Pressan - 14.01.1993, Blaðsíða 11

Pressan - 14.01.1993, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR PRESSAN 14. JANÚAR 1993 11 „Gullkistuvörðurinn“ svarar fyrir sig „Klám að fjárhagstengsr Ingi R. Helgason um leynilega fjárhagsaðstoð, Rússagullið og austur-þýsku dyrasímana sem flokkurinn neitaði að borga fyrir. Það voru að líkindum Eyjólfur Konráð Jónsson og meðritstjórar hans á Morgunblaðinu sem gáfu Inga R. Helgasyni viðurnefnið „gullkistuvörðurinn“. Með gulli var vfsað til Rússagulls og kisturn- ar voru flokkssjóðir Sósíalista- flokksins og Alþýðubandalagsins og sjóðir Þjóðviljans sáluga, slíkir sem þeir voru. Nafngiftin festist \ið hann og varla er svo minnst á íjárhagstengsl íslenskra vinstri manna og erlendraflokka að hans nafn komi ekki upp. Það gerði það líka í bókinni Liðsmenn Moskvu eftir Val Ingi- mundarson og Árna Snœvarr, sem Almenna bókafélagið gaf út fyrir skömmu. Þar er vísað í tvö tiltekin dæmi um fjárhagstengsl Sósíalistaflokksins og austur- þýska kommúnistaflokksins. f öðru málinu þóttust margir sjá endanlega sönnun fyrir áratuga- gömlum kvitti um leynilega þræði, en þar bauðst Ingi til að koma á viðskiptum í gegnum fyr- irtækið Reklamex, sem Sósíalista- flokkurinn myndi hagnast á „ud- en det kunne paavises" — án þess að upp kæmist — eins og segir í niðurlagi bréfs Inga ffá 1958 sem birt eríbókinni. Ingi var á þessum tíma fram- kvæmdastjóri Sósíalistaflokksins, þótt í hálfu starfi væri, og rak lög- mannsstofu samhliða. Hann gefur ekki mikið fyrir þær ályktanir sem höfundar bókarinnar draga og tel- ur þá skorta þann skilning á sam- skiptum sósíalískra flokka í Evr- ópu á þessum tíma sem nauðsyn- legur sé réttum skilningi á við- fangsefninu. Og Þjóðverjagullið hafi ekkert verið, þrátt fyrir full- yrðingaríbókinni. ÞJÓÐVERJAR BITU EKKI í GULRÓTINA I bókinni er birt bréfsem þú ert sagður hafa sent Karli Mewis, formanni austur-þýska kotnm- únistaflokksins í Rostock-héraði, þar sem þú leggur drög að leyni- legutn stuðningi Þjóðverja við ís- lenska Sósíalistaflokkinn. „Þegar ég kom á kaupstefnuna í Leipzig árið 1958 hafði ég í hyggju að stofna fyrirtæki, Rek- lamex hf„ til þess að sjá um aug- lýsingar íslenskra fyrirtækja í Austur-Evrópu og sjá um auglýs- ingar þaðan hérlendis. Ég bar þetta upp við Þjóðverja og hafði þá „gulrót“ með málaleitan minni að ef það mætti greiða fyrir við- skiptunum mættu umboðslaunin fyrir auglýsingabirtingar hér renna til flokksins. Það myndi þá að minnsta kosti borga mér laun- in mín þar, ef ekki vildi betur. Ég hitti að máli í Leipzig starfs- menn fyrirtækisins Interwerbung, sem sá meðal annars um auglýs- ingar austur-þýskra fýrirtækja er- lendis. Þeir sögðu að ég yrði að koma beiðni minni til flokksins og að það væri sterkt ef ég gerði það í nafni íslenska flokksins. Ég man ekki eftir að hafa skrifað þetta bréf til Karls Mewis, en ég skrifaði minnisblað um þessar óskir og af- henti Interwerbung það. Þeir hafa væntanlega komið því áfram ef það hefur komist til Karls Mewis, en það var ekki stílað á nokkurn mann og ekki einu sinni dagsett. Þetta var minnisblað um þessar hugmyndir mínar. Áhugi Austur-Þjóðverja á þessu var ekki meiri en svo að það kom aldrei neitt svar og ekkert varð úr þessu. Reklamex hf. var ekki einu sinni stofnað. Ég var að prófa þetta upp á mitt eindæmi og árangurinn varð enginn.