Pressan - 03.12.1992, Side 21
FIMMTUDAGUR PRESSAN 3. DESEMBER 1992
21
E R L E N T
Öfgafullur leiðtogi
blðkkumanna
Blökkumannaleiðtoginn og múhameðs-
trúarmaðurinn Malcolm X fór eigin leið-
ir í baráttunni fyrir mannréttindum
svartra í Bandaríkjunum og féll að lokum
fyrir morðingjahendi. Kvikmyndaleik-
stjórinn Spike Lee hefur, nú 27 árum síð-
ar, gert umdeilda mynd um óvenjulegan
mann.
Malcolm X varpar Ijósi á grimmdarlega meðferð lögreglunnar á blökkumönnum, á útifundi 1963.
Það segir sig sjálft að eftirnafnið
X er einhvers staðar fengið að
láni. Blökkumannaleiðtoginn
Malcolm, fæddur Little, tók sig til
og breytti eftirnafni sínu í X, til
minningar um þrælana forfeður
sína, sem höfðu mátt þola niður-
lægingu af hendi hvíta mannsins.
Uppátækið var í fullu samræmi
við allt annað sem þessi óvenju-
legi maður tók sér fyrir hendur, en
hann fór aldrei troðnar slóðir í
baráttu sinni fyrir mannréttind-
um svartra í Bandaríkjunum.
HEILLAÐIST AF
MÚHAMEÐSTRÚ
Malcolm Little fæddist í Omaha
í Nebraska 19. maí 1925. Faðir
hann lést skömmu síðar í bílslysi
og þegar móðir hans tapaði heÚs-
unni var honum ásamt systkinum
sínum komið fyrir á munaðar-
leysingaheimilum þar sem þau ól-
ust upp. Sautján ára gamall, í lok
síðari heimsstyrjaldarinnar, fór
hann til Harlem í New York til að
freista gæfunnar. Þar kynntist
hann skuggahliðum þjóðfélagsins
og lenti í misjöfnum félagsskap.
Malcolm X vakti strax eftirtekt
fyrir ljósa hárið og skærlitan fatn-
aðinn og var meira áberandi í út-
liti en nokkur hórmangari eða eit-
urlyíjasali. Það sem Malcolm að-
hafðist í Harlem gat ekki allt talist
heiðarlegt og þegar hann var 21
árs var honunt stungið í fangelsi
fyrir innbrot.
í fangelsinu komst Malcolm í
kynni við múhameðstrúarmann-
inn Elijah Muhammad, sem leit á
sig sem „sendiboða Allahs“ og var
ekki seinn að grípa tækifærið og
lesa yfir ungum og mjög móttæki-
legum manninum illskiljanlegar
kenningar sínar um opinberun-
ina. Muhammad hafði kynþátta-
fordóma í hávegum við túlkun
sína á múhameðstrúnni og leit
samkvæmt henni á hvíta mann-
inn sem afsprengi tilrauna svarts
vísindamanns! Malcolm hreifst af
kenningum spámannsins og lét
sannfærast um að hvíti maðurinn
væri djöfullinn sjálfur í manns-
mynd. Malcolm viðaði að sér bók-
um í fangelsinu og tók að skófla í
sig lestrarefni af ýmsu tagi svo
sem orðabókum, málfræðibók-
um, sögu blökkumanna og verk-
um helstu heimspekinga.
LAGÐIÞRÆLANAFNINU
Malcolm hafði verið gert að
dúsa í fangelsi í tíu ár, en losnaði
úr prísundinni að sjö árum liðn-
um. Hann yfirgaf fangelsið breytt-
ur maður, snúinn til annarrar trú-
ar og sjálfkjörinn fulltrúi svartra
múhameðstrúarmanna. Fullur
sannfæringar tók hann upp hætti
múslíma; borðaði ekki svínakjöt,
hætti að nota tóbak og fór með
bænirnar af samviskusemi. Ung-
lingurinn villuráfandi, sem settur
hafði verið bak við lás og slá sjö
árum áður, var nú breyttur mað-
ur, fullur alvöru og hörku. Hann
klæddist aldrei öðru en jakkaföt-
um og bindi og fór að nota gler-
augu, enda búinn að skemma í sér
sjónina eftir þrotlausan lestur í illa
upplýstu fangelsinu.
Malcolm lagði þrælanafhi sínu
Little og tók sér þess í stað nafnið
X, sem táknaði „óþekkt" og stóð
fyrir alla þá forvera hans sem
rændir höfðu verið ærunni af
hvítum þrælahöldurum. Hann
safnaði á skjótum tíma fjölda
áhangenda í kringum sig og stofn-
aði öflugan söfnuð út frá „Þjóð fs-
lams“, sem Muhammad hafði
kynnt fyrir honum. Malcolm var
snjall og áhrifamikill ræðumaður,
kunni að tala til fjöldans og hélt
mönnum við efnið.
