Pressan - 14.01.1993, Side 26
26
FIMMTUDAGUR PRESSAN 14. JANÚAR 1993
B í Ó
POPP VEITINGAHÚS BARIR
POPP
FIMMTUDAGUR
• Reggae on lce
sem er splunkuný.og
fyrsta reggae-hljóm-
sveitin á Islandi. Hún leikur í
fyrsta sinn opinberlega á Púlsin-
um.
• Orgill er nokkuð athyglis-
verð hljómsveit með söngkon-
unni Hönnu Steinu úr söngelsku
Hjálmtýsfjölskyldunni, Biff Bur-
ger, Kolla, Ingólfi og Hermanni.
Einar Jónsson, básúnuleikari úr
Júpíters, verður gestaleikari
kvöldsins ásamt James Olsen,
sem leikur á slagverk. Orgill leik-
ur á Púlsinum ásamt...
• Rut + hefur ekki umboðs-
mann af verri endanum, engan
annan en Þór Eldon i Sykurmol-
unum. Bróðir Þórs, Ari Eldon, er
aðalnúmer hljómsveitarinnar.
Þeir leika tónlist í anda gftarist-
anna Skugganna (Shadows) á
Gauknum.
• Vincent Laurents skapar
skemmtilega stemmningu á Ca-
fé Romance.
• Guðmundur Rúnar mætir
glóðvolgur á Fógetann eftir
mikið menningarkvöld sem
haldið verður á efri hæðinni. Þar
munu stórvirkir þýðendur lesa
úr verkum sínum. Það eru þau
Jórunn Sigurðardóttir, Krjstján
Árnason, Oskar Árni Óskarsson
og Sigurður A. Magnússon.
Hann verður sem fýrr á Djass J
Ármúlanum.
• Vincent Laurents kannast
meira að segja við Michael Jack-
son, enda spilaði hann lítillega
með Jackson 5 í gamla daga. Nú
er hann á Café Romance.
• Haraldur Reynisson trúba-
dor heldur uppi stanslausu fjöri
á Fógetanum.
LAUGARDAGU R
• Síðan skein sól tekur við af
indversku prinsessunni á Púlsin-
um á laugardaginn. Þótt sú ind-
verska sé skrautleg kemst hún
ekki með tærnar þar sem Helgi
Björns hefur hælana í sviðsfram-
komu.
• Vinir Dóra hafa breytt um
stíl og eru orðnir rokkaðri en
nokkru sinni fyrr. Þeir eru einnig
með nýtt prógramm og leika
ásamt gestum á Tveimur vinum.
• Undir tunglinu syngur ör-
ugglega um Austfjarðaþokuna
og Suðurnesjabylinn á Gauki á
Stöng í kvöld.
• Tveir Logar halda áfram að
skapa Eyjastemmningu á Rauða
Ijóninu.
• Þórarinn Gíslason, hinn lag-
vissi kráarpíanisti, leikur á Jazz í
Ármúla.
• Vincent Laurents spilar enn
og aftur á Romance og mun
gera fram í febrúarlok.
• Haraldur Reynisson heldur
enn uppi stanslausu fjöri á Fóg-
etanum.
SUNNUDAGUR
• Síðan skein sól verður aðal-
númerið á Gauki á Stöng í kvöld
þar sem þeir félagarnir syngja
áróðurssöng sinn; Það er topp-
urinn að vera í teinóttu.
• Vincent Laurents er sá besti
sem hefur verið á Café Ro-
mance að undanförnu.
FÖSTUDAGUR ,
• Gildran leikur á Púlsinum, en
sú hljómsveit hefur verið í fríi
vegna þess að Sigurgeir gítar-
leikari var að Ijúka prófum í við-
skiptafræði. Hljómsveitin er vel
úthvíld og mætir tvíefld til leiks
ásamt....
• Leoncie, indversku prinsess-
unni sem ku ganga mun betur
að selja sig í útlöndum en á ís-
landi. Hún mun sjálfsagt kyrja
lögin Madonna is dead og Sa-
ving my body for you.
• Síðan skein sól hefur hina
miklu spilahelgi sína á Tveimur
vinum en flakkar svo eins og
hver annar tækifærissinni milli
skemmtistaða miðbæjarins.
• Guðmundur Rúnar mætir
móður og másandi úr Hafnar-
firðinum á Fógetann.
