Pressan - 20.01.1994, Blaðsíða 4
Tímamótadómur yfir bruggurum hitti ekki á tímamótamennina sjálfa
„Ætla að hengja okkur ö<
tll vlðvörunar"
- segir Valentínus Baldvinsson, sem var tekinn
fyrir að brugga fyrir brúðkaupsveislu sína
„Þetta er náttúrulega miklu
þyngri dómur en tíðkast hefur og
er greinilegt að dæma á okkur öðr-
um til viðvörunar,“ sagði Valent-
ínus Baldvinsson, einn þriggja
manna sem dæmdir voru fyrir
bruggun í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í síðustu viku. Þessi dómar eru
stefnumarkandi að því leyti að
dómarinn ákvað að nýta refsi-
rammann til hins ýtrasta og hlutu
þeir allir fangelsisvist fýrir það sem
í raun mætti kalla minniháttar
bruggun. Hefur PRESSAN heim-
ildir fyrir því að verjandi mann-
anna og saksóknari hafi verið búnir
að komast að samkomulagi um
sátt í málinu sem var í stíl við þá
meðferð sem þessi mál hafa fengið
undanfarið, en dómarinn, Pétur
Guðgeirsson héraðsdómari, hafn-
að því. Pétur mun hins vegar hafa
gefið í skyn að rétt væri að áfrýja
málinu til Hæstaréttar til að fá
staðfestingu æðsta dómstigsins á
þeirri stefhubreytingu sem úr
dómunum mætti lesa. Hafa sak-
borningamir ákveðið að áfrýja.
Þeir Valentinus, Einar Éinars-
son og Valur B. Bragason voru
samstarfsmenn í þessu máli, enda
bæði mægðir og vináttutengsl á
milli þeirra, eins og Valentínus
orðaði það. Þremenningamir geta
tæpast talist neinir englar ef litið er
á sakaferil þeirra, en bruggstarf-
semi þeirra virðist heldur ekki vera
neitt í líkingu við þá iðnaðarstarf-
semi sem dómunum er bersýnilega
ættlað að höggva á. Þrátt fyrir að
lögreglan segi að bruggarar hafi séð
sína sæng upp reidda með dómn-
um má efast um að hann nái til al-
veg réttra manna.
Valentínus er sem gefur að skilja
ekkert mjög hrifinn af niðurstöð-
unni: „Auðvitað emm við ekki kát-
ir með þetta, en ekki er útséð um
niðurstöðu þar sem þetta mál fer til
Hæstaréttar," sagði Valentínus.
Hann sagði að í viðræðum við
menn hefði hann heyrt þá skoðun
að þó að dómskerfið ætlaði að færa
þetta úr 50 til 60 þúsund króna
sekt í fengelsisdóm þá hefði verið
rétt að skilorðsbinda dóminn í
upphafi.
„Erum fórnarlömb vanda
sem lögreglan hefur
búið til“
„Menn hafa þá tækifæri til að fá
vita að hverju þeir ganga áður en
þeir ffemja glæpinn. Þessu má líkja
við það að menn taka ekki séns á
að fara yfir á rauðu Ijósi ef þeir eiga
von á sex mánaða fangelsi en þú
gerir það fýrir áttaþúsundkall!
Annars er búið að gera þetta að
miklu fjölmiðlafári. Það er eins og
það sé komið krakk á götuna eða
eitthvað þaðan af verra,“ sagði Val-
entínus. Sú skoðun kom greinilega
ffam hjá honum að lögreglan ætti
einnig nokkra sök á því hvemig
komið væri með því að magna upp
tilbúið ástand í bruggstarfsemi.