HVATTITIL OFBELDIS
Malcolm X hafði ekkert á móti
ofbeldi, ef það mætti verða til að
ná árangri í mannréttindabaráttu
blökkumanna. Hann og Martin
Luther King voru á öndverðum
meiði í baráttu sinni fyrir bættum
hag svartra. King var hlynntur
samþættingu, Malcolm X á hinn
bóginn aðskilnaði hvítra og
svartra. Sá fyrrnefndi hvatti til
friðsamlegra lausna, sá síðar-
nefndi til viðnáms. Þegar svört
ungmenni í Jacksonville hófu upp
hörð mótmæli gegn yfirstjórn
hvítra fagnaði Malcolm því sér-
staklega. „í þessum mánuði verj-
um við okkur með mólótoff-
kokkteilum, í næsta mánuði ef til
vill með handsprengjum og í þar-
næsta mánuði með einhverju enn
öðru,“ var haft eftir honum.
Malcolm sveifst einskis og hélt
ótrauður áfram í fullyrðingum
sínum, þar sem aðrir námu stað-
ar. Hann fór ekki fínt í hlutina í
gagnrýni sinni á hvíta manninn,
sem hann kallaði öllum illum
nöfnum, meðal annars „svín“ og
„skepnu“. Eftir kaldhæðnisleg
ummæli í kjölfar morðsins á
Kennedy forseta var lærimeistara
hans, Elijah Muhammad, nóg
boðið og hann fordæmdi Malc-
olm og bannaði honum að tala
opinberlega. Hann lét það þó ekki
á sig fá heldur kallaði Muhammad
trúarhræsnara, sem hefði komið
sér upp kvennabúri á laun.
Malcolm fór í pílagrímsferð til
Mekka og sneri aftur nýr maður
eftir að hafa kynnst „öðrum“
Islam. Upp frá því boðaði hann ný
sannindi, þ.e. að guð byggi í öllum
mönnum, meira að segja þeim
hvítu. Kynþáttastefnunni líkti
hann við sjálfsmorð, hvort heldur
hún væri boðuð af hvítum eða
svörtum. Hinn „nýi“ Malcolm
reyndist ekki vera eins sannfær-
andi og sá maður sem áður hafði
leitt blökkumenn saman og tók að
fækka í hópi áhangenda hans.
Malcolm hafði hátt hvar sem
hann kom, var óvarkár maður og
átti sér marga andstæðinga. I’ kjöl-
farið af því að halla tók undan fæti
hjá blökkumannaleiðtoganum
brann húsið hans í Queens á dul-
arfullan hátt til kaldra kola. Þann
21. febrúar 1965 var Malcolm X
skotinn til bana í miðri ræðu, fyrir
augum fámenns safnaðar síns.
Þar á meðal var eiginkona hans,
Betty, sem gekk með tvíbura
þeirra, en alls eignuðust þau sex
börn.
UMDEILD KVIKMYND
Frægasti svarti kvikmyndaleik-
stjórinn í Bandaríkjunum, Spike
Lee, hefur gert umdeilda mynd
byggða á sögu Malcolms X, sem
frumsýnd var í Bandaríkjunum á
dögunum og hlotið hefur geysilegt
umtal. Lee hefur verið sakaður
um að hefja upp til skýjanna öfga-
fullan leiðtoga blökkumanna sem
hvatt hafi til ofbeldis og veiti æsku
landsins slæmt fordæmi. Þá tókst
leikstjóranum að reyta hvíta
blaðamenn til reiði, enda sagði
hann þá þess ekki verðuga að taka
við sig viðtal.
Spike Lee, sem fer ótroðnar
slóðir rétt eins og Malcolm X og
ræður nær eingöngu blökkumenn
til starfa, var brattur á blaða-
mannafundi sem haldinn var í
Bandaríkjunum í tilefhi ffumsýn-
ingarinnar fyrir skemmstu. Þar
var hann spurður, af ónefndum
íslenskum blaðamanni (!), „hvort
virkilega allir hvítir menn væru
svín“. Lee svaraði því tif að svo
væri um „suma“ og þegar gengið
var á hann og hann spurður hverj-
ir það væru sem sérstaklega hlytu
þennan vafasama heiður svaraði
hann umsvifalaust: „Reagan og
Bush“.
Ný ástaflækja
frá Woody Allen
Bandaríski leikstjórinn Woody
Allen er greinilega ekki dauður úr
öllum æðunt, þrátt fyrir að hafa
þurft að eyða talsverðu af orkunni
í erjur við fyrrum eiginkonu sína,
leikkonuna Miu Farrow. Allen
heldur sínu striki í kvikmynda-
framleiðslu og vinnur um þessar
mundir við upptöku á nýrri mynd
er nefnist Manhattan Murder
Mystery. í myndinni, sem fjallar
vitanlega um flókin ástamál, fer
Allen að venju með eitt aðalhlut-
verkið. Leikur hann bókaútgef-
anda sem stofnar til ástarsam-
bands við konu sem er að feta
fýrstu sporin sem rithöfundur.
