Tíminn Sunnudagsblað - 02.06.1963, Side 8

Tíminn Sunnudagsblað - 02.06.1963, Side 8
Sé8 helm aS EiSum. Bráð eru ve'ðrabrigði, segir gamalt spakmæli, og víst er um það, að oft hefur það skeð á landi hér, að svo skjótt hefur um veður skipt, að veg- farandi, sem að heiman lagði í hinu bezta veðri og átt'i aðeins skamma ltíð að fara, náði ekki til áfangastaðar, vegna þess að á leiðinni gerði slíkt foraðsveður, að honum tókst ekki að halda réttri stefnu, en hraktist vill- ur vegar þar til hann annaðhvort komst — stundum af einskærri til- viljun — einhvers staðar til húsa, eða þá að hann hlaut að kveðja þenn an heim einn og hjálparvana í hríð og óveðrum. — Sem betur fór er í þess- ari frásögn eigi um slíka hríðargöngu að ræða, heldur villu, sem endaði með því, að fundin var hin rétta leið, en sú villa gat vel hlotið annan og verri endi. Veturinn 1927—1928 var ég nem- andi í l.bekk alþýðuskólans á Eiðum á Fljótsdalshéraði. Ég átti hins veg- ar heima hjá foreldrum mínum á Úlfsstöðum f Eoðmundarfirði, en þar bjuggu þau búskapartíð sína alla. •— Loðmundarfjörður er næsta sveit við Eiðaþinghá og má fara ýmsar fjalla- leiðir milli sveitanna. En sú leið, sem gre:ðfærust er og jafnaðarlegast far- in, liggur um heiði er Tó nefnist. Gengur heiði þessi upp úr botni Loð- mundarfjarðar, eða öllu heldur upp úr dal, sem liggur inn af Loðmundar- firði og nefnist Bárðarstaðadalur. Er hamraklif mikið fyrir botni dalsins, (Ljósmynd: Páll Jónsson). Á YZTU NÖF allhátt og liggur um það einstigi upp á heiðina. Þegar upp á klifið kemur, tekur heiðin strax við. Er hún mikið til slétt yfirferðar, urðir og ölduhrygg ir. Þótt allmikil umferð væri fyrr á árum um heiði þessa, hefur aldrei ver ið ruddur yfir hana vegur. Þeir einu götuslóðar, sem þar sjást á stöku stað, eru troðningar eftir fé og hesta. — Þótt gróður sé lítill á Tó, hefur jafn an runnið mikið af fé um hana, þar sem fé Eiðaþinghæinga hefur löng- um sótt mjög í sumarhaga niður 1 Loðmundarfjörð. En þar eru afréttir sérlega góðar, gróðurríkar og kjarn- miklar. Tó getur ekki talizt langur fjall- vegur, aðeins fjögurra til fimm tíma gangur bæja í milli, þegar auð er jörð eða gönguleiði gott. Hins vegar get- ur hún verið viðsjáll fjallvegur í hríð ardimmu og snjó, þar sem hvort tveggja er, að af henni er hætta á að geta villzt til ýmissa átta, þar sem flatneskjur, lágir hálsar og urðahrygg ir liggja út frá henni í austur, suður og vestur, og auk þess er hamrabelti það, sem áður er áminnzt, að liggi fyrir botni Bárðarstaðadals, hættu- legt í myrkri og óveðrum, þar sem hvergi er hægt að komast niður það nema á einum stað, en í dimmviðr- um og fannfergi getur verið erfitt að hitta á þann stað, en auðgert hins vegar að ganga fram af hömrunum, hvar sem er, ef hvergi sér fyrir fæt- ur fram. Og sú ganga myndi í flest- um tilfellum nægja hverjum manni að aldurtila, eða verra en það. — í klifi því, sem farið er um gegnum hamrabeltið, er auk þess oft á vetr- um hætta á snjóflóðum; leggur þar að auki oft hið versta harðfenni. — Hægt er að komast af Tó niður í Loð mundarfjörð með því að fara suður fyrir enda hamrabeltisins, og liggja þá brattar urðabrekkur og hjallar niður af heiðinni ofan í svonefnt Árnastaðafjall. Er sú leið oftast far- in á vetrum, sé um hættur af snjó að ræða í Klifunum, en þessi leið er Iengri og getur auk þess brugðizt að ná henni, sé um hríð og dimmu að ræða. Það hefur jafnan verið venja Eiða- nema, sem nemenda annarra skóla að fara heim til sín í jólaleyfi, sé um skamma leið að ræða, eða auðgert að komast. — Þar sem ég átti svo stutta leið að fara, ákvað ég að bregða mér heim um jólin. Vissi ég og, að heima var þess vænzt, að ég kæmi En ég var einn nemenda úr Loð- mundarfirði, og var því ekki um sam fylgd við neinn að ræða. Síðla í nóvem ber og í byrjun desembermánaðar gengu hríðar austur þar dögum sam- an. Kyngdi þá niður allmiklum snjó bæði um Úthérað og nyrðri hluía Austfjarða. Um eða undir miðjan desember hlýnaði í veðri nokkra daga og þiðnaði snjór þá töluvert i byggð, en hins vegar var allt á kafi í fönn, er upp dró til fjalla. Og dagana fyrir 488 TÍMIN N — SUNNUDAGSBLA0

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.