Tíminn Sunnudagsblað - 02.06.1963, Blaðsíða 21

Tíminn Sunnudagsblað - 02.06.1963, Blaðsíða 21
FOR YSTUSA UÐURINN ROKKUR Bergsteinn Kristjánsson liefur látið bla'ðið hafa nokkrar frá- sögur af mönnum og dýrum, sem munu birtast öðru hvoru undir samtitlinum: „Frá mönn- um og dýrum“. — Hér birtist hin fyrsta þeirra: Helgir dagar og staðii- er eitt af því, sem mennirmr hafa fram yfir dýrin. Þessir helgu staðir og helgu stundir hafa löngum haft mikil áhrif á sálarlíf manna og lyft hug- um þeirra upp yfir strit og þras hinna virku daga,- Staðir og stundir helgast af orðum og verkum manna og örlaga- ríkum atburðum í sögu lands og þjóðar, og oftast fá staðirn- ir nafn í því sambandi, þvi að landslag yrði lítils virði, ef það héti ekki neitt“, eins og skáldið sagði. Þeir menn, sem hafa á hendi stjórn lands og þjóðar, hafa oft mikil áhrif á dagíegt líf fólksins í landinu með boðum sínum og bönnum. Jafnvel ein ákvörðun þeirra getur valdið algerum straumhvörfum í lífi manna og dýra. Svo var það, þegar Alþingi á- kvað að friða umhverfi Þingvalla, ems helgasta staðár þjóðarinnar, fyrir ágangi sauðfjár. Þingvellir eru víðfrægir fyrir fagurt og sér- kennilegt landslag, og mikill fjöldi listamanna hefur sótt þangað fagr- ar myndir, bæði í litum, ljóðum og lausu máti. Eina af þeim smærri þessara mynda hlustaði ég á í útvarpi fyrir stuttu. Þar var með hlýjum orðum sagt frá Jónasi, bóndanum í Hrauntúni, sem átti kúna trygglyndu, sem aldrei vildi sjá af mjaltakonunni, og fylgdi henni síðast til Þingvalla, er hún hvarf frá Hrauntúni, en sögumað- urinn var dóttir konunnar, sem var með í förinni, þá níu ára göm- ul. Hún sagði líka frá háttum bóndans, góðlyndi hans, nærgætni við menn og dýr og hógværð í framgöngu. Hann stundaði rjúpna veiðar stundum á veturna, en það þótti sögúmanni einkennilegt, að þá fór hann jafnan upp í fjöll, þótt mikið af rjúpu væri að vappa heimundir bæ, enda voru þær svo spakar, að oft mátti sjá þær á vor- in í fararbroddi 10—12 unga heim við túngarð. Sá túngarður var mik- ið mannvirki, tvíhlaðinn úr hraun- grjóti, mannhæðar hár, og tók það bóndann sjö ár að hlaða hann um- hverfis túnið. Jónas átti margt og fallegt sauðfé, enda sauðfjárbeit- in í Þingvallahrauni og skógum orðlögð um Suðurland. Eftir að ég hafði hlustað á frá- sögn konunnar, langaði mig að stækka þessa búskaparmynd úr Þingvallahrauni. Ég fór því á fund Halldórs, sonar Jónasar í Ilraun- túni, sem einnig bjó þar um skeið. Hann hefur oft og lengi dvalið úti í náttúrunni sumarlangt, meðal annars í Hvítárnesi við Kjalveg sumrin 1036—’39. Þar kjmntist hánn háttum sauðfjárins, þar sem það gengur sjálfala fjarri manna- byggðum, án afskipta manna og hunda. Hann minnist hlýlega veru sinnar í Hrauntúni, fyrst sem ung- mennis í foreldrahúsum og síðar sem bónda. Hann segir, að svo hafi verið hagsælt í Hrauntúni, að komið hafi fyrir, að lömb hafi ekki verið hýst vetrarlangt, og þrifizt þó vel. Ein sérkennileg sauðkind er honum ferskust í minni af því, hve hún skar sig úr fjöldanum í háttum sínum. Þessi sauðkind var hvítur sauður, sem Jónas hafði keypt af vinnumanni í Skógarkoti. Fyrri eigandinn hafði gert sér það til gamans að venja á honum horn- in, svo að hann þekktist betur írá öðrum kindum, og auk þess hafði hann gefib honum bjöllu, sem vakti drjúga athygli á honum, hvar sem hann fór. Hann hafði líka gefið honum nafnið Rokkur, og bar hann það til æviloka. En ekkert af þessu hefði nægt Rokk til frægðar, því að þetta mátti öll- um sauðum gera, sem ekki áttu aðra frægðarvon en þá að vera með fallþunga, sem væri nær 70 en 60 pundum, þegar. þeir væru allir. En er Rokkur kom í nýju vist- ina, varð þess fljótt vart, að hann hafði forystuhæfdeika. Hann sást oft standa á hraunhólum og horfa yfir sauðahjörðina eins og liðsfor- ingi yfir stríðsfólk sitt. En því mátti alltaf treysta, ef veður versn aði eða færð spilltist, var hann jafn an kominn í fararbroddi heim til húsa í tæka tíð, og allir sauðirnir hlýddu forystu hans og forsjá. Eitt slíkra tilfella er Halldóri þó minnisstæðast. Það hafði kyngt niður óvenju miklum snjó í logni, svo að mjög var torfært um hag- ana, og segir Halldór, að nágrann- arnir í Skógarkoli hafi verið í tvo daga að tína saman fé sitt og koma því til húsa. En þegar þeir Hraun- túnsmenn fóru að huga a-ð sínu fé, mættu þeir því, þar sem það var komið hálfa leið áleiðis til húsa. Var Rokkur í fararbroddi. Tróð brautina og hringdi bjöllu sinni, en allir sauðirnir gengu í braut hans í samfelldri lest. Með þessum og öðrum tiltektum vann Rokkur sér miklar vinsældir. Þótt sauðunum væri vanalega fargað 3—4 vetra, var Rokk ekki fargað fyrr en hann var 14 vetra, svo mik- ils þótti verð forysta hans, en þá var hann orðinn rýr og ellimóðúr. Þetta er litil mynd frá einu af þeim þremur sauðfjárbúum, sem lögð voru niður við stofnun þjóð- garðsins. vekja hjá honum nýja hugmynd. Hugdettan er þrásækin: Losnar harin við sambýlið, ef yrðlingarn- ir verða fjarlægðir? Það ætti að reynast auðvelt að ganga frá þeim vanburða aumingjum við hentugt tækifæri. Dagarnir eru hlýir, sól skín á heiðum himni. Mjúkur andvari fer um skógiinn. Vatnið er blátt og spegilslétt, meyrar og sundur- lausar ísspangir rekur suður til út- fallsins. Gamii greiíinginn ráfar um og gefur refahjónunum hornauga. Rebbi læðist út í skóginn. Læðan hlynnir að yrðlingunum. Þegar hann lætur til skarar skríða, verð- ur hann að mæta henni. Hann undirbýr áhlaupið, leggur af stað inn eftir göngunum. Læðan verður þess vör, að hann er nálægur, rís á fætur og býst um á varðstöðu. Hættan er yfir- vofandi. Greifinginn er kominn á fleygi- ferð, hleypur á tófuna, svo að hún hrökklast frá bælinu og steypir stömpum. Hann glefsar til yrðling- anna, tilræðið geigar. Móðirin ræðst á hann í trylltri örvæntingu. Greifinginn er uggandi um leiks- lok, grípur þó eimn yrðlinginn í kjaftinn og leitar útgöngu. Læðain hangir í honum, urrar og skrækir T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.