Tíminn Sunnudagsblað - 18.03.1962, Blaðsíða 10

Tíminn Sunnudagsblað - 18.03.1962, Blaðsíða 10
MARK TWAIN: SAGA UM LITINN OG ÞÆGAN DRENG Það var einu sinni lítill ag þægur drengur, sem hét Jakob Blivens. — Hann hlýddi alltaf foreldrum sínum, alveg sama hversu heimskulegar og vitlausar skipanir þeirra voru, og hann las alltaf lexíurnar sínar og kom aldr'ei of seint í sunnudagaskólann. Hann vildi aldrei skrópa, jafnvel þótt heilbrigð skynsemi segði honum, að það væri það langbezta. Aðrir dreng- ir skildu ekki þennan dreng, af því að hann hagaði sér svo einkennilega: Hann vildi aldrei ljúga, hve hag- kvæmt sem það var. Hann sagði bara, að það væri Ijótt að skrökva og lét þar við sitja. Og hann var svo heið- arlegur og æi'legur, að hann . varð blátt áfram að athlægi. — Jakob var mikið umtalsefni vegna hinnar furðu legu framkomu sinnar. Hann vildi ekki taka þátt í kúluspili á sunnu- dögum, hann vildi ekki ræna fugla- hreiður, hann vildi ekki gefa apa lírukassaspilarans fimmeyringa, sem var áður búið að glóðhita í eldavél: Kann bar sem sagt ekkert skyn á almennilegar skemmtanir. Hinir drengirnir hugleiddu þetta vandamál með sjálfum sér og ræddu um það innbyrðis til þess að reyna að átta sig á honum, en allt kom fyrir ekki; Jakob hélt áfram að vera óskiljan- legur. Það eina, sem þeir höfðu upp úr heilabrotunum var óljóst hugboð um, að hann væri eitthvað „hinseg- in“, og þess vegna tóku þeir hann undir verndarvæng sinn og gættu þess, að ekkert kæmi fyrir hann. Þessi litli og þægi drengur las í bókunum, sem hann hafði í sunnu- dagaskólanum. Það fannst honum bezt af öllu. Og þar liggur hundur- inn grafinn: Hann trúði nefnilega því, sem sagt er um litlu og þægu dreng- ina, sem menn setja í sunnudaga- skólabækurnar. Hann var sannfærður um, að allt, sem skrifað var um þá, væri satt. Hann dreymdi um að hitía slíkan dreng í veruleikanum, þó að ekki væri nema einu sinni, en hon- um varð aldrei að ósk sinni. í hvert sinn sem hann las um einhvern, sem var sérstakiega þægur, flýtti hann sér að fletíá blöðunum og lesa end- . inn — til þess að sjá, hvað yrði um hann — því að hann var reiðubúinn að ferðast þúsund mílur bara til þess að fá að horfa á slíkan dreng •— en það var til einskis, því að þægi dreng- urinn dó alltaf í síðasta kafla. Það var mynd af jarðarförinni og allri fjölskyldunni hans og bömunum í sunnudagaskólanum, sem stóðu hringinn í kringum gröfina, dreng- irnir í buxum, sem voi’u allt of. stutt- ar og stúlkurnar með hettur, sem voru allt of stórar og allir grétu í vasaklútana sína, og það voru vasa- klútar, sem voru meter á kant .... Svona var hann alltaf gabbaður. Hann fékk aldrei að hitta neinn af þessum litlu og þægu drengjum, því að þeir dóu alltaf í síðasta kafla. Það var metnaður Jakobs að kom- ast í sunnudagaskólabók. Hann dreymdi um að sjá þar frásagnir af sjálfum sér með myndum, sem sýndu með hvilikri hreysti hann neitaði að skrökva að mömmu sinni og grát- klökka gleði hennar yfir því, — mynd um, þar sem hann stæði í útidyrunum og rétti fátækri betlikonu með sex börn tuttugu og fimm aura og segði við hana, að hún mætti nota þá til hvers, sem