Pressan - 06.08.1992, Side 33
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. ÁGÚST 1992
33
Vlf>
MÆLUM
MEÐ
Að mávarnir verði flæmdir
burt af Tjöminni
þeir eru ógeðslegir
Að Fischer og Spasski tefli á
íslandi
til dæmis hægt að nota kvóta
hagræðingarsjóðs til að borga
brúsann
Kjötbúri Péturs
góð afgreiðsla og besta kjöt í
bænum
„Mikil lifandis ósköp er ég orðin þreytt á þessutn
handbolta. Eitis og alltafþegar verið er að kasta
þessum bolta hverfa karlarnir okkar alveg í eigin
heim; tala ekki utn annað en handbolta oglíta
varla við okkur dömunutn á börutiumfyrr en
þeir eru orðnir blindfullir og leiðinlegir. Það eru
þvífleiri handboltaekkjurþessa daganna en eig-
inkonur leikmatmanna. “
Hellisgerði
Hafnfirðingar eiga flottari
„park“ en Reykvíkingar
INNI
Sándið í orgelinu hans Kalla
Sighvats á fyrstu Trúbrotsplöt-
unni. Ungu hljómborðsleikararnir
sem núna eru að baksa í poppinu
væru til í að selja kærusturnar sín-
ar vestur á Bíldudal til þess eins að
geta nálgast hljóminn í orgelinu
hans Kalla þegar hann fer átján
ára gamall hamförum í lögum
eins og „Án þín“ og „Við“. Um
tíma voru svona Hammondorgel
náttúrlega ómælanlega púkaleg;
þeir tímar eru núorðið hallæris-
legri en tárum taki. Núna vildu all-
ir geta poppað af jafnmikilli spila-
gleði og Kalli, en einhvern veginn
gefur hvorki tíðarandinn né orgel-
in frá sér sömu hljóð og þá...
ÚTI
Þjóðargrafreiturinn á Þingvöll-
um er búinn að vera úti í hálfa öld
og hann er svo mikið úti að það
eru allir búnir að gleyma honum.
Nema hugsanlega skáldin sem
hafa átt á hættu að lenda þar. Þau
hafa ekki tekið neina sénsa og hafa
öll gætt þess vandlega fyrir andlát-
ið að taka ffam (helst skriflega) að
þar vildu þau ekki fá hinstu hvílu.
Og núorðið man semsagt enginn
sem til Þingvalla fer eftir þessurn
reit, heldur virðist almenn trú að
hann sé einhver lygasaga. Að und-
anskildum presturinn og þjóð-
garðsverðinum þar eystra sem sit-
ur uppi með þetta vandræðamál í
túnfætinum hjá sér; séra
Hanna María kemst ekki
hjá því að horfa á graf-
reitinn alltaf þegar hún
vaknar á morgnana,
oft á dag, mörg þús-
und sinnum á ári. Því
er kannski ekki furða
að hún reyni að kom-
ast upp með smá sögu-
fölsun; gleyma því —
næstum eins og af mis-
gáningi — að kalla stað-
inn „þjóðargrafreit",
^ en nota heldur
T nafnið „skáldareit".
Það er einhvern veginn
ekkijafnhávært...
.. yóf/
X/Y/W/ ry /•<//*/
r/-j/'//’ fjó/Y'////’
Pinnar
eruí
tísku
Þeir sem hafa farið til útlanda i
sumar hafa varla komist hjá því
að sjá á öðru hverju götuhorni
sölumenn sem reyna að
pranga upp á fólk agnarsmá-
um barmmerkjum eða brjóst-
nálum, sem á útlensku heita
„pins" — eða einfaldlega pinn-
ar. Og ef vel er að gáð má sjá
svona pinna (jakkaboðungn-
um hjá fjölda manns, myndir
af stelpum, bílum, flöskum —
eða bara hverju sem er? Og
eins ög annað sem er í tfsku
eru pinnarnir farnir að sjást á
íslandi. Götusölumennina
vantar, en þeir fást til dæmis I
versluninni Aha í Kringlunni og
kosta 160 krónur stykkið.
verkanna er ekki liðinn, eftir
talsvert basl og sama og enga
peninga úr Kvikmyndasjóði
verður Veggfóðrið frumsýnt
núna á föstudaginn í hvorki
meira né minna en tveimur
bíósölum, Bíóhöllinni og Saga-
bíói. Sagan segir að Árni Sam.
hafi tröllatrú á myndinni, en
það hafa reyndar líka ýmsir
kvikmyndaspekúlantar sem
spá henni miklum vinsældum,
sérstaklega meðal ungmenna, sem
svo sannarlega hafa ekki verið
fastagestir á íslenskum kvik-
myndasýningum.
