Pressan - 14.01.1993, Blaðsíða 2

Pressan - 14.01.1993, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR PRCSSAN 14. JANÚAR 1993 U N D 1 R Ö X I N N I Eru elli- heimilin ekki að brjóta lög, Jón Sæmundur? ,Ég treysti mér ekki til að halda því fram. Þetta er mál sem áreiðanlega er hægt að finna góða lausn &' - Það liggur fyrir að daggjalda- kerfið hefur verið misnotað. Ber ekki að rannsaka málið vegna hugsanlegra lögbrota? „Það er örugglega rétt að fara ofan (saumana á þessu máli. Við hljótum að gera það í sam- vinnu við forstöðumenn og stjórnir elliheimilanna." - Af fréttum að dæma virðist þú réttlæta þessi svik eða misnotk- un á þeirri forsendu að gamla fólkið hafi engan skaða borið. Eru svik réttlætanleg ef þau eru í þágu góðs málefnis? „Nei. Ég hef satt að segja ekki fengið fullar upplýsingar um til- vik þar sem gamla fólkið hefur verið látið borga sjúklingahlut- ann, en almennt er ég einfald- lega að segja að í flestum tilfell- um hafi gamla fólkið ekki kom- ið illa út úr þessu máli og muni ekki gera. Ég segi þetta til að taka fyrir að fólk verði tauga- óstyrkt um að einhverjar hremmingar séu framundan gagnvart þessu fólki. Aðgerðir okkarað undanförnu hafa enda verið teygðar og togaðar og séðar í ugluspegli." - Allt um það hafa svikeða mis- notkun átt sér stað. Felur það ekki í sér skilaboð til fteiri aðila ef elliheimilin komast upp með að leika Hróa hött? „Auðvitað á fjárveiting að standa, í þessu tilfelli (formi daggjalda. Það má segja að þarna hafi menn verið að ávísa á kerfið í þágu góðs málefnis. Það viljum við leiðrétta og gera á réttan hátt, en ekki með nornaveiðum eða grimmileg- um lagavendi. Þarna var hallað á kerfið, en það eru ýmis grá svaeði í málinu sem þarf að skoða. Það gerist með viðræð- um og samvinnu." Elliheimili hafa orðið uppvís að þvf að svindla á daggjaldakerfinu með þvi að láta hina öldruðu borga fyrir lyf, sem þeir fá endur- greidd. Elliheimilin fá daggjöld frá ríkinu og þar er gert ráð fyrir lyfja- kostnaði. Jón Sæmundur Sigur- jónsson er formaður T rygginga- ráðs. F Y R S T F R E M S T PÁLL PÉTURSSON. Einarðlega á móti EES. EIÐUR GUÐNASON. Páll var Ifka á móti litasjónvarpinu. EES I LIT Það flugu mörg skeyti undir lokin á umræðum um EES-samn- inginn á Alþingi. Einn harðskeytt- asti andstæðingur samningsins er Páll Pétursson, sem fór með þingmannseið sinn við lokaat- kvæðagreiðslu, þungur á brún. Það var hins vegar eftir eina af þrumuræðum Páls á dögunum að Eiður Guðnason umhverfisráð- herra kvaddi sér hljóðs og sagðist alls ekki undrast að Páll Pétursson væri á móti þessu mikla framfara- og þjóðþrifamáli. Ein fyrstu kynni sín af Páli hefðu nefnilega verið þegar Eiður var fréttamaður á Sjónvarpinu og Páll gerði sér sér- staka ferð þangað til að lýsa ein- dreginni andstöðu sinni við þá menningarhættulegu nýjung — litasjónvarpið. INGI R. FJÁRMAGNAR McDONALD’S Undirbúningur er í fullum gangi að byggingu og rekstri fýrsta McDonald’s-hamborgarastaðar- ins á íslandi. Það er Kjartan öm Kjartansson sem ætlar að reka staðinn, en líkur eru á að það verði fjármögnunarfyrirtækið Lýsing hf. sem fjármagnar. Einn stjórnarmanna í Lýsingu er eng- inn annar en gamli sósíalistinn og „gullkistuvörðurinn“ Ingi R. Helgason. Auk Coca Cola hafa áreiðanlega fá fýrirtæki farið eins mikið í taugarnar á evrópskum vinstri- og menntamönnum og einmitt McDonald’s, en þeir hafa litið á þá amrísku lágmenningu sem verstu birtingarmynd meintrar menningarheimsvalda- stefnu Bandaríkjanna. Ef svo fer sem horfir verður það þó fýrir til- stilli eins helsta forystumanns ís- lenskra sósíalista sem ameríkanís- eringin nær hámarki á íslandi með McDonald’s-hamborgurum. Það er kannski síðasta sönnunin um breytta heimsmynd. RUSLAFERÐIRTIL ÚT- LANDA Það verður að segja að sam- viskusemi stjórnar Sorpsamlags Vestíjarða sé lofsverð. Þannig stendur stjórnin nú fýrir útboði í sorpbrennslustöð fyrir norður- svæði Vestfjarða og sendi af því tilefni í byrjun janúar bréf til sjö aðila og umboðsmanna þeirra sem bjóða í verkið. f bréfunum er skýrt tekið fram að einn af þess- um sjö aðilum hafi nú þegar boðið Gunnari M. Magnússyni, starfsmanni sorpsamlagsins, og þriggja manna framkvæmda- stjórn í utanlandsferð til að skoða sams konar sorpbrennslu og hann hyggst bjóða upp á. Þá ákvað stjórnin að innsend tilboð yrðu ekki tekin alvarlega nema að því tilskildu að þriggja manna fram- kvæmdanefnd og