Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Side 36

Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Side 36
36 VÍSIR Gamalt máhrrk af Byron lávarði, þaf seni liann situr i skáldlegum hugleiffmgum hjá unnustu sinni. ferfíina og því nær sem dró ætt- landinu í vestri, þvi vafasamari fanst honum þessi ákvöröun sín, og glæsileiki framtí'öardraumanna fölnaöi fyrir þunglyndislegum vonleysisórum. Heimkoma Byrons á óðaliö sitt. Newstead Abbey, var ekki ánægju- legri en þaö, að við dyrnar frétti hann andlát móður sinnar, sem þá var nýdáin úr hjartaslagi. í þess- ari stemningu skrifaði hann hina skáldlegu ferðasögu „Harold ridd- ara.“ Byron lýsir sjálfur áhrifunum, sem ferðasaga hans hafði á bresku þjóðina með þessari einu setningu : „Eg vaknaði einn morguninn viö það, að eg var orðinn frægur." — Hrifningin, sem greip fjöldann við lestur þessarar bókar, var í einu orði sagt, ótakmörkuð. Það rigndi heimboðum yfir hinn unga glæsilega lávarð, aðalsmenn og auðkýfingar keptust um hylli hans, fegurstu og ríkustu konur Englands umkringdu hann í lotn- ingarfullri aðdáun og tilbeiðslu. Þær hefðu verið fúsar til að gefa alt sitt líf fyrir eitt blossandi augnatillit eða hýlegt bros frá hin- um unga ókrýnda skáldjöfri. Krónprinsinn breski leitaði vin- áttu Byrons og í höll stystur hans var Byron daglegur gestur, líkast því sem hann ætti þar heima. Oft og einatt varð honum hugsað til þess, að hann verðskuldaði ekki alla þessa hylli og þessa aðdáun fyrir hinar tiltölulegu fáu hend- ingar, er hann hafði varpað fram á tilfinningaríkum og ofsakend- um augnablikum. En hin þung- lyndislega tilfinningaglóð í „Har- old riddara“ blönduð austur- lensku litaskrúði, veraldarfyrir- litningu og sundurtættu ástriðu- lífi, féll í góðan jarðveg þess tima, sem Byron lifði á. Fólkið var orðið langþreytt af styrjöldum og kreppum og var næmt og mót- tækilegt fyrir viltri rómantík og óveruleikakendum draumórum. Byron hélt áfram að yrkja í á- þekkum anda og hélt áfram að leika á tilfinningastrengi fólksins, en þáði frægð og lýðhylli fyrir. í þessu var þó ekki nema augna- bliksfróun. Félagslif hástéttarinn- ar með glysi og dýrum veislum, smjaðri, hræsni og slúðursögum. var ekki að skapi Byrons til lengd- ar. Smám saraan fann hann einskis- nýti og tilgangsleysi þessa lífs, og hinn ófjötraði uppreistarandi náði yfirhöndinni eftir harða og þján- ingarfulla sálarbaráttu. — Byrcm langaði aftur austur á grisku eyj- arnar í fagurbláu Miðjarðarhaf- inu og hann þráði ekkert heitara en hið frumstæða en óbundna og eölilega lif eyjaskeggjanna þar. Byron langaði mest til að flýja ineð hálfsystur sinni, er þá var gift í Englandi, suður til Miðjarð- arhafsins og dvelja þar í sól og sumri, frjáls og viltur. Systirin var eina manneskjan, sem Byron bast vináttuböndum og þó var fjarri því, að hún skildi hann til hlítar. En hver var það, sem fékk skilið Byron til hlítar? Hver fékk skilið öll hans andlegu umbrot og eldlegu byltingarþrá ? Fyrstu sumarmánuðina, er hann dvaldi með systur sinni í auð- mannahverfum Lundúnaborgar fékk hann svo djúpa ást til henn- ar, að hún markaði djúpt og ör- lagaríkt sár í sálarlífi hans. Þeg- ar systirin hvarf aftur til