Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Qupperneq 16

Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Qupperneq 16
ié VÍSIR PÁFAGAUKURINN AÐ afloknum félagsstjórn- arfundi sagði Geerl Christian við Niels: „Það er hvort sem er komið kvöld; eigum við ekki að bregða okkur á listamannadansleikinn um leið?“ Niels kinkaði kolli og þeir fé- lagar lögðu af stað. Það var blátt áfram hrifandi. Það umkringdu Niels fagrar, skartklæddar konur og báðu hann að dansa við sig. Þær klöppuðu honum á kinnina, klipu hann í magann og drukku kampavín. Niels varð að borga. Þær drukku inikið kampavín, Niels líka. Þarna var líka happadrætti. Það var í góðgerðaskyni. Ágóð- inn átti að renna tii spánskra barna. Með öðrum orðum, það átti að flytja þau heim lil sín frá Danmörku fyrir þessa pen- inga, og auk þess átti að stofna Jivíldarheimili fyrir fyrverandi gæslustúlkur þessara barna. Niels varð að kaupa marga miða. Hann vann ekkert á þá. Reyndar gerði það ekkert til, því ágóðinn rann jú til almenn- ingsheilla. Niels ákvað að freista ham- ingjunnar í síðasta sinn og keypti ennþá einn miða. „Aðalvinningurinn!“ hrópaði sölustúlkan. Niels rétti hendina út eftir risastórum tuskubangsa, en stúlkan svaraði: „Lifandi páfa- gaukur!“ Niels hélt til dyra, hélt fugla- búrinu langt fyrir framan sig, rétt eins og hann væri að lýsa fram fyrir sig með fjóslugt, og sá eiturgrænan páfagauk stara á sig gegnum grindurnar með fyrirlitlegu augnaráði. Þegar Niels var kominn úl á götu hringsnérist alt fyrir aug- unum á honum. Hann settist á gangstéttina, lét búrið niður við hliðina á sér og hugsaði málið. Konan hans var dýravinur. Samt hefði tuskubjörn ef til vill-------- „Mig næææææðir!“ öskraði páfagaukurinn alt í einu. Níels lirökk í kút og reis á fælur, fór úr kápunni, vafði Iienni utan um búrið og reikaði heirii. Nei, hugsaði hann með sjálf- um sér, tuskubirnir eru elsku- legar skepnur. En páfagaukar eru lika friðsöm og skemtileg húsdýr. Eg er viss um að Elsu þykir gaman að honum. Ilenni verður að þykja gaman að lion- um, hélt hann áfram að hugsa i einræðisanda. Það var óvenju erfitt að kom- ast heim. Niels livíldi sig á hverju götuhorni, setti búrið niður á gangstéttina, leit i gegn- um aðra e'rmina á yfirhöfninni, sem vafin var utan um búrið, rétt eins og hann væri að skoða í risastóran sjónauka, og full- vissaði sig um að páfagaukur- inn lifði. Hann virtist sofa. Niels komst heim, læddist upp stigann og smeygði sér hljóðlega inn úr svefnherbergis- dyrunum. Hann lét búrið út í eitt hornið og fór að hátta í myrkrinu. Ó, hvað það var gott, að Elsa vaknaði ekki! Alt í einu byrjaði páfagauk- urinn að raula: „Svo dönsum við, svo dönsum við —“ „Usssssss!“ reyndi Niels að ]>agga niður i honum. En það var of seint. Elsa var vöknuð, hún kveikti Ijós og sagði: „Og svo syngur þú í þokkabót!“ „Eg?“ sagði Niels sakleysis- lega. „Þig dreymir!“ „Svo dönsum við, svo döns- um við til dauðans“ hélt páfa- gaukurinn áfram að syngja. „Hjálp! Hvað er þetta?“ hrópaði Elsa og þorði ekki ann- að en fela sig undir sænginni. „Það er páfagaukur!“ reyndi Niels að skýra fvrir konunni sinni og handfjatlaði um leið axablöndin i vandræðum sín- um. „Það er lílill páfagaukur, sem mig langaði til að gefa þér hjartað mitt.“ „Komstu með hann af fund- inum?