Pressan - 10.12.1992, Page 20
20
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. DESEMBER 1992
E R L E N T
Mengun frá bandarískum herstöðvum
Tíu þúsund tonn af
úrgangi við Heiðarfjall
l l!íi| \ til ;
MtW'
m 1
Mm
»I|
Piulí.
í / II,
A' Ux?
,T/
r* v *' ''4
í tímaritinu U.S. News & World Report er fullyrt að Bandaríkjamenn hafi skilið eftir sig tíu þúsund tonn af úr-
gangi á Heiðarfjalli á Langanesi. Að auki er talið að jarðvegur við alla herflugvelli í Evrópu sé illa farinn
vegna mengunar. Myndin er af fjarskiptabúnaði Bandaríkjahers á Miðnesheiði.
Mlaður
vikunnar
Borís Jeltsín
Borís Jeltsín Bússlandsforseti á ekki sjö
dagana sæla nú frekar en endranær.
Upphaflega litu menn á Jeltsín sem alkó-
hólíseraðan lýðskrumara og um hann
hafa alltaf leikið snarpir vindar, allt frá
því hann stakk Gorbatsjov af í hollustu
sinni við perestrojku og glasnost. Gorbat-
sjov þótti þá nóg um og lét Jeltsín fjúka,
en sá hlær best, sem síðast hlær, eins og
Gorbatsjov fékk að reyna þegar hann
sneri aftur til Moskvu eftir valdaránstil-
raunina í Moskvu í ágúst I fyrra. Þá kom I
Ijós í hverjum var mestur töggur. Jeltsín,
sem þá var nær valdalaus Rússlandsfor-
seti, sýndi og sannaði fyrir Rússum og
umheiminum að hann hafði hugrekki og
pólitískt hyggjuvit til að standa valda-
ránstilraunina af sér og hafa sigur að lok-
um. Síðan hefur margt gerst, en fyrst og
ffemst hefur kostur almennings þrengst,
því menn eru í óða önn að greiða niður
gjaldþrot kommúnismans. Unnt er að
benda á að á sumum sviðum hefur
ástandið síður en svo versnað, en það
hefur breyst frá því, sem áður var, og
menn geta nú kvartað án þess að hætta
á gúlagvist. Leið Rússa til markaðshag-
kerfis er og verður löng og ströng. Gömlu
kerfisglæþamennirnir, sem flestireru
enn á sínum stað í kerfinu, eru staðirog
munu ekki láta sitt fyrr en í fulla hnefana.
Þjóðin, sem hefur í raun aldrei kynnst
frelsi fyrr en nú, á enn í erfiðieikum við að
semja sig að hinu nýja kerfi, þar sem
frjálsir samningar manna í millum eiga
að taka við af skýlausu valdboði að ofan,
sem tíðkast hefur ffá aldaöðli þar austur
frá. Styrinn stendur um það hvort halda
eigi áffam á markaðsbrautinni eins og
frjálslyndir vilja eða snúa afturtil mið-
stýrðs efnahagskerfis eins og gömlu
kommamir vilja. Jeltsín fær gagnrýni úr
báðum áttum, enda er hann fýrst og
ffemst snjall pólitíkus fremur en efna-
hagssniilingur. Hann veit sem er, að hin
skyndiiegu og hörðu markaðslögmál
mælast ekki vel fyrir hjá fólki, sem hefur
vanist því frá fæðingu aö þrauð sé niður-
greitt enda þótt framboðið af því hafi
ekki verið upp á marga fiska. En hann
veit líka að ef hann fer að vilja gömlu
kommúnistanna er valdaumboð hans
um leið rokið út í veður og vind, að ekki
sé minnst á ertenda aðstoð og velvilja Al-
þjóðabankans. Að likindum leysir Jeltsín
málið í bili með því að láta einhverjar
sárabætur af hendi, hvort sem það verð-
ur ódýrari vodki eða meira kjötframboð i
höfuðborginni, þvi þrátt fyrir stærð
landsins nær pólitíkin vart út fyrir borgar-
mörk Moskvu. Hriðin, sem nú er gerð að
Jeltsín, krefst ekki sama hugrekkis og at-
burðirnirá haustdögum 1991, en þrýst-
ingurinn á hann á enn eftir að aukast og
innan tíðar kann að reyna á það hvort
forsetinn hefur einurð til að standast lýð-
ræðislega aðför andstæðinga sinna.
Bandaríkjamenn skilja
eftir sig ótrúleg um-
hverfisspjöll við yfir-
gefin hernaðarmann-
virki. Meðal þeirra er
gamla ratsjárstöðin á
Heiðarfjalli, segir í
tímaritinu U.S. News &
World Report. Engar
áætlanir eru til um
hvernig á að hreinsa
upp meintan óþverra
né hver á að borga fyr-
ir það.