framkvæmda- stjóri fengju að skoða boðinn búnað í rekstri. Við stjórninni blasa því mikil ferðalög á allt að sjö staði erlendis, allt í þeim til- gangi auðvitað að ná lægra verði. Ef af alútboði hefði orðið, en því var hafnað á fundi stjómarinnar, er ljóst að ferðirnar hefðu orðið mildu færri, ein eða jafnvel engin. STEINGRÍMUR AF HÁLFU FRAMSÓKNARFLOKKS Það vakti að vonum athygli að Framsóknarflokkurinn skyldi láta Steingrím Hermannsson, for- mann sinn, tala í öllum þremur umferðum útvarpsumræðnanna um EES-málið, í ljósi þess að tvenns konar afstaða var til máls- ins innan þingflokksins. Vitað er að togstreita ríkti um það hveijir ættu að tala, en til að byrja með var aðeins gert ráð fýrir tveimur umferðum. Það var stjórn þing- flokksins sem lagði til að Stein- grímur talaði í báðum umferðum og er sú tillaga athyglisverð í ljósi þess að stjórnina skipa Páll Pét- ursson, EES- andstæðingur, og þau Ingibjörg Pálmadóttir og Jón Kristjánsson, sem bæði sátu hjá við afgreiðslu málsins. Það mun hafa verið Jón sem átti uppá- stunguna. Þegar málið hafði verið afgreitt varð sú breyting á umræð- unum að umferðirnar skyldu verða þrjár og sá stjórnin ekki ástæðu til að gera breytingar. Menn eru ekki á eitt sáttir um hversu heppilegt þetta var, en fram að þessu hafa framsóknar- menn kappkostað að leyfa sem flestum að tjá sig þegar þjóðin horfir á í beinni útsendingu. umDOös-S neiWversiun S 622660 Rósa Hansen systir Sophiu Hansen rekur barnafata- verslunina á Vesturgötu þar sem heildverslunin Istanbul var áðurtUlhúsa. c/iui vjuiui cmið dU uupild Hansen hafi opnað verslun með tyrknesk bamaföt hefur verið þrálátur. Hann er ekki með öllu úr lausu lofti gripinn, því systir Sophiu, Rósa Hansen, hefur selt slíkan fatn- aðfráþvíum miðjan desem- ber. „Já, það er rétt. Éghefopnað verslun með tyrk- nesk barnaföt,11 staðfesti Rósa Han- senísamtalivið PRESSUNA. Verslunin ber nafriið Brosandi fólk og er til húsa á Vesturgötu 23 þar sem heildverslun Halim A1 og Sophiu, Istanbul, var áður til húsa. Rósa kveðst hafa komist í kynni við tyrkneska fatafram- leiðendur á ferðum sínum með systur sinni til Tyrklands vegna forræðisdeilu Sophiu, sem allir þekkja. Rósa hefur off lagt leið sína til Tyrklands, eða alls sautj- án sinnum, til að styðja við bakið á Sophiu, en þar sem Rósa talar ekki tyrknesku naut hún stuðn- ings systur sinnar við innkaupin. Þess má geta að Rósa var dag- mamma áður.en hún hóf versl- unarstörf. Ætlunin með því að opna verslun er að rétta við fjár- hag fjölskyldunnar. Sophia leysir systur sína hins vegar af í versluninni einn til tvo tíma á dag og ku það hafa kynt undir sögusögnum. Rósa Hansen selur tyrknesk barnaföt KJARTAN ÖRN KJARTANSSON. Reisir McDonald's á Islandi. INGIR. HELGASON. Fjármagnar líklega must- eri kapítalismans. STEINGRlMUR HERMANNSSON. Hann talaði og talaði og talaði. JÓN KRISTJÁNSSON. Formaðurinn átti bara að tala tvisvar. JÍK. Ul í® Khm E I Ð Á NIÐURLEIÐ Alþingi. Eftir að kom í Ijós að hver sem er geturfarið upp á þing- palla og skotið sér þingmann áttaði þjóðin sig á að henni stóð ekki alveg hjartanlega ásama. Pétur H. Blöndal sem rýkur upp á stjörnuhimininn í við- skiptalífinu (jafnvel þótt illa hafi farið fyrir flestum sem flogið hafa jafnhátt). Lárus Guðmundsson knatt- spyrnumaður eftir að hafa verið orðaður við stöðu þjálfara hjá Víkingi. Lindusúkkulaði. Það verð- ur framleitt áfram eftir að kröfuhafar gengu að nauðasamningum. Guðmundur Amlaugs- son, skák- sagnaþulur og yfirdóm- ari í einvígi þeirra Tim- mansog Short um réttinn til að skora á Ka- sparov. Hún hlýtur að minnsta kosti að huga þeirra sem héldu að hún sæti í gæsluvarðhaldi út af hasssmygli. Böðvar Braga- son, lögreglu- stjórinn í Reykjavík, eft- irað Hæstirétt- ur hafnaði því algjörlega að hann og aðrar löggur mættu fara með ákæruvald. C,i,/ÖG Steinar Berg. Það er aðeins of stór brti að kyngja að missa Bubba Morthens. ’ðfál^,þ4<ZSet» JUII39UII 1 Bolli Þór Bolla- son, Þórður Frið- jónsson, Stein- Igrímur Ari Ara- son og yfirleitt atlir reiknings- meistarar ríkis- stjórnarinnar fyrir að hafa ekki áttað sig á áhrif- um virðisauka- skatts á bygg- ingarvísitöluna. ■ l « : Ilngi Bjöm Albertsson eftir að hann gerði upphugsinntil EES- samningsins. Það má orðið ganga út frá því sem vísu að Ingi Björn hafi þveröfuga af- stöðu til allra mála miðað við Davíð Oddsson.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.