Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Page 27

Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Page 27
VÍSIR 27 Po ¥s G-e lCOLKÆi „Skein yfir landi sól á sumarvegi“ og síðum skrúða klæddi tigin fjöll, er sterkum fótum standa í grænum teigi. Hinn snoðna feld af snjáðri vetrarmjöll snasirnar rifu og földu niðri í giljum. Hlaðbúin niður í skaut er skikkjan öll, er dreymin áin dokar við um hríð í dalsins faðmi á hraðri leið að ós. Þar eilífð hafsins tekur við af tíð. Á lágum bakka roðnar eyrarrós og reyrinn andar þýtt á græna móa. Raddhreinir fuglar syngja sumri hrós: Hin svifamjúka, guldröfnótta lóa, rauðfættur stelkur, — kinkar kolli við, — kliðandi flokkur leggjahárra spóa. I vestri gnæfir hamraþil á hlið hátt yfir sveit og lága dalabænum. Hraundrangar benda á heilög sjónarmið handan við létta gára á skýjasænum. Óskafley sigla þar með ljósbjart lín, langferðum vön í þýða sumarblænum. Framan af óttu ástarstjarnan skín uppi yfir brún og horfir niður í dalinn. Þegar hún fyrir dagsins birtu dvín, daggtárum gráta blóm um fjallasalinn. Svalvindar þerra síðar dögg af blöðum, söknuður vakir, djúpt í bikar falinn. Blasir við sjónum bónda aflaglöðum beitin í hlíð og gróðursælum lautum. Kjarngresið sprettur þar í þéttum röðum. málmbjölluhljóm frá kringdu horni kenna. Kyrlátur friður signir alla jörð. Loggeislar úti á lygnum firði brenna. Um grænar dældir dreifist lokkuð hjörð. Daggvímuþungir blómakollar anga. Smalasveinn heldur yfir ánum vörð. Sælt er í hlíð að dreyma daga langa: Dvergarnir bræða gull í hamrasmiðju. Kafa þeir höf og grafa í fjöll til fanga, en dísir binda belti um fjallsins miðju, brugðið úr mjúkum dalalæðu þræði. Hlíðin er eins og dyngja góðrar gyðju, gersemum prýdd og fóðruð dýru klæði og tjölduð öll með refli úr rósavef er rekkjan, þar sem gesti er búið næði. Trúnaðarmálum hvísla hrísla og sef. Hendingar óma í glöðu fuglakvaki. Náttúran öll er rímuð, stef við stef. Sviðið er breytt á einu andartaki, útsýnið víkkar fram í nýja heima, langt, langt í burtu í fjarska að fjallabaki. Hillingastrendur gulls og frægðar geyma glóhærða mey í skjóli prúðra lunda. Nývaktar þrár um allar æðar streyma. Enn breytist sviðið. Fram til mannafunda fullhugar þeysa í skarlatsrauðum klæðum, gullrekið stál og steinda skildi munda. Snjallyrði falla snögg og beitt í ræðum. Snarráðir drengir þreyta sund og leiki.------- Dumbroðuð sígur sól að vesturhæðum. Sýnirnar leysast upp í móðu og reyki. Hópvanar ær að heimastöðli lötra. Húmskuggar fela vofu og álf á kreiki. Litklæðin eru breytt í bága tötra, býlin í lágan kofa og þýfðan völl. Þjóðin er snauð og reyrð í ramma fjötra. „Sólroðin líta enn hin öldnu fjöll“ út yfir fagra sveit og græna dalinn. Meðan þau standa, elskar þjóðin öll p.fburðaskáldið góða. — Þar var alinn hann, sem að flutti ljóðin ljúf og snjöll, Iistina bestu á Fróni, — ungi smalinn. Mun ekki ennþá hlíð og dranga dreyma drenginn, sem átti þarna forðum heima? skrautsaumuð gullnum vír og hvítum liljum. þarflegt til fóðurs mjólkurám og nautum. Sem silfursproti sindrar foss í hlíð Lagðsíðar ær frá lágum stöðli renna, og sylgja skín hið neðra í tærum hyljum, léttstígar eftir gamalkunnum brautum, Yasile sá veru i hvitri skikkju nálgast. horfast í augu við dauðaun? Hvers vegna? Hvers vegna? Stormurinn var enn í sínum versta ham og endrum og eins lvfti Yasile hægri hönd sinni og þurkaði snjóinn af augum sín- um. 'Hvi kont vetur — og sumar ? Hví voru menn hraktir svo langt á brott fná því, sem þeim var kærast? Hví vöknuðu þess- ar þrár í huganum? Hví hafði það gerst, sem var svo ljuft, og gat aldrei gerst aftur? Hvers vegna? Hvers vegna? Vasile skildi það ekki. Æ, en þarna, langt í fjarska var einhver ljósglæta? Einhver Ijósrönd, — eins og föl rák á dökkum himni. Var nýr dagur að renna? Var þessi ógnarnótt á enda? Vasile starði á ljósrákina, sem honum fanst hann liafa séð úti x fjarskanum. Var kornið undir dögun? Var í raun og veru nýr dagur að renna? En ljósrákin stækkaði ekki, varð ekki rauðari —- og þó var hreyf- ing á henni — hún virtist hreyf- ast — virtist færast nær — það var ljós, sem færðist nær — til hans. Ljósið kom til hans! Þegar Vasile reyndi siðar, þegar bjart var orðið, að segja hinum frá þessu — félögunum, sem höfðu sofnað, vildu þeir ekki trúa frásögn hans og þó höfðu þeir sofið, en hann, Vasile liafði verið glaðvakandi — en þannig voru mennirnir, eins og hinn vantrúaði Tómas, þeir urðu að þreifia á til ])ess að trúa...... Vasile sá veru i hvitri skikkju nálgast. Færast nær sér hægt og stöðugt. Hún gekk vfir snævi þakla sléttuna, þessi vera, um- vafin birtu — og veran sjálf var birta, ljós, og svo var ljósmagn hennar mikið, að Vasile furðaði sig á að þeir skyldu ekki vakna, félagar lians, og hann skildi það aldrei. En fyrir aftan veruna var eins og löng ljósrák i snjónum, — braut dýrðarinnar, troðin helg- um fctum því að það var Mannsins sonur, sem kom yfir snjóbreiðuna til Vasile Cmðs sonur. Utan úr næturdimmunni kom hann — svo bjartur og dýrlegur, að Vasila hneig niður á kné sín, þreif af sér loðhúfuna og kross- lagði kaldar hendurnar á hrjósti sér. Allar deilur, alt mótlæti, allar þjáningar — alt var það gleymt. Allur efi var horfinn — allar spurningar gleymdar. Nú var hann að eins varð- nxaður í myrkrinu, barn, sem hafði vilst, en guð sjálfur leitað uppi. Ósegjanlegur fögnuður

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.