Bandaríkjamenn eru að yfirgefa
eða draga verulega úr umsvifum
sínum í 492 herstöðvum, þar af
463 víðs vegar í Evrópu. En þótt
hermenn og tæki þeirra fari til
heimalandsins verða eftir tug-
milljarða umhverfisspjöll sem
óvíst er hvemig unnið verður á. í
nýlegri grein í bandaríska tímarit-
inu U.S. News & World Report
kemur fram að bandarísk hernað-
aryfirvöld eru treg til að takast á
við þennan vanda, aðallega af fjár-
hagsástæðum. Meðal óleystra
vandamála eru mengun sem skil-
in var eftir á Heiðarfjalli á Langa-
nesi, en þar starfrækti bandaríski
herinn ratsjárstöð íþrettán ár.
UNDANSLÁTTUR EÐA ÓSANN-
INDl
Bandaríski herinn hefur verið
tregur til að viðurkenna að meng-
un ffá herstöðvum hans væri ai-
varlegt vandamál. Svör við spurn-
ingum eru oft bein ósannindi eða
fyrirsláttur þar sem vísað er í regl-
ur sem sjaldan er framfylgt. End-
urskoðunarstofnun Bandaríkja-
þings, General Accounting Office
(GAO), hefur gert tvær skýrslur
um vandann, aðra 1986 og hina í
fýrra, en báðar hefur herinn gert
að leyndarmálum með vísan í ör-
yggishagsmuni Bandaríkjanna.
Opinberlega ber hernum að
fara eftir umhverfisverndarlögum
Bandaríkjanna eða landsins, þar
sem herstöðin er, og þá þeim sem
ganga lengra. í skýrslu sinni frá
1991 kemst GAO hins vegar að
þeirri niðurstöðu að lögum og
reglum hafi ekki verið framfylgt
við neina af þeim tíu herstöðvum
sem skoðaðar voru í Japan, Kór-
eu, á Filippseyjum, Englandi og
ftalíu. Og þegar spurt var um
mengun voru svör yfirmanna
hersins ýmist óljós eða ekki sann-
leikanum samkvæmt.
I kjölfar frétta af mengun við
flotastöðina við Subic-flóa á Fil-
ippseyjum fullvissaði James Lilley
aðstoðarvarnarmálaráðherra fil-
ippeyska forsetann, Corazon Aqu-
ino, um að enginn eiturefiiavandi
væri þar á ferð. Fáeinum vikum
áður hafði GAO komist að þeirri
niðurstöðu í skýrslu að vandinn
væri gríðarlegur. Við brotthvarf
frá Subic-flóa tekur flotinn nú
með sér þau eiturefni sem hægt
er, en skilur eftir illa mengaðan
jarðveg og grunnvatn.
Fyrir tveimur árum kvaðst
annar yfirmaður í Pentagon, Le-
wis D. Walker, ekki vita af neinum
mengunarvanda vegna banda-
ríska hersins í Þýskalandi. Þá
hafði herinn sjálfur áætlað að
kosta mundi milljarða króna að
hreinsa upp mengun víðs vegar í
Þýskalandi.
Við endurbætur á ströndinni
við bækistöðvar bandaríska flot-
ans í Yokosuka í Japan var jarð-
vegur þaðan sendur til notkunar
sem fylliefni annars staðar. Hann
reyndist hins vegar svo mengaður
af PCB-eiturefnum og þung-
málmum að setja varð hann affur
á sinn stað og hætta við endur-
bæturnar.
TIU ÞÚSUND TONN Á HF.IDAR-
FJALLI
Á Heiðarfjalli á Langanesi er
áætlað að séu um tíu þúsund tonn
af úrgangi á eins og hálfs hektara
svæði, að því er segir í U.S. News
& World Report. í blaðinu segir
að kadmín, blý og aðrir þung-
málmar hafi komist í grunnvatn
og orðið til þess að landeigendur
neyddust til að hætta við fyrirhug-
aða laxarækt í nágrenninu.
Bandaríski herinn rak ratsjár-
stöð á Heiðarfjalli á árunum
1957-1970, en viðmælendur
PRESSUNNAR í íslenska stjórn-
kerfinu könnuðust ekki við töluna
sem nefnd var hér að ofan. Hver
fslendingur skilur effir sig um eitt
tonn af úrgangi á ári og miðað við
þá tölu hefur verið þarna 770
manna byggð í 13 ár. Þessi tala er
því býsna há~, en af lýsingum að
dæma er þetta þó hættuleg meng-
un, þungmálmar og annar iðnað-
arúrgangur.
Það er reyndar ekki óumdeilt
hérlendis hversu mikil og hvers
eðlis mengunin á Heiðarfjalli er.