húrí vildi — nema til munaðar, því að munaður er synd, — og myndum, sem sýndu stórlæti hans, þegar hann neitaði að segja til óþæga drengsins, sem sat fyrir hon- um á hverjum degi, þegar hann kom úr skóla og sló hann í höfuðið með reglustiku og rak hann á undan sér, öskrandi hí! hí! hí! Þannig var metnaðlardraumur Jakobs. Hann vildi gjarna komast í sunnudagaskólabók. Öðr'u hverju varð honum hugsað til þess, að litlu og þægu drengirnir dóu alltaf. Hann skildi, að það var ekki hol'lt að vera þægur. Hann vissi, að það var miklu hættulegra en berklar að vera jafn yfirnáttúrulega þægur og drengirnir í sunnudagaskólabókunum. Og hann langaði svo mikið til að lifa. Enginn drengjanna í bókunum hafði lifað verulega lengi, og það olli honum sái'sauka, að ef hann yrði settur í bók, gæti hann aldrei séð bókina, og þó að tækist að gefa út bókina, áður en hálih dæi, hefði hún engin áhriif nema það væri mynd af jarðarför- inni hans á einhverri af síðustu blað- síðunum. Því að hvað var varið í sunnudagaskólabók, sem ekki segði neitt frá því, hvernig þægi drengur- inn áminnti og refsaði öllu þorpinu á banabeði sínum? Með tilliti til þessa varð hann að ákveða að reyna að fá sem mest út úr lífinu, lifa í r'éttlæti og tóra eins lengi og hann gæti og hafa ræðuna, sem hann ætlaði að flytja á banabeðnum tilbúna, þegar hann þyrfti að grípa til hennar. En það var líkt og ekkert ætlaði að lánast fyrir þessum litla og þæga dreng. Það fór aldrei fyrir honum eins og litlu og þægu drengjunum í bókunum: Þeir skemmtu sér alltaf, en óþægu drengirnir fótbrotnuðu. En hvað honum viðkom hlutu að hafa orðið einhver mistök, þvi að það var öfugt: Þegar hann kom að Jim Blake, þar sem hann var að stela eplum og gekk að trénu til þess að lesa yfir honum textann um litla, óþæga dreng inn, sem datt úr tré nábúans og hand- leggsbrotnaði, datt Jim að vísu úr trénu, en hann datt á hann og hand- leggsbraut hann, en Jim sjálfan sak- aði hins vegar ekkert. Það gat Jakob alls ekki skilið. Það var andstætt öllu því, sem stóð í bókunum. Og einu sinni, þegar nokkrir óþægir strákar höfðu ýtt blindum manni í forarvilpu og Jakob kom þjótandi til þess að hjálpa honum á þurrt land aftur og taka á móti blessun hans, blessaði blindi maðurinn hann alls ekki, heldur sló hann í hausinn með stafnum sínum og sagði, að hann skyldi láta vera að hrinda sér og látast svo ætla að hjálpa honum á eftir. Þetta var ekki í samræmi við textann í neinni af bókunum. Jakob sló upp í þeim öllum til þess að full- vissa sig um það. Jakob langaði afskaplega mikið til þess að finna haltan hund, sem ætti hvergi skjól og væri hungraður og ofsóttur', fara með hann heim og klappa honum og taka á móti eilífu þakklæti hundsins í staðinn. Að lok- um tókst honum að finna svoleiðis hund og varð frá sér numinn af gleði, tók hann heim með sér og gaf honum að éta, en þegar hann svo ætlaði að klappa hundinum, rauk hann á hann og reif öll fötin lians, nema að fram- an, svo að hann varö 6ér til skamm- ar frammi fyrir fðlki. Hann fletti upp í bókunum, en fann ekkert, sem 82 TÍMINN — SUNNUDAGSBLAÐ I

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.