Kannski er Veggfóðrið líka
tímamótamynd? Hún er að
minnsta kosti gerð af ungu fólki í
Reykjavík um ungt fólk í Reykja-
vík og það örlar ekki á sauðfé, vík-
ingum eða sveitalífi, nema hvað
aðalpersónan kemur víst úr sveit-
inni í sollinn í Reykjavík. Margir
hafa lengi verið að bíða eftir svona
mynd.
Það sakar heldur ekki að aðal-
hlutverkin eru leikin af töff liði úr
Reykjavíkurlífinu: Steini Ármanni
Magnússyni, Ingibjörgu Stefáns-
dóttur, Baltasar Kormáki og Dóru
Takefusa.
Er líf eftir verslunarmannahelgina?
Eftir allan ólifnað verlsunar-
mannahelgarinnar er kominn
tími til að útilegumennirnir (og
sukkararnir) taki sig saman í
andlitinu og fari að hreyfa
skrokkinn, að minnsta kosti á
fjölbreyttari hátt en að hoppa
lóðrétt eftir hávaðamúsík eða lá-
rétt eftir einhverjum innri rytma.
Dísa í World Class, sem á von
á sínu fyrsta barni (komin sex og
hálfan mánuð á leið), en er samt
alltaf í sama fína forminu, ætlar
að gefa okkur hinum nokkur góð
ráð til þess að hefja nýtt líf.
Blessuð borðið mikið af ávöxt-
um og grænmeti enda nóg af
slíku á markaðnum á þessum
árstíma; grænmeti í hádeginu og
grænmeti á kvöldin og muna að
vera dugleg að kreista safa úr
ávöxtum og hvíla sig á öðrum
drykkjum. Þetta er gert í þeim til-
gangi að létta á líkamanum, að
auki gefur slíkt fæði góða orku.
Þá fer orkan í það minnsta ekki
öll í að melta þunga fæðu og
drykki.
Skella sér í sund og gufu.
Sundið er til að taka á enda sund-
tökin ein góð heildaræfing fyrir
allan kroppinn. f kjölfarið verða
allar líkamshreyfmgar léttari.
Gufubaðið hreinsar húðina hins
vegar vel og maður hreinsast inn-
an frá (vínið fer úr blóðinu). Ekki
er verra ef maður hefur tíma til að
fara í Bláa lónið og nudda sér upp
úr kísilnum. Mjög gott fýrir húð-
ina!
Þá er kominn tími til að taka
almennilega á og skella sér í al-
hliða líkamsrækt og svitna vel.
Með því kemur andleg og líkam-
leg vellíðan (eftir smá tíma kemst
maður á endófintripp). Þeir sem
ekki eru í góðu líkamlegu formi
ættu að byrja á góðum göngutúr-
um og færa sig svo smám saman í
skokkið með því að ganga og
skokka til skiptis (alls ekkert
í aðalhlutverkum er töff lið úr Reykjavíkurlífinu.
Fáar íslenskar bíómyndir hafa Kemp réðist í að gera í fyrrasumar,
verið jafn umtalaðar löngu fyrir þrátt fyrir að fullkomlega væri
frumsýningu og Veggfóðrið, óvíst að hann ætti peninga til að
myndin sem ungmennið Júlíus borga brúsann. En tími krafta-
Síðsumardrykkurinn
er próteindrykkur, sem kemur ekki síður kirtlastarf-
semi líkamans afstað en einhverjir skammtímavirkir
ruddar. Hann er samansettur afpróteini, banönum,
ávaxtasafa (helst appelsínusafa) og einu eggi efvill. I
þessum drykk er að visu ómældur fjöldi kaloría sem
berað eyða í einhverja góða líkamlega spretti. Pró-
teinið fæstí heilusbúðum og/eða á líkamsræktar-
stöðvum, en bananarnir, eggin og ávaxtasafinn í
næstu kjörbúð. Þessu ersvo troðið í einhvers konar
mixara svo það verði drykkjarhæft. Einnig má eyða
líkamlegri orku iað hræra þessu saman en það gæti
tekið nokkrar klukkustundir. Þessi drykkur er fullur af
steinefnum, vítamínum og annarri hollustu.
víðavangshlaup, takk!). Eftir
að þessu hefur verið
fylgt er auðvitað
óhætt að stefna ^
hærra en þá
fer hver og
einn eftir w
sínu áhuga- •
sviði (ef þeir
hafa einhvern
áhuga yfír höf-
uð).
Batnandi
monnum er
best að lifa!