“ spurði Elsa hreimlaust undan sænginni. „ójá,“ svaraði Niels, „eg keypli hann af fátækri ekkju eftir gamlan félaga minn. Þú getur ekki ímyndað þér, livað hún átti bágt, aumingja konan. Maðurinn hennar, sem annars var heilsuhrauslur og ánægður, lá einn góðan veðurdag stein- dauður í rúminu, þegar liann vaknaði.“ „Svo!“ sagði Elsa og fann e'kki lil meðaumkunar. Hún reis upp i rúminu, þegar hún var búin að fullvissa sig um að ])essi skepna væri ekki eins hættuleg og hún hélt í fyrstu. „Etur hann pappírsræmur?“ Niels horfði með skelfingu niður á gólfdúkinn, sem var al- þakinn með pappírsræmum. „Umbúðirnar!“ sagði hann hálfsmeylcur. Elsa var komin fram úr rúm- inu og virti páfagaukinn fyrir sér með gaumgæfni. „Bara snotur,“ sagði liún, „og Iivað keyptirðu hann dýran?“ En Niels svaraði ekki. Hann var kominn upp í rúm og stein- sofnaður. Um hádegisleytið daginn eft- ir, er Niels kom heim til mið- degisverðar tók Elsa á móti lionum með þessum orðum. „Hann talar alveg eins og mað- ur, hann sagði mér alt.“ Niels rak upp stór augu. „Ertu vitlaus?“ sagði hann „Ætli það?“ sagði páfagauk- urinn. „Þú varst á listamannadans- leiknum í gærkvöldi!“ sagði Elsa sigri hrósandi. „Það varstu!“ öskraði páfa- gaukurinn. „Eg las í fjölfræðiorðabók- inni,“ sagði Elsa, að þessir gljá- grænu páfagaukar eru mjög dýrmætir. Þeir koma frá Hond- uras og geta orðið meir en bundrað ára gamlir. En þeir ])ola illa næðing.“ „Það er satt,“ samþykti páfa- gaukurinn. Elsa fór fram í eldbús. Niels fékk sér eill brenni- vínsstaup. „Jæja, hann er þá ekki eins meinlaus og eg hélt,“ hugsaði Niels í öngum sínum. Ilann fékk sér annað staup. „Tvö staup!“ kallaði páfa- gaukurinn. Elsa kom þjótandi utan úr eldhúsinu, tók brenuivínsflösk- una af Niels og fór með bana fram. Þegar hún var komin út úr dvrunum gekk Niels að vin- skápnum lil að fá sér eilt kon- iaksstaup. Hann þurfti að beita allri sinni skerpu til að átta sig á hlutunum, e'n hann gat nú einu sinni ekki hugsað, nema hann fengi sér neðan í því---- KOKOSQUIST „Hættu!“ öskraði páfagauk- urinn vonskulega. Niels kiptist við, lét flöskuna aftur inn í skáp og læsti Iionum. Ilann reyndi að hugsa. Hvað sagðist Elsa liafa lesið í fjöl- fræðiorðabókirini: „En þola illa næðing.“ Niels opnaði alla glugga upp á gátt, sömuleiðis dyrnar fram á ganginn, svo vindurinn feýkti gluggatjöldunum til og mynd- irnar skulfu á veggjunum. Páfagaukurinn sat hnipraður saman í einum kút og læsti klónum fastar utan um rimina, sem Iiann sat á. Niels bjóst við konunni sinni á hverri stundu, þorði ekki ann- að en loka gluggunum og byrj- aði að lesa dagblöðin. Páfagaukurinn gargaði og blístraði. Svo tók hann upp á því að linerra og loks hóstaði hann rétt eins og maður. Niels gat e'kki lesið stakt orð fyrir honum. Um nóttina hugsaði Niels lengi — mjög lengi — um hvað gera skyldi. I morgunsárinu, um það leyti sem Niels var að festa blund- inn, kallaði páfagaukurinn: „Á fætur með þig!“ Á því augna- bliki tók Niels mikilsverða á- kvörðun. Eftir lokunarthna um kvöld- ið labbaði hann inn i lyfjabúð og bað um sterkan skamt af zyankali. Lyfsalinn var mann- þekkjari og sá strax, að liann stóð frammi fyrir lifsleiðum sjálfsmorðingja. Þess vegna fékk hann honum natron bicar- bonicum í staðinn fyrir zyan- kali Þegar Niels var orðittn einn eftir lijá páfagauknum livolfdi ■hann eiturskamtinum niður í matardolluna hans. Um kvöld- ið var Niels i svo góðu skapi, að Elsu fór ekki að verða urn sel og leit öðru hvoru til lians rannsakandi augnaráði. Næsta morgun sá Niels sér til

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.