„Margir — þar á meðal ég — telja
að lögreglan hafi búið þennan
vanda til, búið til mikið af brugg-
urum með því að gefa út yfirlýsing-
ar í fjölmiðlum um að menn hafi
„Margir — þar á
meðal ég — telja að
lögreglan hafi búið
þennan vanda til, bú-
ið til mikið af brugg-
urum með því að gefa
út yfirlýsingar í fjöl-
miðlum.“
hundmð þúsunda króna eða jafn-
vel milljónir á mánuði. Þetta æsir
auðvitað upp í mönnum í atvinnu-
leysinu.“
Eti það getur etiginn þrœtt fyrir að
aukning hefur orðið í bruggun og
sölustarfsemi henni tengdri?
„Jú, það em allir sammála um að
þetta er komið út í iðnaðarstarf-
semi á ýmsum stöðum. Þetta er
vandamál, því er ég alveg sammála.
En stundum hengja menn bakara
fyrir smið. Við vitum að bærinn er
fljótandi í þessu og eðlilegt að
menn vilji taka á málinu. Það er
hins vegar kjánalega að þessu stað-
ið og menn hafa kallað þetta yfir
sig, — vilja bjarga sjálfúm sér úr
skítnum og ætla að hengja tvo, þtjá
öðmm til viðvörunar.“
Valentínus segir að starfsemi sín
hafi takmarkast við ffamleiðslu fýr-
ir eigin brúðkaupsveislu, eins og
kemur ffam í dómnum. Á hann
hefúr talist sönnuð ffamleiðsla á
um 710 lítmm af gambra og 150
lítrum af sterku áfengi, en ekld
sannaðist sala á neinu af því. Fyrir
þetta fékk hann fjögurra mánaða
fangelsi óskilorðsbundið, upptöku
á öllum tækjum og 300.000 króna
sekL Einar var enn smærri í snið-
um; á hann sannaðist aðeins ffam-
leiðsla á 70 lítrum af sterku áfengi.
Fyrir það fékk hann um einn og
hálfan rnánuð í fangelsi auk þess
sem hann hafði rofið skilorð
reynslulausnar þannig að fangelsis-
vist hans verður sex mánuðir. Val-
ur var með 144 lítra af gambra og
þrjá og hálfan lítra af sterku áfengi.
Fyrir það fékk hann tveggja mán-
aða fangelsi og 70 þúsund króna
sekt „Dómarinn tók vitlausa menn
fýrir, enda var ekki um neina sölu
að ræða í okkar tilviki. Hvar em
mennimir sem selja unglingum —
af hverju em þeir ekki dæmdir?
Fyrir viku vom menn með mun
stærri mál en við — af hverju vom
þeir bara sektaðir?" sagði Valur.
Valentínus tók ffam að þeir
væm ekki með „pítsusendlaþjón-
ustu“ með tilheyrandi boðsíma-
kerfi, enda væm þeir ekki þeir
tímamótamenn sem út úr dómn-
um mætti lesa. „Dómarinn dæmdi
ekki eftir sinni sannfæringu eða
þekktum reglum, heldur em það
almenningur og fjölmiðlar sem sjá
um dóminn."
Siguröur Már Jónsson
Lðgreglan i Keflavfit
Atta bruggverksmlðiur gerðar
-a nysanu óri. scm er mwvl JjöJgur Iré
Hvað finnst Regínu?
Um laun bankastjóranna?
„Þetta var vel undirbúin leiksýning hjá Davíð Oddssyni og
Sverri Hermannssyni í sjónvarpinu. Mér líkaði vel það sem Davíð
sagði, en það var ekki gert af hjartans sannfæringu. Sverrir var
líka eitt bros, því hann veit að hann verður aldrei látinn fara. Þetta
var vel undirbúið leikrit og Davíð og Sverrir eru bestu leikarar sem
ísland hefur átt. Sverrir er stórvinur minn, en hann er mikill leikari
og það er ekki allt satt sem hann segir. Bankastjórarnir eru allt of
miklir einræðisherrar; þeir lána þeim sem þeir vilja og eiga að
bera miklu meiri ábyrgð. Þegar þeir lána sama aðila tvisvar án
þess að fá peningana inn aftur eiga þeir skilyrðislaust að fara frá.
