þessa kenningu ofan í umbjóðendur sína virðast þeir ekki hafa skilið hana sjálfir. Alla vega tóku þeir ekkert tillit til hennar varðandi eigin laun. Það kom ffam í fféttum fýrir nokkrum vikum að ein af forsendunum bak við kolvitlausan úrskurð Kjaradóms voru laun þessara sömu for- ystumanna verkalýðshreyfingarinnar. Þeir voru það mun betur launaðir en æðstu embættismenn ríkisins að Kjaradómur komst að þeirri niður- stöðu að ekki væri stætt á öðru en hækka laun embættismannanna til að þeir myndu hanga í verkalýðsforkólfunum. Nú heldur það sjálfsagt ekki vöku fýrir mörgum utan Kjaradóms hvort ráðherra hafi helming eða sjötíu prósent af launum verkalýðsfor- manns. Umbjóðendur þeirra ættu miklu fremur að hafa áhyggjur af því að laun þeirra eru næstum fjórum sinnum hærri en þeirra launþega sem þeir semja fýrir. Og á tímum lágmarkshækkana á launum, hækka laun forystumannanna helmingi meira en umbjóðenda þeirra. PRESSAN hefur skrifað nokkuð um rekstur verkalýðshreyfingarinn- ar. Þar hefur komið ffam að heildartekjur þessa batterís eru nánast tveir milljarðar á ári. I gegnum eignir verkalýðsfélaganna í lífeyrissjóðunum hafa forystumenn þeirra komist í stjórnir ýmissa fýrirtækja. Skemmst er að minnast þess þegar forseti Alþýðusambandsins var bankaráðsfor- maður fslandsbanka á sama tíma og eitt helsta baráttumál verkalýðs- hreyfingarinnar var lækkun vaxta. Sjálfsagt getur verið erfitt fýrir þessa forystumenn verkalýðsins að sætta sig við að hafa sambærileg laun og umbjóðendur þeirra eða jafnvel aðeins tvöfalt hærri þegar félagar þeirra á stjórnarfundum hafa ef til vill fimmföld og upp í tíföld verkamannalaun. Sumir þessara stjórnarmanna geta skammtað sér sín laun sjálfir og nokkrir þeirra hafa til þess heilagan rétt þar sem þeir eiga sjálfir fýrirtæki. Ef til vill er því skiljanlegt að verka- lýðsforkólfarnir fari með tímanum að líta á sig sem stjórnendur stórfýr- irtækja og vilji skammta sér laun í samræmi við það. En þótt það sé skiljanlegt er það ekki réttlætanlegt. Ef forystumaður í verkalýðsfélagi fer að líta á sig sem jafhingja forstjóra í stórfýrirtækjum og að hann eigi fremur að miða laun sín og launahækkanir við þá en umbjóðendur sína, á hann að fást við þetta vandamál sitt á persónuleg- um nótum. Hann getur sagt upp störfum eða leitað aðstoðar til að draga úr væntingum sínum. Hann á hins vegar aldrei að komast upp með að hækka laun sín til að uppfýlla þessar væntingar. Umbjóðendur hans ættu að koma í veg fýrir það og mundu eflaust gera það ef til væri snefill af lýðræði innan verka- lýðshreyfingarinnar. Ritstjóm, skrifstofur og auglýsingar Nýbýlavegi 14-16,sími 64 3080 Faxnúmer Ritstjórn 64 30 89, skrifstofa 64 31 90, auglýsingar 64 30 76 Eftir lokun skiptiborðs: Ritstjórn 64 30 85, dreifing 64 30 86, tæknideild 64 30 87. Áskriftargjald 700 kr. á mánuði ef greitt er með VISA/EURO/SAMKORT en 750 kr. á mánuði annars. PRESSAN kostar 230 krónur í lausasölu BLAÐAMENN: Andrés Magnússon, Anna H. Hamar, Dóra Einarsdóttir, Egill Helgason, Friðrik Þór Guðmundsson, Guðrún Kristjánsdóttir, Haraldur Jónsson, Jón Óskar Hafsteinsson útlitshönnuður, Jim Smart Ijósmyndari, Jónmundur Guðmars- son, Karl Th. Birgisson, Margrét Elísabet Ólafsdóttir, Sigurður Már Jónsson, Sigríður H. Gunnarsdóttir prófarkalesari, Telma L Tómasson. PENNAR: Stjórnmál og viðskipti; Birgir Árnason, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Hreinn Loftsson, Jeane Kirkpatrick, Mörður Árnason, Ólafur Hannibalsson, Óli Björn Kárason, Ragnhildur Vigfúsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir, össur Skarphéðinsson. Kynlíf; Jóna Ingibjörg Jónsdóttir. Listir; Gunnar Árnason myndlist, Gunnar Lárus Hjálmarsson popp, Kolbrún Bergþórsdóttir bókmenntir, Lárus Ýmir Óskarsson leiklist. Teikningar; Andrés