Tíminn Sunnudagsblað - 14.04.1963, Blaðsíða 12

Tíminn Sunnudagsblað - 14.04.1963, Blaðsíða 12
1 f ' : - Göturnar eru heitar af sól, torgin björt, svo sker í augu, áður en fólkið fer til vinnu árla morguns, flæðir og fyllir göturnar. Helsinki er í miðri önn eftirmálanna. Á öllum verkstæðum er unnið í vaktaskiptum, hvers manns búðardyr standa á gátt og stéttaköffin tjalda rauðu. En það er rótarbragð að gervikaffinu. Eimur af byggbxuggi og tjörutóbaki blandast þef af heitu malbiki og stybbu af kolsýringssótun gömlu leigubílanna. Hljómsveit götunnar leikur ótónvíst lag, hamrar atónalt slagverk í taktleysu við undirleik finnskunnar, sem róleg dregur sinn fiðluboga í moll milli hvítra húsa höfuðborgar- innar. Götusalar smjúga mannþröngina með trog og hjólastóia og draga seiminn: „Invalidakonst, invalidakonst, tíu þúsund fóta- lausa menn vantar vinnu, invalidakonst handa túristum. Ralevala, Kalevala — við seljum sög- una okkar til að hengja um hálsinn, við seljum grafdjásnin okkar í lyklakippum". Og blaðsölustrákarnir upphefja söng sinn úr yfirskriftum blaðanna, kyrja í löngum lotum og TIL VINSTRI: Mynd- vefur 1960 eftir Lallu Karttunen. A8 ofan: Antependlum. — Lltla •myndin á 348. síðu: Armband frá Sááks- máki, elzta frumsmíð þessarar gerðar, er fundizt hefur, talið 1300—1400 ára. — Á 349. síðu: Hálsmen, skreytt gamalfinnsku hnútamynztri, Hannu- merkinu heiðna. 348 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.