eigin- manns síns, sat Byron eftir í London, einmana og bugaður af sorg. Til að draga úr einstæðingsskap sínum og með þeirn tilgangi fyrir augum, að græða sárið, sem hin óendanlega djúpa ást til systur- innar hafði skilið eftir, kvæntist hann auðugri stúlku, en stúlku, sem hann elskaði ekki. En guðirnir hegndu honum á grimmilegan hátt fyrir þetta til- tæki. Stúlkan, sem hann gekst áð eiga, færði honum, þótt auðug væri, ekki stærri heimanmund en það, að hann fékk með naumind- um borgað skuldir sínár með hon- um. En svo var annað miklu verra, og það var sjálfstraust þessarar stúlku, að hún ætlaði sér að venja mann sinn af hinum rómantisku draumórum og ljóðagerðinni, sem henni fanst vitleysa ein. Slíkt andlegt fangelsi þolir eng- inn brjótandi, og síst af sinni eig- inkonu. Þessvegna varð hjóna- bandið Byron að þrotlausri kvöl, hann varð geðstyggur og lét það bitna miskunnarlaust á konunni. Hún skelfdist hin tryllingskendu köst, sem gripu hann öðru hvoru, hún flýði til foreldra sinna, heimt- aði hjónaskilnað og orsakaði jafn- framt svo stórkostlegt hneyksli, að gjörvöll breska þjóðin íylgdist með því af athygli og myndaði sér sínar eigin skoðanir á málunum. Þessar skoðanir urðu ekki Byron í vil. Hann, sem fyrir örfáum mánuðum var hyltur, dáður, til- beðinn* var ekki hamingjunnar prins framar. Svívirðingarnar, slúðursögurnar og fyrirlitningin, sem yfir hann dundi, var án nokk- urra takmarka. Öll framtíðarvon var komin i rústir, alt snerist gegn honum, sem áður skreið fyrir hon!" um í dýrslegri auðmýkt, og allur tilveruréttur hans virtist glataður. Hallirnar, er áður stóðu honum opnar sem hinum besta aufúsu- gesti, lokuðust fyrir honum, kunn- ingjarnir skömmuðust sín fyrir að hafa þelct hann og forðuðust að mæta honum á götu, og einustu heimsóknirnar, sem hann fékk, voru heimsóknir málafærslumanna og skuldheimtumanna. Húsgögn- in hans og bókasafnið var tekið lögtaki og selt. Þetta var hrap til glötunarinn- ar — það var Waterloo Byron’s lávarðar. En þá var það, sem Byron lét ekki bugast. Flann brynjaðist gegn umhverfinu og bauð því byrgin sem aldrei áður. Þótt hann ætti ekkert til nema skuldir — og snild — þá fann hann sig sterk- ari en áður, og einmitt fyrir það, að hann var glötuð sál í augum umhverfisins og hafði engu aðl tapa. Það var aðeins eitt, sem Byron óttaðist, og það var, ef ske kynni, að hin heittelskaða systir hans yrði dregin inn i umræðurnar og ef hneykslisögur mynduðust um hana. Eina ráðið til að bjarga henni, var að hverfa sjálfur á brott og það sem skjótast. Hann talaði um skeljadóm, samdi hið heimsfræga „Vertu sæll, þótt þú komir aldrei aftur“ og lagði af stað burt í fjarlægð — i útlegð, sem hann kom aldrei úr aftur. III. Út í dauðann fyrir frelsið. Úr rústum mannlegrar og skáld- iegrar fortíðar, reis Byron sem nýr maður, gjörbreyttur í hugs- un, þróttmeiri, heitari og hug- sjónaríkari en áður. Það var risið upp nýtt andlegt oíurmenni meðal ensku þjóðarinnar — einn stærsti skáldjöfur, sem Englendingar hafa nokkuru sinni átt. Hver gat þekt hinn sjálfsánægjufulla heimsborg- ara í hinum faustiska Byron, er nú samdi hvert snildarverkið öðru betra, eins og „Manfred“, „Kain“, „Himinn og jörð“, sem eru djúp- hugsaðar heimsádeilur og uppgjör skáldsins við heim og eilífð, menn og guði. Útlaginn kaus sér Feneyjar fyr- ir dvalarstað. I höllinni, sem hann bjó í, reyndi hann að gleyma þján- ingum andans í faðmlögum við konur, við veisluhöld, víndrykkju og dansleiki. En hinar óbærilegu sálarkvalir létu hann aldrei hafa frið, þrátt fyrir hið hóflausa svall, sem hann reyndi að glata sér í. — „Hversvegna sköpuðu guðirnir mann eins og mig?