Pressan - 06.08.1992, Page 37

Pressan - 06.08.1992, Page 37
_____FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. ÁGÚST 1992_ LÍFIÐ EFTIR VINNU 37 Sápuópera ANDREW MORTON: DtANA. SÖNN SAGA. Almenna bókafélagið 1992. ® JÚPITERS TJATJA IDIO JÚPETERS/JAPIS ★★★ OÞetta er bókin sem skók það sem eftir er af breska heimsveldinu, gerði Andrew Morton að milljónamær- ingi, og fari allt eins og til er ætlast mun hún væntanlega einnig rétta við fjárhag Aimenna bókafélags- ins. Morton valdi sér sannarlega efni sem malar gull; sögu af ungri stúlku sem giftist kaldlyndum prinsi sem hún fer smám saman að fyrirlíta, verður fangi stöðu sinnar og rambar síðan á barmi taugaáfalls þar til hún finnur ein- hvers konar sálarró við líknarstörf í þágu barna, gamalmenna og sjúklinga. Bókin er skrifuð í nafni rann- sóknarblaðamennsku, en er í reynd handrit að sápuóperu sem Andrew Morton er höfúndur að. Hann á reyndar í mesta basli í fyrri hluta bókarinnar þar sem honum tekst ekki að gæða aðal- persónu sína nokkru lífí. Þeir sem ekki hafa því meiri áhuga á prins- essunni munu vísast leggja frá sér bókina í einhverri hinna fjöl- mörgu frásagna af ísáti unglings- stúlku. En þegar líða fer á sögu sækir Morton í sig veðrið og um leið víkur trúverðugleikinn fyrir ýmsum undrum. Helst er á Mor- ton að skiija að prinsessan sé ekki einungis forlagatrúar heldur einn- ig forspá og off finnst lesandanum eins og hann sé að lesa nútíma- færslu á sögunni um Jóhönnu af Örk. Þarna er einnig að finna klökkar lýsingar af setu prinsess- unnar við dánarbeð sjúkiinga og dýrlingsmynd prinsessunnar er fullkomnuð í orðum sem lítill drengur er látinn mæla: „Guð tók móður okkar frá okkur en sendi okkur engii í staðinn.“ (Þeir sem hafa lesið bækur um Evu Peron vita að um hana er fjöldi sagna samhljóða þessari). Morton treystir ekki ætíð því efni sem hann er með í höndum og gerir sér því sérstakt far um að „Helst er á Morton að skilja að prinsessan sé ekki einungis forlaga- trúar heldur einnig forspá og oft finnst lesandanum eins og hann sé að lesa nútímafærslu á sögunni um Jóhönnu af Örk," segir Kolbrún Bergþórsdóttir í ganrýni sinni um „Díana - sönn saga". „Það hlýtur að vera erfitt að stýra jafn stórri sveit og Júpiters er, hvað þá að láta hana sjálfa stjórna sér eins og Júpiters virðast gera," segir Gunnar Hjálmarsson í gagnrýni sinni á plötu Júpters; „Tja...". gæða verk sín dramatískum þunga í gegnum stílinn. Reyndar má hafa gaman af fáeinum setn- ingum, en einhvern veginn finnst manni að þær hafi hrotið af penn- anum í ógáti, eins og þessi um hertogaynjuna af York: „Hin ný- bakaða hertogaynja skoppaði inn í hlutverk sitt eins og óþreyjufúll labradortík.