Það eiga sem flestir að hafa sem jöfnust laun, en kannski eiga
bankastjórar að hafa eitthvað meiri tekjur. Þessi laun sem þeir
hafa eru hins vegar svo óréttlát að það skapar mikinn óróa hjá
þjóðinni."
YFIRHE Yf
Réttur fórnarlamba og
aðstandenda enginn
Hver er, gagnvart ríldnu, réttur
fjölskyldu eða annarra aðstand-
enda sem hæglega geta lent í mild-
um hremmingum eftír framið af-
brot, tU dæmis innbrot, að ekld sé
talað um morð eða nauðgun?
„Það er því miður ekki um neinn
slíkan rétt að ræða. Enginn bóta-
réttur eða neitt slíkL“
Eiga fómarlamb eða aðstand-
endur þess rétt á lagalegri, sál-
fræðilegri eða fjárhagslegri aðstoð
fráríkinu?
„Ekki er það nú. En hins vegar er
uppi umræða um hvort þolendur í
kynferðis- og nauðgunarmálum
skuli eiga rétt á bótum úr ríkissjóði.
Það er auðvitað réttur gagnvart
sökunaut, — það er hægt að fara í
bótamál gegn brotamanni. Ríkis-
saksóknari er aðili sem fer með mál
og kostnaður greiðist af ríkinu eða
af sökunaut, ef hann er til þess
dæmdur og eitthvað er af honum
afhafa.“
Ef brotamaður er dæmdur til
greiðslu bóta til fómarlambs eða
fjölskyldu þess, en er ekki borgun-
armaður fyrir henni, er rildnu í
einhverju tilfelli skylt að borga
brúsann fyrir brotamann?
„Nei, það er það ekki. En það er
verið að hyggja að þessu í sam-
bandi við kynferðisafbrotin."
Hver er réttur fómarlambs og
fjölskyldu til upplýsinga um með-
ferð „eigin máls“ fýrir dómi?
„Menn eiga rétt á að fá að vita
hvað hefúr orðið um kæru og
hvemig máli hefúr lokið.“
Hafa menn rétt á að vita hvenær
dómur verður kveðinn upp?
„Ja, menn hafa að minnsta kosti
rétt á að fa afrit af dómnum, ég skal
ekki segja hvort fólk á rétt á að vera
viðstatt dómsuppsögu.“
Nú er betrunarvist talin jákvæð
— að brotamaður komi betri
maður út úr refsivist en þegar
hann fer inn. í því augnamiði
leggur ríldð út fé til betrunar
manninum, svo hann megi njóta
skólagöngu og hugsanlega er hon-
um hjálpað með atvinnu. Er ríkið
að mismuna brotamanni og fóm-
arlambi með þessum hætti, að
teknu tilliti til lítillar aðstoðar sem
það veitir fómarlambi?
„Fómarlambið bíður þess nú
kannski aldrei bætur hafi það orðið
fýrir glæp sem varðar líf þess og
heilsu. En ég veit ekki hvort hægt
er að tala um mismunun milli
brotaþola og afbrotamanns. Hins
vegar hefúr staða brotaþola verið
mjög til umræðu meðal refsiréttar-
fræðinga á Norðurlöndum undan-
farin ár, með það í huga að gera
hana betri og draga meiri athygli
að hlutskipti brotaþola. Við emm
nokkuð á eftir í þessari umræðu.
En á meðan ekki hefur verið dæmt
Móðir stúlku sem var myrt fyrir fáeinum árum kom fram í viðtalsþætti á Stöð 2 í vikunni. Reiði hennar <
glæps, vegna ónærgætinna og tillttslausra orða og athafna embættismanna og ekki síst vegna réttleysis
þess frammi fyrir dómskerfinu.
4 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 20. JANÚAR 1994