Pressan - 20.01.1994, Blaðsíða 28

Pressan - 20.01.1994, Blaðsíða 28
iPllÉl ÍW'H LIFIÐ EFTIR VIIUIMU V I Ð MÆLUM MEÐ ... Að þeir sem eru að springa á reykingabindindinu byrji í vindlum áður en þeir færa sig aftur yfir í tvo pakkana. Það er meiri stíll. Bakhliðin Telur þú að Kristján Jóhannsson sé heimsfrægur? „Hann er að minnsta kosti heimsfrægur á íslandi. Hann hefur náð langt miðað við marga á sínu sviði. Ég er mjög stolt af honum.“ Hefur þig dreyrnt furðulega drauma umfrœgt fólk? „Já, oft. Ég hef verið að djamma í draumi með liði eins og Michael Jackson og eitthvað álíka fárán- legt-“ Hvort finnst þér Bubbi betri týpa setn mjúki eða harði maðuritm? „Sem harði maðurinn. Mér finnst alveg meiriháttar þegar karl- menn eru harðir.“ Hvaða eiginleika meturðu mest í fari Friðriks Weisshappel? „Það er svo margt. Allir hafa sína galla, en hann hefur líka ótal kosti. Það er gaman að tala við hann. Hann er léttklikkaður. Svo er hann mjög góður þegar hann kemur með morgunverðinn í rúmið...“ Ertu daðrari í eðli þínu? „Eru það ekld allir?“ Hefurðu átt marga kcerasta? „Nei, mjög fáa.“ Hlustar þú á Heimi Steinsson? „Þennan með skeggið? Nei.“ Trúirðu á lífeftir dauðatm? „Mmmm. Ég trúi að maður lifi einhvern veginn til eilífðar en fæð- ist til skiptis sem karl og kona.“ Hvaða dýr vildirðu helst vera? „Hlébarði eða pardusdýr. Það er svo frábært að horfa á slík dýr í fræðsluþáttum.“ Hvað telurðu þig hafafengið helst í vöggugjöffrá móður þinni ogföð- ur? „Tærnar ffá pabba og eyrun frá mömmu.“ Áttu frœga forfeður? „Nei, ég er sú eina fræga í ætt- inni. Afkomendur mínir geta montað sig af mér í ffamtíðinni. Hahaha...“ Hvað varstu gömul þegar þú uppgötvaðirþig setn kynveru? „No comment.“ Hver er uppáhaldslíkamspartur- intt þinn? „Úlnliðurinn.“ Hvaða líkamspart hatarðu mest? „Rassinn... maga, rass og læri.“ Hvert ferðu þegar þú vilt láta þig hverfa? „Þá er ég bara heima hjá mér og fer inn í herbergi. Það er voða þægilegt stundum að vera þar og lesa, skrifa eða teikna.“ Ertu femínisti? ,Æ það verða aðrir að dæma um það.“ heldur ekki þannig að mað- lega spretta úr spori í þeim. u þó ekki með háum hæl. Skrautlegir frá Jean Paul Gaultier Junior. Og vafalaust hægt að hlaupa nokkra metra í þeim! Það er að verða margtugginn ffasi að fýrirsætan Andrea Ró- bertsdóttir þykir bæði skemmti- legust og leggjafegurst fljóða á Is- landi. Eða þar til önnur stúlka verður krýnd þeim tidum þegar efht verður næst til fegurðarsam- keppni á íslandi. Það má ekki van- meta þessa kosti, því fegurð kvenna er einn af fáum eiginleik- um sem þær eygja einhverja möguleika á að auðgast á. Með sumrinu leggur Andrea land undir fót og ætlar, líkt og margar stall- systur hennar, að reyna fyrir sér í fyrirsætustörfum á Grikklandi. Hún verður þar þó ekki ein, því kærasti hennar, Friðrik Weisshap- pel, ætlar að vera duglegur að heimsækja hana. Sefurðu nakin? „Það er leyndó.“ Hvort sefurðu rneira eða vakiryf- ir sjónvarpinu? „Það er svona fiftí, fiftí.“ Hver erfallegasti kvenmaður sem þú hefur séð? „Mamma.“ (Hún er einnig fyrr- verandi fegurðardís.) Hvort er í meira uppáhaldi hjá þér, Ingibjörg Sólrún eða Markús Örn? „Ingibjörg Sólrún. Ég spái henni sigri.“ Hvernig erþinn eðlilegi háralitur? „Kastaníubrúnn. En ég set glans í það endrum og sinnum." Hvaða ilmvatn notarðu? „Boucheron. Salvador Dali. Cartier. — Ég er alltaf að skipta um ilmvatnstegundir.