Tíminn Sunnudagsblað - 31.03.1963, Síða 11
StakkahlíS i LoðmundarfirSi.H ér ólst Baldvln Trausti upp. Þar búa nú bróðlr hans, systir og mágur. (Liósm.: Páll Jánsson).
Seyðisfirði. Það kemur bátur til
okkar með vissu millibili með vörur
og annað, sem við þörfnumst. — í
gamla daga var miklu erfiðara um að-
drætti, því að þá urðu menn í Loð-
snundarfirði að verzla við Eskifjörð.
En síðar drógu menn sig á árum til
Seyðisfjarðar, og það gat bæði verið
áhættusamt og erfitt.
— Stundið þið ekki útræði?
— Það var gert áður; þegar fjörð-
urinn var í blómlegri byggð, en þeg-
ar mönnum fækkaði, lagðist útræði
niður að mestu. Það er erfið lend-
ing hjá okkur, farið út um ósa árinn-
ar, sem fellur í fjörðinn, en hann
hefur breytzt svo mikið á undanförn-
um árum, að hann er ófær nema á
Mflæði, þegar sjór er lítill. Nýlega
var steyptur bryggjukantur á klöpp,
þar sem vélbátar geta lagzt að í blíð-
viðri. Það kemur stöku sinnum selur
í ósinn, og við skjótum einn og einn-
Svo er þarna æðarvarp, sem við höf-
um alltaf nýtt, þótt ekki gefi það mik
ið af sér. Og þá eru hlunnjndin upp
talin.
— En hvernig er með biksteininn?
— Eg veit. ekkert um það. Jarð-
fræðingar segja, að það sé nóg af
honum. Erlendir og innlendir menn
hafa verið að koma úr öllum áttum
og rannsaka hann siðan skömmu fyx-
ir stríð, en meira hefur ekki úr því
orðið. Hann er á stóru svæði, byrjar
að verða vart við hann niður undir sjó
og nær hann allt upp tU fjalla. Manni
virðist, að það þyrfti ekki mikinn til-
ikostnað til að nýta hann, en ég hef
auðvitað ekkert vit á því.
— Til hvens er hann notaður, þessi
biksteinn?
— Hann er víst talinn eitt bezta
einangrunarefni, sem til er, bæði
gagnvart hita og kulda og einnig
hljóði. Svo hefur hann þann kost, að
hann er ólífrænn, og þess vegna hafa
mölur og önnur meindýr ekki lífsað-
stöðu í honum.
— Þú gætir orðið milljónamær-
ingur, ef farið væri að nýta hann.
— Ég hef nú ekki lifað í þeirri
von fram að þessu, og er áreiðanlega
ekki fæddur til að verða ríkur, eins
og maðurinn sagði.
— Hvað gera menn sér annars til
skemmtunar á svona stöðum?
— Menn dunda við sitt og rabba
saman þess á milli um heima og
geima. Það er líkt og annars staðar í
sveitum, sem ekki eru í þjóðbraut,
að maður verður að hafa ofan af fyrir
sér með þeim ráðum, sem tiltæk eru,
en ekki sökkva sér niður í leiðindi og
einmanaleika. Það er fyrir mestu að
gera sér greim fyrir þvi, sem maður
hefur og sætta sig við það, en leiða
hugann frá því, sem maður hefur
ekki. — Verst er þó með útvarpið.
Það heyrist svo skrambi illa í því
stundum, þrátt fyrir endurvarps-
stöðina á Eiðum. Erlendar stöðvar eru
Framhald á 310. síSu.
SéS heim aS Sævarenda, þar sem Baldvin Trausti býr. — Skyidi þetta býll |
verSa merkt meS krossi á íslandskortum komandi áratuga?
2991
T í M I N N — SUNNUDAGSBL AÐ