Pressan - 14.01.1993, Qupperneq 25
__________FIMMTUDAGUR PRESSAN 14. JANÚAR 1993_
LEIKHÚS MYNDLIST KLASSÍK
25
Kvikmyndasjóður fslands úthlutar á morgun
125 sækjast efitir
78 milljónum
Á morgun, föstudag, verður
úthlutað árlegum styrkjum úr
Kvikmyndasjóði íslands. Um-
sækjendur voru alls 125, sem er
þriðjungi fleiri en í fyrra. Mest
hefur aukningin orðið meðal
þeirra sem sækja um styrk fyrir
handrits- og undirbúningsvinnu,
en einnig hefur hún verið sjáan-
leg meðal þeirra sem sótt hafa
um framleiðslustyrk fyrir gerð
bíómyndar, 18 umsóknir í ár á
móti 12 á síðasta ári. 14 sóttu um
styrk fyrir gerð stuttmyndar, 44
fyrir handrits- og undirbúnings-
vinnu fyrir bíómynd, 4 fyrir
teiknimynd, 27 um ffamleiðslu-
styrk fyrir gerð heimildamyndar,
9 um handrits- og undirbúnings-
styrk fyrir gerð heimildamyndar
og 9 um annað.
Alls verður úthlutað 78 millj-
ónum og ekki talið ósennilegt að
um einn stóran framleiðslustyrk
verði að ræða og tvo heldur
minni. Tveir stórir styrkir voru
veittir í fyrra og féllu í hlut Hrafhs
Gunnlaugssonar og Guðnýjar
Halldórsdóttur. Nöfn umsækj-
enda eru sem endranær leynileg
þar til úthlutun hefur farið fram,
en nokkurra nafna er getið í
„European Filmfile" og eftirtaldir
þar sagðir hafa leitað eftir fjár-
mögnun Kvikmyndasjóðs fs-
lands:
F.I.L.M., Hrafn Gunnlaugs-
son, hefur leitað eftir styrkveit-
ingu til að fullvinna Hin helgu vé.
Gjóla, Ásdís Thoroddsen, fyrir
Draumadís. Þjóðverjar hafa gefið
henni vilyrði um fjárhagsstyrk og
mun þarlent sjónvarp áskilja sér
sýningarrétt. Anna Th. Rögn-
valdsdóttir fékk rúma milljón
króna í handritsstyrk frá Eurima-
ges en ekki er áætiað að hefja
kvikmyndatökur fýrr en árið
1994. Er því óvíst hvort hún sæk-
ir um styrk á þessu ári. Kvik-
mynd, Þorsteinn Jónsson, með
Útlendinginn. Handrit er full-
unnið og vonast er til að tökur
hefjist snemma á næsta ári eða
jafnvel fýrr. fslenska kvikmynda-
samsteypan, Friðrik Þór Frið-
riksson, með Bíódaga. Magma-
film, með Ágúst Guðmunds-
son sem leikstjóra, hyggst kvik-
mynda Ævintýri á Norðurslóð-
um II. Pegasus, Snorri Þórisson
og Egill Eðvarðsson, ætla að
kvikmynda sögu konunnar sem
síðust var hálshöggvin á íslandi.
Snorri fékk úthlutað rúmri millj-
ón úr Eurimages-sjóðnum til
handritsgerðar. Vonast þeir til að
hefja kvikmyndatökur næsta
sumar og haust. Þráinn Bertels-
son, Skrítið líf, handrit er í
vinnslu. Skífan, með Jón Ólafs-
son í broddi fylkingar, fyrir
myndina Móra. Leikstjóri verður
Andrés Indriðason. Umbi,
Guðný Halfdórsdóttir og
Halldór Þorgeirsson, fyrir
kvikmyndina Jörund hunda-
dagakonung. Ragnar Arnalds
skrifar handrit en það hefur verið
í vinnslu í þó nokkum tíma. Lár-
us Ýmir Öskarsson er nefndur
sem leikstjóri.
