Tíminn Sunnudagsblað - 12.05.1963, Qupperneq 11
í taumana meg tollum sínum og skött-
um. Flestar stjórnir hafa hækkað toll-
ana. Ég þekki hvergi til, þar sem óá-
fengt öl er jafn hátollað og hér. —
En mér varð strax Ijóst, að það varð
að duga eða drepast. Ég var skuldug-
ur og fannst ósæmilegt ag hlaupa
frá skuldunum. Það var því ekki um
annað að ræða en halda áfram, þótt
maður gæti ekki oft látið mikið eftir
sjálfum sér.
— En hvenær komst verulegur
skriður á ölgerðina?
— Hún varð umfangsmeiri, þegar
ég eignaðist lóð á Njálsgötu 21. Þar
byggði ég tveggja hæða steinhús fyrir
ölgerðina o.g flutti hana þangað 1917.
Þetta hús er notað enn þá fyrir af-
tappingssal og kjallari þess fyrir
geymslu á öli. 1924 byggð'i ég nýtt
lagerhús og 1929 nýtt suðuhús. — Ég
var eini stofnandinn og eigandinn að
öLgerðinni til 1932. 1930 hafði verið
stofnuð ölgerðin Þór inni vig Rauðar-
árstíg. Hún framleiddi bæði öl og gos
drykki, en ölgerðin mín var einnig
farin að framleiða gosdrykki um þ'etta
leyti, því að ég hafði keypt gosdrykkja
gerðina Síríus. Ölgerðin Þór náði aldr
ei verulegri fótfestu á markaðnum.
og það fór svo, að Ölgerðin Egill
Skalla-Grímsson yfirtók hana og varð
þá um leið hlutafélag. Ég var eftir
sem áður forstjóri hennar og stærsti
hluthafinn. Eftir 1930 framleiddum
við ntargs konar gosdrykki. — Það
eru alltaf sífelldar breytingar á gos-
drykkjamarkaðnum, því að smekkur-
inn breytist frá einum tíma til ann-
ars. Áður voru sítrónu-, jarðaberja-
og hindberjalímonaði, aðalgosdrykk-
irnir. Ávaxtadrykkirnir komu ekki
fyrr en síðar. Þag var 1930, sem við
fengum fyrsta bílinn okkar. Þá fór-
Framhald á bls. 429.
í suðuhúsinu í ölgerSinni. Þessi pottur tekur um 5000 Htra, í honum blandast
lögurinn.
T I M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ
419