Tíminn Sunnudagsblað - 12.05.1963, Blaðsíða 19

Tíminn Sunnudagsblað - 12.05.1963, Blaðsíða 19
FATLAÐUR MAÐUR I GONGUM Veturinn 1926 varð ég fyrir því að fá meinsemd í vinstra hné, með þeim afleiðingum að gera varð á mér staurfót. Átti ég í þessu í tvö ár og var mest í sjúkrahúsi. Þegar ég var að mestu orðinn góður, var ég að komast á þann aldurinn, að ég varð að hugsa um framtíðina. En hvað gat örkumla maður gert? Jú, reynt að læra einhverja handiðn. En hvert stefndi hugurinn? Það var óráffin gáta, eins og títt er hjá unglingum. Mér fannst sjórinn kalla, en hvað átti ég þangað að gera, fatlaður mað- ur, enda margir um hvert pláss, sem losnaði. Einhver hvíslaði því að mér, að gott væri fyrir mig að læra skó- smiði. Braut ég heilann um það lengi vel, hvort ég ætti að fara út á þá braut, og komst að þeirri niffurstöðu, aff það væri sama, hvað það væri, sem ég lærði, ef ég gæti á annað borff séff fyrir mér og þyrfti ekki að vera upp á aðra kominn. Og ákvað ég að fara ag leita fyrir mér, og þaff er skemmst frá að segja, að ekki einn einasti skósmiður i allri Reykjavík taldi það fært að taka nema, því að útlitið væri svo slæmt á því herrans ári 1929. Hvaff var nú til bjargar? Reyna eitthvag annað. Með einhverjum hætti gat ég safnað fimm krónum, og setti auglýsingu í Visi og Morgun- blaðið í því skyni að reyna að komast aff einhverju handverki, en allt án nokkurs árangurs. Nú fannst mér syrta í álinn. Þá var hvergi hjálp að fá, engar trygg- ingar og enginn félagsskapur fyrir fatlaða. Fór óg nú að reyna að stunda eyrarvinnu og var við það veturinn 1929—1930. Fékk ég dag og dag, ef mannekla var, sem þó var sjaldan. Kom það ekki ósjaldan fyrir, er ég bað am vinnu, aff svarið var: ,.Ég hef nóga óhalta menn“. Vi ■ því engin furða, þótt ég væri s\ ;' -.n á framtíðina. Oft lá við, að ég missti kjarkinn og gæfi allt upp á bátinn. En þá var það um vorið 1930, að ég réffist vinnumaður vestur á Mýrar að Grímsstöðum í Álftanes- hreppi hjá Tómasi Hallgrímssyni. Nú birti yfir hug mínum, því að ég var kominn burtu frá þeim, sem oftast minntu mig á, að ég var ekki gjaldgengur á vi'nnumarkaðinum. Á jólaföstunni 1934 fór ég ásamt Pétri Þorbergssyni í Syðri-Hraundal í eftirleit. Var það siffur, að tveir ■menm voru sendir inn. í fjall eftir veturnætur að hyggja að, hvort eftir- legukindur væru þar. Voru þetta skil, sem voru lögð á, og kom þaö alltaf niffur á búunum í Hraundal og Gríms- stöðum að láta menn í þessa leit. En nú er þessi leit lögff niður fyrir nokkr um árum. Var það venja, að haga svo til, að fullt tungl væri og hreinviðri, því ag ekki var á dagsbirtuna að treysta. Þetta umrædda haust voru sífeldir umhleypingar, svo að aldrei gaf í fjallið. En í fyrstu viku jóla- föstu setti hann niffur talsverðan snjd og birti til með nokkru frosti. Þá var það einn dag, að Pétur kom suður að Grímsstöðum og vildi nú grípa tæki- færið og nota veður og birtu, því að nú var tungl fullt, en ekki góð færð, því að snjórinn lá jafnfallinn yfir allt. Því var talsverð hætta á vondu veðri ef hvessti, — þá var óðar kominn blindbylur. Nú var úr vöndu aff ráffa. Húsbóndinn ekki heima og enginn karlmaður nema íatlaður maður. — Spurffi Pétur mig, hvort ég vildi koma með sér, og ég var þess albúinn, enda upp á mitt bezta, 21 árs og ófyrirleitinn og hafði farið í flestar haustleitir síðan 1931. En fyrsta haustið hafði ég ekki verig tekinn gildur. Bjó ég mig nú út með nesti og nýja skó og lagði