Ef rétt reynist að aðstandend-
ur Umba hafi sótt um að þessu
sinni er ekki talið líklegt að þau
fái háan styrk þar sem kvik-
myndin Karlakórinn Hekla, sem
frumsýnd var á síðasta ári, hlaut
verulegan stuðning. Óskar Jón-
asson gæti mögulega átt inni
Talið er víst að Friðrik Þór
Friðriksson fái styrk að þessu
sinni til að gera Bíódaga sína.
umsókn um eftirástyrk vegna
Sódómu og sama er að segja um
Kristínu Jóhannesdóttur og
Sigurð Pálsson vegna Svo á
jörðu, þó ekki skuli fullyrt um
það hér. Þá er ekki útilokað að
Art film, Kristinn Þórðarson,
Bjarni Þór Þórhallsson og
Gísli Snær Erlingsson, leiti eftir
stuðningi við Stuttan frakka, sem
sýnd verður á næstunni. Nýja
bíó, með Hilmar Oddsson inn-
anborðs, leitast að öllum líkind-
um við að fá styrk fýrir heimilda-
mynd um Jón Leifs og ekki er
ólíklegt að Jón Tryggvason fari
á stúfana, en hann hefur áður
hlotið handritsstyrk. Þá munu
Júlíus Kemp og Jóhann Sig-
marsson æda að leita eftir styrk
til heimildamyndargerðar.
Rósa Guðný Þórsdótir og Eggert Þorleifsson í hlutverkum sínum.
Rósa Guðný
sem Nóra
„Hlutverk Nóru er án nokkurs
vafa með mest spennandi kven-
hlutverkum leikbókmenntanna,
svo auðvitað get ég ekki verið
annað en ánægð með minn hlut,“
segir Rósa Guðný Þórsdóttir sem
mun fara með hlutverk Nóru í
uppfærslu Þíbylju á Brúðuheimili
Ibsems sem frumsýnt verður
undir lok mánaðarins í
Tjarnabíói.
„Nóra er ákaflega skemmtileg
persóna. Hún gerir ýmsar upp-
götvanir og breytist til góðs.
Ákveðin þróun verður því í hlut-
verkinu sem verulega gaman er að
takastávið.“
Brúðuheimili Ibsens er vel
Fatlaðir setja upp Aurasálina
Halaleikhópurinn nefnist leik-
hópur áhugafólks, fatlaðra sem
annarra, sem stofhaður var síðast-
liðið haust. Næstkomandi laugar-
dag frumsýnir leikhópurinn fyrsta
verk sitt, gamanleikinn Aurasálina
eftir franska leikritaskáldið
Moliére, og ræðst því ekki á garð-
inn þar sem hann er lægstur.
„Auðvitað er sviðsskrekkur í
mörgum, en við erum samt ekkert
hikandi þótt sýningin sé erfið,“
segir Sigurður Björnsson, einn
þáttakenda í sýningunni. „Það var
ákveðið strax í upphafi að reyna
við „alvöru“ leikrit úr leikbók-
menntunum í stað þess að setja
upp verk sem samið hefði verið
með fatíaða í huga. Sýningin tekur
um tvær klukkustundir í flumingi
og er örlítið stytt, en að öðru leyti
er engu breytt.“
Aðalhlutverkið, hlutverk aura-
sálarinnar Harpagons, er í hönd-
um Ómars Braga Walderhaug en
alls taka fimmtán manns þátt í
sýningunni og eru flestir fatlaðir.
Leikstjórar eru Guðmundur
Magnússon, sem bundinn er
hjólastól, og sonur hans Þorsteinn
Guðmundsson, báðir útskrifaðir
leikarar. Auk þess hafa þeir feðgar
báðir reynslu af því að leikstýra
áhugahópum.
Eins og títt er með áhugaleik-
hópa hafa peningar verið af
skornum skammti hjá Halaleik-
hópnum og hefði ekki verið unnt
að koma Aurasálinni á laggirnar
nema með hjálp góðra manna.
„Við höfum notið styrkja frá ýms-
um aðilum, samtökum og ein-
staklingum, sem er auðvitað
ómetanlegt. Þá vorum við dugleg
að selja jólakort og höfðum af því
nokkrar tekjur. Tilkostnaði hefur
verið haldið í lágmarki, búning-
arnir sem notaðir eru í sýning-
unni eru fengnir að láni úr bún-
ingasmiðju Þjóðleikhússins og
leikmyndin er afar einföld. öðru-
vísi hefði ekki verið hægt að koma
sýningunni á fjalimar."
Gamanleikurinn Aurasálin á
325 ára afmæli á þessu ári en hann
var frumsýndur í París 1668, er
Moliére var á hátindi frægðar
sinnar. Hann stofnaði eigin leik-
hóp í París 1658 og sló í gegn með
gamanleikjum sínum skömmu
síðar. Moliére varð fýrir áhrifum
frá ítölskum leikurum sem ferð-
uðust um Evrópu með leikformið
„commedia delTarte“, en það
byggðist á alþýðlegum hefðum og
gamanleikjum.
