Pressan - 14.01.1993, Síða 3
FIMMTUDAGUR PRESSAN 14, JANÚAR 1993
3
Athugasemd
við skrif
Hrafns
Gunnlaugs-
sonarí
Moggann
Hrafri Gunnlaugsson var að klaga mig
fyrir lesendum Morgunblaðsins á laugar-
daginn. Hann sagði að blaðamaður Press-
unnar hefði haft rangt eftir svar sitt við
því hver væru blaðaskrif síðasta árs og
síðan hefði ég neitað að birta leiðréttingu
þar um. Þar sem frásögn Hrafns kemur
ekki heim og saman við afskipti mín af
máhnu vil ég gera athugasemdir við hana.
Fyrst vil ég þó geta þess að Hrafhi var
ekki ædað að svara til um blaðaskrif árs-
ins. Ég fól blaðamanni mínum að spyrja
hann um sjónvarpsefni ársins, enda er
hann bæði sá dagskrárstjóra innlends efn-
is sem er í fríi og höfundur þess sjón-
varpsefnis sem var mest umtalað á síðasta
ári. Blaðamaðurinn sagði mér hins vegar
að Hrafn hefði beðist undan að svara til
um sjónvarpsefni ársins en þess í stað
endilega viljað veita álit sitt á blaðaskrif-
um ársins. Þótt ég telji hann ekki merkan
álitsgjafa um blaðaskrif (og af svari hans
hafi mátt sjá að vitund hans nær ekki
langt út fyrir naflann) lét ég gott heita. f
gegnum árin hefur mér alltaf fundist
Hrafh ffekar skemmtilegur maður og þótt
ég hafi ekki skilið húmorinn í þessu um-
rædda svari vonaðist ég ti! að það væri
frekar mín sök og aðrir gætu skemmt sér
við það.
Eins og Hrafn benti á í grein sinni á
laugardaginn kom orðið pressan fyrir í
svarinu. Pressan getur sem kunnugt er
verið bæði blaðið Pressan og eins pressan
almennt; fjölmiðlarnir eins og þeir leggja
sig. Blaðamaður minn sagði að Hrafn
hefði skýrt tekið fram í viðtalinu að hann
ætti við pressuna aimennt og ætti það
ekki að koma á óvart þar sem hann hefur
átt í útistöðum við mun fleiri blöð en
Pressuna og meðal annars stefnt fyrrum
ritstjóra hins sáluga Helgarblaðs og krafist
5 milljóna króna skaðabóta vegna mann-
orðsspjalla.
Þegar blaðið með svari Hrafns var
komið út hafði hann samband við blaða-
manninn og vildi fá leiðréttingu. Hann
hefði meint Pressuna með stórum staf en
ekki litlum. f sjálfu sér hef ég ekkert við
það að athuga þótt Hrafn telji blaðaskrif
síðasta árs skrif Pressunnar um hann
sjálfan og verk hans. Ég nenni hins vegar
ekki að elta ólar við duttlunga hans. Ef
hann tekur skýrt ffam í samtali við blaða-
mann minn að hann eigi við pressuna al-
mennt en ekki Pressuna með stórum staf
þá verður hann bara að lifa við það. Ég
leiðrétti það sem rangt er haff effir í Press-
unni en ég sé enga ástæðu til að ljúga því
að lesendum mínum að rangt hafi verið
haff eftir viðmælendum þegar svo er ekki.
Hér á árum áður var Hrafn bæði flink-
ur kvikmyndaleikstjóri og oft skemmti-
legur pexari í opinberri umræðu. Það er
leiðinlegt að eitt feiiskot hans í kvikmynd-
unum skuli hafa leikið hann svo illa að
hann hefur bæði glatað kímnigáfunni og
frumleikanum sem hann beitti í blaða-
skrifum fyrr á árum. Og ef ég má vera
jafnupptekinn af eigin nafla og Hrafn þá
finnst mér enn leiðinlegra að ég skuli vera
orðinn persóna í glímu Hrafns við það
sem honum virðist finnast ósanngjörn
umfjöllun um persónu sína og verk. I
sjálfu sér er í lagi að standa í einhverjum
kjánalegum ritdeilum við menn úti í bæ.
