Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Blaðsíða 30

Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Blaðsíða 30
30 VlSIR ÞEGAR VIÐ austurenda Genfer- vatnsins í Sviss gegnt því sem áin Rhón fell- ur út í það, slcerst dalur einn, fagur og hrikalegur eins og dalir x\lpafjallanna eru yfirleitt, inn í landið er Ormontdalur nefnist. í honum er fjöldi lítilla timbur- húsa og selkofa bygðum í sviss- neskum stíl. Þau standa á við og dreif utan í fjallshlíðunum og skiftist þar á greniskógar og beitilönd, en aðalsvip sinn hlýt- ur dalurinn af hrikalegum og sundurtættum jökli sem ber nafnið Diablerets eða „Djöfuls- stafir“. Þrír gnæfandi tindar meir en þrjú þúsund metra há- ir, rísa upp úr jökulhafinu og festir þar aldrei snjó. Sá tindurinn er næst liggur dalnum lieitir „Helviti" og' rís hann þverhníptur með bröttum ögrandi hengjum lóðrétt upp frá dalbotninum. Hefir hrunið úr honum ógrynni grjóts svo að hlíðarnar fyrir neðan hann eru ekki annað en blágrýttar urðir með risaþungum björgum og gróðurlausum skriðuauðnum. En „Djöfulsstafirnir“ voru áður — fyrir rúmlega tvö hundruð árum síðan — fjórir. Og sennilega hafa þeir til forna verið enn fleiri, fimm, sex eða sjö tindar sem svo hafa hrapað hver af öðrum, uns aðeins þrír urðu eftir. Og hver veit nema það verði einnig hlutskifti þess- ara þriggja sem eftir standa, að hrapa og jafnast við jörðu. En það er fjallhrunið hið síð- asta sem enn befir skilið eftir opið sár í fegurð og gróðri Or- montdalsins og mun enn gera það um óralangan tíma. Það var lcomið fram i sept- embermánuð árið 1714. Dag eftir dag gengu stöðugar stór- rigningar svo jörðin var orðin meir og laus. t marga daga heyrðust drunur, likt og í stór- kostlegu þrumuveðri. En það voru ekki venjulegar þrumur sem heyrðust, lieldur var það FJALLIÐ grjóthrun úr Djöfulstöfunum sem fólkið heyrði. )Hjarðmenn og selbúar er enn gættu hjarða sinna þar efra, urðu gripnir skelfingu og lögðu flestir á flótta lengra niður í dalinn eða á aðra örugga staði. Þeir sem eftir urðu, áttu skamma stund ólifaða og biðu hinna óvæntu örlaga sinna. Svo kemur aðfaranótt hins 21. september. Þá eykst grjót- hrunið um allan hélming, drun- urnar og dynkirnir líka. Fjöllin i kring bergmála dynkina, svo að hálft landið dunar eins og i viltri, hamslausri stórskotahríð. En um miðjan næsta dag kemst tindurinn einn á þreyfingu. Hann bifast, steypist, brotnar. Iiann byltist með óstjórnlegum ofurþunga og óviðjafnanlegum liraða niður hlíðina. Eldglær- ingar og heilir blossar kvikna af núningi steinanna og alt molast og glatast sem verður fyrir ægimagni skriðunnar. Til að sjá er skriðan eins og dimm- ur mökkur með eldglæringum ,og fljúgandi björgum. Jörðin skelfur í margra mílna fjar- lægð, loftþrýstingurinn sem fylgir skriðuhlaupinu rífur upp kletta og skóga og þyrlar í loft upp, Iækir og ár stíflast og verða að stöðuvötnum, eða lækirnir ryðja sér nýjan farveg þar sem þeir hafa ekki runnið áður. Þetta fjallhrun fyrir tvö hundruð árum síðan, gróf eitt hundrað og tuttugu selkofa, en það eru engar sagnir til um það, hversu mörg mannslif eða hversu margar skepnur hafi farist þarna. Og alt þetta skeði á einu vetfangi. Fólkið niður á láglendi Rhönardalsins varð hálftrylt af hræðslu. flýði inn í kirkjur, hringdi kirkjuklukkum i ákafa og baðst fyrir. Það liélt að fjandinn sjálfur væri kom- HRUNDI Seljalíf í Atpa- fjöllum. A myndinni sjásl kúahiarðir og sel í tfiOO m hæð suður i Sviss, en á hak við rísa hrikalerir og ymefandi fökul- tindarnir f 4—5 þús, metpff tueð. Vetrarmynd úr Vesturölpunum. í baksýn sér á „Djöfulstafina“, þaðan, sem skriðuhrnnið kom haustið 1714. inn upp á yfirborð jarðar með alla sina herskara, illu anda og loðnu púka til að eyðileggja jiessa jörð og lífið á henni. Það eina góða við þetta fjall- lnap, má segja að hafi verið jiað, að nú kemur sólin nokkru fyr upp á morgnana og sendir birtu og yl yfir Rhónardalinn en á meðan fjórði tindur „Djöf- ulstafanna“ gnæfði við loft og brá skuggum á hinn djúpa, fagra dal. En í þessu skriðufalli skeði atburður, sem var einstæður í sinni röð — atburður sem ekki befir áður komið fyrir i sögu svissnesku jyióðarinnar. Meðal beirra er fyrir skriðunni urðu, var hirðir einn, Geoi-g öder að nafni, kvæntur maður og margra barna faðir. Er fréttist um afdrif bans. var börnunum skift niður á milli sóknarbænda, kona hans klæddist sorgarbún- ingi og' prestur las sálumessuk, Geots Oder til ævarandt sálu hiálpar- En bar sem selkofinn bflns hafði áður siaðið, hvíldi nú tugi metra bár skriðuvegsur og upp úr honum gnæfði hátí þjarg, sem eftir öllura líkuni að dæma, lá á sama stað og kofi Georgs stóð áður á. Þrír mánuðir liðu og jólin nálguðust. Tuttugasti og þriðji desember var kominn og fólkið hvarvetna í óðaönn að búa sig undir jólin. Þá skeður það, að íbúar þorpsins Aven sjá mann koma gangandi eftir aðalgöt- unni, er staulast með veikum mætti áfram. Þeim verður star- sýnt á þessa mannveru. Hann er klæddur gauðrifnum og tötralegum fatadruslum sem hanga t tætlum utan um líkam- aiiii, Hárið nær niður á herðar og skeggið á bringu, en andlilið er srindhorað, fölt og skinið. í fljótu bragði séð, líkist hann einna mest uppvöktum draug eða vofu sem kemur lieina leið úr gröf sinni inn i mannanna heim. Þar sem skin í nakinn líkam- ann, sést móta fyrii beina- grindinni og augun eru sokkin svo djúnt mn í augnatóftivnav oh andlitíð að öðru leyti svo tálgað, að manni finst maður standa augliti til auglitis við lifandi bauskúpu. Manni beyr- jst skrjáfa i bdnagrindinni þeg-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.