Sýning Halaleikhópsins fer
fram í félagsmiðstöðinni Árseli í
Breiðholti og verður frumsýnt
sem áður sagði næstkomandi
laugardag.
Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir og Sigurður Björnsson í hlutverkum
sínum í Aurasálinni.
Rósa Guðný Þórsdótir fer með
hlutverk Nóru 1 sýningu Þíbilju.
þekkt bókmenntaverk og ef til vill
óþarfi að tíunda söguna hér, en í
stórum dráttum fjallar verkið um
hjónabandið, ástina, stöðu kon-
unnar, karlmanninn, áhrifþjóðfé-
lagsins á okkur sem manneskjur
og það mynstur sem við erum sett
í. í sýningunnni er stúlkan Nóra
nær allan tímann á sviðinu og því
ef til vill ekki óeðlilegt að ætía að
hlutverkið sé erfitt, öðrum frem-
ur. Rósa Guðný svarar því þó neit-
andi. „Ég lít svo á að öll hlutverk
séu erfið og að því leyti er þetta
ekkert öðruvísi en önnur hlut-
verk. Hins vegar er því þannig far-
ið með hlutverk Nóru að mikið
kjöt er á beinunum; með öðrum
orðum er úr miklu að moða og
því er hlutverkið mjög þakklátt.“
Rósa Guðný vakti verulega at-
hygli í nýjustu sýningu Alþýðu-
leikhússins, Hræðilegri hamingju,
þylur fyrir notendur Sjónvarpsins
og skemmtir af og til börnunum í
Stundinni okkar. Auk Rósu Guð-
nýjar taka fimm leikarar þátt í
uppfærslu Þíbilju á Brúðuheimil-
inu, þau Eggert Þorleifsson, Kjart-
an Bjargmundsson, Ingrid Jóns-
dóttir, Ari Matthíasson og Inga
Hildur Haraldsdóttir. Leikstjórn
er í höndum Ásu Hlínar Svavars-
dóttur.
Athugasemd vegna ummœla Friðriku Benónýsdóttur um ritdóm
Þótt ég ætli að hafa það sem
vinnureglu að skrifast ekki á um
einstaka ritdóma mína sé ég mig
nú tilneydda að gera athugasemd
við ummæli sem höfð eru eftir
Friðriku Benónýsdóttur í síðasta
tölublaði PRESSUNNAR. Þar
vænir hún mig um að hafa ekki
lesið nema fjörutíu blaðsíður af
bók Trausta Steinssonar, Fjall rís,
áður en ég lagði bókina frá mér til
að skrifa um hana ritdóm. Að
segja gagnrýnanda ekki lesa þær
bækur sem hann fjallar um er
ærumeiðing. Friðrika Benónýs-
dóttir gengur enn lengra þegar
hún segir mig sjálfa lýsa því yfir í
ritdóminum að ég hafi ekki lokið
við bókina. Vegna þeirra sem ekki
lásu ritdóminn en einungis um-
mæli Friðriku Benónýsdóttur vil
ég birta þá tilvitnun sem er svo
gróflega mislesin:
„... ég hef þá trú að honum
(þ.e. lesandanum) muni fara lflct
og mér eftir um það bil fjörutíu
blaðsíðna lestur, fórna höndum
og segja eins og Hallgrímur Pét-
ursson í kvæði Steins Steinars:
„Ekki meir, ekki meir!““
Las Friðrika ekki það sem á
undan var komið? Þar voru tekin
dæmi um uppbelgdan stfl höf-
undar. „Ekki meir, ekki meir!“
vísar til þessara stílbragða sem
enginn endir virðist á — ekki þess
að ég hafi hætt lestrinum. Þetta er
reyndar svo augljóst að ekki ætti
að þurfa að hafa orð á því. Frið-
rika má gjaman vita að ég hef áð-
ur fómað höndum við lestur bók-
mennta. Sú athöfn tekur ekki
langan tíma. Hún táknar stundum
hrifningu, stundum vanþóknun.
Þetta kallast að gera hlé á lestrin-
um. Og vonandi þarf nú ekki að
útskýra mun á lestrarhléi og lestr-
arlokum.
Frumbyggjar Ástralíu fiindu
upp hið skæða vopn búmerangið
en það er þeirrar náttúm að fljúga
aftur til þess sem þeytir því af stað.
Nú mun það einatt henda óvar-
kára byrjendur í þeirri eðlu íþrótt
að fá búmerangið í hausinn; og á
sama hátt virðist mér einsýnt að
hið meinlega skeyti sem Friðrika
Benónýsdóttir sendi mér hitti
hana sjálfa fýrir. Með öðrum orð-
um: Hún hefur alls ekki lesið allan
ritdóminn sem hún vitnaði síðan
til stútfull af vandlætingu.