“ Það er varla hcegt aðlesa síð- ustu setninguna í mitmisblaðinu án þess að draga þá ályktun að þú viljir koma á leynilegum jjár- hagsstuðningi austur-þýskra kommúnista við íslenska Sósíal- istaflokkinn án þess að kotni upp áyftrborðið. Þetta var allt fyrir opnum tjöldum. Reklamex-málið er einmitt vís- bending um að þetta fjármagns- streymi var ekkert. Ég sagðist myndu tryggja hundrað prósent þjónustu og að enginn þyrfti að vita neitt, en samt litu þeir ekki við því! Ég spurðist fyrir um þennan möguleika, gerði þeim þetta tilboð, sem þeir höfnuðu. Á að draga þá ályktun 'af þvf að þetta sé dæmi um fjármagnsstreymi á milli flokkanna eða fjárhagsleg tengsl þeirra, eins og gert er í bók- inni? E contrario.“ En sú staðreynd að ekkert varð úr þessu breytir ekki hinu að þú vildirathuga þetta. „Já, ég vildi skoða þetta.“ Sem þýðir að þú vildir að þessi leynilegu jjárhagstengsl kœmust á. „Já, í gegnum eðlilega við- skiptastarfsemi. Þetta þekktist víða og var ekkert einsdæmi. ítalski kommúnistaflokkurinn átti mikil viðskipti við Sovétríkin og þénaði auðvitað peninga á þeim. Það er þekkt alls staðar að flokkar reyna að fjármagna starfsemi sína með viðskiptum, með söfnunum og styrkjum. Mér vitanlega fékk Sósíalistaflokkurinn ekki krónu í styrk ffá S.E.D.“ „Þessi setnins ber með „ , , , sér að ef austur-þýski flokk- Reklamex-malið er emmitt vis- urinn vfldi hygia fsienska bendingum að þetta fíármagns- flokknum undir þessum formerkjum, þá væri þarna streymi var ekkert. Egsagðist moguleiki til þess. Ég ætlaði myncju trvggia hundrað prósent að stotna svona iynrtæki, et ' y L hægt væri, ég myndi reka þjÓnUSÍU Og að enginn þyrfti að það og mér yrðu greidd neitt en samt litu heir laun í hálfu starfi mínu sem VllU neUl’ en Saml LUU Pelr framkvæmdastjóri Sósíal- ekki VÍðþví! istaflokksins. Ég er hræddur um að samtíðarmönnum mínum í flokknum komi þetta töluvert á óvart, því um þetta vissi ekki nokkur maður. Þetta var fikt af minni hálfu og niðurstaðan var nákvæmlega eng- in. Hvaða ályktun ætti draga af því? Draga drengirnir þá ályktun að austur-þýski flokkurinn hafi í engu viljað koma til móts við ósk- ir Sósíalistaflokksins? Nei, akkúrat öfugt. Þeir segja: „Þetta dæmi gef- ur ekki einungis vísbendingu mn hvernig Qárhagstengslum flokk- anna var háttað“ — guð minn góður! — „heldur sýnir að Sósíal- istaflokkurinn ætlaði sér að hagn- ast á austurviðskiptunum.“„ En þarna œtlaðir þú að setja upp „front“-jyrirtœki til að þýsku kommúnistarnir gœtu stutt Sósí- alistajlokkinn. „Það var hugsað á venjulegum viðskiptagrundvelli og að greitt yrði fyrir unnin verk, en að tekjur íslenska fyrirtækisins gætu runnið til flokksins. Ef slíka gulrót þyrfti til að koma viðskiptunum á, þá gæti þýski flokkurinn tekið því. En hvað gerði hann? Nákvæmlega ekki nokkurn skapaðan hlut. Framhald málsins er ekkert. Og þó draga þeir ályktanir: „[Dæmið] ber því einnig vitni hve S.E.D. [austur-þýska kommúnista- flokknum] var umhugað um að halda góðu sambandi við Sósíal- istaflokkinn." Þetta gengur ekki upp.