Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Page 43

Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Page 43
VlSIR 43 SKUGGAMYNDIR HEIMA. Flest börn, og jafnvel fullorðnir líka, hafa gaman, af að framleiða sín- ar eigin myndir — skuggamyndir á vegg eða tjaldi. Þessar myndir get- ið þið framleitt á vegginn með því að hreyfa fingurna á mismunandi liátt. Þið getið búið til dýramyndir allskonar, hunda, ketti, fugla, svín o. s. frv., og þið getið látið þau hreyfast eftir óskum, látið þau hreyfa eyrun, leggja kollhúfur, opna munninn o. s. frv. Reynið þið að líkja eftir þessum myndum, sein þið sjáið hérna. Fáið þið reykjarpípuna han-s pabba ykkar Iánaða og búið þið til nefstóran karl með barðastóran hatt. Og svo skuluð þið búa til kisur og allskonar hunda. Þið getið reynt að búa til önnur og fleiri dýr en þið sjáið hérna, eða búa til myndir af fólki og ýmsum munum. Þetta reynir á hug- myndaauðgi ykltar, og auk þess getur verið skemlilegt að sjá skoplegar rnyndir á veggnum ykkar, kannske myndir, sem þið hafið aldrei séð áður og sjáið aldrei framar. búi. Þá sagði hesturinn: „Nú skaltu mylja niður þessa þrjá brauðhleyfa svo að maurarnir geti etið þá.“ „Hvers vegna?“ spurði Jose. „Við þurfum þá handa sjálfum okkur.“ „Fleygðu þeim,“ sagði hest- urinn. „Það borgar sig altaf að gera góðverk.“ Svo héldu þeir áfram leið sinni og komu þar að, sem örn sat fastur i gildru. „Stígðu af baki,“ sagði hest- urinn, „og frelsaðu vesalings fuglinn." „En verðum við ekki of lengi, ef við stönsum?“ spurði Jose. „Vertu alveg óhræddur, gerðu eins og eg segi þér og vertu aldrei þreyttur á að vera öðrum fil lijálpar.“ Svo héldu þeir áfram uns þeir komu á árhakka. Þar lá fiskur, sem hafði kastast upp á bakk- ann og var nú að reyna að kom- ast út í strauminn aftur. „Farðu af baki,“ sagði hesturinn, „Taktu fiskinn og hjálpaðu honum að komast út í ána.“ „Við megum ekki vera að því,“ sagði Jose. „Það er altaf tími til þess að vera öðrum til lijálpar,“ sagói livíti liesturinn, „láttu þér ald- rei finnast, sem þú hafir ekki tima til þess að gera góðverk.“ Stuttu síðar komu þeir að stórum kastala, sem lá falinn ■ í frumskóginum. Þar var Bella- Flor og var hún að gefa dúf unum sínum korn. „Bíddu nú við“, sagði hviti hesturinn við Jose’. „Nú ætla eg að hlaupa og sína listir mínar svo Bella-Flor verði hrifin af mér. Þá mun hún segja, að sig langi til þess að fara á hak mér og þú skalt bjóða henni það, en eg mun prjóna og frýsa. Þá mun hún verða lirædd, en þú skalt segja að það sé af því, að eg sé óvanur honum, og að eg muni strax stillast, ef þú setjist á bak hjá henni. Svo setjist þið bæði á bak og þá tek eg sprett- inn heim til hallarinnar. Þetta fór nú alt eins og hest- urinn hafði sagt. Þegar þau voru komin af stað, sá Bella- Flor, að hún hafði gengið i gildru, en það var nú fullseint séð. Þá henti hún vasaklútnum sínum upp í stórt tré og bað svo Jose að fara af baki og klifra eftir honum. „Á ákvörðunarstað okkar er meira en nóg af vasaklútum“, svaraði Jose. Þá fóru þau yfir ána og lét hún hringinn falla ofan í strauminn og bað svo Jose að ná í hann, en hann svaraði, að á ákvörðunarstað þeirra væru til fjölmargir hringir. Þá komu þau að maurabúinu og fleygði þá Bella-Flor úr korn- skálinni og sagði