Pressan - 14.01.1993, Page 19
FIMMTUDAGUR PRESSAN 14. JANÚAR 1993
19
okkrir áhugasamir aðilar um að-
skilnað ríkis og kirkju ætla að hittast í
borginni um helgina til að ræða stofnun
samtaka um málefnið. Áætlað er að halda
slíkan stofnfimd í kringum 20. febrúar, en
forsprakki þessara aðila er Björgvin
Brynjólfsson, hreppstjóri fyrir norðan.
Hin væntanlegu samtök munu einkum
líta til 62. greinar stjórnarskrárinnar, þar
sem ríkinu er gert að vernda og styðja
hina evangelísk-lútersku kirkju. Alþýðu-
blaðið greindi.fyrst fjölmiðla frá stofnun
væntanlegra samtaka og hefúr eftir Ólafi
Skúlasyni biskup að hér á landi ríki fullt
trúfrelsi og enginn sé skikkaður til að vera
í samfélagi trúaðra. Hann segir hins vegar
ekkert um réttmæti 62. greinarinnar...
X. yrir áramótin hreinsaði Werner
Rasmusson dálítið til í fyrirtækjaflóru
sinni. Annars vegar sameinaði hann lyfja-
fyrirtækið Delta í Hafn-
arfirði og ölfyrirtækið
Viking- brugg á Akur-
eyri undir nafni þess
síðarnefnda. Þá fór
fram sameining á
Kemikalía í Garðabæ
og Gosdrykkjaverk-
smiðjunni Sanitas, öðru nafni Gosan,
einnig undir nafni þess síðarnefnda...
s
k_^vo kann að fara að Laugavegur 78,
þar sem Kjötbúðin Borg var ti! húsa,
breytist í veitingahús. Ágúst J. Magnús-
son matsveinn og Tryggvi Leósson hafa
sótt um leyfi til að innrétta húsið í þessu
skyni, en afgreiðslu umsóknarinnar var
ffestað nýverið í byggingarnefnd borgar-
innar. Vildi nefndin fá meira að heyra um
hljóðeinangrun og svo liggja fyrir mót-
mæli ffá eigendum Laugavegar 80...
i—/íklegt er að nú reyni í fyrsta sinn á
það hvort niðurstöður DNA-rannsóknar
SÖNGSMIÐJAN AUGLÝSIR
sonGnftmsKEiÐ
F4RIRFÓLK
fl ÖLLUm ftLDRI
ÍSLENSK OG ERLEND, LIFANDI
OG SKEMMTILEG TÓNLIST!
NU GETA ALLIR LÆRT AÐ SYNGJA.
Námskeið fyrir unga sem aldna, laglausa sem
lagvísa. Söngkennsla í hóp, tónfræði og
ýmislegt fleira sem hjálpar þér að ná tökum á
söngröddinni þinni.
NÚ GETA ALLIR HALDIÐ
ÁFRAM AÐ SYNGJA.
Námskeið fyrir fyrri nemendur Söngsmiðj-
unnar og aðra sem vilja bæta söngkunnáttu sína.
EINSÖNGSNÁM.
Einkatímar í söng, vinna með undirleikara,
tónfræði, túlkun og ýmislegt fleira.
Kennarar:
Esther Helga Guðmundsdóttir, söngur.
Guðbjörg Sigurjónsdóttir, undirleikur.
IIPIillll
SODPIiEIKIR
Hópnámskeið fyrir ungt fólk sem
hefur áhuga á að læra að tjá
sig í söng, leik og dansi. Stefnt að
nemendauppsetningu á útdrætti úr
söngleiknum CATS.
Öll námskeiðin miðast við að auka söng-
og tjáningargetu og að efla sjálfstraust.
KENNSLA HEFST 18. JANUAR.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING í SÍMA 654744
ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 10 - 13.
sanni sekt í dómsmáli hérlendis þegar
nauðgunarmálið frá Akureyri kemur til
kasta dómstóla. Hingað til hefur þessi að-
ferð verið óumdeild og talin yfir allan vafa
hafm. Fyrir skömmu féll hins vegar dóm-
ur í sakadómi Lundúnaborgar þar sem
dómarinn fann þessari sönnunaraðferð
ýmislegt til foráttu og vakti það verulega
athygli á Bretlandi. ðvíst er hvaða áhrif
þessi dómur hefúr á önnur mál, hvað þá
mál hérlendis, en ffæjum efasemda hefúr
sannarlega verið sáð...
V
-1—iinar Oddur Kristjánsson á Flateyri
er sem kunnugt er að breyta til í útgerð-
inni hjá sér, selja togarann Gylli og kaupa
minna skip í staðinn. En Einar er einnig
einn af þremur stofn-
endum og stjórnarfor-
maður hlutafélagsins
Atlantsís hf. á Flateyri,
sem stofnað var fyrir
tveimur mánuðum. Til-
gangur félagsins er inn-
og útflutningur, heild-
sala, smásala og markaðsstarfsemi...
BÍLALEIGUBÍLL í EINN SÓLARHRING
INNIFALDIR 100 KM OG VSK
HLAÐBREKKU 2, SÍNII: 91-43300, FAX: 91-42837, V/BSÍ, SÍMI: 91-17570
TALAÐU VIÐ OKKUR UM
BÍLASPRAUTUN
Auðbrekku 14. simi 64 2141
ÚTSALA
ÚTSALA
Meiri háttar verðlækkun