“ Frásögnin er alla jafna upp- belgd af einhverju sem á víst að vera póesía, eins og hinar sífelldu líkingar milli prinsessunnar og blóma. Prinsessan er annað hvort að springa út eða fölna, allt eftir því hvernig högum hennar er háttað í það og það skiptið. Mor- ton bregður einnig á það ráð að lesa í hug hennar og hafa eftir henni setningar sem eru tortryggi- lega einhæfar: „Það var eins og að rýtingi hefði verið rekið í bak mitt“ — „Þá fannst mér eins og rýtingi væri rekið í hjarta mér.“ — „Það kvöld dó eitthvað innra með mér.“ Þessum setningum og öðr- um álíka svipar grunsamlega til annarra sem komu greinilega frá Morton sjálfum. („Allar dyr að ást Díönu lokuðust honum“ er ein þeirra og ekki sú versta. Bókin er öll í þessari óþolandi stútegund). Þetta er bók sem er greinilega skrifuð í miklum flýti. Hún er byggð upp af margvíslegum sensasjónum sem eiga að selja vöruna og það hefúr tekist. Ef það á hins vegar að bera þéssa bók saman við slúðurbækur Kitty Kelley sem einnig hafa hlotið met- sölu, hefur frúin lagni og greind ffamyfir herrann, en honum virð- ist fyrirmunað að ljúga sannfær- andi. Kolbrún Bergþórsdóttir Mér hefur alltaf þótt Júpiters hálf leiðinleg tónleikasveit. Yfirþyrmandi léttleikinn geldc mér í skrokk, mér fannst eins og ég væri í l.maí-göngu, oní lúðra- sveitinni, en í stað rauðnefjaðrar göngunnar væri komin iðandi hrúga uppstrílaðra vélmenna með forritið „skemmtun" í drifi sínu. Það var því með óhug og fordóm- um sem ég setti Tja tja undir geisl- ann. En ég var fljótur að snúast frá villu míns vegar, Tja tja er fin plata og ég þarf greinilega að endur- meta skoðun mína á Júpiters, kannski drekka aðeins meira (eða minna?) næst þegar ég sé þá. Það hlýtur aö vera erfitt að stýra jafn stórri sveit og Júpiters er, hvað þá að láta hana sjálfa stjórna sér eins og Júpiters virðast gera. Ég gruna þó Fiörð hamm- ondljón um að vera heilann á bak við báknið. Hann, Jón Skuggi og Steingrímur voru í tímamótasveit- inni Oxzmá og nokkuð eymir eftir af þeim sérstaka frumleika sem lék um þá sveit. Reyndar eiga flestir meðlimirnir rætur í Framhald og meira afgagnrýni á síðu39. 08.55 Ólympíuleikarnir. Úrslit í borðtennis. (slendingar sendu ekki lið. Þess vegna eiga þeir ekki séns. , 12.55 Ólympíuleikarnir. Úrslit í tennis og frjálsum íþróttum. 18.00 Fjörkálfar. 18.30 Kobbi og klikan. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Ólympíuleikarnir. Atburðir dagsins. 20.00 Fréttir. 20.35 Ólympíuleikarnir. Fimleikar. 20.35 Blóm dagsins. Bláklukkulyng. 21.00 Til bjargar jörðinni. Leifar aldingarðsins. Hvern- ig geta sóðarnir bjargað jörðinni? Tilraunir til þess í Kenýa, Óman og á Kosta Ríka. 21.35 ★★ Upp, upp mín sál. Sam Waterston er frekar góð- ur leikari. 22.25 ★★ Grænir fingur. Hafsteinn borðar nytjasveppi með Lenu Bergmann. Ekki þó stuðsveppi.E 23.00 Fréttir. 23.10 Bikarkeppnin í fótbolta, undanúrslit. Valur—Fylkir, (A-KA. Brot úr leikjunum. 