Tíminn Sunnudagsblað - 02.06.1963, Qupperneq 18
\
nafði Kepler sett fram ýkjufulla hugs-
mynd um linsu. Hann hugsaði sér að
hún væri fullkomið brennigler, sem
myndi safna öllum samsíða geislum
nákvæmlega í einn og sama punkt.
Franski heimspekingurinn Decartes
tók þessa hugmynd þegar upp á sína
arma og áleit, að hið fullkomna
brennigler hlyti einnig að vera full-
komin linsa. Hann bjó til, ásamt þeim
Mydorge og tækjasmiðnum Ferrier
— linsu, sem safnaði sólargeislunum
raunverulega einmitt eins og Decart-
es háfði reiknað með. Hann hélt nú
til Hollands, fullur bjartsýni eftir
þennan árangur til þess að koma í
framkvæmd stórkostlegri þriggja ára
áætlun. Hann skrifaði Ferrier og
■sagði, að hann skyldi koma til Hol-
lands með tækið,' án 'vitundar Mydor-
ges. — Deeartes hafði leigt höll og
ráðið til sín kokk, sem gat eldað
franSkan mat. Hann sagði hins veg-
ar, að Ferrier skyldi hafa með sér
rúmið sitt, því að hollenzk rúm væru
hryllileg. f þessari afskekktu höll
skyldu þeir búa saman eins og bræður
í þrjú ár, snæða við sama borð og
smíða ótruflaðir furðusjónauka, sem
væri sterkari en fram til þessa hefði
þekkzt. — „Kannski get ég með
yðar hjálp, komizt að því, hvort dýr
eru til á tunglinu", sagði Decartes að
lokum, eftir að hann hafði lýst með
mörgum orðum hinum fjárhagslega
ávinningi, sem Ferrier hlyti við smíði
sjónaukans. — En Ferrier kom ekki.
Decartes varð að láta sér nægja að
setja fram fræðilega lýsingu á kíki
sínum og sætta sig við að hafa ekki
séð ný fyrirbrigði á tunglinu, þegar
hann gaf út rit sitt „Dioptrique" 1637.
Verurnar á tunglinu voru líklega of
fjarlægar til þess að mögulegt væri
að greina þær — jafnvel með hinum
sterkasta kíki; en það var hins vegar
ef til vill hugsanlegt að fara til tungls
ins og litast þar um, — kannski gætu
líka tunglfuglamir flogið tll jarðar-
innar?
Margir létu sér detta slíkt í hug
og gleyptu í sig metsölubók Francis
Godwins um „Manninn í mánanum"
og ferðina þangað. Þessi bók Godwins
seldist einstaklega vel og kom út l
fjölda útgáfa á mörgum tungumálum.
— En við skulum halda okkur vlð
498
T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