Magnússon, Ingólfur Margeirsson, Jón Óskar. Setning og umbrot: PRESSAN Filmuvinnsla, plötugerð og prentun: ODDI V I K A N STRÍÐSÍGILDI íslendingar eiga sér engin al- mennileg stríð nema þorskastríð. fslenskir ráðherrar geta því sjald- an brugðið á sama ráðið og arg- entínska herforingjastjórnin gerði á sínum þegar hún réðst á Falk- landseyjar til að draga yfir bágt ástand heima fýrir. Þrátt fýrir þús- und prósent verðbólgu rauk hún upp í vinsældum. Hún tapaði þeim reyndar affur eins og stríð- inu og á endanum lentu vinsæld- irnar hjá Margréti Thatcher. En þótt íslendingar muni aldrei geta fengið annað þorskastríð — þar sem þorskurinn er horfinn — geta íslenskir ráðherrar samt bruðgðið á svipað ráð og argent- ínskir herforingjar. Ef þeir miða allar sínar óvinsælustu aðgerðir við Ólympíuleika, heimsmeistara- keppnir og önnur mót þar sem ís- lenska handboltaliðið keppir eru góðar líkur á því að þessar aðgerð- ir renni í þjóðina án teljandi vand- kvæða. Sú er að minnsta kosti raunin nú. Eftir að íslenska hand- boltaliðið tryggði sér rétt til að keppa til verðlauna á Ólympíu- leikunum í Barcelona hefur ekki nokkur maður kvartað undan hinum einkennilegu aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að mæta hruni þorskstofhsins. Það er varla að Matti Bjarna hafi opnað munn- inn. LÍKIÐ AF ÖMMUNNI Einhver heimsþekktur rithöf- undur — gott ef ekki sjálfúr James Joyc.e — sagði Rómverja minna sig á mann sem væri að selja líkið af ömmu sinni. Þeir hefðu ekki fýrir því að láta sér detta neitt nýtt í hug eða vinna ærlegt verk til að draga ffarn lífið heldur lifðu af því að selja túrhestum aðgang að menjum um afrek forfeðra sinna. Svipað virðist komið fýrir Siglfirð- ingum. Þar hefúr ekkert gerst síð- an síldin hvarf seint á sjöunda ára- tugnum og nú hafa bæjarbúar tekið upp á því að selja líkið af ömmu sinni. Og gengur vel. Það mættu víst 10 þúsund manns um helgina á Síldarævintýri þeirra Sigífirðinga. HÁRIÐ Á DAVÍÐ Vigdís Finnbogadóttir tók við embætti forseta Islands í fjórða sinn á laugardaginn. í sjálfu sér er það ekki sérstaklega fféttnæmt og enn síður óvænt. Hins vegar gerðu nokkrir fjölmiðlar mikið úr því að þetta væri í fýrsta sinn sem kven- fólk hefði stjórnað athöfninni og áttu þar við þær Guðrúnu Er- lendsdóttur, forseta Hæstaréttar, og Salóme Þorkelsdóttur, forseta Alþingis. Þær eru tveir af þremur handhöfúm forsetavaldsins í fjar- veru Vigdísar. Sá þirðji er Davíð Oddsson forsætisráðherra. Annað hvort hefur fjölmiðlafólkið því ekki talið hans þátt í stjórn athafn- arinnar merkilegan eða einfald- lega mistekið hann fyrir konu vegna hársins. HVERS VEGNA Getur söfnuður ekki losnað viðprestsem hann er óánœgður með? GEIR WAAGE, FORMAÐUR PRESTAFÉLAGSINS, SVARAR Presti verður ekki vikið frá nema hann hafi forbrotið sitt kall, það er að segja gerst sekur um þá hluti sem varða afsetningu. Það er kirkjustjórnar að rannsaka það. Það er ekki hægt að setja prest af vegna þess að hann eigi í deilum við söfnuðinn eða hluta hans, nema því aðeins að deilurnar séu þess eðlis eða þannig til komnar að þær séu prestinum sannanlega að kenna. Það getur komið upp sú staða að söfnuðinum líki ekki kenning prestsins, en söfúuðurinn getur ekki rekið hann fýrir það. Prestar hafa misst hempuna fýrir barneignir og reyndar geta þeir samkvæmt gildandi lögum misst hempuna fýrir of bráðar bameignir, fýrir að ganga að eiga konu sem annar maður hefúr leg- ið, sem er grínlaust í nútímanum, fýrir gróf siðferðisafbrot, fýrir ranga kenningu, ef þeir verða upp- vísir að alvarlegum afbrotum eða vanrækja sitt starf. í öllum þessum tilvikum verður þó að sanna að prestur hafi brotið af sér eða sé áfátt í því sem um er að ræða. Það er biskupsins að prófa prestinn og gera má ráð fýrir kirkjumálaráð- herrann standi með biskupi ef