Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Blaðsíða 17
VÍSIR
17
hugarangurs, aö páfagaukurinn
var lifandi. Óg ekki aÖeins lif-
andi, hann var orðinn helmingi
gildari og spertari en áður.
Hann var kominn með ístru,
kvikyndið að tarna, og svo rop-
aði hann án afláts. í hvert sinn
se'm hann ropaði, rak hann upp
ískurshlátur og lirislist allur af
ánægju. Hann virtist aldrei
liafa verið i eins góðu skapi og
núna.
Niels flýtti sér örvæntingar-
fullur til lvfsalans.
„Hvað er að?“ spurði ledsal-
inn góðlátlega.
„Hann lifir ennþá,“ svaraði
Niels þungur á svip.
„Morðingi!“ hugsaði lyfsal-
inn og gaut liornaúgum til sim-
ans.
„Hver lifir ennþá?“ spurði
hann slælega og gaf Ijóshærðu
aðstoðarstúlkunni sinni btínd-
ingu um að læsa dýrunum.
„.... og geta orðið meira en
hundrað ára gamlir,“ umlaði í
Niels. Hann var bugaður.
Lyfsalanum datt í hug, hvort
ekki myndi vera réttara að síma
á vitfirringahæli. En áður en
hann var búinn að ákveða sig,
var Niels þotinn út úr dyrunum
og horfinn.
Þegar hann kom heim, var
Elsa farin út. Níels tók búrið,
fór með það út á svalirnar, opn-
aði búrdyrnar og lileypti páfa-
gauknum út.
Páfagaukurinn skreið út úr
búrinu, kinkaði kolli til Nielsar
og flögraði burt.
Niels fór með búrið aftur inn
í herbergið og lét það á sinn
stað. Hann settist í hæginda-
stólinn og las blöðin. Ó, hvað
lifið var dásamlegt!
Þegar Elsa kom lie'im, var
hún með öllu óhuggandi. Hún
grét og veinaði eins og hennar
eigin barni hefði verið rænt.
Hún fékk heldur eklci skilið,
hvernig páfagaukurinn gat opn-
að búrið af sjálfsdáðum og
komist úl úr stofunni.
„Hann var því miður liorf-
inn, þegar eg kom heim,“
skrökvaði Niels. „Þvi miður,“
sagði hann.
Um tíuleytið um kvöldið var
bankað á forstofudyi’nar. Elsa
fór fram til að opna. Niels
KLAKAKERTI - - JÓLAKERTI
Iivít jól er flestra ósk, því okkur fslendingum finst eitthvað
skorta á helgi og fegurð jólanna, ef snjóinn vantar. Það er líka
gömul trú, að ef snjór er á jörðu um jólaleytið, þá viðri vel um
páskana, þá verði þeir rauðir. —- Hér á myndinni sjáið þið að
vísu ekki snjó, heldur klakakerti inni í skúta suður við Skerja-
fjörð. Ef þið athugið ldakakerti vel og vandlega og belst í sól-
skinsbirtu, þá sjáið þið í þeim þúsundir mynda og ljósbrota,
selm eru óviðjafnanlega fögurog lirifandi. — Það eru fegurstu
jólakertin, sem við fáum. Ljósm.: Þorst. Jósepsson.
Gamlii jólasiðii í Síbeiíu.
heyrði að hún hljóðaði upp yfir
sig.
„Þeir eru náttúrlega að koma
með hann dauðan,“ tautaði Ni-
els í hálfum liljóðum.
En þetta var páfagaukurinn
sjálfur, sem bankað liafði á
dyrnar með goggnum, og kom-
inn var til að lieilsa morðingja
sínum.
Þessa nótt geltk Níels ekki lil
livílu. Hann settist við skrif-
borðið með Ritninguna fyrir
framan sig og las upphátt úr
Jobsbók. ,
Skamt fró lionum sat iiáfa-
gaukurinn i búri sínu, skrikti,
gargaði og söng. Það var auð-
heyrt, að hann hafði lent í vond-
um félagsskap á þessu ferðalagi
sínu, því hann söng e'kkert
nema ósiðlegar visur. Elsa velt-
ist um af hlátri.
