Tíminn Sunnudagsblað - 28.04.1963, Blaðsíða 5

Tíminn Sunnudagsblað - 28.04.1963, Blaðsíða 5
Hér voru einu sinni jarðgöng, allt trá neðstu brún myndarlnnar og áfram inn undir berglagið á miðri myndinni, hátt á annað hundrað metra. Göngin voru skemmd, þegar menn fóru að vinna kvarz á þessum stað til húsbygginga. Bærinn efst til hægri á myndinni er Þormóðsdalur. — Guðjón Einarsson tók myndirnar í þessari opnu. og þeir. Þeini féll þetta ekki seni bezt, en ég sleppti ekki rifflinum. Þá börSu þeir í bíihúsið. Bíllinn. stanz- aði og yfirmaðurinn sté út. Þegar Ihann sá mig með riffilinn, 'S’agði hanm, að það væri bezt ég færi. Þeir voru víst dauðfegnir að losna við mig, þegar ég afhenti riffilinn og labbaði burt. íslendingar miða á augað Eftir þetta fóru þeir að verða taugaóstyrkij- gagnvart byssunum mínum. Sumar þeirra voru af tegund- um, sem þeir höfðu aldrei séð áður. Þeir virtust vera hræddastir við fjár- toyssuna mína. Ég varð var við, að þeir höfðu farið inn í bæinn, þegar enginn var heima og hróflað við byssunum. Svo komu til mín foringj- ar og spurðu mig, hvort ég þyrfti að hafa þessa byssu og benti á fjár- toyssuna. Já, sagði ég, — ég drep með þessu skepnur og menn, ef með þarf. Þeir efuðust um, að ég gæti drepið menn með henni nema á fárra faðma færi. En ég lét drýgindalega yfir því. Svo settumst við á bæjartröppurnar — ég með byssuna í hendinni — og töluðum saman. Þar í nokkurri fjar- lægð var gamall bílgeymir. Skyndi- lega hóf ég byssuna og skaut að geym inum, þóttist heppinn, ef ég hitti hann. Á geyminum var gómstór, há- rauður blettur, og svo furðulega viidi til, að skotið fór beint í gegnum blett- inn. Foringjarnir virtu fyrir sér blett nn og urðu hljóðr við. Ég var hinn elskulegasti og bauð þeim upp á kaffi. Undir borðum spurðu þeir mig, svona í hálfgildings gamni, hvar ís- lendingar miðuðu á mann, þegar þeir ætluðu að drepa hann. íslend- ingar miða alltaf á augað, svo að skotið fer út um hnakkann, sagði ég. Þeir skotruðu augunum hvor til annars, undirfurðulegir á svipinn, þökkuðu fyrir sig og fóru. — Seinna vldu þeir fá mig til að skjóta fyrir sig aftur, en ég vildi ekki hætta skot- heiðri mínum. Einhverju sinni var það, að mikil hnuplalda greip um sig meðal hermannanna. Þeir stálu öllu steini léttara og skemmdu bílinn minn í þokkabót. Ég hafði skilið bíl- inn eftir hérna fyrir ofan túnskotið og tvo kolapoka í honum. Þegar ég fór að gæta að honum, voru pok- arnir horfnir, O'g búið var að taka hamarinn úr bílnum og stinga gat á vatnskassann. Ég varð öskuvondur, þegar ég sá þetta og kenndi Bretun- um strax um það, — ég var svo van- ur að lcenna þeim alla þjófnaði. Vega iögreglan kom og rannsakaði bílinn, en þeim faninst ótrúlegt, að her- menn hefðu verið hér að verki: Til hvers ættu þeir að nota kolin? spurðu þeir. En ég stóð á því íastara fót- unum, að hermennimir hefðu stolið pokunum og skemmt bíliun. Þá fóru þeir að leita. Skammt norðan við tún- ið sátu tveir dátar á drasli og neit- uðu að standa upp af því. Lögreglu- mennirnir þrifu til skammbyssnanna. Þá voru þeir fljótir á fætur, og kola- pokarnir komu í ljós. Næst snéri ég mér til herstjórnarinnar á Lauga- vegi 16 og krafðist skaðabóta. For- inginn þar veitti mér ádrátt um að skrifa til herstjórnarinnar í London, — svarið kæmi kannski eftir tvo eða þrjá mánuði eða ár. En ég mátti ekki vera bíllaus og sló í borðið hjá for- ingjanum, svo að allt dansaði þar fyrir framan hann. Hann sá þá, að án bílsins gat ég ekki verið og sagði mér að leigja bíl á sinn reikning. Síðan fékk ég bíl og bílstjóra á Litlu bílastöðinni, og hafði þá hjá mér uppi í Miðdal í tvo daga. Kúlnahrið á jóladag En á þriðja degi bar það við, að enskur korporal á bandarískum her- jeppa — Bandaríkjamenn voru þá að koma — kom til mín með einhver lifandis ósköp af dóti, sem búið var að stela frá mér, sumt, sem ég hafði ekki hugmynd um að væri horfið, naglbítar, hakar og rekur. Hann sagðist skyldu koma með hamar og nýjan vatnskassa daginn eftir. En hann lét ekki sjá sig þá. Ég hafði •sett á mig númer jeppans og fór nú til herstjórnarinnar í bænum og sagði þeim frá þessu. Þeir urðu ófrýnilegir á svipinn og sögðu, að þetta hlyti allt að vera misskilningur hjá mér; enski lierinn hafi engan jeppa í sinni þjón- ustu. Heimtuðu þeir, að ég endur- greiddi kostnaðinn af bílnum og bíl- T í M I N N — SUNNUDAGSBLAD 365

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.