Tíminn Sunnudagsblað - 28.04.1963, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 28.04.1963, Blaðsíða 4
Burt frá Reykjavík. — LeiðLn liggur upp í Miðdal eftir bugðóttum vegi. Víðs vegar liggja stuttir vegarspottar út frá honum eins og greinar á tré, enda allt í einu upp úr þurru hjá steinsteyptum- plötum á melhólum. Þessar steinplötur væru manni jafn óskiljanlegar og vegarspottarnir, ef maður vissi ekki, að eitt sinn var ís- land hernumið. Þetta eru Leifarnar frá hermennsku Breta og Bandarikja- manna á íslandi á stríðsárunum: — Fánýtir vegarspottar og braggagrunn ar, sem spilla útsýninu og vekja með manni tómlega ógeðstilfinningu. — Áfram liggur vegurinn og að baki; Miðdalur blasir við utan í há- um ási með glampandi Hafravatn í baksýn, Úlfarsfell og Esjuna. Slétt tún niður undan bænum, framræstar mýrar . . . íslenzk sveit svona stutt frá Reykjavík útlandsins, — ótrúlegt en satt. Fjórir hundar koma þjótandi á móti bílnum. Þrír lágvaxnir og stutt- fættir, sá fjórði loðinn, skozkur á svip. Tryggvi Einarsson, bóndinn í Miðdal, hastar á þá, segir: — Ég tala ekki við þig nema þú skoðir trén hjá mér. Svo göngum við niður í kvos stutt frá bænum, þar sem tveir sumarbústaðir standa. Þeir Sveinn og Haukur, bræður Tryggva, eiga þá. Einn bróðirinn enn, Guðmundur Ein- arsson myndhöggvari, á sumarbústað lengia niður með veginum. — Lækur liðast um kvosina og hefur augastað á Hafravatni. Hér stóð kornmyllan hans afa míns, segir Tryggvi. Hann malaði korn fyrir austanbændurna- Hún stóð enn, þegar ég var strákur, en löngu hætt að mala, því að afi hætti búskap 1890. Það var líf og fjör við lækinn hér þá. Menn komu með korn, mylluvængirnir snérust, og konur þvoðu þvott við lækinn milli þess, sem þær hjálpuðu til við möl- unjna. Sumir sjá þær enn þá krjúp- andi við lækinn með þvottinn á stein- unum. — Sérðu þessi tré þarna. Þau eru orðin jafn há símastaurum, vant- ar bara gildleikann. Hann Helgi Sæm hefði átt að standa við þau og snúa réttum enda fram. Við höfum verið að gera tilraunir hér, bræð- urnir, og nú getum við farið að gróðursetja af fullum krafti. Þegar við snúum heim á leið, berst talið að stríðsárunum. Herinn var hér allt í kringum bæinn: — Já, þeir færðu sig alltaf nær og nær bænum, segir Tryggvi. Svo ætluðu þeir að byrja að byggja á holtinu fyrir ofan túnið. Þá fór ég að svipast um eftir vopni. Ég varð að finna eitthvert vopn, sem dygði á þá, því að sjálfir voru þeir með alvæpni. Ég sá, að þeir voru þannig byggðir aftan fyrir, Bretarnir, að steypuskófla væri bezta vopnið gegn þeim. Þeir voru þá komnir með tinda, hæla og drasl upp á holtið, en ég rak þá á flótta með steypuskóflunni. Þeir miðuðu á mig rifflunum, en ég fékkst ekkert um það. Svona voru okkar viðskipti. Það þýddi ekki annað en vera harður, annars hefðu þeir vaðið um allt. Þeir skildu alltaf, hvað ég meinti, þegar ég kom með steypuskófLuna. Einu sinni komu á móti mér 5—6 riffil- menn, miðuðu á mig og skipuðu mér að stíga upp á bílpall. Ég gerði. það þeim til hæfis. En uppi á pallinum kippti ég rifflinum af einum her- mannanna. Ég ætlaði með því að sýna þeim, að ég vildi vera vopnaður eins 364 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.