Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Page 10

Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Page 10
10 VlSIR sh. hvert 100, svo að við hlóg- um dátt). Þýskur undirforingi, sem hlotið hafði Járnkrossinn fyrir það, hve góð leyniskytta hann var, lét menn sína fara að syngja göngulag. Við vildum ekki vera eftirbiátar þeirra og sungum þá „The Boys of Bonnie Scotland“. Þannig hélt söngur- inn áfram, alt frá söngnum um hinn góða konung Wenceslaus og enduðum á „Auld Lang Syne“. Undir þann söng tóku allir: Englendingar, írar, Skot- ar, Prússar og Wiirttembergar- ar. Þetta voru dásamleg augna- blik, en ef eg hefði séð þetta á kvikmynd, þá hefði eg þorað að sverja, að myndin væri fölsuð. Aðfangadag hafði verið rign- ingarsúld, en um nóttina brá til batnaðar og fór að frjósa og var veðrið hið fegursta þenna dag. Snjór þakti jörðina, kyrðin var fullkomin og jafnvel fuglar sá- ust um alt, en það kom annars aldrei fyrir. Síðdegis gaf eg um 50 spörfuglum að borða fyrir utan jarðhús mitt og ætti það að geta sýnt hversu kyrðin var mikil. Eg get ekki neitað því, að þessi kyrð liafði afskapleg áhrif á huga minn og kyrðin var mér, sem öllum öðrum til mikillar fróunar, svo og það, að geta gengið um, án þess að þurfa að óttast limlestingu eða dauða. Þetta var í fyrsta skifti í marga daga, sem fallbyssudun- ur og brakið úr minni byssun- um hljómaði ekki i eyrum okk- ar. Við vorum varla húnir að sleppa síðasta orðinu í „Auld Lang Syne“, þegar gamall og sællegur héri var skyndilega kominn mitt á meðal okkar. Hann varð alveg ruglaður þegar hann sá svona marga menn i „ríki“ sinu. Eg rak upp óp og um leið tók allur skarinn, bæði Bretar og Þjóðverjar, á rás á eftir héraskömminni. Við runnum og duttum í frosinni leðjunni, en að lokum var hér- inn drepinn. Þjóðverji og einn okkar pilta duttu ofan á hann i einu. Skömmu siðar sáum við f jóra héra í viðbót og náðum einnig í einn þeirra. Báðir voru þeir feitir og þungir. Þeir höfðu vafalaust haldist þarna við síð- tistu tvo mánuði og lifað góðu lífi á kálinu, sem óx i „Aleyðu“. Fjandmennirnir fengu annan hérann og við hinn. Klukkan var nú 11.30 árdegis og þá kom George Paynter til okkar og bauð okkur „gleðileg jól“..... Honum fanst sjálf-< flagt 06 hvíla sig á þeim (iegl, sem háðar þjóðirnar höfðu svo í helgi og sagði síðan: „Jæja, piltar. Eg koin með dálítið til hátíðahrigða“ og jafnframt dró hann stóra rommflösku úr vasa sínum. Allir ráku upp gleðióp, flaskan var tekin upp og tæmd, áður en liægt var að segja „skál“..... Meðfram öllum skotgröfun- um skeði þetta sama um dag- inn og einn fjandmannanna sagði við mig, að hann væri far- inn að þrá London aftur. Eg fullvissaði hann um það saina. Hann kvaðst vera dauðleiður á stríðinu og eg sagði honum, að jafnskjótt og þessu vopnahléi okkar væri lokið, væri þeir allir velkomnir yfir i skotgrafirnar okkar. Þeim skyldi verða þar vel tekið, fengi nóg að borða og „fría ferð“ til Isle of Man (fangabúða). V íggirðingavinna í ró og næði. Hópai'nir hittust aftur síðar um daginn en kl.4,30 urðum við ásáttir um að fara ekki meira úr skotgröfunum okkar — og við sögðum þeim að vopnahléð væri á enda. Þeir kváðustþóekk. mundu skjóta á okkur og George hafði sagt. okkur að skjóta ekki nema þeir gerði það. Við bjuggumst því við rólegri nótt, en ámintum þó varð- mennina um að vera vel á varð- bergi. Báðir aðilar höfðu notað kyrð dagsins til þess að flytja birgðir af timbri og hálmi fram i skot- grafirnar, en undir venjulegum kringumstæðum eru þeir flutn- ingar stórhættulegir. Við end- urbættum jarðhúsin okkar, settum timbur í loftin á þeim nýju og bættum aðbúð okkar yfirleitt að miklum mun. Jafn- skjótt og myrkrið skall á fór öll mín sveit að bæta gaddavirs- girðingarnar fyrir framan skot- grafirnar, en varðnienn voru sendir nær fjandmönnunum, til þéss að ekki skyldi komið að okkur óvörum. En engu skoti var hleypt af og við lukum verki okkar, án ]iess að nokkuð kæmi fyrir. Á vinstri hönd okkar var önnur skosk herdeild. Vega- lengdin milli skotgrafa hennar og fjandmannanna var aðeins >85—100 yards, svo að þar varð vopnahlésaginn að vera miklu strangari. En þýski foringinn, sem þarna var andspænis var mjög viðkunnanlegur maður og um það varð samkomulag, að hvorir um slg skyldu flytja lik pienna hinna að markalínunni, Voru svo 29 Skotar grafnir þarna í „Aleyðu“...... Þjóðverjarnir virtust