Pressan - 03.12.1992, Síða 31
FIMMTUDAGUR PRESSAN 3. DESEMBER 1992
31
HÁTINDUR ÁNÆGJUNNAR
ATUNGUNU
Nú keppast allir við að vera sérstakir. Þar eru ekki undan-
skildir þeir Richard Scobie ogfélagar hans úr alþjóðlegu
rokksveitinni X-rated sem efndi til útgáfutónleika með
meiru áfimmtudagskvöld. Þetta voru semsé ekki bara tón-
leikar heldur einnig skuggamyndasýning afnakinni konu;
reykelsisilm lagðifyrir vit manna og vínið flautyfir árbakka
sína. Stærsta prikiðfá þeirfélagarnirfyrir boðsmiðann, sem
var merkilega góð og reyndar einnig eiguleg hugmynd, en
hann var íformi myndarlegs kross í leðurbandi.
Útvarpsstjarnan Valdís
Gunnarsdóttir í góðum
féiagsskap Hrundar, eig-
inkonu eiganda útvarps-
stöðvarinnar FM. Þær
bera báðar krossinn um
hálsinn en fóru þó ekki
með trúarjátninguna, að
minnsta kosti ekki opin-
beriega.
Hvað ætli hafi
gengið i gegnum
huga Siggu Bein-
teins á þessu
augnabliki?
Drápuhliðardrottningin og þó. Nei, þetta
er bara Rave-drottningin hún Bryndís hjá
Dansstúdíói Sóleyjar sem kennir Rave
daginn út og inn.
Berleggjuð með bert
á milli sté Marta
dans í bjarma
Tunglsins.
Fyrrum hljómsveitarfélagaren núverandi
vinir Richards Scobie, þeir Sigurður Grön-
dal og Ingólfur Guðjónsson, sem kunnari
er undir Golla-nafninu. Þetta eru menn-
irnir á bak við Kiss- gervið. Þótt þeir tækju
sig vel út í gervinu eru þeir öðruvísi en
hin upprunalega hljómsveit að því leyti
að þeir þora að láta sjá sig opinberlega
ómálaðir.
Fljótt á litið virðist myndlistarmað-
urinn Nonni eiga sértvífara, að
minnsta kosti í hinum einstaka og
djarfa klæðaburði.
35 g
Lági-Hóll
er tilvalinn fyrir litlar fjallageitur.
éW S°9
í' # Hér verða
£ fjallkóngarnir
að velja ó milli Ljósuf jalla,
Dökkufjalla og Hvítufjalla.
100 g
Þrídrangar.
Allt að því hættulega
freistandi.
3x lOOg
... og freistingin
þrefaldast.
200 g
Það fylgir því Ijúf sælutilfinning
að sigrast á Tindafjöllum.
400 g
Tígulegir súkkulaðitindarnir gnæfa
yfir núggat þaktar fjallsræturnar.
Þú kemst ekki hærra.
Áskorun sem enginn stenst.
Toblerone,
sex stærðir, þrír litir,
ótal ánægjustundir.
Það fór vel á með gömlu Stuðmönnunum,
Ragnhildi Gísladóttur og Agli Ólafssyni, á Bar-
rokk, en þau eru hvort í sínu horninu um þess-
ar mundir á sóló-flippi.
m\\ uðtt
á Barrokk
Kvikmyndastjarna íslands og eitt
mesta poppgoð landsins, Egill Ólafsson,
heldur sig við sama ritmann í ár og í
fyrra. Hann gefur nú út plötuna Blátt
blátt, en fyrir um ári kom út platan hans
Tifa tifa. Af því tilefni hélt hann vinum
sínum, vandamönnum og velgjörðar-
fólki veislu á bláa staðnum Barrokk þar
sem boðið var upp á tónlist, drykk og ar-
ineld.
Egill Ólafsson? Nei, bróðir hans, Hinrik Ólafs-
son. Það má vart á milli sjá hvor líkist hinum
meir. Er það kannski bara hárið? Við hlið hans
sitja Alfreðsdæturnar tvær úr Garðabæ sem
orna sér báðar við arineldinn.
