Pressan - 18.11.1993, Síða 20
DÆGU RFLUG
20 pnessAN
1
Fimmtudagurinn 18. nóvember 1993
POPP
FIMMTU DAG U R I N N I
1 8. NOVEMBER
• Black out enn í leit að
sjálfu sér. Nú á Hressó.
• Dan Cassidy og Kristján
Guðmundsson heyja blússtríð
á Blúsbamum.
• Dead syngur sjálfsmorð-
slög á Tveimur vinum.
• Todmobile ætlar að
halda upp á afurð sína með
látum í Islensku óperunni í
kvöld. Loks ætla þau að láta
undan þrýstingi og hafa
tvenna útgáfutónleika. En
verið nú skynsöm, aðdáendur
'góðir, og mætið ekki öll ann-
að kvöldið. Tillaga; þeir yngri
á fimmtudag og hinir eldri á
föstudag.
• SSSól, Sköllótt mús og
Loðin rotta halda allar saman
upp á afmæli Gauksins í
kvöld. I raun og vem upphit-
un, því sá stóri er á morgun.
Sannkallað Rómverjasukk og
betra bjórlíki fhest hveigi.
FOSTUDAGURINN
1 9. NÓVEMBER
• Rabbi og co. hafa fengið
fádæma góða dóma hjá öllum
gagnrýnendum. Endurspegli
gagnrýnendur þjóðarsálina
má vænta mikils fjörs á
Tveimur vinum í kvöld. Kara-
oke-keppni bankamanna
stendur sem hæst fyrripart
kvöldsins. Money vinnur ör-
ugglega.
• Örkin hans Nóa er kom-
in í bæinn og ætlar nú að eyða
helginni á Café Amsterdam.
• Þorvaldur Halldórsson
og Gunnar Tryggvason leika
sarnan sem einn á Mímisbar.
Hver veit nema Þorvaldur
þenji raddböndin til fúlls og
syngi Á sjó.
• Verslóvæl; hin árlega
söngvakeppni Verslunarskól-
ans aftur þó að manni virðist
hún nýbúin. Fjórtán söngelsk-
ir verslingar keppa til úrslita
um besta vælið, en Verslóvæl-
ið ku einmitt vera fyrirmynd
Söngvakeppni framhaldsskól-
anna. Dómnefndina skipa
þau Páll Óskar, Jónatan Garð-
ars og Margrét Eir, svo fáeinir
séu nefndir. Verðlaunin eru
upptökutímar og jafhvel sess á
saftiplötu. Svartur pipar leikur
undir. Viðvörun: Þúsund
rnanns mættu í fyrra.
• Svartur pipar hendist
hverfanna á milli. Að afloknu
Verslóvælinu spila þeir á
Tunglinu og taka jafnvel ein-
hverja Verslóvælara með sér.
• Bláeygt sakleysi fær loks
inni á Blúsbarnum, þar sem
það þreytir frumraun sína í
kvöld.
• TodmobUe og seinni út-
gáfutónleikarnir í Islensku
óperunni með óborganlegri
ljósadýrð.
• Eyjólfur Kristjáns og
stjömur hans era orðnar ansi
margar. FjaUa-Eyfi verður að-
alnúmer kvöldsins í afmælis-
hófinu á Gauk á Stöng. Ein-
hvern veginn finnst manni
það við hæfi.
• Klang og kompaní í
Firðinum. Heyrst hefur að
eigandinn hafi verið að opna
kaffihús, Café Royal hvorki
meira né minna, í Hafnarfirði.
LAUGAR DAG U RIN N
20. NÓVEMBER
• Dr. Sáli skemmtir sér og
öðrum á Tveimur vinum.
Sveit þessi kemur beint frá
Eyjum og því eru Eyjapeyjar
og -pæjur hvött á vettvang.
• örkin hans Nóa heldur
uppi finu PR-starfi en verður
aftur á Café Amsterdam.
• Þorvaldur Halldórsson
og Gunnar Tryggvason ylja
sér á Mímisbar.
• Saga Class með Berg-
lindi Björk í söngbroddi. Er
það satt sem þeir segja um
landann í næstsíðasta sinn á
Hótel Sögu. Fáein sæti laus.
• Black out beint af bog-
gunni á Cancun, þar sem aUar
hljómsveitir una sér vel þessa
dagana.
• Bláeygt sakleysi er búið
að koma sér vel fyrir á Blús-
barnum og fer kannski ekki
þaðan í bráð.
• Centaur og Sniglabandið
halda enn upp á afmæli
Gauksins. Við mælum þó
með því að menn gangi hægt
um gleðinnar dyr ætli þeir sér
á sveitabaUahátíð Gauksins á
morgirn.
SUNNUDAGURINN
21 . NÓVEMBER
• Bubbi Morthens var
söluhæstur í síðustu viku,
enda best að selja landanum
bjartsýni í bölmóðnum. Lífið
verður ljúft á Tveimur vinum.