Það er hins vegar óþolandi þegar viðkom-
andi eru farnir að blanda óviðkomandi
inn í samsæriskenningar sínar. Ég veiti
honum hér með fullt leyfi til að rægja mig
áfram; bæði opinberlega og prívat, en fer
þess á leit að hann láti það fólk í friði sem
tengist mér eða hefur tengst mér einhvern
tímann.
Að lokum óska ég þess að nýjasta
mynd Hrafns fái góðar viðtökur ef það
verður til þess að létta skap hans.
Gunnar Smári Egilsson
ritstjóri Pressunnar
A
1 Rás 2 á þriðjudaginn mátti heyra
spjall Kristjáns Þorvaldssonar í Dægur-
málaútvarpinu við Atla Rúnar Hall-
dórsson, þingfréttaritara Ríkisútvarps-
ins, eftir atkvæðagreiðsluna um EES.
aVeltu þeir vöngum yfir
niðurstöðunni og sagði
Atli Rúnar að fátt hefði
farið á annan veg en við
var að búast og ekki
orðið vart mótmæla af
þingpöllum. Sem
kunnugt er voru sex
ungmenni færð úr þinghúsinu, eftir að
hafa veifað leikfangabyssum og reynt að
strengja borða með mótmælum á þing-
pöllunum. Þetta virðist algjörlega hafa
farið framhjá Atla Rúnari, enda hefur
hann sjálfsagt setið inn í stúdíói Rikisút-
varpsins undir rjáfri þinghússins. Það er
vel einangrað frá þingsalnum og getur því
margt farið framhjá þeim sem þar dvelja.
Ef ungmennin hefðu varpað sprengju í
salinn hefði Atli Rúnar eflaust álitið það
vera hljóðtruflanir í tækjum sínum...
Y.
mis vandkvæði hafa komið upp við
rekstur minni útvarpsstöðvanna og hefur
Sólin ekki farið varhluta af þeim. Á síð-
asta ári hafa skuldir
H hlaðist upp hjá fyrir-
[ tækinu, mannabreyt-
ingar verið tíðar og
I óánægja gert vart við
sig meðal starfsmanna.
: Til að bjarga því sem
1 bjarga mátti voru gerð-
ar ákveðnar breytingar á rekstri útvarps-
stöðvarinnar fyrsta desember síðastliðinn
og lagði þá fyrrum rekstraraðili, Sterkur
miðill, niður starfsemi en við tók nýr að-
ili, Fjölmiðlun hf.. Vænta mátti að Jó-
hannes B. Skúlason stæði á bak við að-
gerðirnar, en hann hefur margoft verið
orðaður við starfsemina. Svo reyndist
ekki vera og var það Höskuldur Pétur
Jónsson, einn þriggja hluthafa, sem
keypti út annan hluthafa, Gísla Gíslason
lögfræðing, og stofnaði nýtt fyrirtæki um
reksturinn. Með breytingunum hyggst
Höskuldur koma rekstrinum á réttan kjöl,
ráða til sín fagfólk og semja við helstu
skuldunauta; STEF, SFH og Póst og síma.
Fyrrum starfsmaður Sólarinnar hefur
kært Höskuld Pétur til Rannsóknarlög-
reglu ríkisins og sakar hann meðal annars
um að ekki hafi því verið framfylgt að
taka afrit af öllu töluðu máli sem útvarpað
var og jafhffamt að Höskuldur Pétur haldi
áffarn að innheimta útistandandi skuldir í
nafni Sterks miðils án þess að greiða
ógreiddar launakröfur...
ap «0%
staðgreiðsluafsUttw
greiðslukortaþjonusta
AIIKLIG4RDUR
MARKAÐUR VIÐ SUND