“ spurði Byron sjálfan sig í þungum þönkum. En þá gátu fékk hann aldrei leyst. 1 Feneyjum kyntist Byron lá- varður ungri ítalskri greifynju. Hún hét Guccioli og varð svo hrií- in aí glæsileik lávarðsins enska, skáldskap hans, ástríðum og eldi, að hún yfirgaf mann sinn til að geta gefið sig Byron á vald. Þau tluttu til Ravenna, og þar tókst hin unga greifynja sarna hlutverk á hendur og kona Byrons haíði einu sinni ætlað að gera, en ekki tekist, það, að umskapa Byron til annars og heilbrigðara lífs en hann hafði áður lifað. Þetta hefði vafa- laust verið jafn örðugt og áður, því írelsisþráin var sú sama, ef at_ vikin hefðu ekki kornið greifynj- unni ungu til hjálpar. Það gerðu þau í írnynd eins frænda hennar, greifans Gamba, sem átti drjúgan þátt í að undirbúa leynileg freis- issamtök um gjörvalla ítalíu, gegn oki og yfirráðum Austurrík- ismanna. Þessi frelsishreyfing var að skapi Byrons. Þetta var eitthvað annað og meira en innantóm orð, þetta var verkefni, voldugt og knýjandi og í fullu samræmi við frelsisboðun hans. Þessi leynisam- tök gegn austurrísku oki voru kölluð „carbonari-hreyfingin“ og stefndi að því marki, að æsa til vopnaðrar uppreistar um endilangt landið gegn Austurríkismönnum, og stofna sjálfstætt ítalskt ríki. Byron barðist með lífi og sál fyrir hreyfingunni og útbreiðslu hennar. Fjárhagur hans var um þessar mundir í allgóðu horfi, vegna arfs, sem honum hafði á- skotnast, og hann var ekki sink- ur á fé til styrktar málefninu. — Höllin í Ravenna, sem hann og greifynjan hans bjuggu í, var að- alsamkomustaður uppreisnar- manna. Þar var og vopnabúrið þeirra. En vegna uppljóstrana og jafnframt vegna yfirburða austur- ríska hersins fór uppreisnin og leynisamtökin öll út um þúfur. Ennþá stóð Byron frammi fyr- ir veigamikilli spurningu síns eig- in lífs. Átti hann að eyða fleiri aðgerðarlausum árum við hlið ást- vinu sinnar og fylla dagbækur og tímarit með vanmátta umbrotum reiði sinnar og vandlætingar ? Átti hann að eyða æfi sinni í að bæta stöðugt við fleiri og fleiri ljóðlín- um í hið ófullgerða listaverk sitt, „Don Juan“, þar sem hann dreg- ur Evrópu sinnar tíðar, stjórnmál, hernað, einræði, herforingja, stjórnmálamenn, viðskiftalíf, bók- mentir og siðgæði hennar fram fyrir dómstól sinn og dæmir það af óvæginni snild. Hvert sem hann horfir, sér hann ekkert nema fjötra og kúgun. Napoleon mikli var sigraður í nafni frelsis- og friðarvilja. En hvað kom í stað- inn? Hver urðu áhrifin af þeim sigri? Önnur kúgun, ennþá verri. Það var alt og sumt. Það var hvergi frelsi, og ef einhver bærði á sér í þá átt, þá var það óðara bælt niður með hervaldi og hót- unum. Hvað hjálpaði ljóðagerð og skáldskapur ?

x

Vísir Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.