• PáU Óskar og MiUjóna-
mæringamir fá þann sérstaka
heiður að vera aðalnúmerið á
afmælishátíð Gauksins, sem
haldin verður í Hlégarði í
MosfeUsbæ. Nú kunna margir
að spyrja; í Hlégarði? Já, vegna
þess að Gaukurinn er ttu ára
og allar barflugur bæjarins
komast einfaldlega ekki fyrir á
Gauknum. Frítt að drekka tfl
tólf. Sætaferðir ffá Gauknum.
• Klang og Kompaní affur
í Firðinum. Niels Public
House opið að vanda.
SVEITABÖLL
FOSTUDAGURI NN
1 9. NÓVEMBER
• Kútter Haraldur Akra-
nesi. Black out kemur við og
eins fáránlega og það hljómar
gæti hún vel átt þátt f því að
lyfta skammdegissjúkum
Skagamönnum upp.
• Sjallakráin, Akureyri.
Karaoke-keppni og ný hljóm-
sveit sem ekki hefur fengið
nafn. En eitt er víst. Karl örv-
arsson er í hljómsveitinni.
LAUGAR DAG U RIN N I
20. NÓVEMBER
• Festi, Grindavík.
Todmobile sjálfsagt í fínu
formi eftir tvenna útgáfutón-
leika.
• SjaUinn, Akureyri. Nú er
það Pláhnetan sem leggur
land undir fót og ærir akur-
eyrskar smástelpur.
Konur sem karlmenn óttast
Frenjur,
breddur,
gribbur
□g skciss
Nokkur dæmi um það sem karlmenn eru hræddir við í fari nútíma-
kvenna. Eða: Voru konur ekki skárri þegar þær hétu Dídí, Sísí og Dollý?
Súsanna Suauapsdótör
Sússa verður æ meiri gella
með tímanum en ekki
minnkar óttinn við það —
þvert á móti. Hún fer ffemst í
flokki þeirra sem vilja þurrka
alla karlmenn upp og breyta
þeim í gúmmíasna.
Þónhíldun Þonleifsdóttin
Það er sama hvað hún segir
um viðhorfið „ákveðin kona
er ffekja, ákveðinn karl er fast-
ur fyrir“ — það tekur einfald-
lega enginn karl henni ffam í
ffekjunni. Það hefði einhver
önnur átt að segja þetta.
flgnes Bnagadóttin
Það eru ekki greindarlegar
spurningar sem karlmenn ótt-
ast, þótt hún haldi það sjálf.
Hrollköld röddin og ískalt fas-
ið er alveg nóg þegar hún á í
hlut. Enginn óttast hana
meira en útgerðargreifar á an-
nesjum sem ruglast á þessu
tvennu.
Guðnún Lánusdóttin
Rammir og sveittir útgerðar-
jálkar sem vanir eru vælinu í
Kristjáni Ragnarssyni verða að
dufti þegar hún byrstir sig á
fúndum LlÚ. Enda bullgræðir
hún á útgerðinni á meðan
aðrir eru á hausnum. Ár effir
ár.
hgiiöngSóiúiGísladótlr
Göbbels kunni að láta nas-
ismann hljóma sannfærandi.
Hún kann að láta þetta kven-
pokaprestskjaftæði hljóma
sannfærandi. Þetta endar með
lítilli styrjöld ef hún heldur
svona áffam.
Hendís Þongeinsdóttin
Það þekkja hana ekki margir,
en allir hafa heyrt nógu marg-
ar sögur af forneskjunni í
henni til að vera skíthræddir
við að kynnast henni.
Bena IMondal
Það er bara ein tegund karl-
manna sem óttast hana, en
þeir eru líka skíthræddir við
hana: myndlistarmenn. Bera
er skelfilegasta dæmið um það
þegar konan fær allt í einu
fjárhagslegt vald yfir karl-
manninum. Hún fer ósjálffátt
að beita hans brögðum.
Steinunn Sigunðandóttin
Hún leyfir sér að skrifa Tíma-
þjófinn, sem vel má túlka sem
stríðsyfirlýsingu á hendur
karlkyninu, og láta svo næstu
bók heita „Síðasta orðið.“ Það
-— og ffenjan í talandanum —
er nóg til að hræða líftóruna
úr hvaða karlmanni sem er.
Jóna Ingibjöng Jónsdóttin
Það er kannski ekki mann-
eskjan sjálf sem er svona
skelfileg heldur titillinn kyn-
lífsffæðingur sem sendir hroll
niður bakið á hverjum karl-
manni. Þegar hún byrjar tala
um penis, þvagrás, stinningu,
sæði, sjálfsffóun, eggjaleiðara
og stokka — jú neim it —
missa karlmenn náttúruna
bara af ótta við hvað einhver
bláókunnug kona veit mikið
umþá.