Pressan - 20.01.1994, Side 17
Arthur Morthens er fulltrúi
Birtingararms Alþýðu-
bandalagsins á sameiginleg-
um lista minnihlutans íyrir borgar-
stjórnarkosningamar í vor og skip-
ar vaentanlega fimmta sæti listans.
Ekki eru þó allir á því að svo verði,
hvorki innan flokksins né í röðum
annarra flokka sem standa að list-
anum. Þannig mun Guðrún Ág-
ústsdóttir, sem væntanlega skipar
annað sæti listans, ekki hrifin af
hugmyndinni og vill ekki sam-
þykkja „eignarrétt" Birtingar-
manna á því. Er nú farið að ræða
hugsanlegt prófkjör þar sem reynt
yrði að fella Arthúr af lista Alþýðu-
bandalagsins. Þá fer gamalkunnur
slagur af stað, því Birtingarmenn
hyggjast þá bjóða ffam gegn Guð-
rúnu og munu ekki sætta sig við
eiginmann hennar, Svavar Gests-
son, fyrir næstu þingkosningar.
Vegna andstöðunnar við Arthur,
ekki síst í öðrum flokkum, hefúr
óformlega verið rætt að setja Kjart-
an Valgarðsson, formann Birting-
ar, í firnmta sætið. Ef af yrði gæti
svo farið að bræður sætu saman í
borgarstjóm á næsta kjörtímabili,
því Bolli Valgarðsson hefur boðið
sig fram í níunda sætið fýrir hönd
Alþýðuflokksins...
Inýjasta hefti' Sportveiðiblaðsins
er viðtal við Össur Skarphéð-
insson umhverfisráðherra, þar
sem hann ræðir um þá ákvörðun
sína að stytta rjúpnaveiðitímabilið
fýrir skotveiðimönnum. Veiði-
menn sækja að sjálfsögðu fast að
ráðherranum, sem lætur hvergi bil-
bug á sér finna. f viðtalinu gefur
ráðherrann þvert á móti til kynna
að það komi vel til greina að alfriða
rjúpuna um tíma fyrir öllum veið-
um. Skotveiðimenn sjálfir hafa
haldið því ffam að ffiðun rjúpunn-
ar að hluta til þjóni engum tUgangi
og þannig svarar ráðherrann fýrir
sig, boðar bara alfriðun...
Flestir hafa tekið eftir útþenslu
þeirra DV-manna Harðar
Einarssonar og Sveins R. Eyj-
ólfssonar á prentmarkaðinum, en
þegar þeir verða búnir að koma
Isafoldarprentsmiðjunni fýrir í
Hampiðjuhúsinu hafa þeir yfir
þremur öflugum prentvélum að
ráða. Engin þeirra dugar þó til að
prenta DV, sem áffam verður
prentað í prentsmiðju Morgun-
blaðsins. Þetta telja DV-menn þó
enga ffamtíðarlausn og er nokkuð
síðan þeir fóru að skoða nýjar
prentvélar. Er gert ráð fýrir að inn-
an eins til tveggja ára verði keypt
vél sem geti prentað DV og henni
komið fýrir í Hampiðjuhúsinu,
sem þar með yrði helsta prent-
smiðja landsins...
eir sem fýigjast með prófkjöri
sjálfstæðismanna í Hafhar-
firði hafa gaman af ffamboði
Gissurar Guðmundssonar, rann-
sóknarlögregluþjóns og óvinar
bruggara númer eitt í Hafharfirði.
Þar sem mikið er bruggað í Firðin-
um telja menn að atkvæði bruggara
geti skipt miklu. Menn eru hins
vegar ekki ákveðnir í hvaða af-
stöðu þeir taka til Gissurar. Það
gæti verið sætt að refsa honum
með því að kjósa hann ekki, en
klókt að kjósa hann og losna þar
með við hann inn í pólitíkina.
Bruggarar í Hafharfirði eiga því í
senn völina og kvölina...