Ekki liggur fyrir vísindaleg rann-
sókn á magni hættulegra þung-
málma, en frumkönnun hefur far-
ið fram á svæðinu. Núverandi
landeigendur keyptu landið árið
1974, fjórum árum eftir að herinn
fór, en hófu kröfugerð á hendur
íslenska ríkinu árið 1989. Þeir
benda á að vitneskjan ein um
haugana efiir herinn sé næg til að
ekki verði hægt að rækta eða selja
lax af þessu svæði.
En hver sem mengunin er á
Heiðarfjalli er hún í það minnsta
ekki geislavirk eins og sú sem ná-
grannar okkar í Holy Loch í Skot-
landi þurfa að fást við. Þar létu
bandarískir kjarnorkukafbátar
geislavirkt kælivatn leka í höfnina
reglulega í heilan áratug, að sögn
James Bush, sem var flotaforingi á
þremur kafbátum þar. Sjóherinn
neitaði þessu þá opinberlega, en
segir nú að geislamengunin hafi
verið í lágmarki. Flotastöðinni í
Holy Loch var lokað í sumar.
DÝRTAÐ HREINSA UPP
Bandaríski herinn áætlar að
eyða um 25 milljörðum dala
(rúmlega þrjú þúsund milljörðum
króna) vegna hreinsunar í kring-
um herstöðvar í Bandaríkjunum.
Engin slík áætlun er til vegna her-
stöðva erlendis og yrði kostnaður
að óbreyttu að greiðast með
rekstrar- og viðhaldsfé. Áætlanir
um kostnað eru mjög á reiki, allt
frá 6 milljörðum króna í um 200
milljarða í Evrópu einni, en seinni
talan er tveggja ára gömul áætlun
hersins.
í Evrópu bera Bandaríkin
suman kostnað samkvæmt sér-
stökum samningi við Nató, en í
öðrum tilfellum þarf að semja um
skiptingu kostnaðar við viðkom-
andi ríkisstjóm. Að venju em það
vanþróaðri ríki á borð við Filipps-
eyjar, Kóreu og Tyrkland sem
minnsta athygli fá.
Flugvellir í Evrópu eru meðal
þess sem sjónir beinast ekki síst
að. Starfsmenn flughersins, sem
til þekkja, viðurkenna að mengun
frá þotueldsneyti sé „næstum ör-
ugglega" vandamál á öllum her-
flugvöllum í Evrópu. Bandaríkja-
menn hafa nú lagt 1,2 milljarða
króna í að hreinsa upp áhrifin af
rúmlega milljón lítrum af þotu-
eldsneyti sem láku úr neðanjarð-
arleiðslum við Rhein-Main og
ógna nú vatnsbóli 650 þúsund
Frankfurt-búa. Þess er ekki getið
hvort svipuð vandamál hafa kom-
ið upp á Nató- flugvellinum á
Miðnesheiði._______________________
Karl Th. Birgisson
Sitignþorc 'úhoíhcoö íintco
Hólmganga íHongKong
Deila Chris Pattens, landstjóra í Hong Kong, og kommúnistastjórnar-
innar í Peking er að komast á hættulegt stig. Andstæðingarnir horfast í
augu gráir fyrir járnunt líkt og tveir byssumenn í villta vestrinu. Kínverj-
ar láta engan velkjast í vafa um að þeim er fúlasta alvara og þeir vilja vera
með í ráðum um hvert einasta smáatriði stjórnar Hong Kong þar til þeir
taka við stjórnartaumunum árið 1997.
Þeir sem fylgjast með af köldu raunsæi kunna að telja Kínverja óvenju
hörundsára að yfirlögðu ráði. Effir að Kalda stríðinu lauk hefur Peking-
stjórnin aldrei átt nógu sterk orð til að lýsa hneykslan sinni á framferði
Vesturlanda. Gott dæmi um þetta er að Kínverjar vilja helst ekki ræða
mannréttindamál í Kína við vestræna stjórnarerindreka og telja þau ein-
faldlega ekki koma neinum við, þar af leiðandi ekki á dagskránni og í
raun móðgandi af Vesturlandabúum að fitja upp á þeim. Kínverjar telja
sig greinilega leika aðalhlutverkið í Asíu að Kalda stríðinu loknu og telja
hina fornu menningu sína ekkert þurfa að sækja til framandi (les: vest-
rænna) hugmynda um frelsi, lýðræði ogþingræði.
Góðir stjórnmálamenn eru sveigjanlegir. Patten þarf að gera það upp
við sig hvort hagsmunum Hong Kong er best borgið með því að auka
lýðræði þar næstu 54 mánuði á kostnað góðra samskipta við Peking-
stjórnina, sem mun láta alla lýðræðislega stjórnarhætti lönd og leið í júlí
1997.