Pressan - 14.01.1993, Blaðsíða 30

Pressan - 14.01.1993, Blaðsíða 30
I GUL 2. tbl 4. árgangur SAN Fimmtudagur 14. janúar 1993 Gosa-veiki? NEF Á MÁTREIÐSLUMANNI LENGIST í HVERT SINN SEM HANN SEGIR ÓSATT Nefið er orðið sjö sentímetrar og lengist enn. Hafnarfirði, 14.janúar. Samstarfsfólk Finnbjörns Kjartanssonar, matreiðslu- manns á Vitanum í Hafnar- firði, getur séð í hvert sinn sem hann segir ósatt, því nefið á honum lengist um sentimetra í hvert sinn. Þetta gerðist fyrst í jólamánuðinum og nú er nefið á Finnbirni orðið sjö sentím- etra langt og lengdist síðast á mánudaginn var. „Það er léttur andi hérna á vinnustaðnum og oft erum við strákarnir að spauga. Finnbjöm er ekki síðri grallari en við hinir og á það til að spinna upp magnaðar lygasögur. Hann hefur hins vegar heldur dregið úr því eftir að nefið á honum fór að lengjast í síðasta mánuði,“ segir Ólafur Davíðsson, samstarfsmaður Finnbjörns. Finnbjörn segir að læknar kunni engar skýringar á þessu. Einn hafi viljað kalla þetta Gosa- veiki og vísað þar til Gosa í ævin- týrinu sem mátti ekki segja ósatt án þess að nefið lengdist. Eiginkona Finnbjörns segist vilja standa með manni sínum í þessum raunum. „En hann virðist eiga erfitt með að venja sig af lygunum og ég veit ekki hvað ég get þraukað ef nefið lengist enn,“ segir eiginkonan, Bylgja Lárusdóttir. „Við eigum nú þegar erfitt með að kyssast og ég verð að keyra hann allra hans ferða því nefið truflar sjónina." m Finnbjörn gengur með kk sólgleraugu svo hann þekkist ekki. "■ Sérkennilegt skilnaðarmál KOMST AÐ ÞVÍ AÐ EIGIN- MAÐURINN HAFÐIVER- IÐ HEYRNARLAUS í 20 ÁR Konan lagði fram kröfu um skilnað eftir að læknar tjáðu henni að eiginmaðurinn hefði verið heyrnarlaus síðustu 20 árin af 37 ára hjónabandi. Akureyri, M.janúar. „Hann hefur haft mig að fífli,“ segir Elísabet Tryggva- dóttir, tæplega sextug hús- móðir á Akureyri, um eigin- mann sinn sem hún komst að fyrir stuttu að hefur verið heyrnarlaus síðustu tuttugu árin. „í hvert sinn sem ég talaði við hann sagði hann „jájá, elsk- an“ og kinkaði kolli. Nú hef ég áttað mig á að hann heyrði aldrei orð af því sem ég sagði.“ Elísabet segir að eiginmaður- inn, Hjalti Pálsson, hafi ekki viljað hlusta á hana fyrstu sautján árin af hjónabandinu en fýrir tuttugu ár- um hafi henni fundist samband þeirra hafa skánað. „En nú hef ég komist að því að hann var að gera grín að mér. Ég get ekki afborið það,“ segir Elísa- bet. „Ég leit á heyrnarleysið sem blessun frá þeim degi sem ég hætti að heyra tuðið og nöldrið í Betu,“ var það eina sem Hjalti vildi segja um málið. Gylfi Ragnarsson, pípulagningamaður í Reykjavxk STEFNIR LÆKNIFYRIR AÐ SEGJA AÐ HANN ÆTTIEITT ÁR EFTIR ÓLIFAÐ ■ Læknirinn sagði þetta fyrir tíu árurn en Gylfi er við fulla heilsu í dag þrátt fyrir miklar sálarkvalir á undanförnum árum. Reykjavík, 14.janúar. „Fyrsta árið beið ég bara eftir dauðanum. Ég fylltist þunglyndi og reyndi þrisvar að fyrirfara mér. Eftir þriðju tilraunina yfirgaf eiginkonan mig. Eftir það var mér sama um allt, fór að drekka og taka inn eiturlyf og hef lifað alger- lega tilgangslausu lífi undan- farin tíu ár,“ segir Gylfi Páls- son, sem hefur stefnt lækni sem sagði fyrir tíu árum að hann ætti einungis eitt ár eftir ólifað. Þegar Gylfi fór í áfengismeð- ferð síðastliðið sumar trúðu læknar í fyrstu ekki sögu hans. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að vegna mistaka höfðu djá & blóðsýni úr Gylfa ruglast saman við sýni úr öðrum sjúklingi er hann var til smávægilegrar lækn- ismeðferðar á Landspítalanum fyrir tíu árum. „Það er furðulegt að læknirinn sem sagði Gylfa að hann væri að deyja skyldi ekki leiðrétta mis- skilninginn þegar hið rétta kom í ljós,“ segir Haraldur Baldursson meðferðarfulltrúi. „Það er ekki hægt að skilja mann eftir með þá Gylfi Ragnarsson segir að yfirlýsing læknisins hafi kostað hann lífs- löngunina, fjölskyld- i una og um tima hafi ? hann verið kominn að því að glata heilsunni í kjölfar þunglyndis, áfengis- og fíkniefna- neyslu og þriggja sjálfsmorðstilrauna. trú að hver dagur geti verið hans síðasti. Það getur enginn lifað með þeirri hugsun til lengdar." „Það má kannski segja að ég hefði átt að tala við Gylfa,“ segir Viðar Magnússon, læknirinn sem kvað upp dauðadóminn fyr- ir tíu árum. ,Æn ég hélt að Gylfi mundi átta sig á þessu þegar hann hélt áfram að lifa og lifa. Sjálfum finnst mér það ekki ofur- mannlegkrafa.“ Frqmlag þitt skilar árqngri smm K\£J HJALPARSTOFNUN KIRKJUNNAR - með þinni hjálp Sparisjóður Reykjavíkurog nagrennis Gíróseðlar liggja frammi í bönkum og sparisjóöum Jón Baldvin Hannibalsson þurfti að nota gleraugu í fyrsta skipti eftir að hafa lesið tæpan helm- ing samningsins. EES-samningarnir SJÓN ÞEIRRA ÞINGMANNA SEM LASU SAMNINGINN DAPRAÐIST | AÐ MEÐAL- TALIUM 0,3 Sjón fulltrúa í utanríkis- málanefnd versnaði mest. Sumir þingmenn sluppu Ihins vegar algjörlega og telja læknar að þeir hafi ; aldrei Jesið samninginn. I Félagsmálaráðuneytið KAUPIR FIMM HÚS Á FLÓRÍDA | Hyggst bjóða atvinnulaus- Ium að drýgja bæturnar með því að búa á láglauna- : svæði. Reykjavlk, 13.janúar. „Samkvæmt útreikningum ráðuneytisins er hægt að lifa allt að því kóngalífi á íslensum atvinnuleysisbótum á Flór- ída,“ segir Jóhanna Sigurðar- dóttir félagsmálaráðherra. Hún segir haginn af húsakaup- unum geta verið tvenns konar; annars vegar má nota þau til að bæta hag atvinnulausra en hins vegar kemur til greina að bæta hag ríkissjóðs með því að lækka bæturnar.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.