23.35 Ólympfusyrpa. JI1!U 07.30 Ólympíuleikarnir. Undankeppni í frjálsum. 08.55 Ólympíuleikarnir. Úrslit í tennis, tvíliðaleik karla. 11.55 Ólympíuleikarnir. Úrslit ítennis, tvíliðaleik kvenna. 14.00 Ólympiuleikarnir. Atburðirdagsins. 15.00 Ólympíuleikarnir. Úrslit í frjálsum. 18.00Sómi kafteinn. 18.30 Ævintýri íóbyggðum. 18.55Táknmálsfréttir. 19.00 Ólympíuleikarnir. Atburðir dagsins. 20.00 Fréttir. 20.35 Blóm dagsins. Gullmura. Fallegt nafn á blómi. 20.40 ★★ Matlock. Frekar klár lögfræðingur, en óhefð- bundinn. 21.30 I skugga höggormsins. Fyrri hluti. Shadow of the Co- bra. Bresk/áströlsk, 1989. Sjónvarpsmynd um tvo blaðamenn sem taka að sér að skrifa bók um óðan morðingja og glæpaferil hans. Morðinginn er talinn hafa myrt fimmtán ferðamenn ÍTælandi, Nepal og á Indlandi og var handtekinn í Nýju-Dehli 1976 eftír að hafa byrlað tuttugu frönskum námsmönnum eitur. Forvitnilegt efni, en svona míníseríur geta klikkað. 23.10 Ólympíusyrpa. LAUGARDAGUR 09.55 Ólympíuleikarnir. Handbolti kvenna, úrslit. 11.55 Ólympíuleikarnir. Tennis, úrslit í einliðaleik karla. 14.55 Ólympíuleikarnir. Úrslit í handbolta karla. Varla verða (slendingar þar? 16.30 Ólympíuleikarnir. Úrslit f spjótkasti. Heldur hnéð á Einari? 19.52 Happó. 20.00 Fréttir. 20.35 Lottó. 20.40 Ólympfuleikarnir. Úrslit f körfubolta. Formsatriði fyrir draumaliðið. Er ekki hægt að afhenda þeim gullið strax? 22.05 ★ Hver á að ráða? Voða eru þeir annars leiðinlegir leikararnir f þessum þætti. 22.35 I skugga höggormsins. Shadow of the Cobra. Bresk/áströlsk, 1989. Sfðari hluti myndarinnar um morðingjann sem drap mann og annan (Asíu og er þó nóg af fólki þar. Þarna er meðal annarra Rachel Ward: hún er sæt en kann ekkert að leika. 00.15 Ólympíusyrpa. rrrmr LLMHii 08.00 Ólympíuleikarnir. Úrslitaleikurinn í fótbolta. Karla. 10.00 Ólympíuleikarnir. Úrslit í hnefaleikum. Þeir mega boxa, ekki við. 11.00 Ólympfuleikarnir. Úrslit í blaki karla. Fyrir viðkvæma menn sem ekki vilja boxa. 13.30 Ólympíuleikarnir. Hesta íþróttir. 15.00 Ólympíuleikarnir. Úrslit (sundknattleik. Landinn getur riljað upp minningar frá Berlín 1936. 16.20 Ólympfuleikarnir. Maraþonhlaup karla. Frekár ein- hæft. 18.55 Táknmálsfréttir. 19.00 Ríki úlfsins. 19.30 Ólympíuleikarnir. Lokaathöfnín. Og þótt fyrr hefði verið, hugsa sumir. 20.00 Fréttir. 20.35 Ólympíuleikarnir. Lokaathöfnin klárast, allir fara heim. 21.30 ★ Gangur lífsins. Sem næst týpísk, amerísk fjölskylda. Með sfn vandamál. 22.20 Borg borganna. Það er náttúrlega París. Þar setja svip á bæjarlífið fjórir íslenskir listamenn: Nína Gautadótt- ir málari, Helga Guðmundsdóttir fiðluleikari, Edda Er- lendsdóttir píanóleikari og Björn Ólafs arkftekt. 22.55 Við vatnið. Kandísk sjónvarpsmynd um stúlku sem fer að heimsækja gamla frænku upp í sveit. 