Pressan - 03.12.1992, Síða 22
22
FIMMTUDAGUR PRESSAN 3. DESEMBER 1992
LÍKLEG Á BÓK
Ljóst er orðið hverjir það eru sem sýna
sig þessi jól. Því er hægt að byrja að spá i
það hverjir muni opna sig að ári og þau
næstu þar á eftir. Margir koma til greina.
Meðal þeirra sem sterklega eru grun-
aðir eru Hemmi Gunn, Ell-
ert B. Schram, Jón Óttar
Ragnarsson, Hans Kristján
Árnason, Elin Pálmadóttir,
Stefán Benediktsson, fyrrumj
alþingismaður, Unnur Arn-
grimsdóttir, Ingvi Hrafn
\Jónsson, Árni Johnsen,
\Helgi Tómasson, Indriði
\Pálsson hjá Eimskip, Herdís
\ Þorvaldsdóttir, Jóna Rúna Kvaran, Erna
\ Hrólfsdóttir yfirflugfreyja, Matthías
\Bjarnason, Heiðar Ástvaldsson, Brynja
\ Nordquist, Ólafur Ólafsson landlæknir,
\ Ragnhildur Helgadóttir, Pétur Péturs-
\son, Haraldur Snæhólm flugmaðurog
Asgeir Guðbjartsson skipstjóri.
Hverjir eru það
eiginlega sem
kjósa að hleypa
íslensku þjóð-
inni inn á gafl
hjá sér? Hvaða
fólk er það sem
fysir að segja í
bók á opinskáan
hátt frá því sem
flestir aðrir vilja
halda fyrir sig?
Láta það eftir
þeim sem
brunnið hafa í
skinninu að for-
vitnast um
einkahagi þeirra,
en ganga um leið
fram af hinum
sem aldrei höfðu
áhuga.
Þeir eru orðnir merkilega
margir íslendingarnir sem sest
hafa niður einhvern tímann um
ævina til að setja saman minn-
ingabók. Hvatirnar geta verið
ýmsar, svo sem uppgjör við for-
tíðina, lífsreynsla, afrek, ósigur,
frásagnargleði eða jafnvel hreinn
hégómi. Ekkert í lífi þessa fólks er
því svo heilagt að ffá því megi ekki
segja í bók. Eða eins og einn af
okkar þekktari bókmenntafræð-
ingum orðaði það, þegar PRESS-
AN leitaði skýringa á því hversu
íusir íslendingar væru að opna sig
á prenti: „Ollum fslendingum
finnst þeir hafa eitthvað að segja.
Fólk hefur óskaplega gaman afþví
að sjá ævi sína á prenti og það gef-
ur því ákveðna lífsfýllingu að veita
öðrum hlutdeild í lífi sínu.“
Afkastamikill skrásetjari ís-
lenskra viðtalsbóka er þeirrar
skoðunar að það sem fær fólk til
að opna sig sé fyrst og fremst sú
staðreynd að mikið trúnaðarsam-
band myndast milli skrásetjara og
viðmælanda. „Viðmælandi skilur
að leyndarmál hans eru mjög
mikilvægur hluti sögunnar og að
það rýrir frásögnina sé þeim
sleppt.“ Annar vel þekktur rithöf-
undur heldur því fram að á ís-
landi sé við lýði ræfladýrkun. „fs-
lendingar hafa sérstakt álit á bíó-
grafískum flössurum; misheppn-
uðum snillingum, ofdrykkju-
mönnum, auðnuleysingjum og
ræflum. Það er í þjóðareðlinu og
fólk finnur til hrollkenndrar sælu
yfir að sjá aðra misstíga sig og
segja frá framhjáhaldi, drykkju-
vandamáli og ræfildómi í bók. fs-
lendingar hafa ekki áhuga á að
lesa um þá sem gengur vel.“
EINLÆGAR OG OPINSKÁ-
AR
f viðtalsbókum liðinna ára hafa
menn sagt margt og mismerkilegt;
sumt vissu flestir fýrir, annað kom
ýmsum á óvart en best geymdu
leyndarmálin þekktu fæstir fyrr
en opinberunin birtist þeim í bók.
Áður en ævisagan er færð I orð
setjast menn niður og líta yfir far-
inn veg, sem oft er reyndar ekki
ýkja langur; grafa upp lúin sendi-
bréf, fletta í gegnum rykfallin
myndaalbúm og rifja í huganum
upp gömul kynni, sem oft voru
náin.
I bókum þessum er fólk sýnt
frá öllum hugsanlegum hliðum og
ljósi varpað á svo til allt, bæði
þægilegt og andstyggilegt, sem að
því snýr; tilfmningalífið, leyndar
ástir, svik í hjónabandi, hneykslis-
mál, drykkjuvandamál, umtal,
gamlar syndir, lífsreynslu, leynda
drauma, sigra, vonbrigði, van-
heilsu, gleði og sorg. Úttektin er
svo tæmandi að eftir lestur slíkra
endurminninga finnst þjóðinni
hún þekkja viðkomandi persónu
næstum því jafhvel og sjálfa sig, ef
þá ekki betur.