“ En með þessu hejðirðu komið á fjárhagslegu streymi á milli jlokkanna, „án þess að hœgtsé að sanna það,“ eins og segir þar. Þetta hljómar mjög neðanjarðar- kennt. „Já, enda vildi hvorugur flokk- urinn koma af stað beinum fjár- magnsflutningi á milli þeirra. Hann var heldur enginn. Við nut- um stuðnings Austur-Þjóðverja í ýmsu öðru tilliti og það var allt opinbert. Við héldum þar nám- skeið, flokksskólann svokallaða, og þeir aðstoðuðu okkur við kostnað sem því fýlgdi. Þeir studdu okkur líka til þátttöku í Eystrasaltsvikum sem þeir héldu. DYRASÍMARNIR SEM KOMUOFSEINT Ingi leggur mikla áherslu á þá samstöðu sem ríkt hafi milli sósí- alískra flokka í Evrópu á þessum tíma. íslenskir sósíalistar hafi vilj- að styðja við bakið á tilraunum Austur- Evrópubúa til að byggja upp sósíalisma í sínum löndum, „í baráttu við auðvaldsskipulagið eins og það birtist okkur“. í því ljósi verði að skoða tilraunir bræðraflokka til að koma á aukn- um viðskiptum milli fslands og Austur-Þýskalands — viðskipt- um sem miklu fleiri en sósíalistar hafi staðið að. Hitt dæmið í bókinni er af þeim toga. Þar segir að Ingi hafi árið 1962 beðið austur-þýska komm- únistaflokkinn að taka upp við- skipti við íslenskt fýrirtæki, Raf- geislahitun hf„ beinlínis í pólitísk- um tilgangi, til að efla austurvið- skiptin og vinna þannig gegn stefnu Viðreisnarstjórnarinnar, sem beindi viðskiptum einkum til Vesturlanda. Sambandið komst á, segir í bókinni, en endaði með vanefndum íslendinga og sjö þús- und dala skuld sem Sósíalista- flokkurinn var krafinn um greiðslu á. Ingi R. man þessa sögu töluvert öðruvísi. „Rafgeislahitun var stofnuð ár- ið 1955 og ffamleiddi kerfi til upp- hitunar húsa. Það var hentugt til notkunar hérlendis vegna ódýrrar orku, en seinna tók fýrirtækið þátt í kaupstefnunni í Leipzig í Austur- Þýskalandi og fór þangað með vörur sínar. Það var vonlaust að selja hana þar, enda raforkan allt- of dýr, en það tókust sambönd á milli þess og austur-þýsks fýrir- tækis, Dia Electrotechnik, sem framleiddi alls konar rafmagns- vörur. f bókinni er því haldið ffam að sambandið við Rafgeislahitun sé tákn um fjárhagsleg tengsl flokk- anna og talað um sjö þúsund dala skuld flokksins í því sambandi. Ef ég man rétt eru þessir sjö þúsund dalir til komnir á allt annan hátt. Á þessum tíma var verið að byggja blokkir í Gnoðarvogi og Rafgeisla- hitun lagði raflagnirnar í þær. Meðal þess voru dyrasímar, sem pantaðir voru hjá Dia Electro- technik. Eftir að pöntunin var gerð leið og beið, komið var langt fram yfir dagsetningar um upp- setningu símanna og íbúarnir voru mjög óánægðir með töfina. Á endanum varð að leysa málið á annan hátt, en líklega hálfu öðru ári eftir að pöntunin var gerð koma loks dyrasímarnir frá Aust- ur-Þýskalandi. Þaðan var krafist greiðslu og ekkert hirt um bréf sem Rafgeisiahitun hafði sent um að pöntunin væri niður fallin. Stirðnin var svo mikil af hálfu Þjóðverja — sem er einmitt öfugt á við það sem drengirnir halda ffam í bókinni — að það var ekki við annað komandi en að þetta væri borgað. Og af því að þetta var talið tengjast flokknum eitthvað var þess krafíst að hann borgaði. Við borguðum aldrei krónu og það þótt málið væri sett í lögfræð- ing hérna heima, enda