Niels skelti Biblíunni aftur.
Hann var búinn að gefa upp
alla von. Þá rak hann alt í einu
augun í kvennasiðu á dagblaðs-
ræfli. „Fjaðrir til hattskreyt-
ingar,“ las hann þar.
Niels reis á fætur, ge'kk til
konu sinnar og talaði lengi við
hana. Hún sagði kjökrandi:
„Aldrei!“
,Niels svaraði rólega: „Því
miður hefi eg ekki efni á að
kaupa handa þér nýjan hatt.
Páfagauksfjaðrir eru me'st i
tísku af öllu því, sem við þekkj-
um!“
Elsa leit á páfagaukinn.
„Eg sá frú Jensen með nýj-
an fjaðrahatt fyrir nokkurum
dögum,“ hélt Niels áfram, „en
auðvitað var það ekki páfa-
gauksfjöður, lieldur bara lituð
hrafnsfjöður.“
Elsa fór að falaskápnum og
tók ofan hattinn frá síðasta ári.
„Grænt fe'r nú annars prýðilega
við hattinn,“ sagði hún hikandi.
Niels var kominn fram í eld-
hús og bar gasslönguna að
fuglabúrinu.
„Fljótur“, sagði Elsa óþolin-
móð.
Gasið streymdi inn í búrið og
páfagaukurinn féll smám sam-
an í mók.
Niels kveikti sér í vindlingi af
einskærri ánægju.
--------M!
Það var gömul venja, er liélst
alt fram í lok keisaraveldisins
í Rússlandi, að þekja borð á að-
fangadagskvöldið með allskon-
ar réttum og kræsingum fyrir
vegfarendur, er lögðu leiðir
sínar um snæþaktar flatneskjur
Síberíu þe'tta kvöld.
Yenjan var sú, að réttirnir
voru bornir á borð i forstofunni
eða einhverju því lierbergi, er
næst var útidyrum. Þar var
kveikt ljós og látið loga alla
jólanóttina. En ekki skifti
Tíu mínútum eftir spreng-
inguna kom slökkviliðið á vett-
vang og eina veran, sem fanst
sprelllifandi, var páfagaukur-
inn. Niels og Elsa lágu meðvit-
undarlaus og skaðbrend á eld-
húsgólfinu. Þegar þau vöknuðu
voru þau svo afskræmd orðin,
að þau voru óþekkjanleg.
Páfagaukurinn sagði ekki
ne’itt nema blótsyrði og svívirð-
ingar, ýmist á dönsku eða
spönsku. Honum var komið fvr-
ir á uppeldisstofnun.
Happdrættisvinningar eru
ekki allir til heilla!
Þýtt.
heimilisfólldð sér af því frekar
og forðaðist að ganga um her-
bergið fyrr en næsta morgun,
og skifti sér ekki neitt af þvi,
hvað þar fór fram.
En þegar nótt var komin og
fólk sat yfir kræsingum eða það
dansaði kringum jólatré, þá bar
það ekki ósjaldan við, að alsnjó-
ugir ferðalangar læddust inn í
tómu stofurnar, þar sem kræs-
ingarnar voru á borðum, settust
á stól við borðið og tóku til
matar síns. Oftast voru þetta
karlmenn, en stundum voru
það líka konur, sem áttu þarna
leið um. Er þetta fólk var búið
að matast.eins og það lysti og
hvíla sig um stund, stóð það á
fætur aftur, leit þakklátum
augum í gegnum glerhurðina
inn til fjölskyldunnar, sem sat
í innri stofunni, og læddist síð-
an jafn ldjóðlega út aftur, eins
og það kom inn.
Þetta var jólagjöfin til þeirra,
sem maður mátti ekki sjá og
ekki heyra. Það voru flótta-
menn, sem lögðu líf sitt í hættu
vegna frelsisins, er þeir þráðu
svo óendanlega heitt. Ákjósan-
legri jólagjöf gátu þeir ekki
Imgsað sér.
5