Með bókaflóðinu, sem ein-
kennir íslensk jól meira en margt
annað, berast ævinlega feiknin öll
af ævisögum og endurminningum
misjafnlega vel þekktra fslend-
inga. Það er engin ímyndun að
bækur afþessu tagi séu að verða æ
fyrirferðarmeiri í flóðinu. Fyrir
§órum árum voru gefnar út 18 ís-
lenskar bækur í flokknum ævisög-
ur og endurminningar. Þetta árið
eru þær 36 talsins og taka því
drjúgt pláss í hillum bókabúð-
anna. Og það er eins með viðtals-
bækur fyrri ára og þær sem nú eru
að koma út — þær eru „einlægar,
opinskáar og láta engan ósnort-
inn“.
KONURNAR
Þær eru orðnar allnokkrar, ís-
lensku konurnar sem með þessu
móti hafa opnað sig skömmu fýrir
jól. Meðal þess sem fýlgir flóð-
bylgjunni, sem nú er skollin yfir,
er bók metsöluhöfundarins Ing-
ólfs Margeirssonar, Hjá Báru, um
Báru Sigurjónsdóttur kaupkonu.
Því er lofað að bókin sé bæði heið-
arleg og spennandi, enda íjalli hún
um dramatíska atburði og leynd-
ustu sálarátök. Rósa Ingólfsdóttir
hefur aldrei legið á skoðunum sín-
um, eins og mátt hefur lesa úr
blaðaviðtölum. Rósa hefur alltaf
eitthvað að segja og því gat enginn
látið það koma sér mjög á óvart,
þótt hún afréði að lengja mál sitt
um þessi jól. í bók Jónínu Leós-
dóttur, Rósumálum, er Rósa sögð
lýsa viðburðaríkri ævi sinni,
harrni, ást og erfiðri lífsbaráttu, og
dregur víst ekkert undan, frekar
en áður. Önnur kona sem segir
sögu sfna í nýrri bók Rósu Guð-
bjartsdóttur, Thelmu, er Thelma
Ingvarsdóttir, fyrrverandi fyrir-
sæta. í bókinni er kafað djúpt í
einkalíf Thelmu og sagt frá
stærsta ósigrinum í lífi hennar, er
eiginmaður hennar tók aðra konu
ff amyfir hana.
Fyrir þremur árum opnaði
Guðrún Ásmundsdóttir leikkona
sig í bók Ingu Huld Hákonardótt-
ur, Ég og lifið. Einkalíf Guðrúnar
er henni ekki heilagt ffekar en svo
mörgum öðrum og í bókinni segir
hún ítarlega ffá tilfinningum sín-
um, hjónabandi, ást og trú. Sama
ár kom út saga Hebu Jónsdóttur,
Sendiherrafrúin segirfrá. Heba
mun hafa ákveðið löngu áður að
segja sögu sína og taldi hún sig
gera þjóðfélagslegt gagn með því
að segja sannleikann. í bókinni
hlífir hún engum og segir m.a. ffá
grimmilegum málaferlum I skiln-
aðarmáli sínu. Umdeild kona á
efri árum sagði sögu sína í tæka
tíð fyrir jólabókastreymið 1989.
Stefán Jökulsson skráði þá ævi-
sögu Hallbjargar Bjarnadóttir
listakonu sem hlaut nafnið Hall-
björg. Þessi orgínal, sem gekk
fram af íslendingum en flúði til
útlanda þar sem hún hlaut al-
menna viðurkenningu, segir í
bókinni frá sorg og gleði og öllu
þar á milli. Af öðrum opinskáum
kvennasögum sem út hafa komið
síðustu árin má nefna lífssöguna
Bryndísi, barn Bryndísar Schram
og Ólínu Þorvarðardóttur. f bók-
inni varpar Bryndís Ijósi bæði á
bjartar og dökkar hliðar lífs-
hlaupsins. Dregin eru fram áður
óbirt skjöl; innileg gömul sendi-
bréf ffá eiginmanni Bryndísar og
sagt frá því afli sem skiptir hana
mestu máli í lífinu — ástinni.
UPPGJÖRIN
Ýmsir hafa notað bókina til að
gera upp við fortíðina. Svo er
meðal annars um Lydiu Pálsdótt-
ur Einarsson, ekkju Guðmundar
Einarssonar frá Miðdal, en I nýút-
kominni bók Helgu Guðrúnar
Johnson, Lífsgöngu Lydiu, er tek-
ið á óvenju óþægilegu máli. í bók-
inni varpar Lydia ljósi á sérkenni-
lega fjölskylduhagi sína, mál sem
hneykslaði íslensku þjóðina á ár-
unum í kringum stríð, en legið
hefur í þagnargildi síðan. Lydia
gerir upp við fortíð sína í bókinni
LÍF í BÓKUM
Ekki er hægt að segja annað
en líf sé í ævisögum íslend-
inga, en meðal bókartitla
síðustu ára voru þessir:
Lífsstríðið
Lifssaga
Lifsspegill
Lifsbók
Lífsgleði
Lífróður
Lífsháskinn
Lifsganga
Lífsreynsla
Lífsjátning
Ég og lífið
Ellefu lif
Aflifi og sál
Margfaltlíf
Lífmitt og gleði
Lifið er lotterí