Fleiri mál en Hafskipsmálið
dragast á langinn í meðferð
skiptaréttar. Nú hefúr Við-
ar Már Matthíasson hæstaréttar-
lögmaður auglýst skiptafund í
þrotabúi vörumarkaðarins Vík-
urbæjar á morgun, föstudag.
Víkurbær var tekinn til gjald-
þrotaskipta hjá skiptaráðanda í
Keflavík 2. september árið 1985
eða fýrir nærri átta og hálfu ári.
Það hefúr því tekið nokkurn
tíma að ljúka skiptum, en ekki er
ljóst hver verða afdrif krafha...
Vegna mynd-
birtingar
Rétt er að taka ffam, til að
forðast misskilning vegna mynd-
birtingar á forsíðu blaðsins í síð-
ustu viku, að umrædd mynd var
ekki af ævintýramanninum unga
sem fféttin fjallaði um. Myndin
kom úr myndasafni blaðsins og
telji einhverjir sig hafa þekkt við-
komandi á myndinni, sem var
brengluð með aðstoð tölvu, ber
ekki að draga þá ályktun að hann
tengist málinu á einn eða neinn
hátt.
Hundarækt-
andinn far-
inn frá Mora>
stöðum
HEILSU
NÝBÝLAVEGI24
LINDIN
SÍM146460
•••
0 5 tíma nudd hjá menntuðum nuddurum.
0 10 ttma Ijós ífrábærum Ijósabekkjum.
0 2 mánuðir í líkamsræktfyrir kyrrsetufólk og byrjendur
Sérstakur stuÖningur Jyrir þá,
sem vilja leggja af
0 Alltpettafyrir kr. 7.7Ö0,-.
0 Kjörorð okkar er vöðvabólga ogstress, bless.
Sími 46460
V/ertu með í hópi
ÞEIRRA BESTU!
Vegna fféttar í síðasta blaði
um kæru á hendur hundarækt-
anda vilja húsráðendur á Mora-
stöðum í Kjós taka ffam að um-
rædd kona tengist þeim ekki og
sé ekki heimilisföst á Morastöð-
um. Hún hafi haft þar skamma
viðdvöl, en sé nú flutt í Garðabæ
með starfsemi sína.
Frá upphafi hafa veröbréfasjóöir í umsjón Kaupþings hf. ávallt
veriö í hópi bestu ávöxtunarleiöa á fjármagnsmarkaönum.
Einingabréfin og Skammtímabréfin er hœgt aö innleysa
hvenœr sem er. Til þess aö losna viö kostnaö* þarf aö
tilkynna innlausn á Einingabréfum 1, 2 og 3 meö 2ja
mánaöa fyrirvara. Skammtímabréfin eru laus án
*
SPARISJÓDIRNIR
^BÚNADARBANKINN
Hlín ekki
leikhússtjóri
Vegna smáfféttar í síðustu
PRESSU vill Viðar Eggertsson,
leikhússtjóri á Akureyri, koma
því á ffamfæri að Hlín Agnars-
dóttir sé ekki leikhússtjóri heldur
„fulltrúi leikhússtjóra" meðan
Viðar sinnir leikstjóraverkefni í
Þjóðleikhúsinu. Viðar er beðinn
velvirðingar á þessum mistökum
— það var ekki ætlunin að ræna
hann titlinum.
kostnaöar eftir 30 daga frá kaupdegi. Einingabréf
henta vel í reglulegan sparnaö.
Bréfin fást hjá eftirtöldum aöilum:
Kaupþingi hf., Kaupþingi Noröurlands hf., Sparisjóöunum
og Búnaöarbanka Islands.
* Mismunur á kaup- og sölugengi.
KAUPÞING HF
Löggilt verbbréfafyrirtœki
Kringlunni 5, st'mi 689080
l eigu Húnaöarbanka ístands
og spari.ydðanua
*?-V ■
AMTÍÐARÖRYGGI í FJÁRMÁLUM.