á Molda gamla. Síðan fór ég út að Hraundal um kvöldíð til þess að geta sofið lengur, því að þaff var ákveðið að fara snemma af stað, svo ag viff yrðum komnir á kindaslóð, þegar sauðljóst yrði. Lagt var upp klukkan tæplega þrjú um nóttina. Var þá stafalogn og glans andi tunglsbirta, en mikiff frost. Var nú stigið á bak og haldið inn í fjall, en ekki var hægt að ríffa lengi, því að kuldi sótti á mann. Fór ég að naga mig í handarbökin fyrir að taka ekki heldur skíðin mín en klárinn, því aff snjór var aldrei minni en í hné. En hvað um það, vig mjökuðumst þetta hægt og rólega og hvíldum okkur öðru hvoru á klárunum, en gengum, þegar kuldi sótti á okkur. Við kom- um inn að fjallhúsi klukkan rúmlega sjö, fengum okkur bita og bræddum snjó til þess aff. hita okkur kaffisopa. Eftir skamma dvöl í fjallhúsinu var var haldið áfram inn að Múlabrekku. Þar ætluðum við aðá skilja klárana eftir. Þegar þangað kom, sprettum við af þeim, en vorum ekki sammála um, hvort hefta skyldi þá eða ekki. Vildi ég hefta klárana, en Pétur taldi þaff óþarft, því að þeir mundu ekki hreyfa sig í svona miklum snjó. Skild- um við eftir þær flíkur, sem við töld- um okkur ekki þurfa, því að ekki var nein veðurbreytíng sjáanleg, enda hafði veðurstofan spáð stilltu veðri, en harffnandi frosti. Reyndist sú spá rétt. Er við skildum við klárana, var orðiff albjart. Héldum við upp á há- Langavatnsmúla, sem leið liggur. — Þótt móðurmálið sé þjált og orffgnótt þess mikil, þá varð maður orðlaus yfir þeirri kyrrð og egurð, sem blasti við, er viff komum upp á Langavatnsmúla, hún gleymist aldrei. Ekkert rauf kyrrðina nema marrið undan fótum okkar. Ekki sást á dökkan díl og ekkert líf. Ekki einu sinni snjótittl- ingur, hvað þá rjúpa. Og hrafninn hefur vitað, að ekkert var td fanga imni á öræfum og því ekki Iagt leið sína þangaff. Einu merkin eftir lifandi veru voru spor eftir lágfótu, sem lagt hefur leið sína þarna inn í þeirri von, að einhver sauðkindin væri svo sauðheimsk að vera að flækjast inn í fjalli um þetta leyti árs. Nú var sólin komin upp og gerði þá ofsalega snjóbirtu, svo ag við vorum nálega blindir. Stönzuðum við td þess að skyggnast ura, en allt virtist ronna í eina heild. Vissum við fikki fyrr en við vorum komnir á fljúgandi ferð niður í gil eitt, sem er í Langávatns- múla að sunnanvárðu, rétt við vatns- endann. Skipti það engum togum, að við vórum komnir ofan í dúnmjúkan snjó. Við sáum strax í hverju það lá, að við álpuffumst niffur í gilið. Ástæðan einíaldlega sú, að vegna snjóbirtu tórim við of nærri gil- barminum, og nýsnævi, fem lá oi'an á harðfen ainu, sprakk undan fótum okkar, svo að við fengum fyrirhafnar- litla ferð niður gilið. En það var ekki eins gott að komast upp úr því. Við urðum að höggva okkur spor með broddstöíunum okkar til þess að geta komizt upp. Héldum við svo sem leið liggur inn í Hafradal. En það er dal- ur, sem liggur vestur frá Langavatns- dal. En ekkert kvikt var þar aff sjá, og engiri merki þess, að kind- ur hefðu þar veriff. En vissara þótti okkur að fara inn í Fossdal, sem er inni undir leitarmörkum Álfthrepp inga og Hörðdæla. Ekki urffum við nems varir þar, og var nú haldið til baka aftur. Lögðum við nú leiff okk- ar niður Langavatnsdalinn og ætluff- um að létta okkur ferðina með því að ganga eftir Langavatni, því að v'ð HANS MEYVANTSSON: T í M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ 427

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.