Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Page 38

Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Page 38
Guðný Sigurðardóttlr: Uppsagnarbréfið ÓLIN voru að koma. Að- fangadagurinn hafði haldið innreið sína með öllum sinum önnum og um- stangi. — Jólagæsin beið þess að verða etin. — Allir höfðu á- kaflega mikið að gera og eng- inn tíma til neins. Verslanir borgarinnar voru troðfullar af fólki. Afgreiðslu- stúlkurnar sýndu varninginn með undursamlegri þolinmæði, og þegar viðskiftavinurinn fór án þess að kaupa, brostu þær sinu blíðasta brosi, rétt edns og þær væru bornar i þennan heim til þess að sinna dutlung- um annara. Göturnar voru uppljómaðar og iðandi af hvíldarlausum manneskjum. Á horninu við Landsbankann stóð lítill dreng- ur og hrópaði: Vísir og Alþýðu- blaðið! Annar drengur endur- tók sömu orðin, eins og berg- mál. Tvö lítil börn stóðu við búðarglugga og horfðu ljóm- .andi augum á dýrðina fyrir inn- an. Litlu nefin námu við rúð- una og flöttust út eins og pönnukaka. Aðeins eitt vantaði þó, —- — snjó--------- hægfara logndrifu, hvita jörð og blik- andi snjó. Það var rign- ing, hellirigning. Vatnið rann í lækjum eftir götunum, stærð- ar pollar mynduðust, sem bíl- arnir þeyttu svo aftur upp; í loftið og á hvað sem fyrir var. Þenna dag virtist snjórinn jafn fjarlægur og á sólheitum sum- ardegi. Regnhlífarnar lyftust hver yfir aðra. Kápukrögum var hrett upp og húfur og hatt- ar komust ögn neðar á ennið en viðeigandi hefði þótt í góðu veðri. í blómaversluninni „Liljan“ varð augnabliks hlé á ösinni. Stúlkurnar notuðu tækifærið til að spjalla um jólin. — Nú var frú Jónsson erfið, fanst ykkur elcki? sagði Erla um leið og hún. leit í stóran spegil, sem hékk á veggnum, umluktan blómum á allar hlið- ar. — — Jú, hún er svo svakalega leiðinleg, að hún getur drepið mann með orðunum einum svaraði Heiða. — Látið þið nú aumingja ifrú .Tónsson í friði. Hún er ágæt þrátt fyrir alt, sagði Lína, - Eg vildi, óska, að klukkan vœri avo stf mm dftWW röskle^í það sem hún á ófarið að sex. — Eg þrái æfintýri í kvöld, stelpur. — Eitthvað verulega skemtilegt æfintýri, sagði Anna og hagræddi blómum í stórri skrautkörfu, er stóð á einu borðinu. — Eg get ekki kveikt á kertum og sungið jólasálma i rigningu. — Þráir þú æfintýri, mann- eskjan harðtrúlofuð? spurði Erla og hætti að snyrta sig fyr- ir speglinum, svo hissa varð liún. — Ef eg væri trúlofuð eins fallegum manni og þú, myndi líf mitt vera fullkomið. — Eg þrái æfintýri, ef til vill einmitt af því að eg er trú- lofuð Davíð. Við elskumst ekki eins og fólk gerir nú á dögum. Við vorum ekki nema sjö ára, þegar við ákváðum að gifta okkur og tíu árum seinna keyptum við hringana einungis af því, að það hafði altaf staðið til. Við undirbjuggum samn- ing þess efnis, að ef annaðhvort okkar óskaði skilnaðar, skyldi hitt draga sig þykkjulaust i hlé. Síðan eru liðin fimm ár og alt er við það sama. Við erum á- reiðanlega bestu félagar í heimi og bráðum giftum við okkur sjálfsagt. En fyrst vil eg skemta mér, sjá lífið og kynnast því. — Svei, hvað þú ert léttúðug, sagði Lina hneyksluð. — Hvað heldur þú, að Davið segði, ef hann heyrði til þín. — Uss, vertu róleg, góða mín. Eg hefi oft sagt honum þetta, og við erum algerlega sammála í þessu efni eins og öðrum. — Já, en nú eru jólin að koma, og þá átt þú að vera heiðarleg stúlka og hrinda frá þér öllum ósæmilegum hugsun- um, sagði Heiða í umvöndunar- tón. — Beiddu fyrir þér væna mín. Eg hefi ekki gert annað i þessu lifi, en að vera heiðarleg og aft- ur heiðarleg. En nú langar mig tíl að vita hvernig það er að vera óheiðarleg, og það er alt þessari eilifu rigningu að kenna. Hún umturnar mínum betra manni. Rigning á jólunum er jafn fjarri sanni og snjór á hvitasunnunni. f þessu kom pósturinn inn og afhenti henni bréf. Hún opn- aði umslagið og kastaði þvi i bréfakörfu, sem stóð við fætur hennh Eréfið var vélritað og eíni þess á þessa leifit GLEÐILEG JÓL! I i Bifreiðaeinkasala ríkisins. í®____________________________ GLEÐILEG JÓL! KJÖTBÚÐIN BORG.

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.