Þegar handritið var samið var
hlutverk ástkonunnar ætlað mjög
ungri leikkonu, en eftir að sam-
band Allens við fósturdóttur Miu
Farrow komst í hámæli sá leik-
stjórinn sér þann kost vænstan að
breyta handritinu. Því lét hann
ástkonuna í skyndi eldast um 20
ár og réð Anjelicu Huston í hlut-
verkið. Skiljanlega gat Mia Farrow
ekki leikið eiginkonuna og sú sem
leysir hana af er Diane Keaton,
fyrrum eiginkona Allens og leik-
kona í mörgum fyrri mynda hans.
Hræsnarinn
Cindy Crawford
Bandaríska tímaritið Newsweek hefur lýst því yfir að Cindy
Crawford, ein eftirsóttasta sýningarstúlka heims, sé hræsnari.
Cindy hefur látið sig siðgæði kynsystra sinna miklu varða undan-
farið, mörgum til mikillar furðu. Nýverið lét Crawford þau orð
falla um sýningarstúlkuna Kate Moss, sem auglýsir gallabuxur í
engu að ofan, að hún gangi skrefi of langt með því að sýna sig
þannig berbrjósta. Þá er stutt síðan hún gagnrýndi Sex, nýút-
komna klámmyndabók söngkonunnar Madonnu. Hélt hún því
fram að það væri óviðeigandi að skýra öllum heiminum frá því,
þó að söngkonan ætti i útistöðum við föður sinn.
Hjá Newsweek þótti mönnum það því skjóta nokkuð skökku
við, þegar nektarmynd af tískusýningarstúlkunni siðavöndu birt-
ist í desmberhefti tímaritsins Playboy fyrir skemmstu. Að vísu
sýnir Crawford ekki „allt" á myndinni, en þó blasir nekt hennar
við og þykir blaðamönnunum bandarísku siðgæðisvitund stúlk-
unnar í tvöfaldara lagi. Blaðamenn hér á PRESSUNNI hafa í ofaná-
lag rekið augun í nektarmynd af Crawford á forsíðu desember-
heftis bandaríska tímaritsins Details, þannig að nokkuð Ijóst þyk-
ir að stúlkan er ekki öll þar sem hún er séð.
Hertar refsingar
við útlendingahatri
Þýskum yfirvöldum hefur
lengi verið legið á hálsi fyrir að
sýna linkind gagnvart nýnasist-
um og öðrum samtökum er of-
sótt hafa útlendinga og beitt þá
ofbeldi. Með síauknum ofbeldis-
verkum hafa gagnrýnisraddir
orðið æ háværari og svo virðist
sem það sé nú að bera árangur.
Eins og fram hefur komið ákvað
þýska stjórnin í síðustu viku að
banna nýnasistaflokkinn „Þjóð-
ernissinnafýlkinguna“ og er al-
mennt litið á það sem fyrsta
sporið í rétta átt. Þá er farið að
bregðast við ofbeldisverkum
þýskra öfgasinna af aukinni
hörku, með mun þyngri refsing-
um en tíðkast hafa fram að
þessu.
í síðustu viku dæmdi undir-
réttur í Landauer ungan mann í
þriggja ára fangelsi fyrir íkveikju
og margfalda tilraun til mann-
dráps. Maðurinn hafði hent
„molotowkokkteil“ inn um
glugga á gistiheimili fyrir rúss-
neska innflytjendur, en fýrir al-
gjöra mildi slasaðist enginn og
var unnt að koma í veg fýrir að
húsið brynni til kaldra kola. Með
dómnum sem kveðinn var upp í
Landauer þykja hafa orðið
þáttaskil í meðferð slíkra mála í
Þýskalandi, þar sem í fýsta sinn
er litið á íkveikju á heimili fyrir
innflytjendur sem tilraun til
morðs.
í Hessen eru dómsyfirvöld
sömu skoðunar og túlka íkveikj-
ur hægri ögfasinna á heimilum
innflytjenda undantekningar-
laust sem tilraunir til mann-
dráps. I æ fleiri sambandslönd-
um bregðast yfirvöld nú við sí-
auknu ofbeldi og ofsóknum á
hendur innflytjendum af auk-
inni hörku, enda ljóst að við svo
verður ekki búið lengur. Er það
mál manna, jafnt innan Þýska-
lands sem utan, að nýnasistar og
aðrir öfgasinnar hafi hlotið allt
of væga dóma fýrir afbrot sín og
herða beri refsingar skilyrðis-
laust. Vonir eru bundnar við að
fordæmi undirréttar í Landauer
verði til þess að binda enda á
hörmungarnar sem innflytjend-
ur í Þýskalandi hafi mátt þola
síðustu vikur og mánuði.