Pressan - 20.01.1994, Blaðsíða 16

Pressan - 20.01.1994, Blaðsíða 16
Hannes Holmsteinn á fundi með götubörnum í Ríó: „Ég sé að þið eigið bágt, en ef þið lesið betri hagfræðibækur mun hagur ykkar batna til lengri tíma litið," sagði Hann- es meðal annars á fundinum. Hannes Hólmsteinn Gissurarson kannar lífskjör götu- barna í Ríó „Athyglisvert hve margir hafa það skítt“ Rio de Janeiro, 19. janúar. Dr. Hannes Hólmsteinn Giss- urarson lektor hefur undanfar- dvalið í borginni Rio de Ja- neiro í Brasilíu til að kanna hag götubarna þar. „Þetta er auðvitað gamla sag- an um framboð og eftirspurn. Framboð á götubörnum í Ríó er einfaldlega of mikið til að verð- ið á þeim geti hækkað,“ sagði Hannes á fundi með þarlendum hagfræðingum. I samtali við blaðamann GULU PRESSUNNAR kom hins vegar fram að Hannes undrað- ist hve skítt hörnin höfðu það. „Ég heiði skilið ástandið ef börnin væru í Rússlandi, þá gæti maður einfaldlega kennt kommúnismanum um. Þarna eru hlutirnir flóknari. Svona til að lina þjáningarnar reyndi ég að kenna þeim nýjustu styrkja- fræðina, en ég er hræddur um að það dugi skammt,“ sagði doktorinn. Þessi kona greip í tómt á bílskúrstom- bólu Hreins Lottsson- ar. „Það eru bara námsbækurnar hans eftir og ég þarf lítið á þeim að halda," sagði Jóhanna Jónsdóttir. Örtröð fyrir framan heimili Hreins Loftssonar hrl. Var með bílskúrstombólu um helgina Reykjavík, 19. janúar. „Mér er sama hvað hann sel- ur, ég vil kaupa það,“ öskraði fimmtugur heildsali upp úr ör- tröðinni sem skapaðist við Jjeimili Hreins Loilssonar hæstaréttariögmanns um helg- ina þegar hann hélt bílskúrs- tombólu heima hjá sér. „Það var rnjög ánægjulegt að greina viðbrögð fólks og það eina sem ég sakna var að sjá ekki Halla í Andra. Ég heiði gjarnan viljað selja honum ým- islegt úr minni eigu,“ sagði Hreinn. Skoðanakönnun GP meðal bankastarfsmanna Langflestir sakna - hafa ekkert að gera a vaxtabótadögum Sverrir Hermannsson tekur við launaávísun sinni. „Há laun eru böl." Bankastjórarnir reyndust vera á bankastjóralaunum „Tek nauðugur þátt í þessum hildarleik“ - segir Sverrir Hermannsson bankastjóri Reykjavík, 19. janúar. „Ég segi það sannast að þessi háu laun eru ekkert nema böl. Ég yrði þeirri slund fegnastur sem þau væru frá okkur tekin, enda tek ég nauðugur þátt í þessum hildarleik," sagði Sverrir Hermannsson banka- stjóri, en nú hefur komið í ljós að bankastjórar landsins eru á bankastjóralaunum. Þessi könnun sýnir, svo ekki verður um villst, að laun greidd bankastjórum hafa runnið til þeirra í raun og veru en ekki annað. „Laun bankastjóra virðast hafa tilhneigingu til að hækka eftir því sem bankarnir tapa meiru. Það væri vissulega gam- an ef þetta ætti við um laun okkar ráðherranna,“ sagði Sig- hvatur Björgvinsson viðskipta- málaráðherra. Eyþór að þvo nágrannakonunni, Sesselju. Náungakærleikur fyrirfinnst enn hér á landi Hjálpsamur náungi þvær nágrannakonu sinni „Það er gott til þess að vita að Henimi Gunn er ekki búinn að drepa allan náungakærleik hér á landi,“ sagði Guttormur Em- ilsson, íbúi í Engihjalla, en hann sagði fréttaritara GULU PRESSUNNAR frá hjálpsömum nágranna. Svo virðist sem Ey- þór Andrésson, nágranni Gutt- orms, taki að sér að þvo konu hans, Sesselju. „Nei, nei, það er ekkert að henni en hún liefur alla tíð ver- ið nokkuð sérhlífin," sagði Guttormur. „Mér finnst bara gaman að þessu sagði,“ Eyþór. 16 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 20. JANÚAR 1994

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.