Tíminn Sunnudagsblað - 18.03.1962, Blaðsíða 20

Tíminn Sunnudagsblað - 18.03.1962, Blaðsíða 20
aðu, litla svefnpurkan þín, klukkan er orðin tíu, og þú ert enn þá í rúminu. Og konurödd rétt við hitt eyra mitt svaraði syfjulega: — Er orðið svona framorðið, ég er svo ægilega þreytt. Eg reyndi í örvæntingu að rifja upp, hvar ég var, hvernig ég hefði komizt þangað og hvað ég hefði verið að gera. En ég var of mikig undir áhrifum vínsins, til þess að ég yrði nokkurs visari. — Ég ætla að draga frá, sagði karlmannsröddin, og um leið varð mér Ijóst, að ég var glataður .... Hönd strauk um hár mitt og ég hrökk i kút. — Hver er þetta? öskraði karl- mannsröddin, skelfingu lostin, og þeg ar ég svaraði ekki einu orði, fékk ég tvö bylmingshögg ofan í hausinn Ég sló aftur, og áður en varði upp- hófust hörkuáflog, sem bárust um allt herbersr:ð c>'o að húsgögnin ultu hvert um annað — Hjálp!, hjálp!, skrækti konan í rúminu. Morð!. þjófar!, hjálp! Þjónar ng samkvæmisgestir drifu að úr öllum áttum. náfölir af ótta, gluggahlerunum var skotið frá, og tjöldin frá og ég stóð augliti til auglitis við Dumoulin fursta! — Ég hafði sofið í herbergi dóttur hans. Og ég, sem hafði ætlað mér að sleppa úr klónum á henni! Það var ekki að- eins að hún hafði talað við mig, dansað við mig, borðað með mér, hún hafði líka sofig hjá mér! Ég flýði ti'I herbergis míns yfir- kominn af reiði og blygðun, lokaði dyrunum og settist á rúmbríkina og reyndi að koma jafnvægi á hugsanir mínar Ég heyrði fólk vera ,að tala saman og hvísla á ganginum fyrir framan. — Hálftíma seinna var barið á dyrnar. — Kom inn!, öskraði ég. Og frændi minn, faðir brúðarinnar kom inn. Hann var eins og liðið lík í framan. — Hvað meinarðu eiginlega með því að haga þér svona? sagði hann. Þú getur náttúrulega haft þína henti- semi, en að láta koma að sér undir svona kringumstæðum! — Þú hefðir átt að fara strax á eftir ... eh. ... ég meina, . þú hefðir ekki átt að sofna í herberginu hjá henni — En það skeði ekkert á milli okkar, æpti ég gremjulega. Ég varð útúrdrukkinn og fór herbergjavillt. Hann yppti öxlum. — Láttu ekki eins og fífl, sagði hann. — En ég sver, það kom ekkert fyrir. — Vertu ekki með þetta þvaður, sagði hann. Og því ákafar sem ég hélt fram sakleysi mínu og reyndi að skýra málið fyrir honum, þeim mun ruglaðri varð hann. Að lokum fór hann út til þess að tala við furst- ann. Þegar hann kom aftur, var svipur hans ákveðinn. — Það er aðeins eitt, sem þú get- ur gert. Þú verður að kvænast stúlk- unni. Ég stökk upp af rúminu, allsgáður. — Nei, það geri ég aldrei!, æpti ég. — Jæja, hvað ætlarðu þá að gera? sagði hann, alvarlega. — Komast burt frá þessum stað. jafnskjótt og ég fæ skóna rnína aftur. — Láttu þér ekki detta aðra eins vitleysu í hug. Er þér ljóst, að furst- inn bíður eftir þér, reiðubúinn tii þess að skjóta þig um leig og hann sér þig? — Hann minntist á einvígi við mig. Hann er svo æstur, að það er þýðingarlaust að ræða við hann. Þetta er sjálfskaparvíti. Þér hefði verið nær að stíga í vænginn við giftar konur eða gleðikonur. Ungar stúlkur eru ekki til að leika sér að. Þú ert búinn að eyðileggja manr.orð stúlkunnar, hvort sem eitthvað hefur átt sér stað eða ekki. — Fjandinn hirði það, ég kvænist henni aldrei, sagði ég. Hann fór, og ég var einn í herberginu. — Næst kom frænka mín. — Elsku drengurinn. Það eina, sem þú getur gert, er að skrifa og biðja um hönd hennar. Þú getur — eða við getum saman — síðar fundið einhverja ástæðu til þess að koma í veg fyrir giftinguna. Konur eru slóttugar .... Auðvit- að fylgdi ég ráðum hennar. Einni stundu síðar var ég lagður af stað til Parísar. Tveim dögum seinna varð ég þess vísari, að bónorðinu hafði verið tek- ig og áður en mér hafði hugkvæmzt einhver ástæða til þess að draga það til baka, hafði gamli furstinn, faðir hcnnar látið lýsa með okkur og ég var tjóðraður við hana það sem eftir var lífsins. Við töluðumst ekki við allt brúðkaupið, og þegar ég loks fór inn í herbergi hennar, kom ég að henni þar, sem hún sat á stól, rauðeygg af gráti. Hún stóð upp, þeg- ar ég kom inn. — Ég hafði ákveðið að senda hana burt, en hún var svo falleg, svo biðjandi og saklaus, að ég gerði hitt í staðinn. Nú hef ég verið kvæntur í fimm ár og aldrei iðrazt þess. — Já, sagði Georg nú. Hjónabönd •eru happdrætti og eru stundum til góðs fyrir einhvern. — Hjónabandið, sagði annar, er uppfundig í himnaríki. — Ja, mjlt var vissulega.uppfundið af guði — guðinum Bakkusi, sagði Pétur og hló. 92 T í M I N N SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.