Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Síða 19

Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Síða 19
19 VÍSIR —i--- Eyvindarhola liggur á sléttri hraun- breiSu sunnan Reykjavatns. Opiö niður í hana er svo lítið, að einn maöur getur ineð naurnhjdum smog- iið niður. En jjiðri vík\iar hún, og (er 'þar nökkurt riini. ;Be;r svo litið :’á holunni, að það finna hana ekkí :aðrir en þaulkjjnnugir menn. Trá Arnarvahisheiði, bæði gaml- ar og nýlegar. Ein var t. d. frá 1814, er Jón Franz var gripinn í lielli þeim, er við hann er síð ■ an kendur. Flúði liann undan hörðum dómi á Snæfellsnesi og greip til þess óyndisúrræðis, að leita sér griðastaðar i fjalla- auðninni, eins og fleiri höfðu þá gert, þe'gar þannig stóð á fyrir þeim. Það var því ekki að undra, þótt unglingum, sem í fyrsta sinni lögðu leið sína um þessar slóðir, rynni kalt vatn milli skinns og hörunds, er þeir hugs- uðu um það, sem þarna hafði gerst. Og e'ngin fjarstæða var að hugsa sér að sagan endur- tæki sig og fleiri reyndu hið sama og Jón Franz, Fjalla-Ey- vindur og margir fleiri. Vel gátu því útilegumenn verið enn á sveimi. — í þennan tima fýsti marga unglinga að komasl alla leið að Reykjavatni og skoða þar hreysi og handaverk þeirra manna, sem urðu að lúta svo köldum kjörum og leita sér þar hælis. Þarna voru verksum- merki, sem voru talandi vottur um að útile'gujnenn hefðu hafst þar við og það eig'i alls fyrir löngu. Þegar móðir mín fór fyrst á gj-asafjall, kom liún i Fi-anz- helli. Þá var þar mikill köstur af víðitágum, sem Jón Franz hafði notað til körfugerðar, og ræksni af körfum, sem hann mun liafa haft í smíðum. JJti- legumannahreysi voru þeir staðir, sem vöktu bæði ótta og aumkun í hugum þeirra, sem sáu þau og skoðuðu. En þó gerði það grasaferðirnar minnilegri, að skoða þessi ótvíræðu sönn- unargögn um vistarverur úti- legumanna. Lengi loddi útilegumannatrú við Arnarvalnsheiði og sumir fullyrtu, að þeir hefðu séð þar flóttamenn á ferli. Meðal þeirra var Kristin Pálsdóttir, kvenhetj- an nafnkenda, sem margar hreystisögur fóru af, og hafa sumar þe'irra verið skráðar. Kristín kom norðan úr landi með trússahest. Var liún þá, sem oftar, ein á ferð. Við Búð- ará sagði liún að maður hefði komið í veg fyrir sig og heimt- að það, sem hún hafði meðferð- is. Var hann hinn herfilegasti á sýndum og mjög ægilegur. Tók liann í tauíma á reiðhesti hennar og kvaðst eiga allskost- ar við hana. Kristín var þá orð- in öldruð, draghölt eftir gamalt fótbrot og hafði í hcndi svartan staf, sem hún kallaði Brenndil. Skildi hún staf þann aldrei við sig. Hcnni fcllust ekki hendur í þetta sinn, fremur en endranæi' og' keyrir stafinn af öllu afli i höfuð manninum, sem lá þegar við höggið. En Kristin reið suð- ur til bygða til hvað af tók. Sýndi hún þar Brenndii sinn al- blóðugan og greindi frá tildrög- um. Bjóst hún við að hafa drep- ið mann þenna. Margir urðu til að trúa sögu kerlingar og var hún gott meðal til að viðhalda og vekja ge'ig i unglingum um að ekki væri alt með feldu þar á heiðinni. Og öi-uggara þótti fólki að það vissi hvert til ann- ars, þegar á grasafjall var kom- ið. — Eg he'fi nú farið hér nokkuð úl fyrir aðalefnið, en sný nú máli mínu aítur að grasatekj- unni. A þessum árum lifði fólk oft við betri kost á grasafjalli en það átti að venjast heima fyrir. Brauð, smjör, sauðakjöt, saltað eða reylct, harðfiskur oft freð- tekinn undan Jökli, var algeng- asta nesti. Þar við bættust egg, sem oft var að finna á heiðinni. Silungur fékst líka, ef netstubb- ur var í förinni og legið var við í námunda við veiðivötn. Við slíka matarsælu og fjallafrelsi var fólk yfirleitt í góðu skapi þegar vel viðraði. Varð grasa- ferðin því að ýrnsu leyti sælu- vika ársins. Auk þess, sem áður var getið, liafði grasafólk með sér kaffi og ketil, en með eldkveikjuna gekk oft ti-eglega á heiðum Enn í dag sjást nokkurar stórgripa- hauskúpur í Franzhelli, frá dögum útilegumanna þar. uppi, meðan ekki voru önnur eldfæri en stál og linna. Var því slegið saman og framleitt gneistaflug, sem lálið var falla í hamp eða önnur e'Mfim efni. Betur gafsl að hafa hyssu og skjóla púðri í hamp eða þurran reiðing. Þessi aðferð lagðisl að mestu niður þegar eldspýlurnar komu til sögunnar. Þegar grasatínslan liófst, var það ætíð kallað að fara í göng- ur. Þeir, sem vanir voru, gáfu ])á óvaningum góð ráð um það hvernig hesl væri að Iiaga sér við verkið i einu og öðru. Fyrst var að búa út og láta á sig tínu- pokann. Var reiðgjörð brugðið í pokaopið og hann siðan hengdur um öxl á gjörðinni í Iíkingu við hliðartösku. Brotið var upp á pokaopið svo að hann væri ekki síðari en það að hann tæki niður á kné. Þurfti sú hlið- in á pokaopinu, sem tit vissi að gúlpa nokkuð, svo auðið væri að kasta grösunum viðstöðu- laust i lianu við hverja hnefa- fylli. Strax og pokinn fór að þyngj- ast og komin var góð visk af grösum, var hann losaður þar sem grasamaður var þá síadd- ur. Var það nefnd tina, sem úr var losað. En til þess að finna staðinn aftur var sett upp vörðubrot, sem kallaðist tínu- merki. Gekk það svo koll af kolli, ])ar til göngunni var lok- ið, sem stóð venjulega vfir í 4—5 klukkutíma, en ])á hópuð- ust allir heim að tjaldinu til þess að matast og taka sér hvíld. Var fólkinu hóað saman af þcim, sem fyrstu kom i tjaldstað. Gengu þá allir að sin- um tínum, einni eftir aðra, og tróðu í poka sina, sem nú voru ekki lengur hengdir um öxl, heldur bornir á haki og haldið í opið. Fór það mjög eftir at- vikum hve vel hver og einn afl- aði í göngu. Kom þar margt til greina. Þeir, sem voru svo heppnir að komast í „flettur”, en svo var það kallað, ef grösin stóðu svo þétt að liægt var að grípa liandfylli, eina eftir aðra —- gátu ekki einungis troðfvlt tínupoka sinn. heldur lika fylt ÚR ÞJÓFAKRÓK. Þjófaki-ókur liggur upp af Geitlöndum milli Langjökuls og Hádegisfellsins nyrðra. Eins og nafn- ið bendir til, eiga þjófar að hafa hafst þar við, og sagt er að Fjalla-Eyvindur hafi dvalist þar vetr- arlangt. Kunnugir menn segja, að rústir af kofa hans sjáist þar enn.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.