“ Áttu plötu með Björk Guð- mundsdóttur? „Já, Rokk í Reykjavík og plötur með Sykurmolunum, en ekki De- but.“ Sá söngvari, sem vakti hvað mesta athygli á síðasti ári, kom einmitt út úr skápnum sem söngvari á því árinu. Það er Bergsveinn Árelíusson, sem þykir í öllu æði sínu með ólíkindum líkur söngvaranum Andrew Strong, aðalsöngvara The Commitments úr samnefndri kvikmynd, sem sló í gegn fyrir örfáum árum. Það var í hlutverki hans sem Bergsveinn vakti fyrst athygli þegar nemendur Fjölbrautaskólans í Breiðholti settu upp leik- ræna útfærslu á kvikmyndinni. Þrátt fyrir að Bergsveinn sé eitthvert besta söngvaraefni sem komið hefur fram á íslandi lengi hefur lítið heyrst frá honum að undanförnu. Úr því vandamáli verður leyst um helgina. Þeir sem skipa Hina skuldbundnu (Ðí Commitments) ætla að eyða helginni á Gauki á Stöng, en það er reyndar I síðasta sinn sem þeir koma saman, því hljómsveitin er að leys- ast upp í frumeindir sínar. Bergsveinn bakaranemi er þó ekki af baki dottinn, því í burðarliðnum er ný sveit sem hann ætlar að setja á stofn með hækkandi sól. Hann vill þó ekki gefa upp hvort soul-tónlist verður ríkjandi tón- listarform þeirrar sveitar. En eitt er víst; það vantar nýjar almennilegar grúppur á markaðinn. Og hvur veit nema Bergsveinn og félagar leggi iandið að fótum sér næsta £ sumar! Það liggur einhvern veginn í loftinu. « £ BERGSVEINN ÁRELÍUSSON, bakaranemi | og soul-tónlistarmeistari. Ætlar jafnvel á s sveitaballamarkaðinn með hækkandi sól og plata í burðarliðnum. En fyrst með Ðí Commitments um helgina. ... Aðalvídeóleigunni á Klapparstíg. Hún tók netta niðursveiflu á tímabili en er að ná sér vel upp. Og þeir sem eru ekki með lunt- ann ráðandi í geðinu ættu að kunna að meta hressilega afgreiðslu. ... Að allir fái sér hring í nefið til að storka þessu land- læga Kyefi. ... Taj Mahal indverska veitingastaðnum á Hverfisgötunni. Norðurlöndin voru enn undir jökli þegar Indverj- ar voru að mylja krydd og gera gúrme. Punkt- urinn yfir i-ið er heitt þvottastykki í lok máltíð- ar til að þerra af höndum og andliti. ... Þessum frábæru ódýru núðlusúpum í Kryddkofanum. Ekkert mál að elda; bara sjóða vatn og hella yfir og þá er komin fín máltíð. Ekta fyrir einstæðingana. Oll teikn benda til þess að tískan í vor verði sportlegri en oft áður. Þó verður að viðurkennast að hún er að taka einkennilegan vinkil: íþróttaskór með hælum! Hefði það hvarflað að einhverum fyrir nokkrum ár- um? Þessi nýja tíska sýnir þó alltént að tískuhönnuðir fá enn frumlegar hugmyndir, — tískan er ekki enn komin hringinn, eins og haldið hefur verið fxam. Nú geta loks þeir, sem þjást af minnimáttarkennd, smeygt sér í íþróttaskó og verið jafnreisulegir og fýrr! Skrýtnirskór Óneitanlega frumlegir íþróttaskór frá Adidas. Óvíst er hvort þeir koma til með að fást i spor- tvöruverslunum, enda teljast þeir vart til heilsu- botarvara. Chanel er einnig komið inn á þennan markað. Þetta eru ekta striga- skór með hæl. Þeir kosta hvorki meira né minna en 650 dollara, sem samsvarar tæpum 50 þúsundum íslenskra króna. Vonandi fara að koma ódýrari eftirlík- ingar. 8B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 20. JANÚAR 1994

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.