Pressan - 06.08.1992, Side 27

Pressan - 06.08.1992, Side 27
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. ÁGÚST 1992 27 „Ég er ekki viss um að [Guð- mundurÁrni og félagar] meini það sem þau segja. “ flokksþingum og þetta var ekki meðal þeirra átakamestu. Það var afskaplega meinleysislegt og engar undirölduríþví." Flokkurinn virtistsamt í máli eft- ir máli — félagsmálum, ríkisfjár- málum, bankamálum, einkavæð- ingu — skiptast ítvœrJylkingar. “ „Það þótti mér ekki vera á þessu þingi.“ Varstu ekki ekki á sama flokks- pingi og allir aðrir? „Jú, jú, en mér fannst þetta meira mótast af persónulegum skoðunum einstaklinga og svo af- stöðu fólks til þeirra frekar en málefnalegum ágreiningi." Hversu alvarlegur er ágreining- urinn sem kristallast íjóhönnu Sig- urðardóttur og Jónunum tveimur? „Ég held að hann sé ekkert mjög alvarlegur. Við erum nú- tímalegur jafnaðarmannaflokkur og það stendur enginn slíkur flokkur vel sem byggir á hug- myndum sem uppi voru um 1930. Það var Vilmundur Gylfason sem átti frumkvæði að því að flokkur- inn fór að endurmeta stöðu sína og stefnu og hans fyrsta slagorð fyrir flokkinn var Nýr flokkur á gömlum grunni. Það er hins vegar enn til sú kynslóð í Alþýðuflokkn- um sem byggir lífsskoðun sína á viðhorfum sem mótuðust í krepp- unni og eftirstríðsárunum.“ Bíddu nú hœgur. Helstu and- mælendur þeirrar endurskoðunar á efiiahagsstefnu sem uppi hefur verið íflokknum eru ekki beinlínis gamal- menni — Guðmundur Árni Stef- ánsson, Ólína Þorvarðardóttir, Jó- hanna Sigurðardóttir, Gunnlaugur Stefánsson. „Því má ekki gleyma að kyn- slóðaskipti í Alþýðuflokknum og sennilega öllum stjómmálaflokk- um á íslandi em mjög skrýtin. Það virðist koma til valda í flokknum tiltekin kynslóð í hvert sinn. Það gerist ekki smátt og smátt, heldur em allir í valdastöðum flokksins á sama aldursskeiði. Síðan situr þessi hópur í kannski tuttugu ár og þá kemur alveg ný kynslóð. Þennan ágreining er þess vegna ekki að fínna innan flokksforyst- unnar, heldur aðallega á milli kyn- slóða." Veldur þá ekki áhyggjum að þeir sem eru framtíðarleiðtogarflokksins skuli mæla mest gegn endurnýjun hugmynda nú? „Ég held ekki að Alþýðuflokk- urinn muni snúa til baka ffá lífss- skoðun hins frjálslynda jafnaðar- manns. Jafnaðarmannaflokkur sem ætlaði að endurtaka árið 1930 er ekki líklegur til mikilla áhrifa. Svo er ég ekki svo viss um að þeir sem hafa hæst um þessi gömlu viðhorf meini það sem þeir segja. Þetta er ungt fólk sem vill gjarna sækja fram til forystu og eitthvað merki þurfa þau að hafa á sínu flaggi og þetta er ekkert verra merki en hvað annað. Ég efast um að þau fýlgi þessu eftir þegar þau taka við, sem sjálfsagt verður ein- hvern tírnann." Meinarðu að Guðmundur Árni sé aðbúa sér til pall til að standa á? „Ég veit það ekki og get ekki urn það sagt. En ég man eftir því að einu sinni barðist Guðmundur Árni fyrir því í AlþýðufloJtknum að sveitarfélög lýstu sig kjarn- orkuvopnalaus svæði. Ég hef ekki enn orðið var við að Hafnarfjörð- ur gæfi út slíka yfirlýsingu. Guð- mundur Árni er vafalaust framtíð- arforingi í flokknum, en ég held að hann muni ekki fara með flokkinn aftur til fortíðar. Það er ekki hægt nema í bíómyndum." SVAVARIER EKKISÝNT UM SANNGIRNINA Hvert er mat þitt á frammistöðu stjómarandstöðunnar? Ólafs Ragn- ars til dœmis? „Hann hefur staðið sig eins og við var að búast, gert ríkisstjórn- inni erfitt fyrir. Það er svolítið annað sjónarmið hjá ffamsóknar- mönnum. Þeir hafa ekki lagt sig eins ffam um og forystumenn Al- þýðubandalagsins að tcfja fyrir eða spilla fyrir málum. Það kannski lagast þegar líður meiri tími ffá því þeir sátu í ríkisstjórn, forsvarsmenn Alþýðubandalags- ins. Þetta er mjög áberandi hjá fyrrum ráðherrum, þótt það sé sjálfsagt ekkert einsdæmi." Hvað veldur þessari Ijúfmennsku (framsóknarmönnum? „Ég hef átt mest samskipti við forvera minn, Guðmund Bjarna- son, sem er mesta ljúfmenni sjálf- ur. Þetta fer að sjálfsögðu eftir ein- staldingum. Innan um eru þverir og harðskeyttir menn eins og Páll Pétursson. Eins er það í Alþýðubandalag- inu. Það eru ólíkir einstaklingar, Svavar Gestsson og Margrét Frí- mannsdóttir. Ég hef unnið með Margréti í fjárveitinganefnd og hún stendur fyllilega á sínu, en hún er sannngjarn andstæðingur og lætur bæði menn og málefni njóta sannmælis.“ En ekki Svavar? „Honum er ekki eins sýnt um það.“ Karl Th. Birgisson

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.