SVEITABÖLL
FÖSTUDAGUR
• Sjallinn, Akur-
eyri. Rokksveit Fúsa
Óttars, sem er þar-
lend hljómsveit, leikur fyrir
dansi.
• Hótel Selfoss. Hljómsveitin
Tvífarar er austan úr Rangár-
þingi og skemmtir á rangæska
vísu.
• Edinborg, Keflavík. Vinir
Dóra mæta ferskir til leiks með
nýtt prógramm.
LAUGARDAGUR
• Undir tunglinu er ekki sem
verst, en hún er samansett af
Suðurnesjamönnum og Aust-
firðingum. Spilar á Gauki á
Stöng.
• Sjallinn á Akureyri fær Ný
danska, sem er næstum þvi þar-
lend rokkhljómsveit, til að
popþa Sjallann upp.
• Geirmundur Valtýsson er
alltaf jafnferskur, ef marka má
áhuga Norðlendinga á sínum
manni. Hann bregður sér til
Reykjavikur, alla leið í Armúlann
á Hótel (sland, ef veður leyfir.
• Tveir Logar frá Vestmanna-
eyjum skapa kráarstemmningu
á Rauða Ijóninu.
• Þórarinn Gíslason kann
ótrúlega mörg lög á píanóið sitt,
.enda með afar gott tóneyra.
• Edinborg, Keflavík Hljóm-
sveitin Sjöund leikur fyrir alla þá
sem ekki eru mjög uppreisnar-
gjarnir.
• Hótel Selfoss. Sálin hans
Jóns míns bregður á leik.
• Þotan í Keflavík heldur árs-
hátíð fyrir kaupmenn og fleiri í
kvöld, en eftir að klukkan slær
tólf eru allir vélkomnir að hlústa
á Svartan pipar..
N1 BAR
★★★
(• Mörgum þótti nóg um fjölda
bara hér um árið og þegar opn-
aður var enn einn barinn, nánar
tiltekið á Klapparstígnum miðja
vegu milli 22 og Bíóbarsins, fékk hann
nafnið N1 bar. Lesi menn svo úr sem vilja.
Reksturinn á barnum gekk reyndar brös-
uglega með tíðum eigendaskiptum og
tilbehör, en hann er nú samt opinn enn
þótt aðeins sé um helgar. En það er svo
sem alveg nóg, því framboðið er meira
en nóg í miðri viku. Drykkjumaður
PRESSUNNAR er reyndar ekki frá því að
eftirspurnin á virkum dögum hafi líka
aukist, því ekkert lát virðist vera á aðsókn
að Bíóbarnum og 22, þrátt fyrir að Sólon
Islandus hafi nú verið opinn um nokkurt
skeið. Sólon er ávallt kjaftfullur og virðast
gestirnir ekki taka það neitt sérstaklega
naerri sér þótt þjónustan sé sú versta
hérna megin Búkarestar. Drykkjumaður-
inn fór af rælni inn á N1 þar sem honum
leist engan veginn á röðina inn á Bíóbar-
inn og 22 virtist svo órafjarri ífjúkinu.
Staðurinn kom honum skemmtilega á
óvart. Inni fyrir var fjöldi fólks án þess að
beinlínis væru þrengsli. Orðið „fjöldi" er
þó mjög teygjanlegt i þessu samhengi,
því barinn er svo agnarsmár að þrjátíu
manns er fjölmenni. Á barnum voru flest-
ar þær tegundir sem hugurinn girnist og
stúlkurnar, sem sáu um afgreiðsluna,
röskar og samviskusamar. Það besta við
N1 var samt óumdeilanlega tóniistin.
Motown-sál og ryðmablús vék vart af
fóninum og fyrir vikið ríkti hin sérkenni-
legasta stemmning á staðnum. f raun
skorti ekkert nema spaðadrottningar
með túperað hár til að fullkomna verkið.
Drykkjumaður PRESSUNNAR vill endilega
að barflóra Reykjavíkur sé sem allra fjöl-
breyttust, því umhverfið getur skipt öllu
máli. Annars gæti maður eins verið á
kojufylleríi og sparað sér ferðalög, bið-
raðahroll og sand af seðlum. N1 bar
stendur fyllilega fyrir sinu og gerir betur
en margir stærri barir, sem aldrei geta
þvegið sjoppustimpilinn af sér.
Rllt+ sér um
brimstuðið!
