Pressan - 14.01.1993, Page 5

Pressan - 14.01.1993, Page 5
FIMMTUDAGUR PHESSAN 14. JANÚAR 1993 5 Siðanefnd blaðamanna Máli á hendur PRESSUNNI vísað frá Siðanefnd Blaðamannafélags fslands hefur vísað ffá kæru Egils Eyfjörð á hend- ur Sigurði Má Jónssyni, ritstjómarfulltrúa PRESSUNNAR, vegna fféttar undir fyrir- sögninni: „Með 90 milljóna króna gjald- þrot á bakinu og sveik hús af öldruðum hjónum". I’ úrskurði nefndarinnar segir að mál- inu sé vísað ffá þar sem Egill hafi ekki leit- að leiðréttingar hjá PRESSUNNI, en það er grundvöllur þess að nefndin taki mál til meðferðar, samkvæmt ákvæðum siða- reglna. I úrskurðinum segir. „Mál þetta er þess eðlis, að kærandi rengir ffásögn PRESS- UNNAR af staðreyndum málsins. Því á þetta ákvæði fortakslaust við. Þá er þess að geta, að blaðamaður PRESSUNNAR hafði samband við kæranda um síma áð- ur en greinin birtist. Hann kaus að ræða ekki við blaðamann PRESSUNNAR um málið.“ gerði kröfu um 13 milljónir króna, Lands- bankinn vildi fá 6 milljónir og hlutafélagið Áfangar, fyrra nafn Polaris, gerði kröfu um rúmlega 2 milljónir. Sigurðamir voru sjálfir meðal stærstu kröfuhafa, hlutafélag þeirra Fjárskipti gerði kröfu um 6,5 millj- ónir og Hagskipti vildi fá 2,7 milljónir. Sigurðarnir í Hagskiptum hafa komið við sögu stofnunar og sölu mikils fjölda fyrirtækja. Má þar nefna Hagskipti, Verð- bréfasjóð Hagskipta, matvöruverslunina Valgarð, Seljakaup, Morastaði, Nýja-Garð hf., S. Trausta hf., fslenska þjónustu, Frjálst útvarp hf., Naustið, Tunglið, Kaffi Hressó, Kjötmiðstöðina, Fjárskipti hf„ Fjárfesti hf„ Veitingahúsið Nonna hf„ Hagflöt-Vesturvang hf„ Parísartískuna, Patvík og Kostakaup. Nokkur þessara fyr- irtækja hafa lent í gjaldþrotaskiptum. Friirik Þór GuOmundsson Sigurður Garðarsson, annar Sigurðanna í Hagskiptum: Hagnýting á 5 milljóna víxli I rannsókn Bókhaldi Ferðaþjón- ustunnar var fleygt eins og hverju öðru drasli, en nær 100 milljónir töpuðust í þrotabúinu. 50 millj- óna króna kröfur í þrotabú Sigurðar sjálfs. Rannsóknarlögregla ríkisins hefur nú til rannsóknar meintan fjárdrátt Sigurðar H. Garðarssonar, annars Sigurðanna í Hagskiptum, í tengslum við uppgjör á þrotabúi Ferðaþjónustunnar hf„ sem var í eigu Hagskiptamanna. Þrotabú þetta var nýverið gert upp þar sem greiddust 4 milljónir upp í kröfiir sem nema rúmum 100 milljónum að núvirði. Hinn meinti fjárdráttur snýst um að Sigurður hafi hag- nýtt sér um 5 milljóna króna tryggingar- víxil frá Svavari Egilssyni, en Svavar keypti ferðaskrifstofuna Veröld af Sigurð- unum, þó þannig að hinir síðarnefndu skildu skuldirnar eftir í hinu nýstofnaða hlutafélagi Ferðaþjónustunni. BÓKHALDINU FLEYGT SEMDRASLI PRESSAN hefur að undanfömu greint ítarlega frá rannsókn mála vegna gjald- þrots ferðaskrifstofunnar Veraldar hjá Svavari Egilssyni, þar sem meðal annars hefiir komið fram að bókhald reyndist í molum. Það á ekki síður við um bókhald Ferðaþjónustunnar. Samkvæmt heimild- um PRESSUNNAR var Hróbjarti Jónat- anssyni bústjóra tjáð að bókhald Ferða- þjónustunnar væri að finna í leiguhús- næði á Skúlagötu 30, en í ljós kom að þar hafði „ýmsu drasli“ verið fleygt og reynd- ist það þá vera umrætt bókhald. Bústjór- inn komst að því að tryggingarvíxill ffá Svavari, í tengslum við kaupin á ferða- skrifstofunni, hafði verið hagnýttur; hafði Sigurður Garðarsson fengið lögfræðing- inn Grétar Haraldsson til að taka dóm út vegna hans og lýsa fjámámi í einbýlishús Svavars í Skildinganesi 62. Bústjórinn leit svo á að víxillinn væri eign þrotabúsins og Sigurður hefði hagnýtt sér hann í heimild- arleysi. Bústjórinn ákvað því að senda rann- sóknarbeiðni til Ríkissaksóknara, þar sem farið var fram á að bókhaldsmálið yrði rannsakað og svo örlög tryggingarvíxils- ins. Beiðni þessi barst ríkissaksóknara fyrir rúmu ári og fór til Rannsóknarlög- reglu ríkisins. Um síðustu áramót sendi Ríkissaksóknari síðan erindi til RLR með fyrirspum um hvernig rannsókninni liði. 50 MDLLJÓNA KRÖFUR í ÞROTA- BÚSIGURÐAR Viðskipti Sigurðanna og Svavars voru mjög flókin og hafa menn aldrei komist til botns í þeim. Á meðan á þrotabúsmeð- ferðinni stóð gengu klögumálin á milli að- ila, þar sem hvorir um sig töldu hinn aðil- ann skulda sér stórar upphæðir. Má geta þess að Veröld Svavars setti ffam 34 millj- óna króna kröfu í þrotabú Ferðaþjónust- unnar og var það langstærsta einstaka krafan í búið. Ýmis önnur viðskipti Sig- urðanna og Svavars fléttuðust inn í málið, en upprunalega hafði Svavar keypt Ver- öld af Sigurðunum fyrir 107 milljónir króna. Þótt síðar muni koma í ljós að Sigurður Garðarsson hafi hagnýtt sér 5 milljóna króna víxilinn er talið vonlaust að sá pen- ingur greiðist. Sigurður Garðarsson var nefnilega úrskurðaður til gjaldþrotaskipta í júní síðastliðnum. Lýstar kröfiir í þrota- bú Sigurðar hljóða upp á 50,3 milljónir króna. Að sögn Stefáns Þórissonar bú- stjóra hefur ekki verið tekin afstaða til krafiia. Eignakönnun er í gangi, en ekki fyrirséð að nokkrar eignir finnist. Stærsta krafan í bú Sigurðar er ffá íslandsbanka, ásamt verðbréfamarkaði bankans, upp á 24,5 milljónir króna. Landsbankinn gerir kröfu um 7,5 milljónir og Búnaðarbank- inn 4,5 milljónir. Ekki er að sjá að krafa hafi verið gerð um gjaldþrotaskipti vegna Sigurðar Arn- ars Sigurðssonar, en til skipta er fyrrum viðskiptafélagi þeirra, Kristján V. Krist- jánsson. KRÖFUR í BÚ EIGIN FYRIRT7EKIS f þrotabú Ferðaþjónustunnar bárust alls 22 almennar kröfur. Krafa Veraldar var hæst, en Gjaldheimtan í Reykjavík

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.