til þess kemur. Ef sóknarnefnd er meingölluð getur þurft að skipta um hana. Ef presturinn er meingallaður kemur til álita að því sé komið fýrir með einhveiju móti að hann hætti. Það er hins vegar mjög ískyggi- legt fýrir kirkjuréttinn ef það á að tíðkast í landinu að prestar verði reknir frá söfúuðum. Prestur þarf mjög oft að vera í þeirri aðstöðu að segja óþægilega hluti og óvinsæla. Hann getur þurft að hafa allt aðra skoðun en söfnuðurinn í við- kvæmum málum og þurft að standa á henni frá siðrænu sjónar- miði þótt allir aðrir séu ósammála. Þá er ekki hægt að hafa stöðu prestsins þannig að hægt sé að „Prestar hafa misst hempuna fyrir að ganga að eiga konu sem annarmaður hefur legið, sem ergrínlaust í nú- tímanum... “ fleygja honum á dyr af því að hann er ósammála fólkinu. Það verður beinlínis að ganga út frá því að prestur hafi þor til þess, ef á þarf að halda, að ganga á móti skoðun alls safúaðarins. Það er líka heldur fátítt að prest- ar misnoti sína stöðu til að hafa í frammi skoðanir eða hegðun sem fer í bága við almennt velsæmi. FJÖLMIÐLAR Að undirhúa sigfyrir vinnuna Jónas Tryggvason á hrós skilið fyrir lýsingar sínar af fimleikum og dýfingum á Ólympíuleikunum í Barcelona. Hann veit sitthvað um þessar íþróttagreinar og getur lýst þeim þannig fýrir áhorfend- um að þeir séu einhverju nær. Smátt og smátt læra þeir að meta það sem vel er gert. Þeir átta sig á hvenær spenna er í loftinu, hve- nær íþróttamennimir gera mistök og hvenær þeir gera betur en bú- ast hefði mátt við. Ef til viil er óþarfi að hrósa íþróttafféttamanni fýrir þetta. Það er nú einu sinni hlutverk þeirra að setja áhorfendur inn í leikinn og skjóta að þeim fróðleiksmolum. Að það skuli vera eftirtektarvert að Jónas geri þetta segir því kannski meira um hina fþrótta- fféttamennina sem sjá um lýsing- ar ffá Ólympíuleikunum en hann sjálfan. Það var til dæmis hálf aumkun- arvert að hlusta á Ingólf Hannes- son tala undir syrpu af helstu við- burðum dagsins um miðjan síð- asta sunnudag. Spænskir sjón- varpsmenn höfðu tekið saman svipmyndir ffá mörgum greinum; borðtennis, sundknattleik, hand- bolta og fleiru. Þegar líða tók á syrpuna fór Ingólfúr að bugast og á endanum greip hann til þess ráðs að kvarta undan því hversu margar íþróttagreinar væru á leik- unum og hversu erfitt það væri fýrir fféttamenn að skilja eitthvað í þeim öllum. Svona frammistaða er að sjálf- sögðu óþolandi. Ef menn geta ekki undirbúið sig fýrir lýsingam- ar; safnað saman staðreyndum, sett sig inn í stöðuna í keppninni og lært helstu reglur viðkomandi íþróttagreinar eiga þeir að sjálf- sögðu að biðja áhorfendur afsök- unar. Þeir eiga ekki að reyna að af- saka sig með því hversu mörgum greinum hefúr verið hrúgað á leik- ana. Það lá ljóst fýrir með margra mánaða fyrirvara hvaða greinar yrðu þar og ef Ingólfi þykir þær margar hefði hann átt að leggja þeim mun harðar að sér við und- irbúninginn. Og ef hann hefúr ekki haft trú á að hann kæmist yfir nauðsynleg- an undirbúning hefði hann átt að sitja heima og nota fararpening- inn sinn til að borga sérfræðing- um í viðkomandi íþróttagreinum fýrir að sitja með sér í sjónvarpssal til að koma því sem sýnt er til skila til áhorfenda. Það er einfaldlega dónaskapur við áhorfendur að fréttamennimir komi gersamlega óundirbúnir að hljóðnemanum og treysti á Guð og lukkuna að þeir verði sér ekki til skammar í beinni útsendingu. Ekki eru allir fréttamenn íþróttadeildarinnar undir sömu sök seldir. Það er til dæmis áber- andi hvað þau Hjördís Árnadóttir og Bjarni Felixson undirbúa sig betur en hin. Á hinum kantinum eru Ingólfur og Logi Bergmann Eiðsson, sem báðir hafa það stirð- an talanda að þeir þurfa á sérstök- um undirbúningi að halda. GunnarSmárí Egilsson

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.