koma vel fram við fangana, sem þeir tóku og gerðu alt, sem þeir gátu til þess að draga úr þjáningum þeirra Breta, sem féllu sárir í þeirra liendur. Foringinn, sem áður getur, henti livað eftir ann- að á likin og harmaði örlög þessara hugdjörfu drengja. Þegar George frétti þetta fór hann til þessa foringja og gaf honum trefil og siðar um dag- inn kom sendimaður frá Þjóð- verjanum, með þykka ullar- vetlinga að gjöf til Georges. Sama kveld fórum við upp úr skotgröfunum og komum fyrir ramlegum „búkkum“, alþökt- um gaddavir. Þjóðverjarnir fóru einnig upp úr sínum skot- gröfum og virtu okkur fyrir sér, sitjandi á brjótvörnum skot- grafa sinna. Við höfðum þó sagt þeim, að vopnahléð væri á enda......Nú, næsta morgun, þegar eg var að snæða árdegis- verðinn minn, kom einn undir- foringjanna til mín og sagði, að fjandmennirir vildu aftur hafa tal af okkur. Eg hafði skipað svo fyrir, að enginn mannanna mætti fara úr skotgröfunum til móts við Þjóð- verjana. En undirforingjann, sem áður getur sendi eg með tveim mönnum af stað, til þess að gæta þess að Þjóðverjarnir kæmi ekki' of nærri skotgröfum okkar. Síðan fór eg og talaði við þá. Það var sami hópurinn og komið hafði daginn áður og þeir Iétu í Ijós þá ósk, að vo]ina- Iiléð héldi áfram. Eg hafði fengið skipun um að hefja ekki skothríð að fvrra bragði og tillcynti Þjóðverjun- um það. Vopnahléð hélt svo á- fram þ. 26., þangað til kl. 4.30, er eg tilkynti þeim að það væri á enda. Við höfðum sent þeim plómubúðinga og þeir þökkuðu hjartanlega fyrir og héldu til skotgrafa sinna. Munurinn á þessum vopnahlésdegi og þeim fyri'i var sá, að síðari daginn leyfði eg aðeins einum undir- foringja og tveim óbreyttum hermönnum að vera úti i „AI- eyðu“, svo að Þjóðverjarnir voru einnig færri. Þenna dag notuðu báðir að- ilar lil þess að bæta aðbúð sína og um kvöldið héldum við á- fram að dytta að gaddavirsgirð- ingum okkar og gátum lokið við þær. Við bjuggumst ekki við neinu uni nóttina, en kl. 11 vor um við skyndilega vaktir af værum blundi. Sendiboði frá yf- lrforingjanum tilkynti mér þá, áð þýskur liðhlaupi hefði ljósti að upp, að Þjóðverjar myndu gera allsherjar árás kl. 12.15 um nóttina, við ættum að húast til varnai’ þegar i stað og að liðs- auki væri á leiðinni til okkar. I huganum bölvaði eg þessum liðhlaupa fyrir að raska nætur- ró okkar, enda kom það á dag- inn, að það var alt upþspuni, sem hann liafði sagt. Eg dreif lið mitt á varnarstaðina, gerði nokkrar varúðarráðstafanir og kl. 11.20 kom George til okkar. _. . . Skyndilega hófu okkar fallhyssur skothríð, en fjand- mennirnir létu sér nægja að svara með 23 sm. umsátursbyss- um en engin þeirra kúla sprakk. Hvergi var hleypt af riffli og kl. 2,30 var helmingur mann- anna látinn fara að sofa, en hinir voru látnir lialda vörð. Liðhlaupinn hafði sagt frá því, að tvær heilar hersveitir væri komnar að baki skotgraf- anna til liðveislu Þjóðverjunum sem þar væri. Þetta var tilkynt stórskotaliði okkar og það hóf strax slcothríð á staðinn, þar sem liersveitirnar létu að sögn fyrir berast. En eklcert skeði og eg fékk ekki nema tæpra tveggja stunda svefn fyrir ld. 6.30, en þá fara allir á varð- staði, rétt fyrir dögun. Eg ætlaði að sofna dálítið um átta leytið (þ. 27. des.), en þá fóru fandmennirnir enn á stjá til þess að tala við okkur. Und- irforinginn og mennirnir hans tveir fóru. til móts við þá og þegar eg lieyrði hlátrasköll ber- ast frá þeim, fór eg einnig á vettvang. Þeir spurðu okkur hvað við hefðuni eiginlega verið að ólát- ast um nóttina og sögðust hafa staðið vörð, án þess að geta sofnað dúr alla nóttina. Þeir höfðu haldið, að við ætluðum að fara að gera áhlaup, þegar stór- skotahríðin liófst, og hún liefði orðið mörgum að bana að baki skotgrafanna. Eg sagði þeim að þýskur lið- lilaupi hefði komið yfir til okk- ar og þeir mætti þakka honum alt þetta, en við værum sjálfir honum ekkert þakklátir. Þeir fullvissuðu mig um, að þeir hefði ekki héyrt eitt einasta orð um álilaup, og eg trúði þeim, því að þeir hefði varla leyft okkur að setja upp þessar girðingar og hindranir undanfamar tvær nætur, ef þeir ætluðu sér að ráð- ast á okkur. En Þjóðverjarnir héldu því fram, að vopnahléð okkar stæði ennþa, enda þótt eg segði þeim, að því hefði lokið kveldið áður. Var svo haft sama fyrirkomu- lag og daginn áður, gð einn und'

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.