23.00 Listasöfn á Norðurlöndunum. LAUGARDAGUR 17.00 Villta vestrið. Fjallar um ferð svissnesks prins og lista- manns um vestrið í kringum 1830. Lýsingar þeirra og myndir af indjánum þykja merkar heimildir. 18.00 Smásögur. Fyrsta sagan af þremur í þessari þáttaröð. Sagan heitir Dawn og frambjóðandinn. S U NNUDAGUR 17.00 Konur í íþróttum. Enn um konur í blaki, en líka um íþróttasálfræði. 17.30 Háðfuglar. Þeir eru vfst breskir. Breskur húmor. 18.00 Meistaraverk Metropolitansafnsins. Kynnt þrjátíu helstu listaverk þessa fræga safns f New York. Þar á meðal eru bátslíkön frá Egyptalandi og málverk eftir Rembrandt og Monet. imiini'i 16.45 Nágrannar. 17.30 f draumalandi. Teiknimynd. 17.50 Æskudraumar. Uppvaxtarár í Ástralíu. 18.40 Feldur.Teiknimynd um hund. 19.1919.19. 20.15 ★★ Leigubílsstjórarnir. Breskurgamanmyndaflokkur, 21.10 Svona grillum við.Grísakótilettur. 21.20 ★ Laganna verðir. Amerískar löggurvið störf. 21.50 ★ Leiksoppur. So Proudly We Hail. Amerísk, 1990. Ný- nasistar vaða uppi í Bandaríkjunum og fá hálfmis- lukkaðan háskólamann til að flytja mál sitt. Honum verður hált á því. Frekar grunnt. 23.20 ★ Á Refilstigum. Backroads. Amerísk, 1981. Ágætir leikarar, Sally Field og Tommy Lee Jones, bjarga engu í þessari lánlausu vega-gamanmynd. —oaii'ifiiiiii 16.45 Nágrannar. 17.30 Krakkavísa. E 17.50 Á ferð með New Kids on the Blpck. 18.15 Trýni og Gosi. 18.30 Bylmingur. Þungarokk. 19.19 19.19 20.15 H Kæri Jón. Fer þessu ekki að slota? 20.45 ★★ Lovejoy. Fornmunasalar eru mjög óhefðbundið fólk. 21.40 ★ Eintómt klúður. A Fine Mess. Amerisk, 1986. Blake Edwards hefur gert margar gamanmyndir og sumar ágætlega fyndnar. Hér flaskar hann þó stórkostlega á mynd um smábófa sem ætla að svindla á hestaveð' hlaupum. 23.05 H Morðóða vélmennið. Assassin. Amerisk, 1986. Vél menni er gert að myrða háttsetta leiðtoga í Banda- ríkjunum. Della. 00.45 ★ Relentless. Amerisk, /989.Síðasti stríðskappinn. Löggan á hælunum á geðveikum fjöldamorðingja. Judd Nelson byrjaði sem sætur strákur í unglinga- myndum. Nú fær hann varla annað en svona hlut- verk. En hann gerir þetta svosem ágætlega. Manxnxi 09.00 Morgunstund 10.00 Halli Palli. 10.25 Kalli kanína. 10.30 Krakkavísa. 10.50 Drakúla greifi. 11.15 Róbinson Krúsó. Teiknimynd. 12.00 Landkönnun National Geographic. 12.55 Bílasport. E 13.25 Visasport. E 13.55 H Skfðasveitin. Ski Patrol. Amerisk, 1990. Þegar hópur- inn var búinn að gera allar lögguskólamyndirnar fór hann að gera skíðaskólamyndir. Afar slæmt. E 15.20 ★★ Dagar þrumunnar. Days ofThunder. Amerisk, 1990. Ástarmynd, ágæt fyrir þá sem fíla svoleiðis. Tom Cruise er slasaður kappakstursmaður sem fellur fýrir fögrum heilakvenskurðlækni.E 17.00 ★ Glys. Sápa. 17.50 Svona grillum við. E 18.00 Nýmeti. 18.40 ★★ Addams fjölskyldan. 19.19.19.19. 