við Jose, að hún myndi vera honum mjög þakklát, ef liann næði fyrir sig í kornið. — „Á ákvörðunarstað okkar er til meir en nóg af korni,“ svaraði Jose. Að lokum komu þau til hall- arinnar, og varð konungurinn mjög feginn að sjá aftur Bella- Flor, sem hann var svo ást- fanginn af. En hún læsti sig inni í her- bergi sínu og neitaði að opna. Konungurinn skipaði henni að opna, en hún neitaði og kvaðst ekki opna herbergið fyrr en henni væri færðir þeir hlutir, sem hún hefði týnt á leiðinni. „Það er ekkert annað fyrir yður að gera, Jose“, sagði kon- ungurinn. „Þér eruð sá eini, er vilið um þessa hluti og þér verðið því að fara og finna þá. Og ef þér komið án þeirra verð- ið þér hengdur.“ Vesalings Jose varð mjög hryggur, þegar hann heyrði þetta. Hann fór nú á fund hvíta hestsins og sagði honum frá þessu. Hesturinn sagði: „Vertu ekki hræddur. Söðlaðu mig og svo skulum við fara og finna þá.“ — Þeir héldu nú áfram ferðinni uns þeir komu að maurabúinu. „Langar þig ekki til þess að ná korninu?“ spurði hesturinn. — „Jú, sannarlega,“ svaraði Jose. — „Þá skaltu kálla á maurana og biðja þá að færa þér kornið. Og ef þeir geta ekki fundið það, þá munu þeir skila þér aftur brauðinu, sem þú gafst þeim.“ Og þannig fór það. Maurarn- ir, sem voru mjög þakklátir fyrir brauðið, færðu honum kornið. „Þarna sérðu,“ sagði hviti hesturinn, að hver sem gerir góðverk, uppsker fyr eða síðar laun sín fyrir það.“ Næst komu þeir að ánni, sem nú var i vexti og þess vegna mjög gruggug. — „Hvernig á eg að fara að þvi að ná hringn- um upp úr þessari djúpu á, sem er svo kolmórauð, að eg get ekki séð i botn og þar að auki liefi eg ekki liugmynd um, hvar Bella-Flor hefir kastað hringnum ?“ „Vertu ekki áhyggjufullur," svaraði hesturinn. „Kallaðu á fiskinn, sjem þú bjargaðir og hann mun ná honum fyrir þig.“ — Jose gerði það og fiskurinn stakk sér og kom upp aftur með hringinn í munninum og vaggaði hreykinn uggunum, á- nægður yfir því að hafa getað sýnt þakklæti sitt. Að lokum komu þeir að trénu, þar sem vasaklútur Bella-Flor blakti í efstu grein- unum. — „Hvernig get eg náð þessum vasaklút?“ spurði Jose. „Til þess að ná honum myndi eg þurfa að hafa stigann hans .Takobs.“ „Ve'rtu ekki áhyggjufullur,“ sagði hvíti hesturinn. „Iiallaðu á örninn, sem þú bjargaðir úr gildru veiðimannsins og hann mun ná honum fyrir þig.“ — Jose gerði eins og hesturinn sagði honum. Hann kallaði á örninn og hann sótti vasaklút- inn og fékk Jose hann, en þakk- lætið Ijómaði í flugsúg hans, er liann livarf burt. .Tose var ákaflega glaður yf- ir, hve vel þetta hafði gengið og snéri nú heimleiðis til Iiall- arinnar. — En þegar Bella-Flor voru sýndir hlutirnir, þá sagði hún, að hún kæmi ekki út úr herberginu fyr en sá, er hefði rænt henni, hefði verið hrend- ur lifandi, já, steiktur í oliu. Konungurinn var það mikið illmenni, að hann samþykti þetta og sagði við .Tose, að það væri engin önnur leið fyrir liendi, liann yrði að brennast. Jose fór hryggur á fund hvíta liestsins og sagði honum hvað nú stæði fyrir dyrum. „Vertu óhræddur,“ sagði hesturinn, „Nú skaltu söðla mig og hleypa svo hratt að eg löð- ursvitni, og þá skaltu þvo lik- ama þinn upp úr svitanum, og þá mun það ekke'rt saka þig,

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.