Tíminn Sunnudagsblað - 26.05.1963, Blaðsíða 12

Tíminn Sunnudagsblað - 26.05.1963, Blaðsíða 12
SPJALL UM HÍVITSMENN OG GALDRAMENN Einar Bogason frá Hringsdal (Ljósm.: TÍMINN.—GE). byggð og mannmargt. 1 Selárdal var prestssetur, og þótti þar eitthvert bezta og arðvænlegasta brauð á Vest- fjörðum. Selárdalsprestar voru löng- um auðsælir, og sóttust þangað ein- att höfð'ingjar í prestastétt. Grund- völlur þeirrar velgengni var að sjálf- sögðu sjórinn. Útræði var mikið frá Selárdal og öðrum dölum hrepps- ins, og aflabrögð oft góð. Ketildælir voru miklu fremur sjómenn en bænd- ur, þótt þeir bæru bændaheiti og stunduðu alltaf nokkurn búskap með fram. Sjósóknin var þeirra aðalstarf og sá liður lífsbaráttunnar, sem þeir lögðu mest kapp á, enda arðvænlegri en hokrið. Einkum var útgerðin tekju lind Selárdalskirkju, en hún átti sam kvæmt máldögum tíunda hvern. síval- an fisk, sem á land barst á landar- eign hennar. Og Selárdalskirkja átti mikið land í Dölum. Nú er hins vegar svo komið, að Ketildalir eru að mestu komnir í eyði. Enginn prestur situr nú lengur í Selárdal, þar sem Páll Björnsson hinn lærði samdi rit sín gegn galdra- mönnum og öðru hyski djöfulsins, fyrir réttum þremur öldum. í öllum hreppnum er nú aðeins byggð á fjór- um bæjum, en 1945 voru þar 21 býli. Og ekkert er líklegra en að enn eigi eftir að fækka mannabústöðum í Dölum. Það var ekki sízt til að fregna eitt- hvað um þessa gömlu sveit, sem nú er að hverfa á vald gleymskunnar, að ég fór fyrir nokkru og hitti að máli Einar Bogason frá Hringsdal. Einar er maður mörgum kunnur, fjölfróð- ur um menn og atburði, hefur skrif- að allmargar greinar um ýmis mál- efni og gefið út kennslubækur með nýstárlegu sniði, stærðfræðileg for- múluljóð, landfræðilegar minnisvís- ur og stafsetningarvísur. Hann er fæddur og uppalinn í Hringsdal, stundaði nám í Möðruvallaskóla, en tók síðan við búi á föðurleifð sinni, FRÁ KETILDÖLUM OG MÖÐRUVÚLLUM Keíildalaht eppur liggur á vest- urströnd utanverðs ArnarfjarS ar. Hreppurinn nær frá Gelti, sem er klettur á fjörunum milli Bíldudals og Hvestu, og að Kálfa- dalsá utan við Krossadal í Tálkna firði. Byggðir hafa verið í hreppn um sex dalir sem allir liggja í suðvestur upp frá firðinum, og heita þeir, talið að innan: Hvestu dalur, Hringsdalur, Bakkadalur, Austmannsdalur, Fífustaðadalur og Selárdalur, sem er yzta byggð í hreppnum. Áður fyrr var í Ketildölum mikil Ifringsdal. Þar bjó hann góðu búi um fjóra áratugi, ásamt konu sinni, Sigrúnu Bjarnadóttur. Með henni átti Einar 8 börn, 7 dætur og 1 son. Árið 1944 brá hann búi og fluttist til Keykjavíkur. Einar er maður ern vel, réttur í baki og rjóður í kinnum, og það skyldi enginn ætla, sem sér hann, að hann verði 83 ára um næstu áramót. En svo segja nú 468 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAfi

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.