Agli var klappað lof í lófa fyrir tónlist sína. f
bakgrunni má sjá hina Kátu pilta, en fyrir fram-
an þá standa Óskar í Skífunni, einn af aðstoð-
armönnum Egils, og hinn mikli gleðimaður
Valgeir Skagfjörð.
HVERJIR ERU HVAR?
Það stendur skrifað svart á hvítu í News from lceland að á
Bíóbarinn venji komur sínar ieikarar, myndlistarmenn, fjöl-
miðlafólk og kvikmyndagengi. News-ið er ekki langt frá
sannleikanum því þar brá fýrir um helgina leikurunum Jó-
hanni Sigurðarsyni, Baltasar Kormáki, Steinunni
Ólínu Ingvari E. Sigurðssyni og Tinnu Gunnlaugs,
myndlistarmönnunum Magnúsi Tómassyni, Hring Jó-
hannessyni, Húberti Nóa, Daníel, Huldu Hákon og
Jóni Óskari. Þarna voru líka Friðrik Þór Friðriksson, Eg-
ill Ólafsson, Sigursteinn Másson, Arthúr Björgvin
Bollason, nokkrir aðstandendur myndarinnar Stuttur
frakki, Rafn Jónsson kvikmyndagerðarmaður, Bergþór
Pálsson, Robin Stapleton, Mörður Árnason og Einar
Örn sykurmoli. Bára Sigurjónsdóttir gerði stuttan stans
og Brynja Nordquist leit inn. Á Café Romance voru
meðal annarra Bára Sigurjónsdóttir Svava Johansen
og Bolli í Sautján, grínbræðurnir Halli & Laddi, Brynja
Nordquist, Sigursteinn Másson, Baltasar og Steinunn
Ólína. í Rósenbergkjallarann kíktu inn Móeiður Júní-
usdóttir og hennar maður, Eyþór Arnalds, Baltasar,
Dóra Takefusa, Júlíus Kemp og Ingibjörg Stefáns-
dóttir. Björk sykurmoli var erlendis um þessa helgi en
hún er tíður gestur. Hún lofaði þó að mæta aftur þegar
heim væri komið um jólin. Á hæðinni fyrir ofan, í Tunglinu,
voru Svava Johansen, Simbi, Biggi, Bjarni Breiðfjörð,
Hildur Hafstein, Rut Róberts í Kjallaranum, Richard
Scobie, Júlíus Kemp og Ingibjörg og nokkur módel; þær
Anna Margrét Jónsdóttir Elma Lísa og Nanna Guð-
bergsdóttir. Þarna áttu Baltasar og Sigursteinn Más-
son líka leið hjá. Af ofanskráðu má sjá að Baltasar Kor-
mákur er ókrýndur konungur samkvæmislífsins og geri
aðrir betur ívíðferli.
Sálarskipti Prelude To a Kiss ★ ★
Alec Baldwin lendir í þeim ósköp-
um að gamall maður kyssir kon-
una hans löngum kossi og skiptir
um líkama við hana á meðan.
Friðhelgin rofin Unlawful Entry
★★ Þetta gæti verið Höndin sem
vöggunni ruggar II eða Pacific
Heights III.
Systragervi Sister Act ★★ Það er
visst áfall þegar kemur í Ijós að
systurnar syngjandi eru fyndnari
en Whoopi Goldberg.
Veggfóður ★★★ Fjörug og
skemmtileg.
Fríða og dýrið The Beauty and the
Beast ★★★ Ótrúlega fögur mynd
og fjarska óhugnanleg þegar það
á við.
Kúlnahríð Rapid Fire ★★ Hefnd
sonar Bruce Lee. Karatemennirnir
eru í hærri klassa en kvikmynda-
fólkið og fá báðar stjörnurnar.
