Tíminn Sunnudagsblað - 28.04.1963, Blaðsíða 7

Tíminn Sunnudagsblað - 28.04.1963, Blaðsíða 7
Hér kemur Tryggvl af grenl með góðan feng — refahión og sex yrðlinga. hætt a5 geta stokMð. Þegar við kom- um að svokölluðum Borgarhólum snerumst við um klettabrún, sem þar er, án þess að ég gæti komið á hana skoti. Þessu fór fram um hríð, þar til hún stökk fram af klettabrúninnl. Ég skellti mér á eftir henni niður brekkuna og dró fljótt á hana, og þarna skaut ég hana á fullri ferð á skíðunum og allt lá — tófan, ég og byssan. Ég hafði ekki fundið til mik- illar þreytu meðan á eltingarleikn- um stóð, en þegar spenningurinn var búinn og tófan dauð, var ég svo ör- magna, að ég gat ekki lyft fæti nema með því að taka undir hann með höndunum. — Heldurðu, að það sé ekki ofsög- um sagt af klókindum refanna? — Nei, þeir eru sumir klókir. Það er líkt og sumir þeirra séu gæddir sjötta skilningarvitinu. Guðmundur Einarsson refaskytta hefur skýrt iþetta aukaskilningarvit í bókinnl sininii. Stundum kemur fyrir, að steinsofandi refúr vakntar og lítur beint á mamin, jafnvel þótt hann hafi hvorki getað heyrt í manni eða fundið lykt af man.ni. Það er líkt og hann verði sér skyndil'ega meðvitandi um hættuna, og verði samstundis Ijóst, hvar hún er. Engu líkara er en hann fái skeyti frá hugs- un veiðimannstns. — Þannig virtist vera með erfiðasta ref, sem ég hef átt við. Við Haildór heitinn, sonur minn, náðum læðunni og yrðlingun- um eftir tvo sólarhringa. f fjórar nætur hafði rebbinn elt mig og svar- að köllum mfnum, en ég komst aldrei í færi við hann. Við byrjuðum að fást við hann norðaustur af Lykla- felli, en hann svaraði alltaf sunnan undir Húsmúla. Ég hafði fengið lánag an riffil með kíki, því að engin von var að komast í færi við hann með haglabysunini. Við Halldór höfðum unnið svo mikið saman á grenjum, að orð okkar í milli voru óþörf. Við vissum alltaf hvað vakti fyrir hinum. Við vorum alveg eins klæddir, svo að refurinn þekkti okkur ekki I sundur, og hélt, að aðeins væri um einn mann að ræða. En hainn vissi alltaf, hvar Halldór var. Að lokum höguðum við því þann'ig, að Halldór leggst dálítið fyrir vestan grenið við stein í lágri brekkubrún. Ég kalla á refinn og læt hann elta mig, geng síðan að Halldóri og fleygi mér niður við steininn. Hann stendur jafnskjótt upp og held- ur förinni áfram. Þetta varaðist rebbl ekki og hélt, að Halldór væri ég. Síð- an hef ég byssuna tilbúna og ætla að skjóta hann um leið og hann ber fyrir í dauðafæri. En um leið og hann komur í sjónmál, skellir hann sér niður. Hann gat hvorki hafa séð mig né fundið lykt af mér vegna vind- áttarinnar. Þag var engu líkara en hann hefði fengið straum frá mér og skynjað hættuna samstundis. — Ég bíð með byssuna reiðubúna. Hann lætur ékki á sér kræla lengi vel, en fer svo að gægjast, leggur eyrun alveg niður, svo aðeins sést í blá- kollinn á honum. En um leið og ég hækka mig, lækkar hann sig. Þannig gengur þetta góða stund. Svo fer hon- um að leiðast þófið, lyftir sér svo h'átt að ég sé aðeins í briniguna á honum, auðséð, að hann er í þann vegimin að taka ákvörðun. Mér tekst að miða. Skotið ríður af, og kúlan rann eftir honum endilöngum og kom út hjá skottinu. Hann var á þremur fótum þessi refur, fjórða löppin var brotin og stóð beint fram. Þag kom heim við það, að grenjaskytta hafði sært ref á fæti, en missti hann. Var hann kallaður Tjamhólamóri og byrj- aði að bíta óvenjulega snemma. Snjóflóð sneið sundur hesthúsið — Hvar heldurðu, að mest sé af refum í þínu umdæmi? — í Reykjavík. Ég fór einu sinnl í Heiðmörk og fann greni rétt ofan vig fjölskyldu í sólbaði. Við skutum þar grenlægju og fjóra yrðlinga. Þeg- ar við komum af greninu, var orðið fundarfært í Heiðmörkinni. Fólk hafði safniazt saman og úthúðaði helvítis mönnunum, sem væru að skjóta fuglana! Ég labbaði til þess með grenlægjuna í hendinni. Þá kom annað hljóð í strokkinn: — „Guð minn almáttugur og börnin alveg hjá refabúinu". T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 367

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.