Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Blaðsíða 20

Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Blaðsíða 20
20 VlSIR Reykjavatn liggur ausfarlega á Arnarvatnsheiði. Þar iiéldust útilegumenn við alt fram á síðastliSna öld. Fjalla-Eyvindur bjó í Ey- vindarholu, sem liggur sunnan við vatnið, en öskaint þaðan er Franz-hellir, þar sem siðasti útilegumaðurinn á ArnarvatnsheiSi var handtekinn 1814. Náttúrufegurð við Reykjavatn er við brugðið og ber einkum mikið á Eiriksjöldi, sem blasir við með hrikalega skriðjökla og geigvænleg klettabelti. peysu sína. En slíkar flettur voru fágætar, þar setni eg þekti til. Vanalegast var að reita blað og blað. Oft voru það stærstu grösin, svonefnd blaðagrös, seni leyndust í víðirunnum og voru ekki auðfundin, en vanir grasa- menn þektu vel á, hvar þeirra var helst að leita. Að vera brað- hentur, iðinn og glöggskygn voru bestu kostir grasamanna. Hér var það nálega föst regla að grasafólk var við tínslu allar nætur að vorlagi; og þó það kæmi íerðlúið á án- ingarstað að kvöldlagi, þá hófst tinslan strax, áður en fólkið naut svefns eða hvíldar. Kom sá vani meðfram af því, að grösin voru rakari að nætur- lagi, þótt þurt veður væri, en hentugust grásarekja var þolcu- úði. Oft lagðist svefn'og þreyta á eilt með að vinna bug á ung- lingum við grasatekju. Um lág- nættið, þegar sumarfuglarnir, sem sungið höfðu allan daginn, þessum gestum lil unaðar, voru sofnaðir, bver við sitt lireiður, færðist algleymisró yfir alla náttúruna, svo alt sýndist sofn- að í bili, jafnvel grösin og fjöll- in líka, þá vildi hin sama svefn- ró verða nokkuð , ásækin við þreytta unglinga. En flestum heppnaðist þó að vinna hug á henni þar til morgunsólin tók að skína, en þá lxjtli forsvaran- legt að leita sér næringar og náða. Þessar vökunætur í fjallaauðninni voru mikil til- breyting frá daglega lífinu í mannabygðum og urðu þvi minnilegar eftir á. Best þótti viðra á grasafólk, að hægur úði væri við og við, meðan grasa- tekjan stóð yfir, en að verkinu loknu kæmi þurkur, því skað- legt þótti að flytja grösin blaut, bæði vegna þyngsla og svo vildu þau hka „snarast“, en svo var það kallað, ef þau muldust mikið í flutningi. Fjórar tunnur af grösum var hestburður og ekki þungir baggar, en niiklir fyrirferðar. Margir góðir búmenn áttu tveggja tunnu sekki, sem ein- göngu voru notaðir til þess að flytja í grös og viðarkol. Voru þeir nefndir grasa- eða kola- pokar. Þeir voru úr heimaunnu vaðmáli með smáum horn- sylgjum, saumuðum með litlu millibili umhverfis opið. 1 sylgjurnar var þrætt, þegar þeir voru orðnir troðfullir. Pokar þessi r fóru betur í bagga, lield- ur en tveir tunnupokar saman- bundnir; voru þeir búmanns- þing og entust, með góðri með- ferð, óaflátanlega. Allir pokar, smáip og stórir, voru þá úr heimaunnu vaðmáli og þótti það ömurleg afturför á heimil- isiðnaðinum, þegar útlendu strigapokarnir komu hér til sög- unnar, sem ekki var fyr en á síðustu áratugum 19. aldai’. Á heimleið af grasafjalli, báru unglingar oft glögg merki svefns og þreytu, þvi unnið var að grasatekju af einhuga og kappi. Leitaði grasafólk þvi vanalega heim á þá bæi, sem næstir voru óbyggð, þar sem það átti vísan greiða. Kom ]já stunduiU fyrir að ungu stúlk- urnar báru kinnroðá fyrir út- lil sitt, er ekki var sem snyrti- legast, einkum ef þær glevmdu greiðunum heima, sem fvrir kom. En þá var sú öldin að stúlkurnar „liöfðu liárið“. Þótt áhugi og jafnvel ofur- kapp væri algengast við grasa- tekju, voru þess þó dæmi, að tómlæti átti sér stað. Man eg eftir þvi að vinnufólk prests eins í Reykholti kom svo létt- GrasaferSir hafa að mestu leyti lagst niður í Borgarfirði hin síð- ari ár, uns nú, að aflur er tekinn að glæðast áhugi fyrir bessum forna sið. Mýndin er tekin á Arnarvatnsheiði, mesta grasalandi Borgarfjarðarhéraðs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.