Tíminn Sunnudagsblað - 18.03.1962, Qupperneq 8
Torfalækjar-Biörn
dæmdur undir vönd
IX.
Rannsókn Björns sýslumanns Blön-
dals á tildrögum að dauða Ólafs Ingi-
mundarsonar varð löng og ströng.
Hann reið þetta haust um héraðið og
stefndi miklum fjölda vitna. Var mjög
dorgað eftir því, sem Birni á Torfa-
læk mátti til ávirðingar horfa um
breytni. En svo fór, að hann fékk
oftast góðan vitnisburð, ef undan
voru skilin kvennamál hans. Þó var
sumra mál, að honum væri gjarnt til
heitinga, þegar hann reiddist, og á
daginn kom, að hann hefði átt svipt-
ingar við tvo aðra en Ólaf á Torfa-
læk. Var þá leitazt við að draga fram
í dagsljósið, hvort hann hefði ekki
tekið þessa menn kverkatökum í á-
flogunum.
Björn á Torfalæk varðist af mikilli
hörku og synjaði þess jafnan harð-
lega, að hann hefði meira að gert
í áflogunum við Ólaf en hann hafði
þegar sagt, og einkum synjaði hann
þess mjög þverlega, að hann hefði
nokkum tíma tekið um háls hans eða
fyrir kverkar honum. Annað heima-
fólk á Torfalæk vildi ekki neinu auka
við framburð sinn, þótt sumt af því
hvarflaði í smáatriðum frá sumu af
því, sem það hafði áður sagt. En
mjög hlýtur hann að hafa verið ugg-
andi um sinn hag um þessar mundir,
enda margt, sem að steðjaði sam-
tímis.
Prófasturinn á Melstað, séra Hall-
dór Ámundason, kom austur til þess
að jarðsyngja Ólaf, og þegar hann
sneri heim frá jarðarförinni, tók hann
Ástríði, dóttur sína, með sér heim.
Var hún harla treg til fararinnar, en
svo hlaut að vera sem prófasturinn
vildi, og mátti segja, að hann hefði
hana br'ott með sér nauðuga. Um
svipað leyti var á ný tekið að Iýsa
með þeim Holtastaða-Jóhánnl og
Medóníu Guðmundsdóttur, og voru
þau gefin saman litlu síðar. Sjálfur
var Björn settur í varðhald á Hjalta-
bakka. í varðhaldinu hefur hugur
hans vafalaust bæði hvarflað vestur
að Melstað, þar sem Ástríður sat með
nauðung í foreldrahúsum, og að Holta
stöðum, þar sem rammasti óvinur
hans, Jóhann, hvíldi í brúðarörmum.
En það gat verið Birni nokkur hug-
fró, að Holtastaða-Jóhann hafði ekki
tekið við Medóníu konu einsámalli,
því að fundir þeirra Björns vorið
Torfalækjarmál -
3. frásöguþáttur
áður höfðu borið þann ávöxt, að hún
var á steypinn komin. Eftir áramótin
ól hún dóttur, sem skírð var Ingi-
björg og kennd Birni. Það var fjórða
barnið, sem hún hafði eignazt utan
hjónabands. En því fór samt fjarri,
að hún þyrfti svo mjög að blygðast
sín gagnvart bónda sínum Það stóð
r.efnilega svipað á fyrir honurn Sömu
80
T í M I N N
SUNNUDAGSBLAÐ