Pressan - 06.08.1992, Qupperneq 32
32
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. ÁGÚST 1992
PRESSAN/JIM SMART
Steinn Ármann Magnússon, „pervertinn“ í Veggfóðrinu:
„Það sjást rassar í myndinni.“
Að baki Sveppa í Veggfóðrinu
er leikari að nafhi Steinn Ármann
Magnússon. Sveppi er einn af að-
alpersónum í mynd Júlíusar
Kemp sem frumsýnd verður á
morgun. Ekki er auðvelt að spá
fyrir um hvort Sveppi verði ein af
þessum eftirminnilegu vondu
persónum en Steinn Ármann er
óneitanlega eftirminnanlegur,
svona eins og hann kemur af
skepnunni. Hann virkar mikill
töffari með sólgleraugun, í galla-
jakkanum og leðurvestinu og með
lokk í öðru eyranu. Hann var ekki
síður mikill töffari í MS auglýsing-
unni þar sem hann auglýsti
„mjónur’1.
Steinn Ármann er einna þekkt-
astur fyrir að hafa farið með hiut-
verk töffara en hefúr þó gripið inn
í hlutverk rolu í barnaleikriti,
krakkagemlings í Ungmennafé-
laginu og í Rómeó og Júlíu lék
hann frænda Rómeó sem sífellt
var að afstýra vandræðum. „Það
er miklu meira gaman að leika
vonda menn,” segir Steinn Ár-
mann.
Erþað erfiðara en að leika
góðu mennina?
„Nei, það er miklu erfiðara að
leika góðu mennina. Það er svo
auðvelt að rækta kvikindisskap-
inn í sér.“
Fékkustu þá verulega útrás
við að leika Sveppa?
„Já, og nú er ég bara verulega
góður maður. Mig langar ekkert
að vera vondur. Mann Iangar
hins vegar ekkert að festast í ein-
hverju ákveðnu hlutverki. Fólk er
mjög fljótt að að flokka leikara,
sérstaklega karlleikara í einhverj-
ar týpur. Til dæmis hefur Valdi-
mar Flygering ansi oft lent í því
að leika sömu týpuna. Ég held því
fram að ég sé alltof lítill til að
leika töffara.”
Ég veit ekki betur en allir
mestu töffaranir íHollywood séu
smánaggar sem þurft að standa
ofan á kössum þegarþeir kyssa
dömurnar:
„Já, og stelpurnar ofaní skurð-
um. Fyrst þú minnist á þetta
langar mig að segja frá því að það
hefur einkum verið út af Flóríd-
anaauglýsingunni sem fólk tengir
mig við einhverja sérstaka mann-
gerð. En það sama fólk þekkir
mig ekki endilega úti á götu sem
þann gaur. Einhvern tímann í
einhverjum samræðum við eitt-
hvað fólk kom upp úr kafinu að
ég væri leikari. En fólkið kannað-
ist ekkert við mig. Ég komst því
eldd hjá því að telja upp þau hlut-
verk sem ég hef leilcið, þar á með-
al taldi ég upp þessa auglýsingu.
Fólkið var samt ekki tilbúið til að
kannast við mig. „Þú ert ekki
hann” sagði einhver dama þarna.
„Jú,“ sagði ég, „Ég var bara rak-
aður og meikaður og svoleiðis.”
„Nei, sagði daman og héit fast við
sitt. „Hannvar stór!”
Nú hefurðu leikið mikið í aug-
lýsingum, erþað nauðsynlegt
lifibrauð?
„Ég er búin að leika alltof mik-
ið í auglýsingum en er að vona að
þessi mynd breyti því ef vel geng-
ur. Það er nú svo að grunnlaunin
í leikhúsinu eru bara um 60 þús-
und krónur. Þegar manni er boð-
ið sami peningur fyrir að lesa inn
á eina til tvær auglýsingar er það
auðvitað mjög freistandi. Ekki
síst þar sem ég er farinn að búa
og er að verða faðir. Maður slær
ekki hendinni svo auðveldlega á
móti svo auðfengnu fé þegar svo
er komið.”
Hvernig stendurðu miðað við
kollega þína
„Ég hef alls ekki verið óhepp-
inn en ég hef alls ekld verið hepp-
inn heldur. Sumir skólabræður
mínir, eins og Baltasar og Ingvar
Sig geta unnið við þetta sem fullt
starf. Þeir hafa báðir lent í gang-
stykki hjá Þjóðleikhúsinu og eru
því á sýningarkaupi, auk þess að
hafa leikið í sjónvarpsleikritum
og kvikmyndum. Við þær að-
stæður er hægt að hafa það ágætt
sem leikari. En það er alls ekki
auðvelt að vera nýútskrifaður
leikari á fslandi.”
Nú hefurþú verið skemmti-
kraftur, erþað eitthvað sem þú
œtlarað halda áfram aðgera?