20.00 ★ Falin'myndavél. 20.30 ★ Næstum engíll. Aimost an Angel. Amerisk 1990. Krókódíla Dundee heldur að hann sé engili, en sann- ar að hann var einnar myndar maður. 22.10 ★★ Skuggamynd. Siihouette. Amerisk, 1990. Faye Dunaway leikur konu sem heldur sig sjá morð í gegnum glugga á hóteli. Það finnast hins vegar eng- in sönnunargögn. Ekki svo afleitur þriller. 23.30 ★ Morð í dögun. My Sister's Keeper. Amerísk, 1987. I Appalachia-fjöllum f Ameríku búa hillbillíar, sem þykja örgustu lúðar. Þar hundeltir morðingi konu. Ófrumlegt. E 01.00 ★★★ Eftirreiðin. Posse. Amerísk, 1975. Kirk Douglas leikstýrir og leikur I þessum ágæta vestra um fúlan og óvinsælan lögreglustjóra. E 09.00 09.20 09.45 10.10 10.35 11.00 11.25 11.30 12.00 12.30 14.30 15.00 17.00 18.00 18.50 19.19 20.00 20.25 21.20 22.05 23.40 Kærleiksbirnir. össi og Ylfa. Dvergurinn Davíð. Ætlar ekki að lúffa. Prins Valíant. Maríanna fyrsta. Lögregluhundurinn Kellý. Kalli kanína. í dýraleit. Eðaltónar. ★★ Svartskeggur sjóræningi. Blackbeard's Ghost. Am- erísk, 1968. Disneymynd, dálítið dæmigerð fyrir sinn tíma. Peter Ustinov er ágætur í hlutverki sjókafteins sem genguraftur. E Gerð myndarinnar Batman Returns. Rætt við aðalleik- arana og leikstjórann: Michelle Pfeiffer, Michael Kea- ton og gulldrenginn Tim Burton. ★★ Hlátrasköll. Punchline. Amerísk, 1988.. Sally Field leikur húsmóðir sem þráir að vinna fyrir sér með því að segja brandara í klúbbum. Dálítið mikið væmið, annars væri Sally varla í myndinni. E Listamannaskálinn. Viðfangsefnið er bandaríski grín- leikarinn Steve Martin. Allir virðast sammála um hvað hann er hryllilega leiðinlegur og ófyndinn, en samt er hann vinsæll. Petrov-málið. Efni þessa ártralska myndaflokks er ansi forvitnilegt. Petrov þessi var sovéskur diplómat sem leitaði hælis í Ástralíu. Það varð kveikjan að njósna- máli sem kom illa við kauninn á þekktum stjórn- málamönnum. Áfangar. Möðruvellir í Hörgárdal. Þar er altaristafla frá 1484. E 19.19. ★ Klassapíur. Amerískar kerlingar. Root fer á flakk. Nýr breskur gamanmyndaflokkur um furðufugl sem er sjálfskipaður útvörður breskrar menningar, sendiherra án sendiráðs. ★★ Arsenio Hall. Á fölskum forsendum. False Arrest. Amerísk, 1991. Framhaldsmynd um konu sem er ákærð fyrir morð og höfð fyrir rangri sök. Robert Wagner leikur stórt hlutverk, hann er kóngur amerísku míníseríunnar.. ★ ★★ ABC morðin. The ABC Murders. Bresk, 1992. Gerð eftir einni skástu sögu Agötu Christie. Enginn hefur leikið Hercule Poirot betur en David Suchet. E Ifib mælum med • Áræði Sýnar að hafa þáttinn „Konur í íþróttum" á dagslcrá á sama tíma og Ríkissjónvarpið sýnir í á annað hundrað tíma frá Olympíuleikunum. ★★★★Pottþétt ★★★Ágætt ★★Lala ★Leiðinlegt ® Ömurlegt E Endursýnt efni

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.