var þarna um að ræða venjuleg viðskipti og vanefhdir þeim tengdar. Rafgeislahitun tengdist Sósíal- istaflokknum ekkert nema hvað þar voru forystumennirnir sósíal- istar. Ég var lögfræðingur fyrir- tækisins og iíklega í stjórninni, ef ég man rétt, en viðskiptin tengd- ust flokknum að því leyti að í Austur- Þýskalandi ákvað ríkið — og þar með flokkurinn — hvaða samningar yrðu gerðir. Það var ekkert óeðlilegt að ég skrifaði þýska flokknum um þessi við- skipti — öðruvísi var ekki hægt aðkomastíþau." En þetta voru viðskipti sem um leiðþjónuðupólitískum tilgangi. „Já, þeim pólitíska tilgangi að koma á verslunarviðskiptum við Austur-Þjóðverja. Á þessum tíma höfðum við stjórnmálasamband við Vestur-Þýskaland, sem hótaði að slíta því ef við’viðurkenndum hitt þýska ríkið. Við vildum af hugsjónaástæðum styðja vöxt þessa nýja þýska ríkis, að íslend- ingar viðurkenndu það og létu ekki aðra setja sér stólinn fyrir dyrnar með það. Þeirrar skoðunar voru margir mætir menn, til dæmis Þórarinn Þórarinsson rit- stjóri. Þar að auki var Austur- Þýskaland ágætur markaður fýrir okkar vörur og meira að segja rík- isstjórnin hlutaðist til um vöru- skipti til að komast framhjá hót- unum Vestur-Þjóðverja. Það er borðleggjandi að báðir aðilar vildu auka viðskipti milli landanna og það vildi líka fjöldi heildsala, sem ekki voru sósíalist- ar. En þetta voru venjuleg við- skipti. Afstaðan til Rafgeislahitun- ar endurspeglar líka afstöðu aust- ur-þýska flokksins til viðskipt- anna. Það átti að láta kné fýlgja kviði og lögsækja þetta fyrirtæki, sem þó var talið tengjast flokkn- um. Þetta laut sem sagt venjuleg- um viðskiptalögmálum. Það er hið mesta klám að nefna þetta dyrasímavesen sem eitt af dæm- unum um fjárhagsleg tengsl aust- ur-þýsku stjórnarinnar og ís- lenska sósíalistaflokksins og reyndar hlægileg niðurstaða. Til samanburðar má nefna að þegar Bretar settu á okkur lönd- unarbann vegna útfærslu land- helginnar opnuðu Sovétmenn markað sinn og þangað seldum við allan þann fisk sem við gátum ekki selt annars staðar. Og þó var Afstaðan til Raf- geislahitunar end- urspeglar líka af- stöðu austur-þýska flokksins til við- skiptanna. Það átti að láta knéfylgja kviði og lögsœkja þetta fyrirtœki, sem þó var talið tengjast flokknum. enginn sósíalisti í ríkisstjórn. Hvaða mælistiku myndu dreng- irnir leggja á þá ákvörðun ríkis- stjórnarinnar? Þeir nefna það ekki.“ EKKERT RÚSSAGULL Þeir Valur og Árni nefna líka bókaútgáfustyrki Austur- Þjóð- verja til Máls og menningar, en yf- ir því fyrirtæki hafði Ingi aldrei forráð. Miðað við skýringar Inga hér að ofan virðist því ekki ýkja mikið Austurevrópugull hafa farið um greipar hans. Er sagan um Rússagullið þá eintómur kaldastriðsáróður úr Morgunblaðinu? Fékk Sósíalista- jlokkurinn einhverja styrki að austan? „Nei. Auðvitað vissi ég ekki allt, en ég hef verið kallaður „gullkistu- vörðurinn" og ætti því glöggt um það að vita. Eg hef þurft að leggja mikið á mig í söfnunum hér inn- anlands fýrir flokkinn og Þjóðvilj- ann í gegnum þrjá áratugi og þar hef ég aldrei fengið krónu frá aust- ur-þýska kommúnistaflokknum eða Áustur-Evrópuflokkunum.“ Karl Th. Birgisson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.