„Það er erfitt og slítandi að
skemmta. Maður myndi jafnvel
heldur vilja lesa inn á nokkrar
auglýsingar á ári í stað þess að
skemmta. En það er góð reynsla
og ég er jafnvel að hugsa um að
snúa mér meira að því í framtíð-
inni.”
Ertuþá einn líkt ogDaveAl-
len?
„Já, hann og Eddie Murphy og
allir þessir karlar. Það er þessi
sami fílingur; ég að segja brand-
ara, með mínar hugleiðingar, lýsi
leiðinlegum dögum, hvernig
maður fær í magann og hvernig
það skilar sér og þar fram eftir
götunum.”
Snúum okkurað Veggfóðr-
inu, hver erþessi Sveppi?
„Sveppi heitir Sveppi af því
hann étur svo mikið af sveppum.
Það gerir hann spíttaðan og
skrýtinn og að auki svoiítið
geggjaðan. Hann er þó skemmti-
legur náungi, alveg ofsalega öfga-
kenndur. Hann er vondi gæinn í
myndinni sem rekur skemmti-
stað en er þó skemmtilega sjarm-
erandi. Sveppi er bæði sniðugur
og fýndinn en þó enginn brilljant
gæi. Ég skóp hann að mörgu leyti
sjálfur. Við Baltasar fengum
nokkuð frjálsar hendur með þær
persónur sem við leikum í mynd-
inni. Júlli Kemp passaði hins veg-
ar upp á að við gengjum ekki út í
öfgar.”
Nú hefur myndin verið mikið
auglýst, eruð þið ekkert hrœddir
um að hún floppi?
„Nei alls ekki. Svona á að fara
að því að auglýsa myndir. Þetta
er í fyrsta sinn sem mynd er aug-
lýst almennilega en þó af vanefn-
um. Til þess var ráðinn sérstakur
kynningarfulltrúi, Karl Pétur
Jónsson.
Áður en myndin kemur út er
gefin út geislaplata með lögum úr
myndinni, það er vakin upp al-
mennileg forvitni. Að auki er bú-
ið að gera sjónvarpsmynd um
gerð myndarinnar sem sýnd
verður fljótlega. Það er hlutur
sem aidrei hefur verið gerður áð-
ur.“
Nú er talað um að þetta sé
fyrsta (slenska myndin sem höfði
í raun og veru til ungsfólks?
„Ja, ég veit ekki. Ég hef ekki
séð Sódómu ennþá. Þetta er auð-
vitað fýrsta myndin um ungt
fólk. Ég held að þetta sé nokkuð
raunhæf mynd af unglingum í
Reykjavík. Hún er auðvitað
nokkuð ýkt en sannleikurinn er
oft lygilegri en skáldskapurinn.“
Erþetta mikil töffaramynd?
„Já, nei, já. Sveppi er kannski
ekki voða mikill töffari, að
minnsta kosti klæðist hann
jakkafötum. Hann er töffari í eðli
sínu. Sveppi er til að mynda
kærður fyrir nauðgun. Sá sem
Baltasar leikur er hins vegar
meira nýmóðins, ef við getum
kallað það svo og hann er mildu
mýkri manneskja.”
Upplýstu okkur um eitthvað
krassandi sem kemurfram (
myndinni?
„Það sést mikið í rassa í mynd-
inni.”
Þinn rass til dœmis?
„Já,já. Þegar Sveppi fer úr
jakkafötunum er hann í lítilli
pardusskýlu undir. Ég neitaði í
fyrstu að láta sjá mig í svoleiðis
fatnaði. Þetta er einhver smá-
skýla með teygju að aftan, svoh't-
ið pervetísk. En svona undirföt
eru orðin svo algeng nú. Meira að
segja virðulegustu kvenundir-
fatadeildir eru farnar skarta kor-
selettum og sokkaböndum, ekki
bara verslunin Rómeó og Júlía.”
Stendur Veggfóðrið undirsér
sem erótísk ástarsaga?
„Já, ég held hún geri það. Ég
hugsa meira að segja að þetta sé
svolítið töff mynd.”
Ertu líkurSveppa?
„Nei, ég er ekki líkur honum
né hann mér.“
Hvernig lýsir þú sjálfum þér?
„Ég er Vitleysingur með stóru
vaffi en góður leikari. Að minnsta
kosti finnst mér ég vera góður
leikari. En ef ekki gengur að
vinna fyrir sér sem leikari þá
klára ég bara húsasmíðina. Ég er
nú að vinna við leikmyndasmíði
upp í Sjónvarpi, og hef leiklistina
sem hobbý.
Ég elska hins vegar leikhúsið
og vil helst vinna í leikhúsi. En
þegar maður stendur frammi fýr-
ir því að fara að bera ábyrgð á
einhverju litlu kríli verður maður
hreinlega að vinna fýrir sér. Þetta
er kannski barlómur í mér, bara
eitthvað væl.“
„Égheldþví
fram að ég sé of
lítill til að leika
töffaraw segir
Steinn Ármann
Magnússon
Guörún Kristjánsdóni