Systragervi Sister Act ★★ Blanda
gaman- og tilfinningasemi og
sannar að það er sjaldan góður
kokkteill.
Lygakvendið Housesitter ★★
Myndin er spunnin út frá bráð-
snjallri hugmynd, en það er líka allt
og sumt.
Kaliforníumaðurinn California
Man ★ Hellisbúi í Kaliforníu.
HASKOLABIO
Ottó Otto der Liebesfdm ★ Otto
Waalkes virðist vera svo fljótur að
búa til myndir að engar líkur eru á
að eftirspurn eftir honum vaxi á
milli myndanna. Hann er því á
góðri leið með að verða eins og
Valgeir Guðjónsson var á tímabili
og ætti að fara að ráðum hans og
hafa hægt um sig um stund.
Jersey-stúlkan Jersey Girl ★ Gam-
anmynd fyrir þá sem sjá allt í bíó;
þá sem þola ekki að eiga eina ein-
ustu stund með sjálfum sér eða
sínum nánustu.
Boomerang ★ Myndin sem átti að
draga úr hraðri niðurleið Eddies
Murphy af stjörnuhimninum. Hann
stendur sig þokkalega en getur
samt litlu bjargað.
Forboðin ást Ju Dou ★★★★
Meistaraverk. Óvenjustílhrein
mynd þar sem hvert smáatriði er
mikilvægur þáttur í magnaðri
heild.
Svo á jörðu sem á himni ★★★.
Háskaleikir Patriot Games ★★
Smásmuqulegheit eru helsti kostur
reyfara eftir Tom Clancy. Þegar þau
vantar verður söguþráðurinn helsti
fátæklegur.
Steiktir grænir tómatar Fried
Green Tomatoes ★★★
LAUGARASBIOI
Lifandi tengdur Live Wire ★
Mynd fyrir myndbandamarkað
sem einhverra hluta vegna hefur
fengið forsýningu í bíó.
Tálbeitan Deep Cover ★★ Nokk-
uð smart mynd með meira af
spennu en ofbeldi.
Eitraða Ivy Poison Ivy ★ Þótt
Drew Barrymore sé fræg að end-
emum í slúðurdálkunum er hún
ekki nógu svakaleg til að standa
undir þessari rullu.
Á réttri bylgjulengd Stay Tuned
★ Jón Axel og Gulli — The Movie.
Nokkuð af góðum hugmyndum
en þreytandi til lengdar.
Leikmaðurinn The Player
★★★★ í senn þriller, gamanmynd
og háðsádeila. Algjört möst — líka
til að sjá 65 stórar og litlar stjörnur
leika sjálfar sig. Maður býst við
Gunnari Eyjólfs í hverri senu.
Sódóma Reykjavík ★★★ Álappa-
legir smákrimmar í höfuðborginni.
Homo Faber ★★★★ Hittið frá
síðustu kvikmyndahátíð endursýnt.
Henry, nærmynd af fjöldamorð-
ingja ★★ Að ýmsu leyti ókræsi-
legri morðingi en Hannibal Lecter.
Prinsessan og durtarnir ★★★($-
lensku leikararnir standa sig ekki
síður en þeir teiknuðu.
í sérflokki A League of Their Own
★★★ Líklega skemmtu leikararnir
sér enn betur en áhorfendurnir.
Það ætti hins vegar engum að
leiðast að horfa á Geenu Davis. Það
á þó ekki við um eldri útgáfuna af
henni né fimmtán síðustu mínút-
urnar. Þær máttu missa sín.
Bitur máni Bitter Moon ★★★
Meinlega erótísk og oft kvikyndis-
lega fyndin sápuópera. Mikið tal,
strandferðaskip og allt sem prýða
má góða og gamaldags sögu.
Börn náttúrunnar ★★★
Borg gleðinnar City of Joy ★★★
Myndin kemur óhugnaði fátækra-
hverfanna í Kalkútta vel til skila en
sagan mætti vera rismeiri.
Fríða og dýrið The Beauty and the
Beast ★★★