Þótt nú sé ekki beint rétti
tíminn til að skella sér á brim-
bretti í Fossvoginum er þó
vænlegt að skreppa á Gauk á
Stöng í kvöld og kíkja á fyrsta
brimbrettaband íslands, Rut
+, veita sólskini um staðinn.
Brimbrettarokk, eða „surf‘-
tónlist, átti gííúrlegum vinsæld-
um að fagna í kringum 1960 og
flóði um flestar baðstrendur
hins vestræna heims um það
leyti. Tónlistin varð til í beinu
ffamhaldi af því að eyjaklasinn
Hawaii var tekinn inn í Banda-
ríkin og brimbrettasportið, sem
hafði verið stundað á eyjunum
árum saman, öðlaðist vinsældir
á meginlandinu. The Ventures,
Shadows, Dick Dale og Beach
Boys voru helstu surf-rokkhetj-
urnar og Hollywood fylgdist
með tískunni og kom strand-
partímyndum á markaðinn;
og Annette
aðalkjötið í
Sólin vinsælusr fqrir vesfan
Greint var frá því í síðustu PRESSU hvaða hljómsveitir hefðu
kjaftfyllt flesta skemmtistaðina á síðasta ári en vegna símasambands-
leysis við ísafjörð gekk ekki að fá aðsóknartölur þaðan í tæka tíð. Þær
fengust þó loks og í ljós kom að Síðan skein sól hefúr átt hvað mestum
vinsældum að fagna fyrir vestan á síðasta ári, eða öllu heldur í Sjallan-
um á ísafirði; en þangað leggja flestir Vestfirðingar leið sína til að sletta
úr klaufúnum. Þessi niðurstaða kemur ekki á óvart, því líkt og
Geirmundur er vinsælastur fyrir norðan vegna þess að hann er
Skagfirðingur höfðar fsfirðingurinn Helgi Bjöms auðvitað til
sveitunga sinna. Mestu stuðböllin ku hins vegar hafa verið haldin af
Stjórninni og Sálin hans Jóns míns átti einnig miklum vinsældum að
fagna þar eins og víðast hvar annars staðar.
Frankie Avalon
Funicello urðu
þeim.
Það ber mikið á kúl gítarspili
í surfinu og oftar en ekki eru
engir söngvarar með í spilinu.
Það er því kannski rökrétt
framhald að hljómsveitin Rut+
skuli nú hafa snúið sér að
brimbrettarokkinu. Þeir hafa
átt í erfiðleikum með söngvara;
prufuðu Bjössa „Basta“ og
Boga dauðarokkara, en pönkað
graðhestarokkið sem bandið
spilaði náði sér aldrei verulega
á strik.
í dag eru fjórir piltar í Haw-
aii-skyrtum í Rut+; bassaleik-
arinn Ari Eldon, gítarleikarinn
og ljóðskáldið Atli Jósefsson,
Magnús trommari Þorsteins-
son og Árni Þórarinsson gítar-
leikari, sem er í leyfi frá Silfúr-
tónum. Bandið spilar aðallega
heimsfræga surfslagara en
lumar einnig á nokkrum ffurn-
sömdum lögum. Drengirnir
fmna sig vel í surfrokkinu, en
hafa hins vegar aldrei stigið fæti
á brimbretti.
Munið; magnað brimbretta-
stuð á Gauknum í kvöld!
Enn meiri hippar!
ÝMSIRHIPPAR
BLÓM OG FRIÐUR
STEINAR
★★★
MÁNAR
MÁNAR
STEINAR
★ ★
tínir Steinaútgáfan
f^^Búr stóru safni sínu, og
Wj^Pþað er gott mál. „Blóm
og friður“ er safn sextán laga sem
komu út á árunum 1968 til 1972.
Sum eru víðfræg og fara bráðlega
að verða þreytandi, önnur sjald-
heyrð og nokkuð frísk þegar
kóngulóarvefnum hefur verið
svipt af þeim.
Það er nokkuð augljóst hvaða
lög fer að verða kominn tími til
að setja í salt á ný; Flowers-lögin
„Glugginn" og „Slappaðu af‘ eru
að vísu meistaraverk en frá því
Bítlavinafélagið gróf þau upp fyr-
ir nokkrum árum hafa þau verið
fullviðloðandi rokkvitund þjóð-
arinnar. Hljómum/Trúbroti með
Shady Owens hafa' einnig verið
gerð fullkomin skil upp á síðkast-
ið.