Friðrika Benónýsdóttir hefur
fengist við fræðistörf sem krefjast
heimildarvinnu. Ég get einungis
vonað að hún leggi örlitíu meiri
alúð og metnað í þá vinnu en hún
gerði hér þegar hún kaus að for-
dæma án þess að kynna sér það
sem sagt var.
Kolbrún Bergþórsdóttir
MYNDLIST
Skoskir grafík-
listamenn 26 tals-
|ins, sýna verk sín í
Geysishúsinu og er
sýningin hluti af menningar-
hátíðinni Skottís, skosk-ís-
lenskum menningardögum.
Viðfangsefnið er sjálfsmynd
listamannsins og hvernig
ungir myndlistarmenn líta á
sjálfsmyndagerð, mitt í hring-
iðu þeirra fjölda listastefnaj
sem hvarvetna gefur að líta.
Opið daglega kl. 10-18.
• Myndlistarrefillinn hefur
verið hengdur aftur upp á
Mokka vegna fjölda áskorana.
Á hinum 18 metra langa dúk,
sem spannar flestar stefnur
og stila innan myndlistarinn-
ar, gefur að líta verk eftir 35 af j
mörgum af okkar þekktustu
listamönnum.
• Inga Svala & Olga Berg-
mann sýna saman í Galleríi
11. Inga Svala sýnir annað
verkið í röð verka þar sem
þungamiðjan er duftið. Olga
Bergmann kallar myndröð
sína Ástand, en um er að
ræða temperamálverk máluð
á tré.
• Erlingur Jónsson. mynd-
höggvari og lektor í Osló, hef-
ur opnað sýningu í húsnæði
Bílakringlunnar ( Keflavík. Þar
gefur að lita 107 verk unnin
með margvíslegri tækni og í
ýmis efni, s.s. málma, tré og
stein.
• lan Hamilton Finlay,
listamaðurinn skoski sem
hlotið hefur alþjóðlega frægð
sem Ijóðskáld, myndlistar-
maður og skrúðgarðahönn-
uður, sýnir verk sin á Kjarvals-
stöðum, á menningarhátíð-
inni SKOTTlS, skosk-íslenskum
menningardögum. Á sýning-
unni gefur að líta myndverk
Finlays, nokkra neonskúlptúra
og litskyggnur af Stonypath-
garðinum í Lanarkshire, einu
af mikilvægustu samtímalista-
verkum Evrópu.
Bandarísk utangarðslist
í Hafnarborg, menningar- og
listastofnun Hafnarfjarðar.
Sýningin, sem heitir öðru
nafni .Outsider USA", er
skipulögð af Thord Thordem-
an og hefur verið sett upp
viða um Norðurlönd. Héðan
fer sýningin til meginlands
Evrópu.
Afmælissýning stendur í |
Nýlistasafninu, sem á 15 ára
afmæli um þessar mundir.
Sex listamenn sýna verk sín i |
boði safnsins; Aðalheiður Elva
Jónsdóttir, Elsa D. Gísladóttir,
Pétur Örn Friðriksson, Ólöf |
Nordal, Ragna Hermanns-
dóttir og Ingileif Thorlacius.
Opið daglega kl. 14-18.
• Jóhann Jónsson frá Vest-
mannaeyjum sýnir vatnslita-
myndir sinar i Lóuhreiðri við
Laugaveg. Opið virka daga kl.
9-18 oglaugardaga kl. 10-14.
• Ásmundur Sveinsson. I
Ásmundarsafni setndur yfir j
■ningin Bókmenntirnar í list
smundar Sveinssonar. Opið
alladagakl. 10-16.
Ý
Ás
SYNINGAR
• Paul Nederga-
ard. Sýning á Ijós-
myndum Pauls Ne-
dergaard af gömlum íslensk-
um húsum stendur yfir í
Bogasal Þjóðminjasafnsins.
Víkin og Viðey, sýning í J
Nýhöfn á fornleifum frá land-
námi til siðaskipta í Reykjavík,
á vegum Árbæjarsafns.
Sigurgeir Sigurjónsson
sýnir landslagsljósmyndir í j
Ráðhúsi Reykjavíkur. Hann
hefur nýverið gefið út bók I
með Ijósmyndum sínum.
Lækningaminjasafn
Sýnd áhöld og tæki sem
tengjast sögu læknisfræðinn-
ar á Islandi í Nesstofusafni við
Neströð á Seltjarnamesi.