Flest annað er kærkomið og að
megninu til nokkuð gott. Jónas
og Einar eru góðir í kassagítar-
poppinu og flytja hér titillagið af
plötunni „Gypsy Queen“. Einar
Vilberg er aftur á ferð með Pétri
Kristjáns í örstuttu en frábæru
lagi, „Blómið sem dó“, sem kom
út á smáskífu 1970 þegar ÓIi
Laufdal var í útgáfubransanum
með Lauf Records. Óðmenn var
toppband og óhætt að mæla með
tvöfalda albúminu þeirra sem
kom út á geisla 1991. Hér eru þeir
með lagið „Bróðir“ sem kom út
nokkru fyrr á smáskífu; gott lag
en enn betra var þó lagið „Spilltur
heimur“ sem virðist vera týnt.
Tatarar voru sannfærðir hippar
sem gáfu út tvær fínar smáskífúr
og er „Dimmar rósir“ ansi gott
sýnishorn af þeim. Roof Tops
voru alltaf meiri soul-pælarar en
hippar, en eiga hér eitt ágætt lag
og Ríó tríóið stökk á hippavagn-
inn og gaf út eina hippaplötu sem
hið saklausa lag „Við viljum frið“
er tekið af.
Öllu meira sannfærandi í
hippisma sínum voru Axel Ein-
arsson og félagar í Tilveru. Sú
sveit er sveipuð dularfullum dóp-
ljóma, ekki síst vegna lagsins
„Ferðin“ sem var fyrsti alvöru
dópreynslutexti íslenskrar rokk-
sögu. Frá Tilveru komu tvær
magnaðar smáskífur og eru tvö
lög af þeim hér. Eitthvað hlýtur
Axel að hafa verið vankaður í lag-
inu „Lífið“. Hann spyr margra
áleitinna spurninga, t.d.:
Ljóð = Ef sólin dæi út hvað
yrði um okkurþá?
Sannarlega brennandi spurn-
ing enn í dag, sérstaldega á
sveppatímanum. „Hell Road“ er
hitt Tilveru-lagið. Frábært hippa-
rokk og dæmi um það er varð
síðar ofan á hjá Axel í hinu goð-
umlíka graðhestabandi Icecross.
Mánar frá Selfossi voru fulltrúar
hipparokksins á Suðurlandi og
eiga tvö lög á „Blómum og friði“
og að auki er búið að endurútgefa
breiðskífu þeirra frá 1971. Mánar
voru fi'nt band fannst mörgum og
margir lögðu á sig ferð austur fyr-
ir fjall til að berja það augum. En
Mánar hafa ekki elst mjög vel.
Þeir voru mikið fyrir löng djömm
og stundum leysast lögin upp í
einn allsherjar djammmökk.
Plata þeirra á vissulega góða
spretti en heildarsvipurinn er
ansi móðukenndur. Sum lög eru
þó beinskeytt; „Söngur Satans“ er
hippalegt gaddavírsrokk í há-
klassa, „Ég horfi á brimið“ er vel
samið rokklag og „Villi verka-
maður“ er fínt. Öll þessi lög eru
eftir Ólaf Þórarinsson sem var
aðal-Máninn. Auk átta laga frá
„Öllu meira sannfœr-
andi í hippisma sín-
um voru Axel Einars-
son ogfélagar í Til-
veru. Sú sveit er
sveipuð dularfullum
dópljóma, ekki síst
vegna lagsins „Ferð-
in“sem varfyrsti al-
vöru dópreynslutexti
íslenskrar rokksögu. “
Ólafi á píanóieikarinn og söngv-
arinn Guðmundur Benediktsson
tvö ágæt lög og hinn lipri orgel-
leikari Björn Þórarinsson eitt.
Enn á ný verður að ljúka
plötudómi með því að þakka
Steinum hf. fyrir vel heppnaðar
endurútgáfur. Bæklingar beggja
platnanna eru vel útfærðir og sér-
staklega er gaman að fróð-
leiksmolum Jónatans Garðars-
sonar á „Blómum og friði“. Ef
Frú Vigdís væri af ’68-kynslóð-
inni væri Jónatan eflaust búinn
að fá fálkaorðu fyrir dugnaðinn.
Gunnar Hjálmarsson